Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 62

Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 Hann hefur versnað mikið. Nu er hann búinn að koma upp herforingjaráði! Þessa orðu fékk ég frá konunni minni. Rusla- tunnuorðan! Með morgunkaffinu Þú ættir að tala við lækn- ana um að svo virðist sem gráu sellurnar þínar liggi í langvarandi dvala. HÖGNI HREKKVÍSI V v- © ^KL' ,1 ^xA.'.ÞETTA TÆKI C3ERI/2 SAMSlAfSLBGA SITT GAGN Hvenær verður Reykja- nesskaginn friðaður? Við Selöldu í landi Krýsuvikur. A þessum slóðum var enn skógur þegar Arni Magnússon og Páll Vídalín gerðu Jarðabókina. Til Velvakanda. Ólafur R. Dýrmundsson, ráðu- nautur og fjáreigandi í Reykjavík skrifar grein í Velvakanda síðastlið- inn sunnudag og fer þar hörðum orðum um vanþekkingu og ofstæki „Náttúruunnanda" og annarra þeirra sem láta sér annt um það sem eftir er af gróðrinum í þessu landi. Er grein Olafs fagnaðarefni því að hún opinberar vel þá blekk- ingarstarfsemi sem talsmenn of- beitarinnar eru vanir að nota í áróðri sínum. Ólafur er aldeilis ekki á því að um ofbeit sé að ræða á Reykjanes- skaga og nefnir sem dæmi um hóf- legt beitarálag, að í hinum foma Seltjamameshreppi séu ekki nema 670 ær á fóðmm. Af einhveijum ástæðum minnist hann ekki á allt það fé sem kemur úr öðmm sveitar- félögum. Af forðagæsluskýrslum má þó sjá að 3.500 ær að minnsta kosti em á gjöf á vetuma og því er ekki óvarlegt að áætla að 10.000 fjár nagi Reykjanesskagann á sumrin. í skrifum Ólafs kemur fram að hann hefur ekki virt fyrir sér auðn- ina fyrir ofan Hafnarijörð, við Klei- farvatn, í Krýsuvík og landið þar fyrir vestan allt til Grindavíkur. Þangað ætti hann þó að fara og Skrif ið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, em ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. legg ég til að áfangamir hans verði „Lyngbrekkur", „Einihlíðar" og „Nátthagi“. það er samt vissara fyrir hann að hafa nöfnin með sér á blaði ásamt leiðarlýsingu því ekki mun landið sjálft segja honum hvar ömefnin er að finna. Ólafur getur einnig tekið sér fyr- ir hendur annars konar „gróður- skoðunarferð“. Hann getur flogið yfir landið og virt fyrir sér tötrana sem einkenna það; hann getur skoð- að Stikluþáttinn hans Ómars Ragn- arssonar, sem tekinn var fyrir ofan Hafnarfjörð. Hann getur jafnframt kynnt sér skýrslu Gróðurnýtingar- deildar rannsóknastofnunar land- búnaðarins um Krýsuvík frá 7. maí 1987. Þar segir: „Hér er um svo alvarlega jarð- vegseyðingu að ræða, að Gróður- nýtingardeild mælir eindregið með því að svæðið verði friðað fyrir beit þar til ástandið hefur batnað.“ Landið kringum Kleifarvatn minnir nú einna helst á tunglið en það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá fyrir hugskotssjónum sér þá paradís sem þar gæti verið. Með friðun væri hægt að klæða það gróðri og skógi með tíð og tíma og koma þar upp stórkostlegu útivist- arsvæði. Þegar gróðurinn fær að dafna eykst líka lífríkið í vatninu og þeir höfðu líklega það í huga félagamir í Stangveiðafélagi Hafn- arfjarðar, sem reyndu að koma þar einhveijum plöntum til. Þeir eru nú hættir þeim tilraunum og kannski getur Ólafur getið sér til um ástæð- una. Það er orðið löngu tímabært að tengja betur saman rétt til landnýt- ingar og þjóðfélagslega ábyrgð. Nú á dögum verður að vera hægt að ætlast til