Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 63
✓ XI
iriUviA
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
63
Há afnotagjöld
Aldraður öryrki hringdi:
„Nú eru afnotagjöld Ríkisút-
varpsins/Sjónvarps enn að hækka
á sama tíma og dagskrárefni þess
verður æ lélegra. Fólk sem hefur
ekki efni á að vera áskrifendur
að „rugluðu" stöðinni, m.a. ör-
yrkjar, hafa enga valkosti. Það
er jafnframt yfirgengilegt fyrir
fólk sem getur ekki annað en se-
tið heima og horft á Sjónvarpið,
að efni þess verður sífellt lélegra.
Til dæmis voru ljóð lesin upp í
Sjónvarpinu fyrir nokkrum dög-
um. Ég hefði nú haldið að slíkt
ætti heima í útvarpinu.
Það tekur ekkert við hjá okkur
öldruðu öryrkjum þegar við höfum
slökkt á sjónvarpinu. Við verðum
samt að greiða fullt gjald fyrir.“
Hljómfögoir rödd
Edda Jónsdóttir hringdi:
„Ég vil lýsa aðdáun minni og
þakklæti fyrir lestur Finnborgar
Ömólfsdóttur á bókinni “Lyklar
himnaríkis“ eftir A. J. Cronin.
Rödd Finnborgar hefur hljómað
oft á öldum ljósvakans í gegnum
árin og er ætíð jafnhljómfögur.
Jakob ærlegur
Kona úr Kópavogi hringdi:
„Ég vil þakka Jakobi Magnús-
syni fyrir falleg og rétt svör er
hann var spurður um álit sitt á
forseta okkar, frú Vigdísi í sjón-
varpinu um daginn.“
Fyrirferðarmikill fót
bolti
5611-7377 hringdi:
„Sjónvarpið hælir sér af því að
koma út úr öllum skoðanakönnun-
um á svokallaðri „horfun" með
60-70% horfun kl. 20.00 á kvöld-
in. Er þá við hæfi að eyðileggja
þennan horfunartíma hjá 60-70
hundraðshlutum landsmanna með
boltasparki einhvers staðar úti í
heimi?
Saga er til af amerískri auð-
konu sem kom til Evrópu að skoða
gamla heiminn. Hún fór á knatt-
spymuleik og að honum loknum
fóm hún í sportvöruverslun og
keypti 22 bolta og lét senda strák-
unum sem vom í leiknum á vellin-
um svo þeir þyrftu ekki að vera
að rífast um þennan eina.
Hvað skyldu margir af um-
ræddum 60-70% áhorfenda vera
sammála auðkonunni amerísku?“
Úr með áföstum hring-
Kvenmannsúr með áföstum
hring fannst þann 16. þessa mán-
aðar í innkeyrslu við Hringbraut
84. Úrið er með hvítri skífu, svört-
um tölustöfum og vísum. Það er
með svartri stálkeðju og er lokað
á ranghverfu sinni. Við úrið er
festur mjór gullhúðaður hringur
með mynstri. Eigandi úrsins getur
haft samband við Gerði í síma
19678.
Svartur leðurjakki
Svartur leðuijakki var tekinn í
misgripum í Duushúsi föstudag-
inn 10. júní. Jakkinn er með
hnepptum ermum, í vasa hans eru
húslyklar. Sá sem jakkann tók
vinsamlegast hafi samband við
Svanberg í síma 72318.
Sannfræði fornsagnar?
Til Velvakanda.
Danir hafa nú grafið upp fornar
rústir að Hleiðru á Sjálandi, sem
virðast staðfesta fomar frásagnir
um Skjöld danakonung, en hann var
uppi á 5. öld. Þessi uppgröftur hefur
komið flatt upp á hina sanntrúuðu
efasemdarmenn, sem hafa dæmt
allar frásagnir af fornum konungum
pg köppum hreinan skáldskap og
íslendingasögur hafa verið taldar
skáldskapur einber. Ættrakning
hefur verið nokkuð trúverðug og
gæti bent til þess að nokkur sann-
Pennavinir
Tvær stúlkur óska eftir
pennavinum á íslandi.
Önnur er 13 ára og frá Nor-
egi. Með bréfi hennar fylgdi
mynd og óskar stúlkan eftir
pennavinkonu á líkum aldri.
Nafn hennar og heimilisfang er:
Barbro Hardersen,
Skolum 28,
9500 Alta,
NORGE.
