Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 66

Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 66
66 ____________MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 EVRÓPUKEPPNI 0% LANDSLIÐA 1988 _ „Gaman að fá Sovétmenn til íslands sem Evrópumeistara" - segir Ellert B. Schram, eftirlitsmaður UEFA á úrslitaleik EM í Munchen „ÞAÐ er erfitt að spá um hvort að Hollendingar eða Sovétmenn hampi Evrópubik- arnum í Miinchen. Óneitan- lega yrði það skemmtilegt fyrir okkur íslendinga að Sov- étmenn kœmu heim til ís- lands sem Evrópumeistarar, þegar við mœtum þeim í fyrsta leik undankeppni heimsmeistarakeppninnar 31. ágúst í surnar,1* sagði Ell- ert B. Schram, formaður Knattspyrnusambands ís- lands í viðtali við Morgun- blaðið í gær. Ellert er eftirlits- maður UEFA á úrslitaleik EM á Ólympíuleikvanginum í Munchen í dag. Það er mái manna að tvö bestu landsliðin hér leiki til úrslita. Sovétmenn eru í mikilli sókn og ieikmenn þeirra hafa sprungið út hér í Vestur-Þýskalandi. Fengið geysilegt sjálfstraust,“ sagði Eli- ert, sem heldur fund með fram- kvæmdaraðilum EM á Ólympíu- leikvanginum fyrir hádegi í dag. „Það verður létt verk að vera eftir- litsmaður á úrslitaleiknum, sem fer fram á einum fuilkomnasta knattspymuleikvangi heims. Ailar aðstæður þar eru eins og best er á kosið. Það er mikil stemmning fyrir leiknum og tugir þúsunda Hol- lendinga eru byijaði að streyma hingað til Miinchen til að hvetja sína menn. Holienskir áhorfendur hafa ekki verið með ólæti hér í sambandi við Evrópukeppnina og ólæti Englendinga hafa verið stór- lega ýkt í fjölmiðium," sagði Ell- ert. EM hefur heppnast vel „Evrópukeppnin hefur heppnast mjög vel og ýmis met hafa verið slegin, eins og til dæmis aðsóknar- met og met í innkomnum pening- um í sambandi við keppnina, sem hefur verið mjög skemmtileg. Átta lið hafa barist hér upp á líf eða dauða og spennan hefur verið geysileg. Þá hefur allt skipulag verið mjög gott. Eins aðbúnaður og eftirlit á völlum. Engin ólæti hafa brotist út á völlunum," sagði Ellert. Þreyta hollensku leikmannanna gæti sett strik í reikninginn Igor Belanow, leikmaðurinn snjalli. Tekst honum að snúa á hollensku vömina í dag? Svalbarðasendingar og kátína hjá RÚV Knattspyrnuáhugamenn bíða nú óþreyjufullir eftir því að flautað verði til úrslitaleiksins í Evrópukeppninni, en hann hefst í dag klukkan tvö. Knattspymufræðingar um allan heim hafa velt fyrir sér hugs- anlegum gangi leiksins, en það er mál manna að þreyta sitji í báðum liðum, þar sem þau hafa þurft að leika fjóra erfiða leiki á undanföm- um 13 dögum, og að það geti haft sitt að segja varðandi getu liðanna. Sjónvarps- leikurinn ■Þau nöfn sem eru feitletruð, eru líklegir Ieikmenn til að leika í byrj- unarliðinu. Sovétríkin: 1. Rinat Dassajew 2. Wladimir Bessonow 3. Wagis Khidijatullin 4. Oleg Kusnetzow 5. Anatoli Demjanenko 6. Wassilij Rats 7. Sergje Aleijmikow 8. Gennadij Litowtsehenko 9. Alexander Sawarow 10. Oleg Protassow 11. Igor Belanow 12. Iwan Winschniewski 13. Tengis Sulakwelidse 14. Wjatscheslaw Sukristow 15. Alexej Michailitschenko 16. Viktor Tschanow 17. Sergej Dimitrijew 18. Sergej Gotsmanow 19. Sergej Baltatscha 20. Viktor Passulko Holland: 1. Hans van Braukelen 2. Adrie van Tiggelen 3. Sjaak Troost 4. Ronald Koeman 5. Aron Winter 6. Berry van Aerle 7. GeraJd Vanenburg 8. Arnold MUhren 9. Johnny Bosman 10. Ruud Gullit 11. Johnny van’t Schip 12. Marko van Basten 13. Erwin Koeman 14. Wim Kieft 15. Wim Koevermans 