þess að frístundabændur útvegi sér sjálfir land undir beit og girði það og ábyrgist. Það getur ekki verið eðlilegt, að þessir menn hafi meiri rétt en þeir sem em með hross sér til yndis og heilsubótar. Við hagsmunaárekstra þarf margs að gæta en reglan á að sjálfsögðu að vera sú, að hagsmunir heildar- innar ráði. Þjóðin öll á landið og á offramleiðslutímum er ekki hægt að taka rétt örfárra einstaklinga til sauðfjárbeitar fram yfir rétt þétt- býlisbúa til útivistar og aðlaðandi umhverfis. Reykjanesskagann allan er hægt að klæða gróðri að nýju. Það eina sem vantar er vilji og skilningur, ekki síst sveitarstjómar- manna. Náttúruunnandi. Víkverji skrifar Veðurguðir hafa ekki leikið við suðvesturhom landsins það sem af er sumri. Víkveiji hefur, eins og aðrir íbúar þessa svæðis, horft upp í regnskýin í morgunsárið svo að segja dag hvem sem guð hefur gefið — og fengið blautan strekkinginn í fangið þá út var gengið. Það er því kominn tími til, og meira en það, að sjá til sólar, upp í heiðan himin. Því er stundum haldið fram að veðráttan hafí áhrif á geðslag fólks. Myrkur skammdegis, kuldi vetrar og grenjandi snjóbyljir setji yggli- brúnir á íslendinga; kalli fram hryssing í viðmóti þeirra og fram- komu. Hvort sem þetta er nú rétt eða ekki sýnist Víkveija á stundum sem alls konar mótmælahópar, sem hafa hitt og þetta á homum sér (Höfðabakkabrú, breikkun Lækjar- götu, ráðhús við Tjöm o.sv.fv.), fái byr í segl í skámmdeginu — en dagi uppi í sólskini. Ef vetrarveður fara fyrir bijóstið á okkur, þar sem þau eiga heima á hringferð ársins, hvemig leikur þá hretviðrið lundina á „sólmánuð- um“ almanaksins? Eftir gott vor og yndislegan maí er engu líkara en suma- rið hafí yfírgefíð íbúa um sunnan- og vestanvert landið mestan hluta júnímánaðar. En þetta er svo sem þörf áminning. Fólk hefur verið að gera að því skóna undanfarið — eftir óvenju milda vetur undan- farið og hagstætt vor — að veður- farið hér um slóðir væri að breyt- ast. Tíðarfarið síðustu daga ætti þess vegna að sannfæra fólk um að í sjálfu sér er ekkert breytt og íslensk veðrátta er jafn óútreikn- anleg og hún hefur alltaf verið. xxx að kemur fyrir hina mætustu menn að mismæla sig en sum- ir eru slíkir ákafamenn í daglegu tali að allt vill koma öfugt út úr þeim. Víkveija hefur borist skemmtilegt dæmasafn af einum vinnustað í borginni, þar sem vinnufélagar eins slíks hafa tekið upp á því að skrá niður skemmti- legustu gullkomin. Víkveiji getur ekki stillt sig um að birta hér fáein sýnishom, þar sem algeng orðatiltæki taka á sig hinar undarlegustu myndir. Til að mynda: „Við skulum hafa augun bak við eyrun!“ og „Við skulum tala saman milli tveggja augna!“ Eða: „Við skulum slá tvær flugur í sama höfuðið" og „Það er verið að gera mýflugu úr úlfalda“. Enn má nefna: „Við stöndum á kross- fótum“ og „Það er ekki víst að smiðimir verði svona brattir, þeg- ar út í hólmann er komið.“ Nokkur dæmi fylgja um kynd- ugt orðalag, svo sem „Það sem aldrei hefur skeð, getur alltaf skeð aftur“ og „Þetta er í fyrsta sinn sem þetta bilar í annað sinn.“ Einnig: „Það er ekkert launungar- mál að við erum illa kranamanna- mannaðir“ og „Ég hef ekki séð neitt hringt í dag.“ Loks gullkorn á borð við: „Það er eins og verið sé að skvetta eldi á bensínið."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.