Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 35

Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 35 r igum, ri... m, Morgunblaðið/Bjami ilabíói fyrir tónleika sína á Lista- ■ur á söngvaranum á æfingu, frek- sað um bindishnútinn. í La Traviata er nýjasta hlutverkið mitt, söng það heima í vetur, svo eitthvað sé tínt til. Allt eru þetta ólík hlutverk." Fjörutíu hlutverk heima fyrir, innan við tíu erlendis — Ólík hlutverk, en ekki aðeins það. Þú hefur sungið um fjörutíu hlutverk heima fyrir, en innan við tíu utan Finnlands. Þetta er vænt- anlega ekki tilviljun? „Finnland er lítið land, svo það er ekki möguleiki að vinna ein- göngu þar. Nauðsynlegt að láta aðra vinda blása um sig. En ég vildi halda í taumana sjálfur. Landið mitt og vinnan þar hefur verið mér mjög mikils virði. Ég hef svo margt gott þaðan, svo ég vil vinna mest heima fyrir. Það er mér mikilvægt að eiga líf með fjöl- skyldunni, vera ég sjálfur. Sá, sem er alltaf á ferðinni, gerir það sem umboðsmennirnir vilja, glutra nið- ur eigin lífi. Ég er of eigingjarn til þess.“ — Hljómar fremur sem skyn- semi en eigingirni, en það eru margir hljómlistarmenn, sem setja ferðalög og hendiþeyting ekki fyr- ir sig- „Þetta er mín ákvörðun. Annað er kannski ekki slæmt fyrir aðra. Hins vegar er aiveg ljóst að marg- ir þekktir söngvarar ferðast of mikið og syngja of mikið. Fyrir röddina, andlega og líkamlega líðan, þá hljóta að vera einhver takmörk. Það er ekki hægt að halda sér í besta formi með slíku líferni. Sem stendur virðist vera tímabil ofurstjarnanna og áheyrendur fylgjast með þeim af miklum áhuga. Ofurstjörnur, sem eru sett- ar á stall eins og guðir. Þetta er holhljóma, slæmt fyrir listina, því kjarninn, sálin í listinni, ereitthvað allt annað. Áhrif listarinnar stafa ekki frá einstaklingum, heldur list- inni sjálfri. Útstillingarmennska í kringum einstaka listamenn hefur ekkert með list að gera.“ Samtímaóperur — þar er textinn oft svo góður — Þú hefur verið óbanginn að taka að þér hlutverk í nútíma, finnskum óperum. „Og haft af því ómælda ánægju. Textinn í þessum nýju óperum er oft svo miklu betri en í klassísku óperunum, svo þær geta verið mjög áhugaverð og gefandi viðfangsefni fyrir söngvara. í þeim samtíma óperum, sem ég hef tekið þátt í, hefur tónlistin líka verið góð. Leg- ið vel við söng, sem er meira en hægt er að segja um allar nýjar óperur. Það virðist eins og sum tónskáld vilji aðeins koma radd- tónum á framfæri, ekki sjálfri röddinni og söngnum. Og klassísk radd- og söngþjálfun kemur til góða í samtíma óperum. Er undir- staða þess að syngja í þeim.“ — Auk þess að syngja, ertu list- rænn ráðunautur Finnsku þjóðar- óperunnar. Hvernig snýr það starf við þér? „Ég hef sinnt því í fjögur ár og er nýbúinn að taka að mér önnur fjögur ár í viðbót. Við erum þrír yfir óperunni, hver með sitt verk- svið og samvinnan er eins og best verður á kosið. Starfinu er hagað þannig, að get ég ferðast að vild. Mitt hlutverk er að velja verk- efni, ræða við leikstjóra og stjórn- endur, ákveða hvaða stjómendur eigi að nota eða kalla til, svo eitt- hvað sé nefnt. Ég þekki marga erlenda leikstjóra, söngvara og stjómendur, sem ég get oft fengið til að koma til Finnlands og