Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
Fundur viðskiptaráðherra í Bainerd:
Ekkert samkomulag um
landbúnaðamiðurgreiðslur
ívar Guðmundsson fréttaritari Morgunblaðsins, Washington.
Reuter
Rómversk veggjabrot
frá 753f.Kr.
Fomleifafræðingar hafa fundið veggjabrot í upprefti á Palatín-hæð í
Róm sem þeir telja að séu frá því borgin var stofnuð. Telja þeir sem
að greftinum vinna að veggimir séu frá því 753 fyrir Krist þegar
sagan segir að Rómúlus hafí byggt borgarvirki á þeim stað sem hann
og tvíburabróðir hans, Remus, voru fóstraðir af úlfynju. Hingað til
hafa sagnfræðingar litið á söguna af Rómúlusi sem þjóðsögu, en upp-
gröfturinn á eftir að breyta því áliti að sögn forráðamanna uppgraftar-
ins á Palatín-hæð.
Viðskiptaráðherrum vestrænu
stórveldanna, sem héldu fund í
bænum Brainerd í Minnesota
Norður-írland:
IRA skaut
niður breska
herþyrlu
Belfast. Reuter.
TALSMENN írska lýðveldis-
hersins, IRA, sögðu í gær, að
liðsmenn hans hefðu skotið nið-
ur breska herþyrlu með vél-
byssu. Orðrómur var á kreiki
um að IRA-mennirnir hefðu
notað flugskeyti en svo reyndist
ekki vera.
Lynx-þyrlan, sem er notuð til
liðs- og birgðaflutninga, nauðlenti
á fímmtudag eftir að skotið hafði
verið á stélhluta vélarinnar og
særðist einn flugliðanna lítilshátt-
ar. Þyrlan var strax tekin í sundur
og flutt burt til rannsóknar.
Þetta er í fyrsta sem bresk her-
þyrla er skotin niður yfír Norður-
Irlandi. Fyrir nokkrum ámm var
skotið á tvær Wessex-þyrlur, sem
eru miklu stærri en Lynx-þyrlan,
en þær þurftu ekki að lenda af
þeim sökum.
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRJÁTÍU manns voru handtekin
í fyrrakvöld þegar til mikilla
átaka kom milli lögreglunnar og
mótmælenda í miðborg Óslóar.
Evrópubandalagið:
Samið um
landbúnað-
armálin
Luxemborg. Reuter.
AÐILDARRÍKI Evrópubanda-
lagsins náðu í gær samkomulagi
um landbúnaðarverðið og um
framlög til bænda. Kom sam-
komulagið nokkuð á óvart enda
hefur staðið i stappi um þessi
mál í nokkra mánuði.
Grikkir hafa verið einna þverast-
ir í viðræðunum um landbúnaðar-
málin en þegar ákveðið var að verða
við nokkrum kröfum þeirra féll allt
í ljúfa löð. Með samkomulaginu er
frystur sá hluti verðsins, sem 10
milljón bændur í Evrópubandalag-
slöndunum fá frá ríkinu, og á það
að verða til að lækka framlögin í
raun og leiða til minni birgðasöfn-
unar.
Tilhliðrunin við Grikki kostar EB
nokkuð á fjórða milljarð ísl. kr. en
þeir peningar eiga að leggjast til
vegna annars niðurskurðar á land-
búnaðarfjárlögunum. Heildarfram-
lögin til landbúnaðarins verða því
áfram um 1.520 milljarðar ísl. kr.
á ári.
Hafði fólkið safnast saman til að
andmæla verulegum niðurskurði
á fjárlögum borgarinnar.
Fjárhagur Óslóarborgar er ekki
sem bestur um þessar mundir og
ákvað borgarstjómin að skera fjár-
lögin niður um rúma fimm milljarða
ísl. kr. Bitnar niðurskurðurinn ekki
síst á framlögum til félagslegrar
aðstoðar, til skólanna og almenn-
ingssamgangna. Hefur áður verið
efnt til mótmæla vegna samdráttar-
ins og stundum komið til heiftar-
legra slagsmála. Meðal mótmæl-
endanna hefur borið mikið á fólki,
sem stundar kaffíhúsið Blitz en það
reka atvinnuleysingjar og pönkarar.
Þegar fyrst var skýrt frá niður-
skurðinum reyndu 100 manns frá
Blitz að ryðjast inn í Ráðhúsið í
Ósló en þá fór þar fram veisla til
heiðurs Margréti Danadrottningu.
Kostaði veislan sú nærri fímm millj-
ónir fsl. kr.
Búist hafði verið ólátum í borg-
inni í fyrrakvöld og þau létu heldur
ekki á sér standa. Voru 30 hand-
teknir eins og fyrr sagði og þar á
meðal Erling Folkvord, sem situr í
borgarstjóm fyrir kommúnista-
flokkinn Rauða kosningabandalag-
ið. Var hann sektaður um 35.000
kr. ísl.
Willy Haugli, lögreglustjóri Ósló-
ar, hefur neitað ásökunum um, að
lögreglan sé óþarflega harðhent og
segir, að flestir mótmælendanna
séu „óþjóðalýður og skríll“. Hefur
hann heitið því, að kyrrð og friður
verði í borginni á næstunni.
Útgjöld borgarsjóðsins hafa auk-
ist hröðum skrefum síðustu árin en
það sama verður ekki sagt um tekj-
umar. 1983 voru útgjöldin 13 millj-
arðar nkr. en eru nú 19 milljarðar.
núna í vikunni, tókst ekki kom-
ast að samkomulagi um sameig-
inlega stefnu um niðurgreiðslur
landbúnaðarvara, sem Banda-
ríkin og Kanada hafa hvatt Evr-
ópubandalagið og Japan að gera.
