Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 24

Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 Frá Þórsmörk. Velkomin í Varðarferð eftir Höskuld Jónsson Sumarferð Varðar er að þessu sinni laugardaginn 2. júlí. För er heitið í Þórsmörk. Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 8 og er þýðing- armikið að þátttakendur mæti fyr- ir brottfarartíma þar sem nokkra stund tekur að koma fólki fyrir í bifreiðunum. Um mörg undanfarin ár hefur Vörður hvatt menn til sumraferð- ar. Ferðir Varðar hafa jafnan ver- ið vel sóttar enda mátt ganga að því vísu að þær væru vel skipulagð- ar og lægju um landsvæði sem aldrei væru of oft litin augum. Ferð úr Reykjavík í Þórsmörk gef- ur gullið tækifæri til upprifjunar ömefna í fögrum fjallahring og sköpunarsögu landsins. Hér getur að líta mögnuðustu eldfjöll Islands og mestu hraun. Jarðhitasvæði og sjávarberg langt inni í landi. Við förum um sveitir „bleikra akra“ og fagurra hlíða og áfangastaður okkar er Þórsmörk, bústaður sólskríkjunnar hans Þorsteins Erl- ingssonar og vettvangur ævintýra hennar Maríu hans Sigurðar Þór- arinssonar. Eins og áður sagði leggjum við af stað kl. 8 frá Valhöll og höldum sem leið liggur austur fyrir fja.ll. Um leið og farið er fram hjá Hvera- gerði er rétt að riija upp nokkur atriði úr sögu þessa byggðarlags frá því þar risu mannvirki fyrir tæpum 90 árum og geta þess brautryðjendastarfs sem þarna hefur verið unnið við ylrækt. Þegar kemur austur að Ingólfsfjalli er rétt að lita til fjallsins og skoða malamámur sem þar hafa lengi verið. Á kafla hefur allt laust hru- nið frá bergi og við blasa sjávar- hamrar uppi í fjallshlíðinni. Þetta segir sína sögu. Við ökum um Selfoss þar sem snyrtimennskan virðist ná inn í hvert hom og garð- ar svo grónir að götur íbúðar- hverfanna fá á sig suðrænan svip. Hér gefst tækifæri til að fjalla um „Munið að vera vel búin og hafa með ykkur regnföt jafnvel þótt veðurútlit kunni að vera gott. Hafið með ykkur nesti og munið að við skiljum aldrei rusl eftir á áningarstöð- um, ekki einu sinni vindlingastubba, tappa eða dósaflipa.“ Mjólkurbú Flóamanna, merkisfyr- irtæki á sviði landbúnaðar og iðn- aðar. Og nokkru austar förum við yfir einn áveituskurð Flóaáveit- unnar og rifjum upp sögu þess ótrúlega stórvirkis sem unnið var í Flóa og á Skeiðum fyrir manns- aldri. Af og til sjáum við hraunnib- bur standa upp úr sverði og sum- staðar hraunfláka. Þetta er Þjórs- árhraunið er rann skömmu eftir lok ísaldar. Upptök þess voru inn við Veiðivötn en rennsli þess náði til sjávar. Þetta er talið mesta hraun jarðar sem runnið hefur í einu gosi. Þjórsá fylgir austurjaðri Þjórs- árhraunsins. Nú tekur Rangár- vallasýsla við, vettvangur stórat- burða Njáls sögu og vettvangur margra alda stríðs þrautseigra íbúa við sandstorma og stórfljót. Hella er áningarstaður. Hver og einn þátttakandi nestar sig sjálfur að heiman en við ætlum að setjast saman að kaffidrykkju á sléttlendi skammt fyrir neðan veg. Við velj- um þarna aðeins í 20 mínútur og getum svona milli sopanna virt fyrir okkur bæjarstæðið á Ægiss- íðu sem er handan árinnar. Þar eru hellar gerðir af mönnum og hinir forvitnilegustu. Um leið og við kveðjum Hellu rifjum við upp sögu þorpsins. Leiðin milli Hellu og Hvolsvaliar liggur að mestu um grónar grund- ir. Fyrir fáum áratugum mátti stundum líta sandskafla á þessari leið jafnvel svo mikla að vegur varð ófær. Nú birtast býlin úr Njálssögu hvert af öðru. Kirkju- bær, Völlur, Stórólfshvoll og vegv- ísar benda til Odda og í Landeyjar til Bergþórshvols. Um sögu Hvol- svallar ijöllum við þegar leið okkar liggur í gegnum þorpið. Áfram er ferð haldið austur að Markarfljótsbrú. Farið