Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 31

Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 31 / Kaledónía: Kanökum boðið tíma- bundið sjálfstæði París, Reuter. NÝ stjórn sósíalista í Frakkl- andi hefur boðið kanökum í Nýju-Kaledóníu timabundna sjálfstjórn. Með tilboðinu vill stjórnin í París freista þess að koma á friði í þessari fjarlægu nýlendu sinni. Á fimmtudag boðaði forsætis- ráðherra stjórnarinnar, Michel Rocard, til fundar með fulltrúm aðskilnaðarsinna og þeirra sem halda vilja ríkissambandinu við Frakkland. Á fundinum kynnti Rochard tillögur stjórnarinnar sem felast í því að eyjunum verði að ári liðnu skipt í þrjú sjálfstæð áhrifasvæði. Þetta fyrirkomulag vill stjómin svo að reynt verði um tíma eða þar til kosið verður um sjálfstæði landsins árið 1998. Þegar kosið var um sjálfstæði landsins í fyrra völdu íbúamir með yfírgnæfandi meirihluta atkvæða að halda sambandinu við Frakka. og vonast til að þær verðir til að koma á ró í Kaledóníu. Skakki turn- inn í Pisa hallast enn Pisa, Reuter. SKAKKI turninn í Pisa hallar æ meir með hveiju árinu sem líður. Mælingar em gerðar af háskóla borgarinnar 21. júní á hveiju ári og frá því í fyrra hafði hallinn auk- ist um 1,29 millimetra. Gæslumaður tumsins áætlar að ef þessi þróun haldi áfram muni tuminn velta um koll eftir hundrað ár. Orsökin fyrir hallanum er landsig en sérfræðing- ar leita nú ráða til að styrkja undir- stöður hans. Skakki tuminn i Pisa er 56 metra hár klukkutum sem stendur við grasi vaxið torg í miðbæ Pisa. Vaxtarskeið engisprettu Á myndinni má sjá hin ýmsu vaxtarskeið engisprettu og stærð hennar frá einu hamstigi til ann- ars. Lengst til hægri er liðfætlan fullþroska. Gífurlegur engisprettufaraldur veldur miklum usla í Norður-Afríku um þessar mundir. Stefna risastór engisprettuský suður yfir Sahara og einnig hafa þau breiðst til Saudi-Arabíu. Kaledónísku fulltrúamir vildu lítið láta hafa eftir sér á fimmtu- dag eftir 90 mínútna langan fund með Rochard.„Það særðist eng- inn“ sagði Jacgues Lafleur, fulltrúi sambandssinna, við blaðamenn eftir fundinn. „Ekki svo slæmt, ekki svo slæmt“ sagði Jean-Marie Tijibaou, fulltrúi aðskilnaðarsinna. Næsti fundur Rochard með þeim Lafleur og Tijibaou verður á þriðjudag en þangað til munu full- trúamir íhuga tilboð forsætisráð- herrans. Yfírvöld í Ástralíu og á Nýja Sjálandi, sem mikið hafa gagnrýnt afskiptaleysi Frakka í Kaledóníu, hafa lýst ánægju sinni yfír samningaumleitunum í París Kanadísk rannsókn: Heilsufar háð erfðum ekki síður en umhverfi Björgunarmenn fylgjast með enn einni skriðunni, en þræ hafa tafið björgunarstörf mjög. Kcutcr Skriðuföllin 1 Tyrklandi: Grjóthrun tefur bj örgunarstörf Catak, Tyrklandi. Reuter. GRJÓTHRUN tafði í gær björgunarstörf í tyrk- neska þorpinu Catak og eru flestir orðnir úrkula vonar um að finna megi fólk á lífi undir skriðun- um, sem færðu þorpið á kaf að nokkru leyti. Varaborgarstjórinn í Svartahafsbænum Trabzon, Erkan Isilgan, sagði, að allt að 75 manns hefðu farist á fímmtudag en vísaði á bug getgátum Rauða hálf- mánans, Rauða krossins tyrkneska, um að 300 manns hefðu týnt lífi. Grjóthrunið olli því, að björgunarmenn urðu að flýja þorpið og er ekki ráðlegt að vera þar eftir myrkur. Átti