Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
VIÐ REYNUM AÐ LIFA
SEM EÐLILEGU STU LÍFI
Spáð í spilin; f.v. Jesper, Leiv, Minne og Lena.
- segja nýrna-
sjúk ungmenni
í heimsókn hér
á landi
FJÖGUR nýmasjúk ungrnenni
frá Norðurlöndum eru nú stödd
hér á landi í boði Félags nýrna-
sjúkra. Heimsókninni er ætlað
að vera ungmennunum til
skemmtunar og gefst þeim tæki-
færi til að kynnast ungu nýma-
sjúku fólki hér.
Dagfríður Halldórsdóttir, sem er
formaður félagsins, sagði margt á
dagskrá þessa viku sem heimsóknin
stendur yfir. Nú þegar hafa ung-
mennin heimsótt Vestmannaeyjar
og ætlunin er að ferðast víðar um
landið.
Félag nýmasjúkra er aðili að
Samvinnunefnd nýmasjúkra á
Norðurlöndum og koma ungmennin
hingað fyrir milligöngu nefndarinn-
ar.I hópnum em tveir Danir, einn
Norðmaður og einn Svíi. Þau hafa
ÖU gengist undir 2—3 nýmaígræðsl-
ur en hafnað nýrunum og þurfa því
að vera í blóðskilunarvél 2—3svar
í viku.
Að sögn Magnúsar Böðvarssonar
nýmasérfræðings á blóðskilunar-
deild Landsspítalans er meðferð
áður en nýmabilun kemst á loka-
Morgunblaðið/Bjami
stig, fólgin í próteinrýru fæði og
bætir það nokkuð líðan sjúklings-
ins. Þegar bilunin er komin á loka-
stig, eru aðallega þrjár leiðir til að
losa líkamann við úrgangsefni.
Heppilegasta leiðin er nýrna-
ígræðsla en hér á landi er hún ekki
möguleg, enn sem komið er. Sjúkl-
ingar em sendir héðan til Banda-
ríkjanna eða Evrópu í aðgerðir. ís-
lendingar geta fengið ným úr
norrænum nýmabanka en ným úr
ættingjum duga yfirleitt betur og
lengur.
Árið 1987 fóm átta íslendingar
utan í nýmaígræðslu. í sjö tilfellum
vom nýmagjafar ættingjar en í einu
tilfelli var nýra úr nýmabankanum.
Þegamir tóku allir við nýmnum.
Ef nýra úr ættingja eða banka
er ekki í boði, eða verið að bíða
eftir því, þarf að hreinsa úrgangs-
efni úr líkamanum með blóðskilun-
artæki eða kviðskilunaraðferð.
Kviðskilun geta sjúklingar fram-
kvæmt sjálfir hvar sem er en blóð-
skilun verður að fara fram í tækjum
sem hérlendis em einungis til á
Landsspítalanum. Sjúklingar þurfa
að fara í blóðskilun 2—3svar í viku,
3—5 tíma í senn og er meðferðin
því mjög bindandi. Hér á landi em
um 20—25 sjúklingar í meðferð en
rúmlega helmingur þeirra er í kvið-
skilun.
Gefum hvert öðru gúð ráð
Gestir Félags nýrnasjúkra em
þau Leiv Ravdal frá Noregi, Lena
Alne frá Svíþjóð, Jesper Schæfer
og Minne Kortegaard bæði frá
Danmörku. Þegar blaðamann bar
að, var Leiv tengdur blóðskilunar-
vélinni en Minne og Lena spiluðu
við hann til að stytta honum stundir.
Leiv sagði að sig hefði lengi lang-
Vegagerð á Norðurlandi vestra 1988:
Stærstu verk-
efmn í Langa-
dal og Víðidal
HELSTU framkvæmdir á þessu ári á Norðurlandi vestra
verða á Norðurlandsvegi vestan Víðidalsár. Þar verður endur-
byggður rúmlega sex kílómetra kafli vegarins. Einnig verður
endurbyggður vegarkafli I Langadal og lögð klæðing á annan
kafla, um 10 kílómetrar. Lokið verður við veginn yfir Vatns-
skarð. Hér á eftir eru nánari lýsingar á einstökum verkefnum
i landshlutanum og kort sem sýnir þá vegakafla sem unnið
verður við.
Stofnbrautir
Almenn verkefni
Norðurlandsvegur frá Víði-
dalsv. ve. að Víðidalsá. Fjárv. er
18,8 m.kr. Kaflinn er um 6,4 km
langur og verður endurbyggður að
mestu á sama stað og núverandi
vegur. Klæðing verður lögð næsta
sumar. Verktaki er Jón Ingileifsson
sem ætlar að vinna verkið frá miðj-
um júní út september.
Norðurlandsvegur frá Mið-
húsum að Víðivöllum. Fjárveiting
er 11,2 + 8,3 = 19,5 m.kr. Kaflinn
er 3,4 km langur og verður endur-
byggður á sama stað. Klæðing er
áætluð næsta sumar. Vegagerðin
var boðin út í júníbyrjun.
Hvammstangavegur frá Norð-
urlandsvegi að Hvammstanga.
Fjárveiting er 7,9 m.kr. Kaflinn er
4,7 km langur og verður endur-
byggður þar sem hann er í dag.
Verkið hefur verið boðið út. Því
skal lokið (haust en greiðslur skipt-
ast á þetta ár og næsta. Áætlað
er að leggja klæðingu næsta sumar.
Siglufjarðarvegur um Gljúfurá.
