Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 Bjarni Ólafsson skrifar frá Holstebro, Danmörku Jótlandsskagi II Mannlíf í myndum Náttúruskoðun dregur marga norður á Skagann. Hvítir sandar, hólar, melgras og ýmis harðger heiðagróður, fuglalíf og fegurð víðáttunnar þar sem hafið sýnist óendanlegt. Þeir sem heyrt hafa eða lesið um fólkið sem bjó á Skaganum á síðastliðinni öld og fram á okkar öld, koma þó vafalaust fremur til að forvitnast um sögu þessa fólks, um lífsbaráttu þess og til að skoða myndimar sem segja frá lífi þess. Þetta er saga fátæks fólks, fólks sem lét sér nægja nauman skammt. Stöku sinnum rak eitthvað á fjör- ur svo sem timbur og annað nýti- legt til húsagerðar, dyraumbúnað, bekki, stóla, jafnvel glugga. Að ekki sé talað um matarglaðning frá strönduðum skipum. Yfírvald á staðnum hafði umsjón með reka og strandgróssi og hélt uppboð þegar með þurfti. Á fyrri hluta síðustu aldar tó'c að verða hægfara breyting þama norðurfrá. Þangað taka að koma listamenn, rithöfundar, skáld og málarar. Ung hjón, Ane og Erik Bröndum, kaupmaður og kráareig- andi, tóku að reka gisti- og veit- ingastað á Skaganum. Þau voru foreldrar Önnu Ancher, sem talin er meðal kunnustu Skagamálar- anna 1859 til 1935. Michael Anc- her, 1849 til 1927, var eiginmaður Önnu. Hann fæddist á Borgundar- hólmi en kom að loknu námi í Kaup- mannahöfn, norður á Skaga 14. júlí-1874 í fylgd með skólabróður Bjarni Ólafsson „Þeir sem heyrt hafa eða lesið um fóikið sem bjó á skaganum á síðastliðinni öld og fram á okkar öld, koma þó vafalaust fremur til að forvitnast um sögu þessa fólks, um lífsbar- áttu þess og til að skoða myndirnar sem segja frá lífi þess. Þetta er saga fátæks fólks, fólks sem lét sér nægja nau- man skammt.“ og félaga, Karli Madsen, 1855 til 1938. Þetta sumar vann 15 ára gömul dóttir gestgjafahjónanna, Anna, við að ganga um beina á veitingahús- inu. Um haustið var Michael Anc- her boðið til fermingarhátíðar Önnu. Hann var sá eini af málurun- um sem ekki var farinn. Michael hélt ræðu í veislunni og óskaði frö- ken Önnu allrar hugsanlegrar ham- ingju og gæfu bæði í lífí og á lista- brautinni. Vafalaust hefur hann á þeirri stundu verið grunlaus um að þarna var hann að árna konuefni sínu allrar hugsanlegrar hamingju. Karl Madsen var búinn að kenna Önnu fyrstu skrefin á myndlistar- brautinni. Karl var forstöðumaður Listasafnsins þar, 1928 til 1938. Á undan þessum málurum sóttu þang- að myndefni, t.d. Martinus Rörbye, sem kom þrítugur norður á Skaga 1833, hann dó 1848. Julius Exner kom þangað 1867. Holger Drach- mann, málari og skáld, 1846 til 1908, kom þangað fyrsta sinni 1871. }Jm þetta leyti tekur að myndast á Skaganum listamannanýlenda, einkum á sumrin, en margir þeirra settust þar að og bjuggu allt árið á Skaganum. Viggo Johansen, 1851 til 1935, kom fyrst þangað í fylgd með vini sínum Michael Ancher 1875. Hann var mikill teiknari og eru margar teikningar og málverk eftir hann á Skagasafninu. Hann trúlofaðist stúlku þarna, Mörtu Möller en hún var systir unnustu Karls. Þær voru Það varð hversdagslegt að sjá málara að störfum. frænkur Önnu Ancher. Martha var oft fyrirmynd á myndum manns síns, bæði ein og ásamt börnum þeirra. Svona komu þeir hver eftir annan listamennimir, sumir aðeins eitt sumar, aðrir aftur og aftur, dan- skir, norskir og sænskir. Georg Brandes var þar einnig stundum. í byijun júlímánaðar 1882 kom þangað Peder Severin Kröyer, 1851 til 1909. Hann var vel menntaður frá listaakademíunni í Kaupmanna- höfn, Léon Bonnat í París og hafði dvalið í Bretagne, Madrid, í Anda- lúsíu, Flórens, Rómaborg og í róm- önskum fjallabæjum. { Vínarborg hitti hann Önnu og Michael Ancher sem hvöttu hann til að fara norður á Skaga. Það gerði P.S. Kröyer sannarlega. Með festu og óvenju- legri atorku málaði hann allt suma- rið. Hann hélt áfram að mála á Skaganum og settist þar að síðar. Þann 7. maí 1889 skrifar Kröyer frá París: „Ung stúlka sem ég hefi kynnst hér í vetur, hefur lofað að verða konan mín. Hún er yndisleg- asta og elskulegasta stúlka sem gengur um á þessari jörð, já, ég hlýt að vera eftirlæti hamingjunn- ar.