er yfir Þverá, Áffall og Ála, skaðræðis- vötn samkvæmt þeirri landafræði sem ég lærði. Nú er Þveráin sviplít- il bergvatnsá og hin vötnin vart merkjanleg. Markarfljót stendur undir nafni. Þeir stórkostlegu vamargarðar sem settir voru fyrir tæpum 60 árum halda enn og brú- in yfir Markarfljót sem reist var 1934 hefur staðið af sér öll áföll. Þegar komið er yfir brúna er beygt til vinstri og stefnt til óbyggða. Merkurbæirnir eru á hægri hönd — Syðstamörk, Miðmörk og Stóra- mörk. í Stórumörk fæddist Þor- streinn Erlingsson, skáld og Bjarni Jónsson, er síðar varð þekktur sem Bjami frá Vogi. Skammt innanvið Stómmörk er Nauthúsagil en það- an tók Guðbjörg reyniviðarhrísluna er síðar varð stolt hennar í trjá- garðinum í Múlakoti. Norðurhlíðar Eyjafjallajökuls em á hægri hönd. Smám saman taka þær á sig stórskorna mynd sem væm þær handbragð trölla. Við fömm yfir Jökullónið niður á aurum og skömmu síðar yfir Stein- holtsána sem einnig er jökulvatn. Hér blasa við björg á víð og dreif svo sem hending hafi ráðið hvar þau lentu. Þetta em menjar berg- skriðs eða framhlaups er varð uppi í fjallinu í Innstahaus, sem er nokkm innar en Steinholtsáin. Talið er að stærstu steinarnir vegi um 200 tonn. Framhlaupið varð 15. janúar 1967. Framhlaupið var í senn náttúmundur og náttúm- hamfarir. Brátt komum við að Krossá, duttlungafullu vatnsfalli. Hinum megin ár er Langidalur og við okkur blasir sæluhús Ferðafélags Islands. Við höldum yfir ána og ætlum að tylla okkur í brekkuna fyrir ofan skálann. Það er kominn matartími. Hér mun forsætisráð- herrann mæla til okkar nokkur orð um þjóðina og landið, störf og stefnu. Og héðan lýsir aðalfarar- stjórinn því helsta sem fyrir augu ber, og hver veit nema einhver stingi upp á því að ferðalangarnir Orkulindir næstu aldar Raunvlsindi Egill Egilsson Varlega áætlað má telja að orkunotkun mannkyns þrefaldist fram til miðrar næstu aldar. Sem stendur er notað jafngildi um tíu þúsund milljóna tunna af olíu á ári. Það einkennir orkunotkunina að hún eykst hratt í þróunarlönd- unum en hægar í hinum þróuðu löndum. Lítum nánar á einstaka þætti orkuvinnslunnar. Upplýsing- amar hér byggjast á tilvísunum í greinarlok. Olía og skyld efni Allar líkur eru á að þáttur olíu hafi minnkað eða nánast liðið und- ir lok að öld liðinni. Birgðir eru a.m.k. svo takmarkaðar, eða erfið- ar í vinnslu, að líklega fer að draga úr heildamotkun olíu upp úr 2010, en þáttur hennar verði orðinn sár- alítill um 2050. Skyld efni eru olíuflögur og tjömsandur, sem má vinna úr olíu. Áf þessum efnum em til miklar birgðir en um fyrirsjáanlega framtíð er vinnsla þeirra of kostn- aðarsöm til að þau komi til skjal- anna á næstunni. Nýting þeirra fer mjög eftir því hvaða leiðir aðr- ar verða valdar í orkuvinnslu, t.d. því hvort menn reiða sig almennt á kjamorku í miklu meiri mæli en hingað til og þá með nýjum að- ferðum. Sjá kaflann um kjamork- una. Kol og gas Birgðir kola em vemlegar og margfalt meiri olíubirgðunum. Gera má ráð fyrir æ meiri raforku- framleiðslu úr kolum næstu hundrað árin. Hafa ber í huga að núverandi vinnsluaðferð veldur brennisteinsmengun andrúms- loftsins (súrt regn). Samkvæmt neðangreindum heimildum á orku- framleiðslan eftir að u.