Morgunblaðið - 25.06.1988, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 25.06.1988, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 57 • • Okuleikni Húsvíkinga Húsavík. KEPPNI í ökuleikni ’88 á vegum Bindindisfélags ökumanna fór fram á Húsavík 19. júní síðastlið- inn. Þetta er landskeppni og keppt er bæði á reiðhjólum og bifreiðum. Fyrst er keppt á hinum ýmsu stöð- um á landinu og síðan fer fram úrslitakeppni í Reykjavík. Úrslit urðu þessi í reiðhjólaakstri — eldri flokkur: í fyrsta sæti varð Sigurður Hrafnkelsson, Ólafur Jón Aðalsteinsson í öðru og Amar Matt- híasson í þriðja. í yngri flokki sigr- að Amar Þorvarðarson og Rann- veig Guðmundsdóttir varð í öðru sæti. Jón Kristjánsson sigraði í karlaflokki í ökuleikni í akstri bif- reiða, Kristján Eggertsson varð í öðru sæti og Sigurgeir Höskuldsson í því þriðja. í kvennaflokki sigraði Freyja Ingólfsdóttir, Stella Jóns- dóttir varð í öðru sæti og Anna S. Jónsdóttir í þriðja. Þessi keppni vekur ekki þá at- hygli sem skyldi. Hún er bæði fróð- leg og skemmtileg fyrir áhorfendur sem keppendur. Hún bendir okkur, sem ökum bifreiðum, á ýmislegt sem gott væri að æfa til aukinnar leikni í akstri. Ég held að athug- andi væri að afmarkaðar yrðu víða brautir, eins og keppt er í, öku- mönnum til afnota og reynslu á hæfni til aksturs, þó ekki í keppni. Sigurvegarar fengu verðlaun og allir viðurkenningu fyrir þátttöku. - Fréttaritari Sigurvegarar í karlaflokki í ökuleiknikeppninni á Húsavík. Frá vinstri: Sigurgeir, Jónas og Kristján. Morgunblaðið/Silli Þessar konur sigruðu kvennaflokkinn í keppni í ökuleikni á bifreið- umm. Frá vinstri: Stella, Freyja og Anna. Morgunblaðið/Silli Sigurvegarar í ökuleikni á reiðhjólum sem haldin var á Húsavík 19. júní. mmmaammmmm—mummmmKmmmmmmammæmmmmmammm Á öllum stærri Shellstöðvum, Shell-gas fyrir: - allar gerðir prímusa og gasljósa, - fyrir grill, - sumarbústaði, - alla tjald- og tjaldhýsaútqerð. ( Reykjavík eru þessir staðir auk þess sérútbúnir til gasafgreiðslu: - hjónustustöðin Skerjafirði, sími 91-11425, - Þvottastöðin Laugavegi 180, sími 91-623016, þar eru seld áfyllt hylki fyrir amerísk gasgrill og auk þess minni hylki 2,5 - 5 kg, - Skeljungsbúðin Síðumúla 33, sími 91-621722. Einkalíf Pauls Hogan fór í algjöra ringulreið eft- ir að hann varð heimsfrægur fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Crocodile Dundee“. 2 ( Skeljungsbúðinni fæst ennfremur fittings, mælar, þrýstijafnarar slöngur og fleira. Skeljungur hf. (Kosangasl ** Skeljungur W PAUL HOGAN Ný hetja í Hollywood Paul Hogan er nu kominn í hóp stjamanna í Hollywood. Hann sló í gegn þegar hann lék aðal- hlutverkið í kvikmyndinni „Croco- dile Dundee" og nú fær hann engan frið fyrir blaðamönnum og kven- fólki. Þessi skyndilegi frami Pauls setti allt á-annan endann í einkalífi hans. Paul hefur tvisvar gengið í það heilaga um æfina en í bæði skiptin var það Noelene eiginkona hans sem var sú útvalda. Þau hittust þegar hann var 17 ára og hún 15. Síðan þá hafa þau verið óaðskiljan- leg og saman hafa þau eignast 5 börn. Eftir að hafa verið svona kyrfílega giftur í 30 ár, hefur Paul ákveðið að skilja við Noelene. Hann hefur hrifist af Lindu Kozlowski sem leikur kærustu hans í kvik- myndinni „Crocodile Dundee" og nú eru þau einnig kærustupar í ein- kalífínu. Paul Hogan er 49 ára gamall en Linda er 29 ára eða 19 árum yngri en Noelene. Paul og Noelene eru bæði áströlsk og hafa þau búið í Ástralíu allan sinn búskap. Noelene segir, „Holly- wood er of villt borg fyrir mig. Ég get ekki átt heima þar. I rauninni er ég sveitakona og það er ég bara ánægð með. Þvi miður er það ekki nógu gott fyrir manninn minn.“ Einn helsti ráðgjafi Pauls hefur áhyggjur af því hvað þessi skilnað- ur eigi eftir að þýða fyr*r vinsældir hans í Ástralíu. Þar hefur Paul ver- ið geysivinsæll alveg síðan hann fór af stað með þætti sína, „Paul Hog- an Show“, árið 1973. Hann hefur einnig unnið mikið við auglýsingar og verið vinsæll sem slíkur í heima- landi sínu. Eftir að hann fór frá Noelene hefur hann misst auglýs- ingasamning við eitt stórfyrirtækið í Ástralíu og stórtapað á því. Það munar um allt, jafnvel fyrir stjörnur eins og Paul Hogan. MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ VEIÐIHJÓL OG STANGIR Fást í nœstu sportvöruverslun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.