“ Eiginkona P.S. Kröyers var María Triepcke, 1867 til 1940. María var einnig myndlistarmaður. Hún dáði myndir Severins mikið og hætti að mestu að mála eftir að þau giftu sig, 23. júlí 1899. Saga þeirra varð lituð sorglegum skuggum. Þau eignuðust eina dóttur, Vibeke f. 1895. En María varð ástfangin af tónskáldinu Hugo Alfvén sem var UM RÓSIR I í dag og næstu tvo laugar- daga (þ.e. 2. og 9. júlí nk.) verður í Blómi vikunnar fjallað um RÓSIR. Kristján Jóhannes- son í Garðabæ, sem skrifar þessa pistla, á að baki mikla reynslu í ræktun rósa innan- húss og er fróður vel á því sviði. Væntanlega munu leið- beiningar Kristjáns hvetja les- endur til að rækta þessa eðlu jurt, sem einatt er nefnd „drottning blómanna“. 1. í hugum flestra er ró_s fagurt blóm og oft ilmandi. Á okkar slóðum eru takmörk fyr- ir árangri í ræktun þeirra utan- húss, en í gróðurhúsi og jafn- vel í köldum gróðurskála má ná ágætum árangri í rósarækt- un. Höfundur hefur ekki mikla reynslu af ræktun rósa utan- húss — og miðast því það sem hér er sett á blað við ræktun þeirra í húsi. Gróðurhúsi ætti að velja bjartan og skjólgóðan stað. Jarðvegur á að vera blanda af mómold, leir og sandi — ásamt þó nokkru af gömlum húsdýraáburði. Áður en moldin er sett í húsið ætti að blanda öllu vel saman og sigta hana ef hún er kekkjótt. Moldin á að vera létt og loftmikil, en loða þó saman ef kreist er í hnefa. Ræktun í gróðurhúsi er dæmd til að mistakast ef ekki er tryggt gott frárennsli. Oftast er auðveldasta leiðin til þess, að grafa niður á möl, leggja nokkra jafnstóra steina á mölina og þekja með gra- storfi. Slíkur frágangur trygg- ir að aldrei verður of blautt í húsinu. Terós. Troika. Terós. Korlift. Jarðvegur á að vera minnst 60 sm djúpur, því rætur rósa leita djúpt. Ef húsið er upphit- að þurfa veggir að vera ein- angraðir niður fyrir frostmörk. Besti tími til að planta rós- um í gróðurhús og frostlausa gróðurskála er í desember, jan- úar og febrúar. Gallinn er þó sá, að rósir eru ekki fáanlegar hér á landi á þessum tíma, nema þær séu sérstaklega pantaðar. En hvenær sem þær eru nú settar niður þarf að vanda vel til þess verks. Hafi rótin þornað er gott að leggja hana í leirblandið vatn. Ræ- tumar á að klippa til, þannig að þær verði nokkurnveginn jafnlangar og rúmist vel í hol- unni án þess að beygja þær. Ef rósin er grædd á rót af annari rós — sem oftast er — á ágræðslustaðurinn að vera við yfirborð jarðvegs, því frá honum er rósinni eðlilegast að endurnýjast síðsumars, með einum eða fleiri nýjum sprot- um. Á vetram má hlífa ágræðslustaðnum og hreykja mold að rósinni. Ef rósir era ræktaðar utanhúss þarf að planta það djúpt að ágræðslu- staðurinn verði 10 sm undir yfirborði. Til að rósir nái góðum þroska og verði gróskumiklar, er betra að sjá svo um að þær þroski ekki mjög mörg blóm á fyrsta ári. Best er að láta sér nægja að sjá aðeins blómlit þeirra, en fjarlægja annars alla blómknúppa. Þetta á fyrst og fremst við um rósir, sem settar era niður í maí og júní, — eins og algengast er hér á landi. Rósir, sem settar era niður í desember, geta að skaðlausu borið blóm á næsta sumri. Fvrh.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.