Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 28

Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 Göngudagur fjölskyldunnar í dag: Gengið á Esju og farið í Viðey Göngudagur fjölskyldunnar er í dag. Ungmennafélag Islands og Bandalag íslenskra skáta standa fyrir Göngudeginum. Gengið verður um allt land og fara hér á eftir upplýsingar um ferðir á nokkrum stöðum. Reykvíkingum býðst Viðeyjar- ferð á Göngudaginn. Farið verður kl. 14 frá Kornhlöðunni í Sunda- höfn og verður Hafsteinn Sveinsson leiðsögumaður. Bátsferðin kostar 300 kr. fyrir fullorðna og 100 kr. fyrir börn. Kópavogsbúar ganga á Esju og verður lagt af stað frá Borgarholts- braut 7 kl. 10. Gengið verður frá skátaskálanum Þristi í Þverárdal og geta göngumenn valið sér lengri og styttri gönguleiðir; þá lengstu upp á Esju. Göngustjóri verður Jón Haukur Steingrímsson. Frá Njarðvík verður farið á Trölladyngju, Höskuldarvelli, Spá- konuvatn, Grænavatn og Vigdísar- velli. Mæting er kl. 10 við biðskýlið í Njarðvík. Skátaflokkurinn Háð- fuglar, Víkveijum, stjórnar göngunni. ■ A Selfossi verða 2 göngur, kl. 13 hefst ganga íþróttafélags fatl- aðra, við Sundhöllina. Gengið verð- ur að Svarthóli, 5 km leið, þar sem golfíþróttin verður kynnt göngu- mönnum auk kennileita á leiðinni. Göngudagur fjölskyldunnar Ungmennafélag Selfoss efnir til göngu að Ingólfsfjalli og að Ingólfs- vörðu og verður lagt af stað frá Tryggvaskála kl. 14. Ungmennafélögin í Húnavatns- sýslu eystri sameinast í eina göngu frá bænum Ártúnum og leggja upp kl. 14. Gengið verður á Tunguhnjúk í Langadal og verða sætaferðir frá Félagslundi, Blönduósi kl. 13.30. Göngustjóri verður Jón Tryggva- son. í Vík verður gengið upp með Víkurgili og Víkurá. Lagt verður af stað kl. 11 og gengið í um 2 tíma. Göngustjóri er Margrét Guð- jónsdóttir. Umf. Dyrhólaey gengur Hvammsgil. Lagt verður af stað kl. Hitaveita Reykjavíkur: 70% tekna til framkvæmda VEGNA fréttar um hækkun á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur í blaðinu í gser, vill Eysteinn Jónsson skrifsstofustjóri, taka fram að; „Rétt er frá greint að gengis- lækkun hefur lítil áhrif á ijárhags- áætlun Reykjavíkurborgar hvað viðkemur erlendum lánum. Hins- vegar hefur gengislækkun að sjálf- sögðu mikil áhrif á allt verðlag í landinu. Vísitala byggingarkostn- aðar hækkar til dæmis verulega og öll hækkun byggingarvísitölu hefur bein áhrif á fjárhagsáætlun Hita- veitu Reykjavíkur. Rúmlega 70% af öllum tekjum veitunar árið 1988 fer til nýframkvæmda, aðallega til Nesjavallavirkjunar." 14 frá bænum Götu, göngustjóri er Jón Hjaltason. í Bíldudal verður 2 tíma fjöl- skylduganga fram Bíldudal út að Haganesi og þaðan haldið um Otradal. Lagt verður af stað frá blokkinni kl. 14. I Fellahreppi verður gengið að Urriðavatni og er göngustjóri Gunnar Vignisson. I Hvolhreppi sér umf. Baldur um gönguna, göngu: stjóri er Guðlaug Oddgeirsdóttir. I Gnúpveijahreppi stendur ung- mennafélagið fyrir göngu, göngu- stjóri er Guðný Guðnadóttir. Umf. Hrafnkell Freysgoði á Eskifirði verður með göngu, sem Björgvin Þórðarson í Selnesi stjómar. íþróttafélagið Leiftur á Ólafsfirði gengur inn Kálsárdal, göngustjórar verða Magnús Stefánssop og Svein- björn Árnason á Kálsá. íþrf. Grett- ir á Flateyri efnir til göngu, og verður Ragna Óladóttir göngu- stjóri. Umf. Efling í Mývatnssveit verður með göngu sem Sverrir Haraldsson, Hólum Reykjadal, stjómar. Göngu umf. Súlunnar á Stöðvarfirði stjórnar Kjartan Guð- jónsson. Unmennafélögin á Höfn í Hornafirði verða með sameiginlega göngu sem Regína Hreinsdóttir skipuleggur. Umf. Ármann, Kirkju- bæjarklaustri verður með göngu, göngustjóri er Valgeir Ingi. Jón Sigurðsson verður göngustjóri hjá umf. Neista Djúpavogi. Umf. Skeiðamanna verður með göngu sem Kjartan Ágústsson stýrir. Umf. Hjalti í Skagafirði leggur upp frá Garðaholti í Hjaltadal og geng- ur yfir að Hríshól að Asgarðs- brekku. Göngustjórar verða Sigur- björn Garðarsson ,og Pálmi Ragn- arsson.Ingimar JónsSon skipulegg- ur Göngudaginn á Dalvík. í Hveragerði verður Göngudagur á sunnudag. Gengið verður inn Reykjadal og verður lagt af stað frá Iþróttahúsinu kl. 13. Göngu- stjóri verður Ingibergur Siguijóns- son. Áhugafólk og leikarar standa að leiksmiðju á Arnarstapa dagana 1.