Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 > t Maðurinn minn, SÖLVI ELÍASSON bifreiðarstjóri, Einholti 9, andaöist í Borgarspítalanum þriöjudaginn 21. júní. María Guðmundsdóttir. t Konan mín og móðir okkar, ELÍN BJÖRNSDÓTTIR Lynghvammi 4, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 23. júní. Jón Magnússon, Guðrún Þóra Jónsdóttir, Magnús Jónsson. Hjörtur Líndal Sigurðsson - Minning Fæddur 15. febrúar 1905 Dáinn 15. júní 1988 Mig langar nú að skrifa nokkur kveðjuorð um afa minn, Hjört Lín- dal Sigurðsson, sem nú er látinn eftir langa og hetjúlega baráttu við banvænan sjúkdóm. Hjörtur var Sonur hjónanna Sig- urðar Halldórssonar og Guðbjarg- ar Guðmundsdóttur. Hann átti 10 systkini og eina hálfsystur. Hjört- ur gekk að eiga Ástu Sigurbjörgu Sigfúsdóttur þann 13. september 1929 og eignuðust þau tvær dæt- ur, Ólöfu, fædda 2. ágúst 1930, gift Kristjáni Ásgeirssyni, og eiga þau tvö böm, og Sigríði, fædda 26. október 1933, gift Guðna Jó- hannesi Ásgeirssyni, og eiga þau 7 böm. Skömmu síðar slitu þau samvistum. Síðan gekk hann að eiga Dóm Bjamadóttur þann 4. desember 1948 og eiga þau eina kjördóttur, Dóru Hjartar, fædda 9. ágúst 1953, gift Marteini Njáls- syni og eiga þau 3 böm. Lengst af stundaði afi minn bif- reiðastörf, sem bílstjóri og öku- kennari, þó hann hafi getið sér gott orð fyrir sjómennsku og önn- ur verkamannastörf hér á sínum fyrri ámm. En þegar ég kynntist afa mínum var hann ökukennari. En ekki get ég sagt að maður hafi ekki grætt á því að vera nafni hans, því elskulegar minningar á maður honum að þakka. Því vil ég biðja Guð að styrkja þá sem honum stóðu næst. Hjörtur Líndal Guðnason t Móöir okkar, VILMUNDA EINARSDÓTTIR frá Vostmannaeyjum, lést að morgni 23. júní í Landspítalanum. Gunnar Hinriksson, Helga Hinriksdóttir, Guðrún Hinriksdóttir. t Eiginkona mín, stjúpmóðir og amma, ÞURÍÐUR BÁRÐARDÓTTIR, Meltröö 2, Kópavogi, lést i Landakotsspítala að kvöldi 20, júní. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 13.30. Stefán Nikulásson, Ingunn Stefánsdóttir og synir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, HJÖRTUR LÍNDAL SIGURÐSSON, Skagabraut 46, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 15. júní. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. F.h. tengdasona, barnabarna og barnabarnabarna, Dóra Bjarnadóttir, Dóra L. Hjartardóttir, Ólöf L. Hjartardóttir, Sigríður G. Hjartardóttir. t Bróðir okkar, KJARTAN ÞORGILSSON kennari, Hjarðarhaga 24, verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 27. júní kl. 13.30. Helga S. Þorgilsdóttir, Sigriður Þorgilsdóttir, Fríða Þorgilsdóttir. t AUÐBJÖRG KÁRADÓTTIR, Ósabakka, Skeiðum, verður jarðsungin frá Ólafsvallakirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 14.00. Sætaferö verður frá BSÍ kl. 12.00 og elnnig frá Fossnesti Selfossi kl. 13.00. Jens Aðalsteinsson, börn, tengdabörn og barnabörn hinnar látnu. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, GUÐRÚNAR G. HJALTESTED Bruno Hjaltested, Arnfrfður Ó. Hjaltested, Edda Hjaltested, Sveinn Jóhannesson. Minning: Sigurður Sigurðs son, Skammadal Laugardaginn 4. júní fór fram frá Víkurkirkju útför Sigurðar Sig- urðssonar frá Skammadal í Mýr- dal. Var jarðsett í Víkurkirkjugarði og fjölmenni við athöfnina. Á síðustu æviárum átti Sigurður við heilsuleysi að stríða. Þurfti hann öðru hvoru að fara í meðferð á Vífilsstöðum. Þaðan var hann síðast fluttur á Landspítalann og dó þar eftir stutta legu. Átti heymæði þátt í að stytta ævi Sigurðar. Hefur svo farið með marga íslenska bændur, því þetta er talinn vera algengasti atvinnusjúkdómur hér