Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
11
Blöðrudagur ITC
Lítum til lofts og leyfum blöðrum
að blakta
Í tilefni af 50 ára afmæli ITC
25. júní munu félagar ITC á íslandi
safnast saman víðs vegar um landið
og sleppa blöðrum upp í loftið. Fé-
lagar um heim allan munu koma
saman á sínum heimaslóðum og
sleppa blöðrum. Með þessu vilja
þeir fagna 50 ára afmæli samtak-
anna um leið og þeir vilja minna
alheim á markmið sín, heit og
stefnu, sem er: „Við í ITC heitum
því að afla okkur þjálfunar ti for-
ystu og bæta tjáningu okkar í orði,
í þeirri von, að með bættum sam-
skiptum takist okkur að efla skiln-
ing manna á meðal um víða veröld.“
Stefna samtakanna er: Þroski
fijálsrar og opinskárrar umræðu,
án fordóma um nokkurt málefni,
hvort sem er stjómmálalegs, félags-
legs, hagfræðilegs, kynþáttalegs
eða trúarlegs eðlis. Kjörorð samtak-
anna er. Sýnum hug okkar til móð-
urmálsins með því að rækta málfar-
ið og styrkja tungutakið.
Hvað er ITC? ITC er skammstöf-
un fyrir orðin „Intemational Train-
ing in Communication", en það er
alþjóðlegur félagsskapur, stofnaður
í Bandaríkjunum 1938, af Emestine
White. Á þeim tíma fannst henni
nauðsynlegt að bæta hæfileika
kvenna til eðlilegra samskipta, og
læra að tjá sig viturlega, til þess
að vera í forystu á heimilinu, í sveit-
arfélaginu og í þjóðfélaginu._ Þessi
samtök hafa starfað hér á íslandi
í 15 ár, undir nafninu „Málfreyjur",
en þar sem samtökin em nú einnig
opin karlmönnum hefur nafninu
verið breytt og verður skammstöf-
unin ITC notuð framvegis.
Við viljum minna á það sem Em-
estine White sagði: Heimur batn-
andi fer fyrir þá sem vilja það, og
stíga skref til að svo megi verða.
Deildir á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu munu safnast saman á Arnar-
hóli kl. 13.30 í dag, laugardag.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Frá brautskráningu kennaraefna í Háteigskirkju. Jónas Pálsson,
rektor Kennaraháskólans afhendir einum nemanda prófskírteini en
í ræðustól er Ólafur Proppé, kennslustjóri.
Kennaraháskóli íslands:
Grunnur tek-
inn að nýju
barnaheimili
HAFIST verður handa í sumar um
byggingu nýs barnaheimilis á Si-
glufirði. Eins og sagt hefur verið
frá í blaðinu var barnaheimilinu,
sem nú er í hálfrar aldar gömlu
steinhúsi, nýlega lokað í nokkra
daga vegna skordýrafaraldurs.
Að sögn bæjarstjórans á Siglu-
firði, ísaks Ólafssonar, verður tekinn
gmnnur og plata að nýju bamaheim-
ili í sumar og hafa teikningar húss-
ins verið samþykktar af byggingar-
og skipulagsnefnd bæjarins. Það
mun rísa við Hvanneyrarbraut, á
austanverðu Bretatúni skammt frá
gamla bamaheimilinu, og verður að
líkindum tekið í notkun eftir tvö til
þrjú ár.
Fyrstu nemendurnir ljúka
námi í sérkennslufræðum
BRAUTSKRANING kennara í
grunn- og framhaldsnámi við
Kennaraháskólann fór fram i
Háteigskirkju 11. júní síðastliðinn.
Að þessu sinni brautskráðust 86
Minjar og saga:
Magnús Magnússon flytur er-
indi um Jórvíkurævintýrið
FÉLAGIÐ MINJAR og saga var stofnað hinn 3. maí sl. Það er félag
áhugamanna um varðveislu og rannsóknir menningarminja og mun
leitast við að styðja Þjóðminjasafnið í því mikla starfi sem fyrir
höndum er við endurskipulagningu og viðreisn þess. Fyrsti almenni
fundur i félaginu var haldinn 26. mai sl. í Þjóðminjasafni og var
efni hans endurbygging Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju.
Næsti fundur verður haldinn
sunnudaginn 26. júní 1988 kl. 17
í Norræna húsinu. Þar mun rithöf-
undurinn og sjónvarpsmaðurinn
Magnús Magnússon halda erindi
um Jórvíkurævintýrið eða eins og
hann nefnir það: The York Experi-
ence. Á tímabilinu 1976—1981
grófu fomleifafræðingar úr jörðu
hluta af víkingaaldarbænum Jórvík,
sem víkingar hertóku 866, og sem
átti sitt blómaskeið á 10. öld og var
ein mesta verslunarborg í Evrópu.