þ.b. þre- faldast á næstu öld. Það er varla gerlegt nema komið sé í veg fyrir þá mengun. Slíkt er tæknilega gerlegt og býður auk þess upp á vinnslu brennisteins. í tengslum við þegar téðar orku- lindir er um að ræða vemlega orkuvinnslu úr gasi. Sú vinnsla á eftir að aukast nokkuð frá því sem nú er, en úr henni mun fara að draga um leið og dregur úr olíu- vinnslunni. Þó varir sú vinnsla allmiklu lengur en orkuvinnsla úr olíu. Kjarnorkan Um þennan þátt orkuvinnslu ríkir mest óvissa. Skipta má þess- ari orkuvinnslu í nokkra þætti: a) Núverandi vinnsluaðferð, sem nýtir fyrst og fremst úran 235. Það er aðeins örlítill hluti þess úrans sem fyrirfínnst í náttú- mnni. Um þessa vinnsluaðferð stendur vemlegur styrr einkum vegna tvenns: í fyrsta lagi er rekstraröryggið umdeilt, ekki síst vegna kjamorkuslysa í Banda- ríkjunum 1979, en einkum í Rússl- andi 1986. í öðm lagi er erfitt (þ.e. dýrt) að losna við geislavirk langæ úrgangsefni sem henni fylgja. Birgðimar em og svo tak- markaðar, að sjá má þær ganga til þurrðar um fyrirsjáanlega framtíð. b) í eldiskjamakljúfum em úran 238 og þóríum ummynduð og gerð vinnsluhæf. Þessi samsæta úrans nemur meira en 99 prósentum náttúmlegs úrans, svo að orku- birgðimar em mjög miklar. Á hinn bóginn er rekstraröryggi slíkra kjamakljúfa minna en venjulegra kjarnakljúfa sem heyra undir að- ferð a). Og er þá þegar langt til jafnað. c) Kjamasamruni: Meðal stór- veldanna er sífellt unnið að því að framkalla kjarnasammna sömu gerðar og gerist í vetnissprengj- um, semsé að litlir kjamar (vetni o.þ.h.) renni saman í stærri. Orku- lindin er óþrjótandi ef til næst (vatn jarðar). Tækniörðugleikar em miklir. Halda þarf „eldsneyt- inu“ við hitastig sem nemur tugum milljóna gráða í ákveðinn tíma. Hitastiginu er Ld. reynt að ná með að láta fjölda orkuríkra leysi- geisla skerast í efninu. í öðm lagi er ógerlegt með venjulegum að- ferðum að hemja efni við þetta hitastig. Allt sem kemst í samband við svo heitt efni gufar upp. Verið er að reyna að hemja efnið inni í sterku segulsviði, en segulsvið gufar ekki upp. Það er aðeins talin spuming um tíma og ijármagn að leysa þessi tækniatriði. Oft heyrist lauslega spáð að sú lausn taki nokkra ára- tugi, án þess að sú spá heyrist byggð á nokkmm rökum. Auk þessara orkulinda ber auð- vitað að nefna vatnsorkuna. Hlut- ur hennar mun enn um sinn fara vaxandi, þótt nýtingarmöguieikar séu takmarkaðir. Sólarorku, sjáv- arföll og vindorku ber að taka til athugunar einnig. Enn er ónefnd vemleg orkulind sem er bundin við hitabeltið og heittempraða bel- tið. En einmitt á þeim slóðum er líklegt að orkunotkun vaxi hvað örast. Þessi orkulind felst í að nýta hitamun yfirborðssjávar og djúpsjávar aðeins um kílómetra neðar. Þar er sjórinn um 20°C kaldari en við yfirborð. Sé honum dælt upp á yfirborð, felst í honum (ásamt hinum heitari sjó) ótak- mörkuð orkulind. (Helstu heimildir: Energy Glob- al Prospects 1985—2000. Workshop on Altemative En- ergy Strategies, McGraw-Hill (1977). Bent Elbæk: Verdens En- ergibehov, Gamma, Niels Bohr Instituttet (júní 1979).) Garðabær: Stefnt að gerð golf- vallar BÆJARYFIRVÖLD í Garðabæ vilja leigja Vetrarmýri í landi Vífilsstaða af ríkinu, með það fyrir augum að gera þar golf- völl. Starfsmannaráð Ríkisspít- alanna hefur einnig hug á að nýta þetta svæði, en endanleg ákvörðun um ráðstöfun þess hefur ekki enn verið tekin. Vetrarmýri er norðan Vífíls- staða, austan nýju Reykjanes- brautarinnar. Landið er undir stjóm Heilbrigðisráðuneytisins og er ætlunin að þar rísi spítalabygg- ingar einhvern tíman í framtíð- inni. Af þeim sökum leggur ráðu- neytið mikla áherslu á að ekki verði byggt þar á næstunni, heldur verði landið nýtt sem útivistar- svæði. Golfklúbbur Garðabæjar hefur um nokkurra ára skeið haft hug á að gera golfvöll í Vetrarmýri, og nýtur sú hugmynd stuðnings bæjaryfírvaldanna. Starfsmannar- áð Ríkisspítalanna hefur einnig haft áhuga á því, að svæðið verði nýtt sem útivistarsvæði fyrir starfsfólk og sjúklinga spítalanna, einkum Vífilstaða: Bæjaryfirvöld í Garðabæ og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.