að reyna að grafa upp veitingahús, sem skriðan færði á kaf, en þó er talið víst, að þar geti enginn verið á lífí. Ekki er alveg vitað hve margt fólk var í Stækka5 SOVETRIKIN svæði Stórrignmgar valdaskriöu- föllum Svartahaf Istartbul r Trabzon Ankara* Catak TYRKLAND SÝRLAND r IRAK Morgunblaöift/ AM veitingahúsinu þegar hörmungamar dundu yfir en heyrst hefur að þar hafí verið allt að 100 manns. Vancouver, Kanada. Reuter. ERFÐIR skipta jafnmiklu og um- hverfi þegar finna á út hvetjir muni fá sjúkdóma og hvenær þeir muni fá þá, segir Patricia Baird, prófessor við háskólann i Bresku Kólumbíu. Baird sagði í viðtali við Reuter á miðvikudag, að niðurstöður hennar bentu til þess, að unnt væri að draga mjög.úr sjúkdómahættu með því að erfðagreina fólk á ungum aldri. Þannig mætti finna þá, sem við- kvæmastir væru fyrir hveijum sjúk- dómi, allt frá heymæði til hjarta- kvilla. „Ef okkur tækist að fínna sumt af því fólki, sem hætt er við ákveðn- um sjúkdómum vegna erfða, meðan það er enn á æskuskeiði, gæfíst okk- ur færi á að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða." Gallaðir arfberar gefa rangar fyr- irskipanir, svo að af geta hlotist fæðingargallar eða truflanir á líkamsstarfseminni. Baird, sem er yfírmaður erfða- rannsóknadeildar háskólans, rann- sakaði ásamt aðstoðarmönnum sínum heilsufarsskýrslur rúmlega einnar milljónar ungmenna frá 60 heilsugæslustofnunum, og tók rann- sóknin þijú ár. Niðurstöðumar birt- ust í maíhefti American Joumal of Human Genetics, en voru kynntar almenningi á miðvikudag. Baird og félagar hennar sýndu fram á, að vísbendingar um erfða- galla fínnast hjá um 8% fólks innan 25 ára aldurs og 5,3% hafa þá þegar fengið sjúkdóma, sem ótvírætt verða raktir til erfðaþátta. „Flestir halda, að erfðasjúkdómar séu mjög sjaldgæfir,“ segir Baird. „Niðurstöður okkar sýna, að fólk fær að kenna á þeim — og þar með heil- brigðiskerfíð — jafnvel áður en það nær 25 ára aldri." Baird staðhæfir, að það stafi fyrst og fremst af erfðum, en ekki um- hverfisþáttum, hver fær hvaða sjúk- dóm og hvenær. Hún segir, að þeir, sem séu viðkvæmir fyrir vissum sjúk- dómum vegna erfða, veikist eftir að „fituríkt fæði okkar Vesturlandabúa, reykingar og umhverfísmengun hafa lagt sitt af mörkum". Þeir, sem hafa arfgengt næmi fyrir hjartasjúkdómum mundu ekki fá hjartaáfall, ef næmið væri upp- götvað nógu snemma og viðkomandi einstaklingum ráðlagt rétt matar- æði, sagði Baird. Hún sagði, að þetta væri um- fangsmesta rannsókn af þessu tæi til þessa. Næst ætlar hún að snúa sér að eldri kynslóðinni. „Þessi rannsókn náði til fólks inn- an 25 ára aldurs, en búast má við, að hjá eldri kynslóðinni séu erfðagall- amir, sem fram koma, þegar aldur- inn færist yfír, tvöfalt eða jafnvel þrefalt fleiri," sagði Baird. ^ Reuter Oður byssumaður í borginni Marseilles í Frakklandi trylltist maður nokkur í gær og hóf linnulausa skothrið á vegfarendur út um glugga á íbúð sinni. Til allrar hamingju varð hann engum að bana en þrír veg- farendur og lögregluþjónn slösuðust alvarlega. Lögreglan réðist inn í íbúð mannsins og tókst að yfirbuga hann eftir nokkurn tíma. Ekki er vitað um tilefni æðis þess, sem rann á manninn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.