Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
49
Húsavík:
Rabbað við Bóba loðnu- og trilluskipstjóra og fylgst með hafnarstemmningu
Líkar vel við báða bátana,
en hef aldrei átt tvær konur
Húsavíkurhöfn er ein feg-
ursta höfn landsins, það er eins
og bærinn faðmi hana að sér.
Stemmningin í Húsavíkurhöfn
er oft knallandi, ekki síst á
góðviðrisdögum þegar bátar af
öllum stærðum og gerðum rása
um Skjálfandann lognbliðan til
hafnar. Undirritaður var á
sinum tíma á grásleppu á
Húsavik á unglingsárum og
saltaði síld í Ugga og alltaf er
Húsavíkurhöfn söm við sig,
þanglyktin er skammt undan,
sífelld hreyfing sjómanna heim
og heiman. Sigurgeir ljósmynd-
ari Morgunblaðsins í Vest-
mannaeyjum myndaði einn
góðviðrisdag fyrir skömmu í
Húsavíkurhöfn og við tókum
menn tali.
Trillumar komu inn hver af
annarri og stærri bátar einnig.
Þeir vom á grásleppu og botnfiski
og það var ágætt hljóðið í mann-
skapnum. Við stöldruðum við hjá
Kristbimi Ámasyni, í daglegu tali
kallaður Bóbi, en hann er skip-
stjóri á aflaskipinu Sigurði á
loðnuvertíðinni, en rær á trillu
sinni frá Húsavík á öðrum tíma.
Með honum á Lundey ÞH 350 rær
Ámi Björn sonur hans en hann
er einnig með pabba sínum á loðn-
unni. Það var búinn að vera góður
afli hjá þeim, upp í 3 tonn á fær-
in á 5-7 tímum um klukkutíma
stím frá höfninni, mest út undir
Lundey.
Bóbi sagði það verulega frá-
brugðið að vera á trillu á móti
því að vera á stóm skipi eins og
Skjálfandi skorinn af fiskibát frá Húsavík.
Kristbjörn Árnason og Árni Björn sonur hans á Lundey ÞH 350.
Sigurði. „Þetta em allt önnur
vinnubrögð," sagði hann, „maður
tekur svo mikínn þátt í þessu á
dekkinu.
Jú, ég á bátinn, hann er 6,1
tonn og við höfum róið saman við
Ámi Bjöm. Reyndar höfum við
verið með litla loðnunót áður en
við fömm á þorskanetin, en það
hefur verið mjög fmmstæður bún-
aður og háfað upp á gamla mát-
ann, beint úr nótinni í bátinn. Það
hefur oft verið loðna hér fram í
miðjan maí, en við slepptum loðn-
unni í vor þar sem búið var að
veiða upp í markaðinn eins og
unnt var að selja.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Lundey ÞH 350 og Sæborg ÞH 55 á siglingu um Skjálfanda inn
til Húsavíkur.
Þetta gengur þannig fyrir sig
hjá okkur að ég er á Sigurði frá
október og fram í mars og svo
tekur trillan við hér heima á
Húsavík. Við emm svo á þessu
fram á sumar, en tökum síðan
gott frí yfir hásumarið og fram á
haust. Það er róið ansi stíft á
þessu, hvern einasta dag, alla
daga vikunnar. Þetta er mest
þorskur, en stundum ýsa inn við
Sandinn á sumrin, en hún hefur
nú minnkað snarlega.
Það er þokkalega gott hljóðið
í mönnum héma, þetta gengur
sinn vanagang, lítill fiskur að vísu
sem gengur hér um þessar mund-
ir og bátarnir sækja austur á Þist-
ilfyörð. Það er búið að vera frekar
kalt hér að undanförnu, en það
sem hefur veiðst er stór og fall-
egur þorskur."
Morgunblaðið/Sigurgeir
Helgi Héðins situr hér á land-
vagninum sínum með veiðar-
færi og spyrður í bakgrunni.
Við spurðum í lúkarsstíl hvort
það væri ekki eins og að eiga
tvær konur að vera með tvo báta.
„Ég veit það ekki,“ svarði Bóbi,
„mér líkar vel við báða bátana,
en ég hef aldrei átt tvær konur,
læt mér nægja eina og líkar vel.“
- á.j.
Bræðurnir á Þráni ÞH 2 koma að bryggju.
Sigurður Kristjánsson með 1,5 tonn af ufsa í Benni Héðins að landa grásleppuhrognum á
net, en hann rær einn á bát. Sigurður er yngsti góðviðrisdegi í maí.
trillukarlinn á Húsavík og gerir það gott.