Fjárveiting er 4,4 m.kr. til vega-
gerðarinnar og 4,0 m.kr. til brúar-
gerðarinnar. I haust á að byggja
nýja brú á ána en því verður ekki
lokið fyrr en í október. Vegagerðin
var boðin út. Skilafrestur verksins
er til 1. júlí 1989, en heimilt er að
vinna það í haust ef veður leyfir.
Kaflinn byijar skammt sunnan við
ána og nær að Sauðárkróksbrautar-
vegamótum. Lengd kaflans er um
4 km. Áætlað er að leggja klæðingu
á veginn næsta sumar.
Siglufjarðarvegur frá Mið-
húsum að klæðingarenda sunnan
Grafarár. Fjárveiting er 0,5 m.kr.
og 4,3 m.kr. til bundins slitlags.
Kaflinn er um 2,5 km langur. Að
verulegu leyti er um styrkingu á
núverandi vegi að ræða. Lögð verð-
ur klæðing á veginn í sumar. Gerð
styrkingar var boðin út seinni hluta
maí, klæðingin í júní.
Siglufjarðarvegur frá ganga-
munna að Siglufirði, um 0,8 km.
Fjárveiting er 2,0 m.kr. Breikka
skal veginn í framhaldi af því sem
gert var í fyrra. M.a. þarf að lengja
ræsið í Selgili.
Bundin slitlög
Norðurlandsvegur um
Vatnshlíð og að Valadalsá. Fjárveit-
ing er 8,7 m.kr. Leggja á tvöfalda
klæðingu á nýbyggingu frá í fyrra
og að Valadalsá, um 3,0 km. Tilboð
í klæðinguna voru opnuð 30. maí
sl. Lögn neðra lags skal lokið í júlí.
Skagastrandarvegur. Fjárveit-
ing er 2,6 m.k. Greidd verður skuld
frá fyrra ári.
Siglufjarðarvegur frá Norður-
landsvegi að Hjaltastöðum. Fjár-
veiting er 1,1 m.kr. Leggja skal
einbreitt efra lag á klæðinguna frá
1986 sem er um 6,4 km að lenga.
Siglufjarðarvegur frá Mið-
húsum að klæðingarenda sunnan
Grafarár. Fjárveiting er 4,3 m.kr.
Sjá kafla í alm. verkefnum.
Sérstök verkefni
Norðurlandsvegur um Vatns-
skarð. Fjárveiting er 15,3 m.kr. auk
innistæðu 4,4 m.kr. Lokið verður
nýbyggingu frá Gilsflóa að
Vatnshlíð, sem átti að byggja í
fyrra, en verktaki lauk ekki við.
Klæðning hf. vinnur verkið í júlí-
september.
Þjóðbrautir
Vatnsnessvegur frá Böðvars-
hólum að Norðurlandsvegi. Fjár-
veiting er 0,5 m.kr. Ljúka skal jöfn-
un óg frágangi nýbyggingar frá í
fyrra. Verktaki er Fossverk sf.
Svínvetningabraut frá Tindum
að Blönduþrú. Fjárveiting er 4,8
m.kr. Lokið verður jöfnun burðar-
lags og fláa á nýbyggingu frá sl.
ári. Verktaki er Hvítserkur. Lagt
verður malarslitlag á veginn.
Svartárdalsvegur um Fjósaklif.
Fjárveiting er 3,0 m.kr. Byggja á
nýjan veg niðri á eyrum og færa
ána á kafla. Ekki má vinna í ánni
fyrr en eftir 20. september vegna
laxveiði. Verkið verður boðið út í
júní og skal því lokið í haust.
Skagavegur í Láxárdal. Fjár-
veiting er 1,3 m.kr. Greiða skal
skuld frá fyrra ári.
Hólavegur frá Hjaltadalsá við
Laufskálaholt að Hólum og áfram
að fjárhúsum. Fjárv. er 4,7 m.kr.
Greiða skal skuld frá fyrra ári.
Ásavegur frá Siglufjarðarvegi
að Neðri-Ási. Fjárveiting er 4,2
m.kr. Byggður verður nýr kafli
u.þ.b. 2,4 km langur. Verkið var
boðið út og á Fjörður lægsta tilboð.
Flugvallarvegur ( Siglufírði frá
Snorragötu að Hólsá. Fjárveiting
er 1,9 m.kr. Kaflinn er um 1,1 km,
ljúka skal burðarlagi og leggja tvö-
falda klæðingu. Verktaki við burð-
arlagið er Framtak sf., Siglufirði,
en klæðingin er boðin út með öðrum
klæðingum í umdæminu.
Viðhald
Vestur-Húnavatnssýsla
Miðfjarðarvegur verður möl-
borinn frá Urriðaá að Laugarbakka,
3,8 km. Verkið hefur verið boðið út.
Vatnsnesvegur verður styrktur
í Vestur-Hópi frá Breiðabólsstað
að Böðvarshólum, 3,2 km. Mölbor-
inn verður vegurinn frá Breiðabóls-
stað að Norðurlandsvegi, 11,5 km.
Verkið hefur verið boðið út.
Hrútafjörður. Lagt verður yfir
klæðingu, fyrst og fremst í hjólför.
Austur-Húnavatnssýsla
Þverárfjallsvegur verður
styrktur og mölborinn frá Laxár-
dalsvegi að Þverá.
Svínvetningabraut verður end-
urbyggð niðri við Blönduós frá
Héraðshælinu suður fyrir Kleifar-