vinna fyrir okkur. Allt, sem snertir list- ræna hlið óperurekstursins, er mér viðkomandi. Undanfarin ár hefur verið lögð mikil áhersla á að setja upp nýjar óperur. Það er vissulega mikil- vægt, en nýjungagirnin hefur orðið á kostnað klassískra verka. Ekki verið bætt við klassísku verkefna- skrána sem skyldi. Það þarf ólíka hluti í viðfangsefnin, mismunandi stíla, einnig samtímatónlist, en aðaláherslan verður að vera á klassísku línuna. Eftir fjögur ár flytur óperan í nýtt hús og þá verð- ur að vera komið jgott jafnvægi í verkefnaskrána. A þá ekki við verkefnaskrána, þegar er litið til einstakra ára, heldur til lengri tíma.“ Finnskt tónlistar- líf blómlegt „Á hveiju ári em settar upp nýjar ópemr heima fyrir. Sem stendur em fjórar eða fimm í burð- arliðnum. Aulis Sallinen er að semja ópem fyrir opnun nýja ópemhússins. Tónskáldin Aarre Merikanto, Paavo Heininen og Eino-Juhani Rautavaara hafa allir verið dijúgir við óperusamningu. Það er óhætt að segja, að sem stendur er spennandi að vera söngvari í Finnlandi og þá ekki síður að taka þátt í listrænni mót- un tónlistarlífsins þar.“ — Tónlistarlífið í Finnlandi virð- ist blómstra, séð utan frá. Er það jafn gott innan frá séð? „Það er að ýmsu leyti mjög gott. Ég hef nefnt óperurnar nýju. Ungir, finnskir stjórnendur fara víða og einn þeirra er hér, Petri Sakari. Við höfum alltaf átt góða söngvara og það em ungir á leið- inni. Tónskáld hafa góða mögu- leika á að fá verk sín flutt, líka þau yngstu og ekki aðeins innan- lands, heldur einnig utaníands. Fyrir svo lítið land eins og Finn- land, þá er tónlistarlífið gott . . . og mjög áhugavert." Texti: Sigrún Davíðsdóttir AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MARTIN NESIRKY Loftbrúin til Berlínar: 40 ár frá því loftflutn- ingar til Berlínar hófust Vestur-Berlín, Reuter. Loftbrúin til Berlínar hélt lífi í borgarbúum í Berlín í ellefu mánuði, frá því í júní árið 1948 fram í maí árið 1949. Til þess að það væri hægt þurfti 380 flugvélar á dag sem fluttu 2,3 milljónir tonna af matvælum, kolum og öðru því sem fólk í borginni þurfti til lífsviðurværis þessa mánuði. Flugmennirnir höfðu varla undan að hlaða og afferma vélarnar. Segja má að þær hafi stöðugt verið á lofti. Sjötíu og átta bandarískir, breskir og þýskir flugmenn létu lífið í þessari miklu og merki- legu aðgerð, sem hófst eftir að Sovétmenn lokuðu öllum leiðum til Berlínar 24. júní 1948. Vestur- Berlín var síðasta bitbeinið í deil- unni um skiptingu Þýskalands eft- ir sigurinn yfir nasistum. um þetta leyti að ræða um að koma á fót ríkisstjórn í Vestur- Þýskalandi. Sovétmenn settu sig upp á móti þessum fyrirætlunum og í mars gengu þeir af fundi um stofnun þýsks ríkis. 7. júní gengu fulltrúar Sovétríkjanna aftur út af fundi sem fjallaði um þetta mál. Farnar voru 227.728 ferðir með vistir til Berlínar. Flestar urðu ferðirnar síðasta mánuðinn, eða 27.717 ferðir. Þá voru flutt 250.794 tonn af matvælum og kolum. Sovéskar flugvélar fylgdu oft flugvélum bandamanna eftir, en aldrei var gerð tilraun til að koma í veg fyrir flutningana. Sovétmenn settu á stofn loft- ferðaeftirlit í Berlín á þessum árum til að fylgjast með ferðum flugvéla og það er kaldhæðnislegt að loftferðaeftirlitið