—15. júlí nk. Leiksmiðja á Arnarstapa LEIKSMIÐJA á Arnarstapa verð- ur haldin dagana 1.—15. júlí og 24.júlí til 7.ágúst. Þetta er 4. suma- rið sem áhugafólk og leikarar standa að þvi að fá hingað til lands Kevin Khulke, leiksfjóra og leik- listarkennara við New York Uni- versity, þar sem hann kennir við tilraunar-leildistardeild (experi- mental wing). Guðmundur Bogason mun kenna leikræna bardagalist og hreyfilist, en bæði þessi form auka líkams- styrk, nákvæmni og færni í hreyfing- Athygli Kevins mun beinast að vinnuformi sem styrkir skapandi eig- inleika leikarans og gefur honum aðgang að þeim krafti sem hann býr yfir, tengir rödd og líkama, eykur einbeitingu og brýtur upp vanaform gegnum spuna og „impuls“vinnu. Með þennan grunn verður síðan unn- ið með texta úr klassískum verkum. Skráning á þátttakendum stendur nú yfir og er fjöldi takmarkaður við 16. Nánari upplýsingar er að fá hjá Önnu E. Borg. (Fréttatilkynning) Kjör í stjórn deildar fiskvinnslufólks: Verið er að kalla ^ klofning yfir VMSÍ - segir sljórn Árvakurs á Eskifirði í SKÝRSLU sljómar verkamanna- félagsins Árvakurs á Eskifirði kemur fram hörð gagnrýni á kosningu í stjóm deildar fisk- vinnslufólks á aukaþingi VMSÍ, 25 fyrirlestrar í Coloradoháskóla: Landnám Islendinga einhver falleg- asti atburður sem átti sér stað - segir Hermann Pálsson prófessor HERMANN Pálsson, prófessor í íslensku við Edinborgarháskóla, er á förum til Colorado í Banda- ríkjunum þar sem hann mun flytja 25 fyrirlestra við háskól- ann þar. Að sögn Hermanns mun hann í fyrirlestrum sínum meðal annars fjalla um íslendingasög- ur, fornaldasögur, konungasög- ur, víkingana og íslendinga al- mennt „og ekki aðeins almennt heldur einnig á sérstakan hátt, það er hvernig Islendingar vom öðmvísi en aðrir,“ sagði Her- mann í samtali við Morgunblaðið. „íslendingar varðveitt tungu sína, sem er þó yngsta þjóðtunga Evrópu. Það eru ekki allir sem átta sig á því," sagði Hermann. _,,Hvar sem þú ferð um Evrópu, frá Irlandi og austur í Úralfjöll þá finnur þú enga þjóðtungu eins unga og íslenskuna. Annað atriði, sem menn gleyma oft, og ég hef verið að préd- ika um í mörg ár, er að ef þú lítur á sögu álfunnar, alveg frá áttundu öld og fram til 1500, þá var land- nám Islendinga einhver fallegasti atburður sem átti sér stað og sá atburður sem bar af öllu öðru sem gerðist á þessum tíma í Evrópu. Menn tala mikið um víkingana og að þeir hafi verið vandræða fólk og menn rugla íslendingum saman við víkinga. En íslenska stefnan á þessum tíma var þveröfug við stefnu víkinganna. Víkingar ruddu sér til rúms og valda þar sem aðrir voru fyrir, annað hvort með því að ræna gripum og fjármunum fólks eða að þeir tóku af því landið. Þeir sem fóru til íslands höfðu allt aðrar hugmyndir og settu á stofn nýtt þjóðfélag án þess að hafa konung. Þetta gerir íslendinga frábrugðna öllum öðrum þjóðum í Evrópu. Það er margt fleirá sem greinir íslendinga frá öðrum þjóðum. Eitt er að sjálfsögðu fjarlægðin frá öðr- um löndum, en í Evrópu á tíundu öld og frameftir bjuggu þjóðir hlið við hlið og kannski aðeins ein ársp- ræna sem greindi í sundur þjóðir, sem höfðu mismunandi trú og töluðu ólíkar tungur. í þriðja lagi má nefna að Islendingar fóru snemma að skrifa sögur um sjálfa sig, ekki um konunga heldur um venjulegt fólk og það átti sér hvergi stað annars staðar. Ástæðan til þess er