á landi. Sigurður Sigurðsson fæddist í Lágu-Kotey í Meðallandi 9. nóv- ember 1903. Voru foreldrar hans Kristín Guðmundsdóttir og Sigurð- ur Sigurðsson er þar bjuggu. Sig- urður er í Lágu-Kotey hjá foreldrum sínum til 1915. Á Söndum 1915— 1919. í Lágu-Kotey 1919-1935. Þá kvæntist hann Vilborgu Árna- dóttur frá Efri-Ey í Meðallandi. Og 1935 fara þau að Skammadal í Mýrdal og hafa búið þar síðan og lengi í félagi við syni sína. En þeim varð þriggja bama auðið, sem eru Ámi, Guðgeir og Sunneva. Er hún búsett í Vík. Það var fjölmennt gamla Lágu- Koteyjar-heimilið. Sigurður ólst þarna upp í hópi 12 systkina. Er nú aðeins eitt eftir á lífí, Ágústa Sigurðardóttir, sem býr í Reykjavík. Þau ólust upp á Rofabæ í Koteyj- arhverfinu móðir mín, Sigurlín Sig- urðardóttir, og Bjargmundur Sveinsson, bróðir Kjarvals. Þau minntust þess oft hvað mikil glað- værð ríkti á heimilinu í Lágu-Kotey og hve gott var að koma þama. Vissu þó allir að þama var fátækt sem von var þar sem svo mörg börn voru á heimilinu. Og á seinni æviárum hélt Bjargmundur uppi sambandi við eitt systkinanna, Magnús Sigurðsson. Fannst honum að þá væri hann kominn austur í Meðalland er hann og Herdís kona hans voru í Melgerði í Kópavogi t Útför EÐVARÐS GUÐMUNDSSONAR, Frostaskjóli 103, Reykjavík, fer fram mánudaginn 27. júní kl. 10.30 í Fossvogskirkju. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands. Þórunn Bergþórsdóttir, Sigurbjörg Eðvarðsdóttir, Jón Atli Eðvarðsson, Sigrún Einarsdóttir. t Þökkum innilega öll skeyti, blóm og hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar VALDIMARS UNNARS VALDIMARSSONAR. Vinum hans öllum þökkum við einstaka vináttu og aöstoð. Alda Grímólfsdóttir, Valdimar Guðlaugsson, Grímólfur Sævar Valdimarsson, Jóhann Elvar Valdimarsson, Anna María Jónasdóttir, Elísabet Sólstað Valdimarsdóttir, Karl Hjartarson, Guðlaugur Viðar Valdimarsson. t Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóöur, SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR HANSEN, Aðalstræti 16, Patreksfirði. Óiafur D. Hansen, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigriður Daníelsdóttir, Loftur Hafliðason. hjá þeim hjónum, Margréti og Magnúsi frá Lágu-Kotey. Þama á Lágu-Kotey var einn fyrsti vísir að samkomuhúsi í Meðallandi. Voru það bæjardymar sem vom óvenju stórar og með timburgólfi. Vom þarna á tímabili danssamkomur unga fólksins. Þótti þetta sérstætt samkomuhús og jafnframt ágætt. Sigurður Sigurðsson var lengi í útvemm á vetmm. Hann þótti skemmtilegur og sniðugur félagi. Þess minntist bóndi í Landeyjum að Sigurður þótti manna skemmti- legastur þar í afréttarferðum og hann þótti óvenju ömggur í bratt- lendi. Henni búnaðist vel fjölskyldunni í Skammadal. Er þar nú prýðilega uppbyggt og mikil ræktun. Og þama hefur gestrisni verið eins og frekast getur orðið, sem ég og margir hafa notið. Spillti húsmóðir- in þar ekki, sem von var til, með tryggð og gestrisni Ormsættarinnar í veganesti. Sigurður í Skammadal var mjög vinnusamur. Eflaust hefur hann kosið að hverfa héðan fyrst vinnu- þrekið var búið og ekki nema heilsu- leysi framundan. Hann var kvaddur við Víkurkirkju núna í byrjun sól- mánaðar, þegar sumarið er að koma eftir kalt vor. Túnin em orðin græn og úthafið, sem blasir við úr Víkur- kirkjugarði, hefur róast og veltir léttum öldum að landinu. Eg votta fjölskyldunni samúð og þakka vináttuna á liðnum ámm. Vilhjálmur Eyjólfsson Blóma- og W skreytingaþjónusta C/ *' hvert sem tilefnið er. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álflicimum 74. sími 84200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.