Morgunblaðið - 25.06.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
29
Ráðstefna matvörukaupmanna:
Stærri verslanir á
sífellt færri hendur
Sama þróunin 1 matvöruverslun á Norðurlöndunum
NORRÆN ráðstefna matvöru-
kaupmanna var haldin að Hótel
Ork 20. júni siðastliðinn. Kom
þar fram að þróun í matvöru-
verslun hefur verið svipuð á
Norðurlöndunum. Smærri versl-
anir eru óðum að hverfa og við
taka fáir en sífellt stærri stór-
markaðir.
Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá
íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi. Skýrðu þeir frá efna-
hagsástandi og stöðu matvöruversl-
unar í sínu heimalandi og hver þjóð
hafði einnig framsögu um eitt
ákveðið efni.
Af íslands hálfu var fjallað um
verðkannanir hins opinbera hér á
landi. Að sögn Magnúsar Finnsson-
ar, framkvæmdastjóra Kaup-
mannasamtakanna, kom í ljós að
verðkönnunum er hvergi hagað á
sama hátt og hér. Á hinum Norður-
löndunum eru strangar reglur um
þessi mál og verð er ekki borið
saman í ólíkum tegundum verslana.
Fulltrúar Dana fjölluðu um aukn-
ar kröfur hins opinbera um um-
hverfi og aðbúnað starfsfólks.
Preben Hoyen formaður samtaka
matvörukaupmanna i Danmörku
sagði að ný lög um aðbúnað og
umhverfi hefðu valdið vandamálum
þar í landi. Sem dæmi má nefna lög
um rými á hveijum kassa, lýsingu
og álag. Lögin þykja að hans sögn
ströng og verslunareigendum veit-
ist erfitt að fylgja þeim.
Svíar sögðu frá reglum um sértil-
boð og kom fram að þar í landi
má ekki auglýsa tilboð nema þau
standi í ákveðinn tíma.
I erindi Finna var fjallað um
verðstríð.þar í landi og mikla fækk-
un verslana í framhaldi af því.
Hans Saure formaður samtaka
i
Morgunblaðið/Bjami
F.v. Guðjón Oddsson, Hans Saure frá Noregi og Preben Hoyen frá
Danmörku, allir formenn samtaka matvörukaupmanna í sínu heimal-
andi. Lengst t.h. er Magnús Finnsson framkvæmdastjóri samtakanna
hér á landi.
matvörukaupmanna í Noregi skýrði
frá gífurlegri fækkun verslana þar.
Árið 1976 voru verslanir um tíu
þúsund en tíu árum seinna hafði
þeim fækkað í um sjö þúsund.
Helstu aðgerðir Norðmanna gegn
þessari þróun eru opinberar
styrkveitingar til að halda smærri
verslununum, sérstaklega þegar
verslunin er sú síðasta í ákveðnum
þéttbýliskjarna.
Framsöguerindi Norðmanna
fjallaði um þá venju heildsala, að
taka ákveðna þóknun fyrir pantanir
og baráttu kaupmannasamtakanna
gegn þessu.
Guðjón Oddsson formaður Kaup-
mannasamtakanna sagði það
athyglisvert að á öllum Norðurlönd-
unum væri þróunin sú sama. Versl-
unum fækkar og þær sem eftir eru
stækka. I Reykjavík eru 70% velt-
unnar hjá 6 fyrirtækjum með 19
verslanir og frá árinu 1975 hafa
fimm búðir á ári verið lagðar niður.
Vandamál í sambandi við opnun-
artíma eru svipuð og hérlendis en
vaktakerfi starfsmanna í verslunum
tíðkast hvergi.
Að sögn Guðjóns eru í Noregi lög
um að kreditkortaeigendur skuli
bera kostnað af þeim sjálfir. Greiða
þeir 3—8 af hundraði hærra verð
en þeir sem staðgreiða. Notkun
kortanna þar er mun minni en hér-
lendis.
Heildsalar með matvöru eru að
sögn Guðjóns mun fleiri á íslandi
en annars staðar, til dæmis eru
innan við tíu heildsölufyrirtæki í
flestum nágrannalöndunum en hátt
á annað hundrað hér.