fyrst og fremst sú að á ís- landi lenti þjóðin að sumu leyti í einangrun, en að öðru leyti í öryggi frá utanaðkomandi árásum vegna þessarar einangrunar. I Vatns- dælasögu er það talið einn höfuð- kostur landsins hvað það er langt í burtu frá „konungum og illræðis- mönnum," eins og það er orðað. Orðið illræðismenn gæti þama átt Hermann Pálsson prófessor við víkinga sem fóru með ránum og rupli hingað og þangað. Konung- ar, sem skeyttu engu um lög lands- ins, voru einnig hættulegir þjóðinni. Þegar Islendingar áttuðu sig á þessu, hve ólíkir þeir vom Norð- mönnum og öðrum Evrópumönn- um, á elleftu öld, þá fóru þeir hugsa um hlutina alveg frá rótum. Þannig spretta upp, ekki aðeins Landnáma- bók, sem er fæðingarvottorð heillar þjóðar, heldur einnig íslendingasög- urnar. Helsti munurinn á til dæmis Njálu og Heimskringlu, sem bæði eru stórkostleg verk, er sá að í Heimskringlu er þessi mikla áhersla lögð á konungdóm, konungshug- sjón og konungsvald. Ekki það að Snorri sjálfur væri aðdáandi þess, heldur var óhjákvæmilegt að taka þetta til greina til að skýra sögu Noregs. í Njálu hins vegar er fólk, bæði gott og illt, án tillits til stétta- skiptingar. Hún fjallar um venjulegt fólk og um leið um mannkynið í heild og almenn gildi fyrir mann- inn. Góður rithöfundur sem skrifar um Noregskonunga verður að lúta öðrum lögmálum en góður rithöf- undur sem skrifar um íslendinga. Þó get ég vel trúað því að Snorri hafi skrifað Egilssögu, og hafi svo verið er hann þar með hugmyndir andsnúnar konungsvaldinu. Menn gátu velt fyrir sér andstæðum hug- myndum om þessa hluti. Vel gefið fólk getur yfirleitt litið á hlutina frá ólíkum sjónarhólum. Þetta er aðeins brot af því sem ég mun tala um í þessum fyrirlestr- um, en í heild nefni ég fyrirlestrana „íslenskar fomsögur og heimur víkinga". Ég mun fjalja nokkuð nákvæmlega um ýmsar íslendinga- sögur, meðal annars Njálu, Hrafn- kelssögu, Grettlu og Laxdælu svo nokkrar séu nefndar og svo, eins og áður er getið, mun ég ræða um heim víkinga og íslendinga al- mennt,“ sagði Hermann Pálsson prófessor. sem haldið var í vor. Segir að með þvi að kjósa ekki einn einasta full- trúa, sem verið hefur í andstöðu við forystu VMSÍ, í stjórn deildar- innar, sé verið að kalla klofning yfir Verkamannasambandið. Ennfremur segir að það sé vand- séð til hvers félög, sem engra áhrifa fá notið innan VMSÍ, borgi þangað stórfé til þess að halda gangandi starfsemi, sem oft á tíðum vinni gegn samþykktum viðkomandi félaga. Formaður Árvakurs, Hrafnkell A. Jónsson, segir þó í skýrslunni að það sé sín skoðun að Árvakur eigi um sinn að starfa innan sambandsins og reyna að hafa þar áhrif, þótt þær aðferðir sem notaðar hafi verið af forystu VMSÍ þreyti óneitanlega. Þá er einnig í skýrslunni fram- kvæmdastjóri VMSÍ gagnrýndur fyr- ir að túlka í fjölmiðlum sjónarmið meirihluta sambandsins. Hann eigi að koma fram sem fulltrúi allra fé- laga VMSÍ. í skýrslunni segir að sundrung verkalýðshreyfíngarinnar í kjara- samningunum í vetur megi rekja til þess hvemig staðið var að afgreiðslu kjaramálaályktunar á formannafundi VMSÍ í haust er leið, þegar fulltrúar ellefu félaga af landsbyggðinni þar á meðal Arvakurs gengu af fundi. Rakið er hvemig viðræður og af- greiðsla kjarasamninga gekk fyrir sig í stómm dráttum og sagt að Akureyrarsamningurinn hafí miðað við allar aðstæður ekki verið neitt neyðarbrauð. Taka verði tillit til þess við mat á samningnum að breyting á bónuskerfí fískvinnslufólks að fyr- irmynd Alþýðusambands Vestijarða hafí haft í för með sér meðaltals- launahækkun, sem sé í kringum 10%. Leiðrétting Í frétt um kaup Reykjavíkur- borgar á fjórum íbúðum við Tjarnargötu, var ranglega farið með númer hússins. Hið rétta er Tjarnargata 10 c en ekki 10 b. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.