Þar hefur verið endurbyggð eftirlík-
ing af daglegu umhverfi og lífi
manna og þar er ennfremur varð-
veittur hluti af uppgreftrinum sjálf-
um, sem eftirlíkingin byggir á og
komið hefur verið fyrir fastasýn-
ingu á um fimm hundrað markverð-
ustu mununum, sem þar fundust.
Ekki er að efa, að marga muni fysa
að hlýða á Magnús Magnússon
skýra frá því hvaða starfsemi fer
fram í Jórvík og hvemig tekist hef-
ur að gera víkingaaldarbæinn ljós-
Magnús Magnússon
lifandi fyrir nútímafólki.
(Fréttatilkynning)
kennarar með B.Ed.-prófi, 18 með
B.A.-prófi í sérkennslufræðum, 26
með kennsluréttindi við fram-
haldsskóla og 1 lauk réttindanámi
grunnskólakennara samkvæmt
lögum um embættisgengi. Um
síðustu áramót hófst réttindanám
fyrir leiðbeinendur í skólum og
innrituðust 100 manns í námið.
Það byggist á ákvæðum i lögum
um lögverndun starfsheitis kenn-
ara frá 1987. Stutt námskeið eru
haldin í Kennaraháskólanum én
að öðru leyti byggir námið á fjar-
kennslu.
Framhaldsnám í sérkennslu-
fræðum hófst sem fastur þáttur í
starfi skólans haustið 1985 og
voru nú brautskráðir frá skólan-
um fyrstu nemendumir með B.A.-
próf í sérkennslufræðum. Sér-
kennslunám hefur verið að hluta
til á Austurlandi og byijar á Akur-
eyri sumarið 1989.
Nám fyrir verkmenntakennara í
framhaldsskólum var starfrækt með
svipuðu sniði og undanfarin ár, segir
í frétt frá skólanum. Námið er ætlað
starfandi kennurum og dreifist á tvö
skólaár. Kennsla hefur farið fram í
Reykjavík og á Akureyri, en næsta
haust verður einnig hafin kennsla í
Vestmannaeyjum. Þá segir í fréttinni
að þessi tilhögun sé í samræmi við
þá stefnu Kennaraháskólans, að vera
miðstöð kennaramenntunar og reka
áfanga og hlutanám úti á landi eftir
því sem þörf krefur og aðstæður
leyfa.
í ræðu sinni við brautskráninguna
gerði rektor, Jónas Pálsson, m.a.
grein fyrir því nýmæli, sem tekið
hefur verið upp, að boða alla umsækj-
endur um skólavist til viðtals og sagði
að slíkt hefði tíðkast lengi í grannl-
öndum okkar. Með því gæfist nem-
endum betri kostur á að glöggva sig
á hverra kosta þeir eiga völ um nám
og starf og þannig ykjust líkur á að
val þeirra á starfsmenntun sé raun-
hæft og leiði til farsældar.
Að lokum gat rektor þess að hin
nýja löggjöf um Kennaraháskólann
sem samþykkt var á síðasta þingi,
markaði tímamót í sögu skólans.
Helstu nýmæli eru þau að Kennara-
háskólinn fær heimild til að annast
framhaldsmenntun fyrir kennara,
einkum á sviði uppeldis- og kennslu-
fræða, til hærri prófgráðu en B.Ed.-
eða B.A.-gráðu. Þá er kveðið á um
að aukna áherslu skuli leggja á
símenntun og endurmenntun kenn-
ara og ákvæði er um að lengja alr
menna kennaranámið í íjögur ár úr
þremur.
Við skólaslitin bárust skólanum
margar gjafír. Má þar nefna að 50
ára kennarar gáfu ágóða af heildar-
útgáfu kvæða Freysteins Gunnars-
sonar skólastjóra Kennaraskólans,
og 40 ára kennarar gáfu vandaða
bókagjöf.
Við athöfnina söng kór skólans
undir stjóm Jóns K. Einarssonar,
söngstjóra.
FRA STUÐNINGSMONNUM
YIGDÍSAR FINNBOGADÓTTUR
A kjördag, laugardaginn 25. júní, höfum við skrifstofur til aðstoðar kjósendum sem hér segir:
Aðalskrifstofa Suðurlandsbraut 14.
Kosningastjóm og kosningasjóður, sími 31236.
Kjörskrá og upplýsingar um kjörstaði,
sími 681200 (6 línur).
Bílaskrifstofa, sími 38600 (5 línur) og 84060.
Skrifstofa Garðastræti 17.
Samband við kjördæmi utan Reykjavíkur.
Kosningasjóður.
Bílasknfstofa
Símar 11651,17765,17823,17985,18829,18874.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ SEM FLESTA OG HVETJIÐ ÞÁ TIL AÐ KJÓSA
MÆTUM ÖLL Á KJÖRSTAÐ
X- Vigdís Finnbogadóttir.