Ráðstefnugestir skoðuðu nokkr-
ar verslanir í Reykjavík og þótti
aðbúnaður mjög til fyrirmyndar.
Kjarnorkuúrgangur:
Vinnslustöðvar verði ekki
byggðar valdi þær mengun
Ályktun Lissabonfundar um varnir gegn mengun sjávar
SAMKOMULAG náðist milli ís-
lendinga og Frakka um nýja til-
lögu varðandi byggingu endur-
vinnslustöðva kjarnaúrgangs, á
10. ársfundi Parísarsamningsins
um varnir gegn mengun sjávar frá
landstöðvum, sem haldinn var í
Lissabon 15. til 17. júní. Rætt var
um losun næringarsalta í sjó í
framhaldi af vexti þörunga við
strendur Noregs, Danmerkur og
Svíþjóðar. Þá var fjallað um
mengun af völdum þungmálma
eins og kvikasilfurs og kadmiums,
og PCB.
Öll aðildarlönd Parísarsamnings-
ins nema Frakkland samþykktu í
fyrra tillögu íslendinga um varnir
gegn mengun vegna kjarnaúrgangs,
en að sögn Magnúsar Jóhannesson-
ar, siglingamálastjóra, se_m sat árs-
fundinn 'ásamt Gunnari Ágústssyni,
deildarstjóra, náðist nú samkomuiag
við Frakka um tillögu sem samþykkt
var samhljóða. í henni felst að samn-
ingsríki skuldbinda sig til að stækka
ekki eða byggja nýjar endurvinnslu-
stöðvar nema á undan fari athugun
á mengunarhættu og ríki geti sýnt
fram á að starfsemi stöðvanna valdi
ekki mengun á hafsvæðum samn-
ingsins. Magnús segir að með sam-
þykktinni hafi verið viðurkennt að
auk heilsufars þeirra sem neyta fisk-
afurða þurfi að taka tillit til fisk-
veiða. Jafnframt var samþykkt tih
laga, varðandi stöðvar sem þegar eru
fyrir hendi, um að ávallt sé beytt
fullkomnustu tækni sem völ er á til
að minnka og uppræta eftir föngum
losun geislavirkra úrgangsefna í sjó.
Samþykkt var á fundinum ályktun
um að draga verulega úr losun nær-
ingarsalta köfnunarefnis og fosfórs
á svæðum þar sem hætta er á meng-
un. Tilefni ályktunarinnar var m.a.
vöxtur þörunga í Norðursjó, Skager-
ak og Kattegat í lok maí og byijun
júní . Gert er ráð fyrir að losun á
næringarsöltum í sjó á þessum svæð-
um hafi minnkað um 50% fyrir 1995
frá því sem hún var 1985. Skipaður
var vinnuhópur til að finna leiðir að
markmiðinu og samræma aðgerðir
ríkja. íslendingar og fleiri ríki höfðu
þann fyrirvara á samþykki sínu að
ekki væri þörf á að draga úr losun
fosfór- og köfnunarefnasambanda
við strendur landsins. Magnús Jó-
hannesson sagði að þó þyrfti að fylgj-
ast með þróun í fiskeldi hérlendis.
Ef mikið magn næringarsalta væri
losað frá fiskeldisstöðvum á sama
strandsvæði gæti það valdið vand-
ræðum. Þá sagði Magnús að ræða
ætti við ýmis lönd í Austur-Evrópu
Morgunblaðið/ppj
Douglas DC-3 á leið til hátíðahaldanna í Berlín þar sem loftbrúarinn- .
ar er minnst.
Loftbrúarinnar til
Berlínar minnst
GÖMUL flugfvél af gerðinni
Douglas DC-3, sem var á leið-
inni yfir Atlantshaf til Banda-
ríkjanna, lenti á Reykjavíkur-
flugvelli fyrir skömmu.
