Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 42

Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 42
I ! 42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 Eggaldin — Aubergine. Þetta er aldin sem ræktað hefur verið i Garðyrkjuskólanum í Hveragerði frá árinu 1970. Og þótt það hafi verið svona lengi í ræktun hérlendis er fjöldi manns sem alls ekki veit hvernig á að nota það. Mönnum kemur ekki saman um hvar þetta aldin er upprunnið, en til er nafn yfir það á sanskrít, Vatin-ganah, sem þýðir það grænmeti sem ekki hreyfist i vindi. Þeir hafa liklega ekki þar eins veðráttu og við Sunnlendingar höfum mátt þola um þjóðhátíðina. Ameríska nafnið er eggplant eða eggaldin og það nafn notum við hér, en það er komið til af því að það aldin sem ræktað var í Norður-Ameríku var egglaga. Þetta nafn er þó villandi þar sem eggaldinið hefur margs konar lögun og lit. í Thai- landi vex smávaxið afbrigði, sem er hnöttótt. Liturinn getur verið allt frá því að vera hvítur eða hvitgrænn upp i að vera blásvartur eins og við þekkjum eggaldinið sem hér er ræktað. Einnig geta eggaldin verið dökkgræn og gul eða jafnvel purpurarauð. Fallegustu eggaldinin eru filabeinshvit og voru ræktuð sem skrautplanta hér áður fyrr. Þessi fallegu eggaldin eru þó lítið sem ekkert frábrugðin hinum hvað bragð snertir. Hér á landi finnst mörgum lítið til eggaldins koma en suður við Miðjarðar- hafið er hið milda bragð eggaldins i miklum metum. Það gefur fyllingu og ljúft bragð i ýmsa samansoðna rétti og er ómissandi i ratatouille og moussaka, sem eru vinsælir réttir þar um slóðir. Mjög gott er að nota mjólkuijafning, tómata og ost með eggaldini. Oft er hýðið á aldininu borðað með og þá einkum ef maður ætlar að fylla það, nota sem einskonar mót. Stundum er mótið sem rétturinn er soðinn i þakið húðinni að innan þannig að þeg- ar hvolft er úr mótinu myndast mjög sérkennilegur búðingur. Mér finnst þó betra að nota ekki hýðið. Safi er i eggaldininu og er hann rammur. Gott er að strá salti yfir sneiðarnar. Láta þær standa með saltinu í þijátiu mínútur og skola síðan saltið af. Saltið dregur út þennan ramma safa. Ég nota eggaldin mikið og núna meðan við bíðum eftir uppskeru ýmiss annars grænmetis ættum við að borða það. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Ratatouille Grænmetiskássa Þessi réttur er kominn frá hér- aðinu Provence í Frakklandi en þar er hann fyrst skráður á 18. öld. Er þó sennilega eldri. */2 kg eggaldin >/2 kg meija (courgette) V2 kg tómatar 2 paprikur, rauðar eða grænar 3 meðalstórir laukar 2—3 hvitlauksgeirar V4 dl matarolía V4 tsk. pipar V2 tsk. sykur V4 tsk. korianderduft (fæst víða) væn grein fersk steinselja 1. Þvoið eggaldinið og mergj- una. Afhýðið ekki. Skerið síðan í sneiðar. 2. Stráið salti á sneiðarnar og látið standa í 30—60 mínútur. Þerrið þá saltið af sneiðunum með eldhúspappír. 3. Hellið sjóðandi vatni á tómat- ana. Látið standa í vatninu í 1 mínútu. Takið húðina af. 4. Takið steina úr paprikunum, skerið síðan í litla bita. 5. Afhýðið laukinn og saxið. Afhýðið hvítlaukinn og skerið í sneiðar. 6. Setjið matarolíu í pott. Hafíð hægan hita. 7. Setjið lauk og hvítlauk í pott- inn og sjóðið í 5 mínútur. Setjið þá paprikuna og eggaldinið í bit- um út í. Sjóðið í 5 mínútur. 8. Setjið nú mergjuna í bitum og tómatana út í. 9. Setjið edik, pipar og sykur út í og sjóðið í opnum potti í 50 rhínútur. Hrærið öðru hvetju í þessu en meijið grænmetið ekki í sundur. 10. Þegar 10 mínútur eru eftir af suðutímanum er korianderduf- tið sett út í. 11. Hellið réttinum í skál, klipp- ið steinselju yfir. 12. Ef ykkur sýnist svo er gott að skera nokkrar ólífur í sneiðar og setja út í 2—3 mínútum áður en rétturinn er fullsoðinn. Meðlæti: Ristað brauð eða snittubrauð. Ég mæli ekki með djúpsteiktum mat en eggaldin fritters er vin- sæll réttur við Miðjarðarhafið. Djúpsteikt egg'aldin (Fritters) 1 meðalstórt eggaldin 1—2 tsk. salt IV4 dl hveiti 1 tsk. lyftiduft 1 egg 1 msk. matarolía 1 tsk. paprikuduft V8 tsk. múskat olía til að steikja úr 1 sítróna í bátum 1. Afhýðið eggaldinið, skerið í sneiðar. Stráið salti á sneiðamar báðum megin. Látið standa þann- ig í 30—60 mínútur. 2. Skolið sneiðarnar og þerrið með eldhúspappír. 3. Setjið hveiti og lyftiduft í skál ásamt paprikudufti og mú- skati. 4. Hrærið egg og matarolíu út í. Bætið vatni í ef deigið er mjög þykkt. 