Morgunblaðið - 25.06.1988, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 25.06.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNÍ 1988 33 Víetnam: Umbótasinni kosinn f orsætisráðherra Orðum prýddur aðalritarinn er sagður hafa aukið brennivíns- drykkjuna „vitandi vits“ til að landsmenn gleymdu frekar vör- uskortinum í landinu. Sovétmenn draga dár aðminningu Brezhnevs Moskvu. Reuter. SOVÉSKIR embættis- og menntamenn hafa síðustu daga verið að minnast Leoníds heitins Brezhnevs og skopast þeir óspart að honum. Segja þeir, að stefna hans í þjóðmálum hafi minnt á „grátbroslegan gamanleik", að hann hafi gerst sekur um glæpi gegn sínu eigin fólki og dregið sjálfan sig ofan í svaðið þaðan sem minningin um hann eigi aldrei afturkvæmt. Sovéska dagblaðið Strojtelnaja Gazeta birti á fimmtudag grein þar sem fimm menn, þar á meðal fyrr- um félagi í stjómmálaráðinu, minn- ast stjómarára Brezhnevs. Segja þeir, að aðalritarinn fyrrverandi hafi ekki verið upp á marga fiska f siðferðilegum efnum, leyft skrif- finnsku og spillingu stalínstímans að blómstra áfram og kunnað því vel að vera ausinn alls kyns gjöfum. Brezhnev ,jók brennivínsfram- leiðsluna vitandi vits“ til að almenn- ingur sætti sig frekar við annan vöruskort „og þar var engin ævin- týramennska á ferðinni, heldur glæpur gegn þjóðinni", sagði hag- fræðingurinn V. Belov og G. Kúnít- syn, heimspekidoktor og prófessor við Gorkí-stofnunina, sagði, að Brezhnevs yrði „aldrei minnst með virðingu“. Stefna hans í þjóðmálum hefði verið líkust „skrípaleik eða grátbroslegum gamanleik" og fremur í ætt við stalínisma en lenín- isma. Mennirnir fimm, tveir mennta- menn, hershöfðingi í hernum, fyrr- um félagi í stjórnmálaráðinu og aðstoðarríkissaksóknari Sovétríkj- anna, sögðu, að á Brezhnevtíman- um hefði upphefð manna eingöngu farið eftir því hve duglegir þeir voru að smjaðra fyrir aðalritaran- um. „Mútur, baktjaldamakk og þjófnaður eru ekki ný af nálinni en í tíð Brezhnevs blómstraði þetta sem aldrei fyrr,“ sagði Alexander Katúsev aðstoðarríkissaksóknari og bætti því við, að brátt hæfust réttar- höld í máli Júrís Tsjúbanovs, tengdasonar Brezhnevs, en hann er sakaður um spillingu. Petr Shelest, fyrrum leiðtogi kommúnistaflokksins í Ukraínu og félagi í stjórnmálaráðinu þar til Brezhnev rak hann árið 1973, sagði, að Brezhnev hefði farið fram á það í tilefni af sextugsafmælinu árið 1966, að hann yrði sæmdur orðunni Hetja Sovétríkjanna. Er sú orða annars einkum ætluð stríðshetjum og geimförum. Nikolaj Podgomí, þáverandi forseti, hringdi í Shelest og skýrði honum frá ósk Brezhnevs. „Þetta er nú það, sem hann vill, og það er eins gott fyrir þig að samþykkja það líka því að hann er búinn að sannfæra fjölda manna um, að hann eigi hana skilda," sagði Podgorní. Bangkok. Reuter. DO Muoi hét því í gær að grípa til umbóta í Víetnam í anda umbótastefnu sovézku stjórnar- innar. Muoi var kjörinn forsæt- isráðherra Víetnams af þingi landsins í fyrradag. Muoi er 71 árs Norður-Víetnami og er þriðji valdamesti maður víet- namska kommúnistaflokksins. Strax eftir kjörið lýsti hann stuðn- ingi við hugmyndir Nguyen Van Linhs um lausn gífurlegs efna- hagsvanda þjóðarinnar. Linh hefur Míkhaíls Gorbatsjovs, leiðtoga Sovétríkjanna. Honum hefur þó ekki tekizt að stöðva hnignun víet- namsks efnahagslífs. Vestrænir stjómarerindrekar í Bangkok í Thailandi sögðu í gær að Muoi væri líklegur til að hreinsa Do Muoi, nýkjörinn forsætisráð- herra Vietnam. Hann hefur hei- tið því að grípa til umbóta í anda sovésku stjórnarinnar. til í röðum embættismanna og ryðja „vanhæfum“ mönnum úr valdastöðum í flokknum. Þingið tók hann fram yfír Vo Van Kiet, starfandi forsætisráðherra, sem sóttist eftir embættinu en þótti ekki starfi sínu vaxinn. Muoi fæddist skammt frá Hanoi árið 1917. Hann tók þátt í barátt- unni gegn frönsku nýlenduherrun- um frá 14 ára aldri, var hand- tekinn árið 1941 en tókst að flýja úr fangelsi 1945. Hann var gerður að verzlunarráðherra 1958 en hvarf af sjónarsviðinu nokkmm ámm seinna, vegna veikinda, að því talið er. Hann komst aftur tii áhrifa er hann var valinn aðstoðar- forsætisráðherra 1969. Hann varð félagi í stjórnmálaráði víetnamska kommúnistaflokksins árið 1976. ERLENT Evrópukeppni landsliða: 1.200 manns handteknir Bonn, Reuter. LÖGREGLAN hefur hand- tekið 1.200 knattspyrnubullur meðan Evrópukeppni lands- liða í knattspyrnu hefur staðið í Vestur-Þýskalandi, að því er Friedrich Zimmermann, inn- anríkismálaráðherra Vestur- Þýskalands, sagði í gær. „Þetta virðist há tala, en taka verður tillit til þess að rúmlega 900.000 áhorfendur hafa verið á leikjunum,“ sagði Zimmermann. Hann sagði að knattspymubull- urnar, aðallega Vestur-Þjóðveij- ar og Bretar, .hefðu ekki truflað keppnina sjálfa og frekar frið- samlegt hefði verið á völlunum. Lögregluyfirvöld hafa lofað miklum viðbúnaði vegna úrslita- leiksins milli Hollendinga og Sov- étmanna í Miinchen í dag. ^aVJaVHós nú r í 4 Saintpaulia nukr.ia*>- Fagleg þekking - fagleg þjonusta Bettehemstjama nú kr. 299
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.