Það er svo sem ekkert merki-
legt við það að flugvél af þessari
gerð lendi hér, því slíkt gerist allt-
af nokkrum sinnum á ári. Það sem
vakti athygli var ástæða ferðar-
innar, en vélin var á leiðinni til
Vestur-Þýskalands þar sem hún
mun taka þátt í hátíðahöldum í
tilefni þess að fjörutíu ár eru nú
liðin frá því að loftbrúin til Berlín-
ar hófst. Það var í júní árið 1948
sem Sovétstjóm lokaði öllum að-
komuleiðum Bandamanna til
Berlínar á landi og eina leiðin til
að sjá borginni fyrir lífsnauðsynj-
um var í loftinu. Loftbrúin stóð
yfir fram í september árið 1949
en alls fluttu flutningavélar
Bandaríkjamanna og Breta um 2,3
milljón tonn af varningi til borgar-
innar í rúmlega 277.500 ferðum.
o
INNLENT
Doktorsvörn í
rafmagnsverkfræði
um að gerast aðilar að Parísarsamn-
ingnum, þar sem mengun frá þeim
gæti borist með ám út á hafsvæði
sem samningurinn tekur til.
ÞÓRÐUR Runólfsson raf-
magnsverkfræðingur varði ný-
lega doktorsritgerð sína við
rafmagnsverkfræðideild há-
skólans í Michigan í Banda-
ríkjunum. Ritgerðin, sem nefn-
ist „Aiming Control“, er á sviði
fræðilegrar reglunartækni og
fjallar um miðunarstýrinar á
línulegum, líkindadreifðum
kerfum.
Þórður lauk B.S. prófi í raf-
magnsverkfræði og stærðfræði við
Wisconsin háskóla í Madison, vorið
1983, en hóf rannsóknir sínar á
Ann Arbor, Michigan, haustið
1984. Hann hefur, auk doktorsrit-
gerðarinnar, skrifað sex fræðileg-
ar greinar sem birst hafa, eða
munu birtast, í verkfræði— og
stærðfræði tímaritum.
Foreldrar Þórðar eru Runólfur
Þórðarson og Hildur Halldórs-
dóttir. Hann er kvæntur Önnu
Þórður Runólfsson, doktor í raf-
magnsverkfræði.
Sigrúnardóttur, bókmenntafræð-
ingi, og eiga þau eina dóttur.
Stofnun Jóns Þorlákssonar:
„Eign handa öllum“
Ritgerð um sölu ríkisfyrirtækja og einkavæðingu
ÚT er komið ritið „Eign handa
öllum“ eftir Steingrím Ara Ara-
son hagfræðing og dr. Hannes
Hólmstein Gissurarson stjórn-
málafræðing. Þar er rætt um
möguleikana á sölu ríkisfyrir-
tækja, afnámi einokunar og ann-
ars konar einkavæðingu hér á
landi.
Höfundar komast að þeirri niður-
stöðu, að færa mætti fyrirtæki frá
ríkinu til einkaaðila fyrir um það
bil 40 milljarða. Þeir telja, að árlega
kosti það um tvo milljarða í glötuð-
um tækifærum að ríkið annist þenn-
an rekstur.
Á meðal þeirra fyrirtækja sem
höfundar telja koma til greina að
selja, eru ríkisbankamir þrír,
Landsvirkjun, Póstur og sími,
Áburðarverksmiðjan, ÁTVR,
Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli og
Brunabótafélagið, auk fleiri fyrir-
tækja í eigu opinberra aðila.
Höfundar telja það veigamestu
röksemdirnar fyrir einkavæðingu,
að þannig dreifist hagvaldið til
fólksins, fyrirtækin verði betur rek-
in og geti skilað meiri arði. Einnig
geti ríkið með þessum hætti aflað
Qár til endurskipulagningar eða til
að greiða niður erlendar skuldir.
Ritgerðin „Eign handa öllum“ er
1. hefti 4. árgangs rannsóknarrita
Stofnunar Jóns Þorlákssonar.
Stofnunin hefur starfað frá árs-
bytjun 1983 og hefur dr. Hannes
Hólmsteinn Gissurarson verið fram-
kvæmdastjóri hennar frá upphafi.
Ritið er 68 síður að lengd. Það
er offsetfjölritað hjá Letri hf. í
Kópavogi.
(Úr fréttatilkynningu)