er eina stofn- unin sem sett var á stofn í Þýska- landi í stríðslok sem enn starfar. Reuter Börn í Berlín veifa bandarískri flugvél árið 1948. Flugmennirnir áttu það til að varpa óvæntum glaðningi út yfir borginni sem var vel þeginn af börnunum sem kölluðu Skymaster-vélarnar „rúsínu-vélarnar“. Tákn um bilið milli austurs og vesturs Fyrir Vestur-Þjóðveija varð einangrun Sovétmanna og loft- brúin til Berlínar tákn þess bils sem skilur að löndin í austri og vestri á sama hátt og Berlínarm- úrinn sem reis árið 1961. I austantjaldslöndum var litið á aðgerðir Sovétmanna í Berlín Sem nauðsynlegan mótleik vegna þess að Bretar og Bandaríkjamenn höfðu ákveðið að taka upp nýjan gjaldmiðil sem nota átti í Vestur- Þýskalandi og Vestur-Berlín en ekki í Austur-Berlín. Sagnfræð- ingar austantjalds halda því fram að þessi lokun Sovétmanna hafi einungis verið efnahagsleg aðgerð og hafi ekki verið til þess gerð að bola bandamönnum burt frá Berlín. Það sem olli mestum erfiðleik- um vegna samninga bandamanna, Breta, Bandaríkjamanna og Frakka við Sovétmenn, var að Berlín er staðsett á yfirráðasvæði Sovétmanna, þar sem nú er Aust- ur-Þýskaland. Til þess að fiytja matvæli og vistir til fólks á yfir- ráðasvæði sínu þurftu bandamenn að nota járnbrautalestir, bifreiðir eða báta. Vesturveldin tryggðu ekki með skriflegum samningi við Sovétríkin að flutningaleiðum til borgarinnar yrði haldið opnum. Þeir áttu eftir að sjá eftir því. Samband Sovétmanna og bandamanna, Frakka, Breta og Bandaríkjamanna, var aldrei gott í Berlín, en í ársbyijun 1948 sló í brýnu. Sovéskir hermenn fóru að stöðva lestar til borgarinnar. Bretar og Bandaríkjamenn voru Tekið á móti flugvél í Berlín, vélarnar voru affermdar á átta mínútum. Flogið var rakleiðis til baka til að ná í næsta farm. Nýr gjaldmiðill tekinn upp í V-Þýskalandi 18. júní var mælirinn fullur að mati Sovétmanna, þegar ákveðið var að taka upp nýjan gjaldmiðil í Vestur-Þýskalandi, þýska mark- ið skyldi taka við af ríkismarkinu. Sovétmenn svöruðu þessu með því að loka öllum landleiðum til Vest- ur-Berlínar 24. júní árið 1948. Tveim dögum eftir að landleið- um til borgarinnar var lokað ák- váðu bresk og bandarísk jrfirvöld að hefla flutninga með flugvélum til Vestur-Berlínar. Flutningarnir, sem áttu að vera skammtíma- lausn, stóðu í ellefu mánuði, þar til í maí árið 1949, þegar Sovét- menn afléttu lokuninni. Fyrsta flugvélin hafði reyndar farið frá Frankfurt til Berlínar 23. júní þegar ljóst var að Sovét- menn ætluðu að einangra borgina. „Vöggur frændi“ heiðursgestur á hátíðinni Kostnaður Bandaríkjamanna vegna þessara flutninga nam 250 milljónum dollara og hinar þjóð- irnar tvær lögðu annað eins af mörkum. Til að minnast þessa sameiginlega afreks ætla sendi- menn bandamanna í Bonn og háttsettir embættismenn að efna til flugferða til Vestur-Berlínar og halda hátíð í bandarísku her- stöðinni í Tempelhof í Berlín. Heiðursgestur á hátíðinni verður Gail Halvorsen fyrrverandi flug- maður í bandaríska flughernum sem tók þátt í flutningunum til Berlínar. Hann var kallaður „Vöggur frændi“ vegna þess að hann vaggaði flugvél sinni áður en hann lét góðgæti til barnanna falla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.