Það fór því á sömu leið og á leið-
togaráðstefnunni í Toronto um
síðustu helgi. Landbúnaðar-nið-
urgreiðslustefnan er óleyst.
Það er haft eftir Clayton K. Ye-
utter, viðskiptaráðherra Banda-
ríkjanna, að niðurgreiðslumálið hafi
ekki verið opinberlega á dagskrá á
Brainerd-fundinum, en hafi hins-
vegar verið ítarlega reifað á bak
við tjöldin. í þeim umræðum hafi
komið greinilega í ljós bilið milli
Bandaríkjastjórnar og Kanada ann-
arsvegar og Evrópubandalagsins og
Japans hinsvegar, og því sé ekkert
útlit fyrir samkomulag að sinni.
Yeutter viðskiptaráðherra lét svo
ummælt, að næsta skrefið í þessu
máli yrði tekið á GATT-fundi (Al-
þjóðlegar viðræður um viðskipta-
og tollamál), sem haldinn verður í
Montreal 5. desember næst kom-
andi. Þingmenn úr landbúnaðar-
nefnd Bandaríkjaþings munu sitja
þennan GATT-fund og verði nefnd-
armenn fyrir vonbrigðum á þeim
fundi sé ekki ólíklegt, að Banda-
ríkjaþing taki til sinna ráða í þessu
máli, sagði Yeutter viðskiptaráð-
herra.
Alþjóða vinnumálastofnunin:
Hvatt til frjálsrar
verslunar með
landbúnaðarafurðir
Osló:
Af log í Osló vegna nið-
urskurðar borgarinnar
Genf, Reuter.
ALÞJÓÐA vinnumálastofnun-
in , ILO, hvatti í fyrradag vest-
ræn iðnríki og kommúnistaríkin
til að aflétta innflutningshömlum
á landbúnaðarafurðum frá þriðja
heiminum. Þetta kom fram í
lokayfirlýsingu ársþings stofn-
unarinnar sem staðið hefur í
þijár vikur í Genf.
ILO leggur til að iðnríkin leggi
meiri áherslu á atvinnuþróun í
sveitahéruðum ríkjanna. Enn frem-
ur segir í yfírlýsingunni að innflutn-
ingshömlur iðnríkjanna eigi að
miklu leyti sök á hratt lækkandi
tekjum þriðja heims ríkjanna og
vaxandi atvinnuleysi þar. Vestræn
ríki eiga að stefna að því að minnka
offramleiðslu sína á matvælum og
opna markað sinn fyrir framleiðslu-
vörum þriðja heimsins, segir í yfír-
lýsingunni.
ILO ráðleggur einnig kommún-
istaríkjunum að flytja inn meira af
matvælum frá þriðja heiminum en
einnig verði þau að auka framleiðni
í eigin landbúnaði.
Þriðja heims ríkjum er ráðlagt
að styðja við bakið á litlum og
meðalstórum búum og fyrirtækjum
sem fullvinna afurðir landbúnaðar-
ins; þannig sé hægt að fjölga störf-
um. í sumum tilvikum geti það
hraðað þróuninni að skipta stórjörð-
um í þágu smábænda. Slíkt megi
þó aðeins gera á löglegan hátt og
bæta verði stórjarðeigendum tjónið.
Reuter
Lögregla heldur mótmælendum í skefjum. Gyðingar í Austurríki
hafa gagnrýnt páfa fyrir að hitta Kurt Waldheim forseta Austurríkis.
Páfinn í Austurríki:
Fordæmir andgyðinglegan áróður
Vín, Mauthausen. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi annar dvel-
ur nú í Austurríki þar sem hann
hefur heimsótt útrýmingarbúðir
nasista frá því í síðari heimsstyrj-
öldinni og hitt austurríska ráða-
menn og fulltrúa austurriskra
gyðinga.
Á fundi sínum með gyðingunum
varð páfa tíðrætt um gyðingaof-
sóknir nasista. „Þjáningar þessa
fólks settu spor í sál mína,“ sagði
páfi sem sjálfur hjálpaði pólskum
gyðingum að flýja í stríðinu. „Það
væri óréttlætanlegt og ósatt að
kenna kristindómnum um ofsókn-
imar,“ bætti hann við. Gyðingar í
Austurríki mótmæltu því að páfí
skyldi hitta Kurt Waldheim, sem
sakaður hefur verið um stríðsglæpi.
Páfí fordæmdi andgyðinglegan
áróður, en sagði jafnframt að Pal-
estínumenn ættu jafnan rétt og
ísraelsmenn á föðurlandi. Leiðtogi
austurrískra gyðinga, Paul Grosz,
reyndi að fá páfa til að samþykkja
að ísraelsmenn fengju að hafa
sendiherra í Vatikaninu.
Páfí sagði á fundi sínum með
gyðingunum að friður fyrir botni
Miðjarðarhafs væri skilyrði þess að
tekið yrði upp samband við ísrael.
„Við verðum að krefjast þess að
bæði gyðingar í ísrael og Palestínu-
menn fái að njóta sömu réttinda,"
sagði hann. Eftir fundinn með páfa
lýstu leiðtogar gyðinga því yfir að
þeir væm ánægðir með fundinn.
„Hann reyndi ekki að forðast að
tala um viðkvæm mál eins og
ástandið í ísrael," sagði Chaim Eis-
enberg rabbíi.
Síðdegis í gær heimsótti páfi út-
rýmingarbúðirnar í Mauthausen.
Talið er að meira en 100.000 manns
hafi verið líflátnir í búðunum í gas-
klefum eða látist úr hungri og vos-
búð.