Hin stúlkan er 15 ára og býr
á Grænlandi. Hún óskar sömu-
leiðis eftir pennavinkonu á sama
aldri. Aðaláhugamál hennar er
handbolti. Nafn hennar og heim-
ilisfang er:
Johanne Zethsen,
Solbakken 2A,
BOX 135
3900 Nuuk
GR0NLAND
fræði fælist í þessum sögnum. Snorri
telur Óðin eldri en það stenst ekki.
Skjöldur var talinn yngsti sonur
Óðins, sem árið 432 (sbr. sögu Sverr-
is Kristjánssonar) réði yfir Ungveij-
alandi (Pannoniu), þar nefndur Uldin
(Omar ud Din = frá Dóná). Hann
hverfur skömmu seinna um Fjón til
Uppsala þegar Atli Húnakonungur
ryðst langleiðina að Ermasundi árið
449 á hælum sona Óðins, Horsa og
Hengist, sem höfðu verið í þjónustu
Aetiusar, síðasta yfirhershöfðingja
Rómveija sem kúgaði uppreisn á
Bretagneskaga. Það er augljóst að
Aust-rómverski keisarinn í Mikla-
garði hefur staðið á bak við upphefð
Atla, sem hefur átt að koma fram
hefndum á hendur Óðni fyrir fjár-
kúgun hans.
Oðin var nokkuð við aldur 432,
þar sem hann hafði. 405 og 410
varið Rómverska ríkið (Florence,
Ravenna). Aetius var alinn ugp í
herbúð Oðins (sem gísl) en Oðin
hörfaði alla leið til Uppsala með
Til Velvakanda:
Þann 19. júní birtir dr. Ólafur
R. Dýrmundsson grein í Velvak-
anda með þessari fyrirsögn: Hóf-
leg sauðfjárbeit; leiðir til batnandi
gróðurfars. Grein dr. Ólafs er svar
við annarri um tjón það sem sauð-
fé veldur á Reykjanesskaga.
Dr. Ólafur virðist, mót betri vit-
und, ganga út frá því að sauðfé
gangi einvörðungu á velgrónu
landi en sniðgangi viðkvæma
bletti. Allir vita að því fer víðs
fjarri.
Allmörg sumur hef ég lagt leið
mína frá Kaldárseli til Valahnjúka.
I upphafi var sunnan þeirra gróð-
urvana leirflag. Þegar árin liðu fór
gróður að hasla sér völl í flagi
þessu og virtist hann ætla að þekja
það. Síðastliðið sumar brá svo við
að allur gróður var horfinn af
gíslum sínum. Synir Oðins ruddust
yfir Ermarsund með miklu liði og
Skjöldur bamungur var sendur frá
Bretlandi en Óðin var látinn.
svæði þessu en við blasti traðk
eftir sauðfé.
Á leiðinni til Landmannalauga
blasir við sjónum hið gróðursæla
Tjörfafell til efstu eggja. Þrátt
fyrir góð beitarskilyrði þama uppi
í hlíðum má oftast sjá kindur rífa
upp og traðka nýgræðing þann
sem er að reyna að nema land í
sári því sem sandstormar hafa
sorfið við rætur fjallsins.
í æsku minni virtist Skógasand-
ur ein samfelld auðn. Engu að
síður rönduðu nokkrar kindur
sýknt og heilagt milli næstum
ósýnilegu grastoppa og skildu eft-
ir sig auðn.
Allt þetta og miklu meira veit
dr. Ólafur mæta vel en kýs að
þegja yfir því. Séra Árni Þórarins-
son hefði talið slíkt að ljúga með
þögninni.
Jón Á. Gissurarson
Bætir sauðfjárbeit
gróðurfar á foklandi?
Skipasala Hraunhamars
Skipasala Hraunhamars
Þessi bátur, sem er 9.9 tn., byggður 1988, með 210
ha. Caterpillar vél og vel búinn siglinga- og fiskleitac-
tækjum, er til sölu.
Kvöld- og helgarsímar 51119 og 75042.
Skipasala Hraunhamars,
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði,
sími 54511.
Símar 35408 og 83033
UTHVERFI B KÓPAVOGUR
Nökkvavogur
Fellsmúli
Helluland
Hjallaland
Lyngbrekka
Birkigrund
Hlíðarhjalli
Hlíðravegur 138-149