Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 53

Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 V vi— . ■. „Freestyle Frakklandi og andi, Bretlandi, Belgíu, imörku, og flest með ABYRGÐ TIL ALDAMOTA á gaffli og stelli, varahlutaþjónustu og ábyrgð fagmannsins. ur bara að fá annan í staðinn og það með hraði, fá nýjan ljósamann, nýjan búningahönnuð, æfa annan leikara inn í hlutverkið ... — Um daginn, sagði hann, vissum við ekki einu sinni hversu alvarlega veik leikkonan var þegar byrjað var að æfa inn í hlutverkið hennar — hún hefði eins getað verið dauðvona. Sumum okkar hinna fannst málið ekki alveg svona einfalt. Anna Jóna orðaði hugsanir okkar hinna um að það væri óhugnanleg hlið á leik- húsinu hvernig fólk yrði að vinna þó það væri fárveikt og slys eða dauðsföll breyttu ekki gangi sýning- arinnar þó að hver einstaklingur móti verkið meira með sái sinni og líkama í þessari vinnu en nokkurri annarri. Sýningin hefur alltaf for- gang, og sköpun einstaklingsins verður að hveiju öðru tannhjóli sem hefur brotnað og þarf að skipta um. Tveim dögum síðar kemur þetta samtal uppí hugann þegar óhugnað- urinn steypist yfir okkur. Anna Jóna er dáin. Hún var svo sannarlega eitt- hvað miklu miklu meira en skarð sem þurfti. að fylla. Eins og allir vita sem kynntust henni hafði hún bæði hlýja og sterka nærveru, sem var stór og ómissandi þáttur í vinnu okkar. Undir svona kringumstæðum verður staðreyndin um að sýningin verði að hafa sinn gang ömurleg. Við reynum að halda starfi hennar áfram, en getum auðvitað aldrei gert það eins vel og ef hennar hefði notið áfrain. Sorg okkar er djúp og við samhryggjumst aðstandendum innilega. Fyrir hönd samstarfsfólks í „Degi vonar“ á Sjónyarpinu, Lárus Ýmir Óskarsson Sérverslun ímeira en 60 ár ÖRNINNL Spítalasííg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888 ur. Mynd hennar, björt og fögur, mun aldrei gleymast. Olga Guðrún Árnadóttir Samtal í kaffitíma um að sýning- in verði alltaf að hafa sinn gang — the show must go on . .. Ungi leikar- inn segir það sem við hin vitum líka, að þannig sé það með leikhúsið, sjón- varpið, kvikmyndirnar, þennan bransa. Það sé engin önnur leið. Ef einhver fellur frá eða forfallast verð- Anna Jóna Jóns- dóttir - Kveðjuorð Fædd 2. júlí 1956 Dáin ll.júní 1988 Fregnin um hið hörmulega lát Onnu Jónu var reiðarslag öllum sem hanaþekktu, þessa yndislegu stúlku. Af algeru miskunnarleysi er hún hrifin burt í einni andrá, ung og glöð, í blóma síns tilgangsríka lífs, og engin sorg, engin tár megna að kalla hana aftur til okkar. Ranglæ- tið er yfirþyrmandi, en staðreyndin er óumbreytanleg, Anna Jóna er dáin. Ég kynntist Önnu Jónu fyrir rúm- um sjö árum, glæsilegri bjartleitri stúlku, sem var nýkomin til starfa við Nemendaleikhúsið. Hún var þá að stíga sín fyrstu skref í leikbún- ingagerð, og fór ekki framhjá nein- um sem til þekkti hver fengur þótti að henni þegar á því sviði. Hún hafði handbragð snillingsins, gat skapað nánast hvað sem var úr hveiju sem var. Sjálf kynntist ég henni utan starfsins og það voru aðrir kostir sem vöktu aðdáun mína á þessari sérstæðu stúlku. Undir fremur hlé- drægu fasi hennar bjó margbrotinn persónuleiki, sterkur vilji og skörp greind, sem stjórnaðist með farsæl- um hætti af glettni, hlýju og heiðar- leika — eðliskostum sem Anna Jóna átti í ríkari mæli en flestir aðrir. Það var alltaf gleðiefni að hitta hana, eins og hressandi andblær fyrir sál- ina, hver fundur sérstakur og eftir- minnilegur. Hjálpsemi hennar var einstök, og ævinlega sjálfsögð, góð- verkin smá og stór innt af hendi án orða, af alúð og umhyggju. Að öðl- ast vináttu slíkrar manneskju er dýrmæt gjöf sem aldrei verður full- þökkuð. Anna Jóna unni tveimur mönnum umfram annað fólk þann tíma sem okkar kynni stóðu. Annar var Jó- hann, eiginmaður hennar, hin var Halli, sonur hennar. Anna jóna og Jói felldu hugi saman við störf í Nemendaleikhúsinu, það var beggja Ián og gæfa. í sjö ár deildu þau saman blíðu og stríðu, þessar tvær stórbrotnu manneskjur, auðguðu hvort annað að kærleika og visku, efldu hvort annað að ráðum og dáð. Nú þegar okkar elskulegi vinur, Jói, stendur skyndilega einn eftir, er það von mín og trú, að einmitt það fjöl- þætta og dýra band sem þau Anna Jóna fléttuðu saman geti orðið hon- um haldreipi á tímum þungbærrar sorgar. Halli litli var augasteinn mömmu sinnar, og þó hann dveldi oft lang- dvölum hjá föður sínum var hann ávallt nærri henni í huganum. Nú er móðirin horfin sjónum, en minn- ingin um ást hennar vakir áfram yfir drengnum hennar og velferð hans um ókominn tíma; það vega- nesti verður ekki frá honum tekið. Tíminn sefar allan harm að lokum og líf okkar hinna heldur áfram um sinn, uns okkar andartak í eilífðinni er liðið. Við verðum aldrei söm; ein- hvers staðar innra með okkur verður ávallt slitinn strengur. En ef til vill getum við heiðrað minningu Önnu Jónu með því að reyna að vanda okkur ofurlítið meira við að vera góðar manneskjur. Það var list sem hún kunni flestum betur. Við Guðmundur sendum ættingj- um Önnu Jónu og öðrum ástvinum hennar okkar dýpstu samúðarkveðj- Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.