5. Hitið matarolíuna. 6. Dýfíð eggaldinsneiðunum í deigið og djúpsteikið í olíunni þar til þær eru gullnar á báðum hlið- um. 7. Leggið á eldhúspappír, hald- ið síðan heitum. 8. Berið eins fljótt á borð og hægt er. 9. Berið sítrónubáta með. Athugið: Þetta er skemmtileg- ur forréttur. Næsti réttur er úr bók minni 220 ljúffengir lambakjötsréttir. Eggaldinréttur með hakki (Moussaka) 1 stórt eggaldin 2 tsk. fínt salt til að strá á eg- galdinið 2 msk. brætt smjör til að smyija eggaldinsneiðarnar með 1 msk. matarolía 1 stór laukur 2 hvítlauksgeirar 1 kg lamba- eða kindahakk (má nota nautahakk) 2 tsk. salt V4 tsk. pikar 1 lítil dós tómatmauk 5 tómatar eða 1 hálfdós niður- soðnir tómatar 1 tsk. sykur V4 tsk. kanill væn grein fersk klippt steinselja 2 msk. smjör í jafninginn 2 msk. hveiti 2V2 dl mjólk V4 tsk. rifin múskathneta eða til- búið duft ’/8 tsk. salt Vs tsk. pipar 1 egg 200 g rifinn maribóostur + 2 msk. rifinn parmesanostur 1. Skerið eggaldinið í 1 sm þykkar sneiðar. Látið húðina vera á þeim. Stráið salti á sneiðarnar og látið standa þannig í 1 klst. Þurrkið þá saltið af með eld- húspappír. 2. Smyijið eldfast fat. Raðið eggaldinsneiðunum á fatið og smytjið með smjörinu. Glóðars- teikið í 7 mínútur á fyrri hliðinni. Snúið sneiðunum við. Smyijið aft- ur með smjörinu og glóðarsteikið hinum megin. 3. Hitið olíuna á pönnu. Saxið laukinn og skerið hvítlaukinn í smásneiðar og sjóðið í olíunni í 10 mínútur. Gætið þess að þetta brúnist ekki. Aukið þá hitann á pönnunni. Færið laukinn til hliðar en sjóðið hakkið þar til allur vökvi er gufaður upp og það fer að brún- ast. 4. Hellið sjóðandi vatni átómat- ana. Látið þá standa í vatninu í 1 mínútu. Flettið síðan húðinni af. 5. Setjið salt, pipar, tómat- mauk, smátt skoma tómata, syk- ur, kanil og steinselju út í. Minnk- ið hitann. Setjið lok á pönnuna og látið sjóða í 30 mínútur. Hræ- rið öðru hveiju í þessu. 6. Bræðið smjör í potti, hrærið hveitið út í. Þynnið með mjólkinni og búið til uppbakaðan jafning. 7. Hrærið múskat, salt og pipar út í jafninginn ásamt helming rifna ostsins. Sláið eggið sundur og bætið í jafninginn. 8. Setjið helming eggaldin- sneiðanna í eldfasta skál. Setjið síðan helming kjötkássunnar ofan á, síðan aftur eggaldin og svo afganginn af kjötkássunni. Setjið jafninginn ofan á, stráið osti yfir og bakið í bakaraofni í 50—60 mínútur við 180°C. Eggaldin með ýsu, tómötum og osti 2 eggaldin, u.þ.b. 800 g 500 g ýsuflök 2 meðalstórir tómatar 1 tsk. salt '/8 tsk. pipar 2 egg nokkur strá graslaukur 2 msk. smjör eða smjörlíki 2 msk. hveiti 2V2 dl mjólk 200 g maribóostur eða annar feit- ur ostur 1. Skerið eggaldinin langsum í tvennt. Skerið síðan niður með húðinni, síðan skorur í aldinið. Gætið þess að húðin fari ekki í sundur. Hitið bakaraofn í 180°C. Setjið eggaldinin í ofninn þannig að skurðflöturinn snúi upp. Bakið í 10 mínútur. Takið úr ofninum, kælið örlítið og skafið úr húðinni. Setjið í hrærivélarskál. 2. Skerið fiskinn úr roðinu, hreinsið öll bein. Skerið síðan í litla bita og setjið með eggaldininu í hrærivélarskálina. Hrærið í sundur, setjið salt, pipar, niður- klipptan graslauk og eitt egg út í. 3. Afhýðið tómatana með því að setja þá smástund í sjóðandi vatn. Setjið síðan tómatana út í hræruna og hrærið í sundur. 4. Smyijið eldfasta skál. Setjið himnuna af eggaldinunum inn í skálina. Hellið fisk/eggaldinhrær- unni yfir. 5. Hitið smjörið í potti. Hrærið hveiti út í, þynnið með mjólkinni. Hrærið hitt eggið út í. Rífið ostinn og setjið út í. Hellið þessu yfir það sem er í skálinni. 6. Setjið í heitan bakaraofn, 190°C, blástursofn 170°C. Bakið í 30 mínútur. 7. Hvolfið réttinum á fat og berið fram. Meðlæti: Ristað brauð eða snittubrauð. Eggaldinmauk 2 eggaldin, u.þ.b. 500 g 1 hvítlauksgeiri 3 msk. matarolía 1 tsk. sítrónusafi salt milli fingurgómanna nýmalaður pipar fersk steinselja 1. Hitið bakaraofn í 200°C, blástursofn í 180°C. Setjið eg- galdinin í ofninn og bakið í 40 mínútur. 2. Kljúfíð eggaldinin og skafið aldinkjötið úr og setjið í hrærivél- arskál. 3. Afhýðið hvítlauksgeirann, meijið og setjið saman við. 4. Hrærið maukið í hrærivél, setjið síðan olíuna mjög hægt. út í og hrærið stöðugt í á meðan. 5. Hrærið salt, sítrónusafa og pipar út í. 6. Klippið steinseljuna og setjið út í. 7. Kælið maukið vel. Meðlæti: Ristað brauð. |MI 1»

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.