16. Joop Hiele 17. Frank Rijkaard 18. Wilbert Suvrijn 19. Hendrie Kriizen 20. Jan Wouters Sérstaklega er talið að þreyta sé í hollenska liðinu, en leikmenn þess eiga að baki mjög erfítt keppn- istímabil á meðan sovéska keppn- itímabilið er rétt nýhafíð. Þreyta situr í báðum liðum eftir leikina í undanúrslitunum, en reyndar hafa Hollendingar haft lengri tíma til að jafna sig því þeirra leikur gegn Vestur Þjóðveijum fór fram einum degi fyrr en undanúr- slitaleikur Sovétmanna. Margir hallast samt að því að það verði Sovétmenn sem verði sterkari á endasprettinum; þeir muni hafa það þrek og þann kraft sem þarf til að sigra í úrslitaleik sem þessum. Á það hefur verið bent að knatt- spymukeppnistímabilið í Sovétríkj- unum hófst ekki fyrr en í mars, en leikmenn hollenska liðsins komu til þessarar evrópukeppni eftir að hafa nýlokið erfiðu keppnistímabili í Hollandi og á Ítalíu. Sovótmenn í toppfomni Þjálfari Sovétmanna, Valery Lo- banovsky, er þekktur fyrir mjög vísindaleg vinnubrögð, en hann hef- ur skipulagt þjálfun sovéska liðsins með aðstoð tölvu, og miðaði hann alla sína þjálfun við að leikmenn yrðu í toppformi í undanúrslitunum og í sjálfum úrslitaleiknum. Þetta kom vel fram í leik Sovetmanna og Itala, og voru yfirburðir Sovét- manna í þeim leik allt annað en heppni. Talið er að þetta geti haft mjög slæm sálfræðileg áhrif á leik- menn hollenska liðsins, þar sem þeir töpuðu fyrir Sovétmönnum, 1:0, í riðlakeppninni, og það áður en sovéska liðið komst í toppæfingu. Þá átti Hollenska liðið ekki heldur greiðan aðgang að úrslitakeppn- inni, því sigurmörk þeirra á Irum og V-Þjóðveijum voru ekki skoruð fyrr en rétt fyrir leikslok, þannig að tvísýnt var fram á síðustu stundu hvaða lið kæmust áfram. Það er full ástæða til að benda á að ellefu af leikmönnum sovéska liðsins eru frá Dynamo Kiev. Hol- lensku er að mestu skipað leik- mönnum frá PSV Eindhoven og Ajax. Frá þessum tveimur liðum eru tíu leikmenn, sem stóðu í ströngu í úrslitaleikjum í Evrópu- keppni meistara- og bikarliða á dögunum. Lætur nærri að þeir séu orðnir örþreyttir eftir erfitt keppn- istímabil. Vegna ummæla Ingólfs Hann- essonar hjá RUV hér á síðunni í gær, þar sem hann segir að íþróttaáhugamenn á íslandi hafi setið við sama borð og aðrir íþróttaáhugamenn í Evrópu, í sambandi við beinar útsendingar frá EM, og að áhorfendur í Nor- egi hafí misst af kynningum á lið- um og leikmönnum, eins ojg Is- Iendingar, er rétt að það sanna komi fram: Knattspyrnuunnendur í Noregi hafa fram til þessa horft á aðra útsendingu heldur en Islendingar. „Okkur hér í Noregi hefur verið boðið upp á kynningar á borgum, sem leikið hefur verið í, ítarlegar kynningar á Iiðum og leikmönnum - áður en leikirnir hafa byijað,“ sagði Siguijón Einarsson, frétta- maður Morgvnblaðsins í Noregi, þegar hann sagði frá hvað norsk- um íþróttaunnendum hefur verið boðið upp á. Það voru til dæmis ekki enda- lausar truflanir í norska sjón- varpinu, eða stöðumynd af Neck- ar-leikvellinum í tíma og ótíma, þegar Sovétmenn og ítalir léku sl. miðvikudag. Aðeins var um truflanir að ræða á Svalbarðaútsendingu norska sjónvargsins, og um leið á send- ingu til íslands - því að íslending- um hefur verið boðið upp á ófull- nægjandi sendingar til Svalbarða. Það er fróðlegt að vita til þess, að aðilar innanhúss hjá RÚV hafi séð ástæðu til að kætast sérstak- lega yfír auglýsingatekjum þeim sem Svalbarðasendingamar hafa gefíð sjónvarpinu. Sú kátína hefur ekki náð út fyrir herbúðir sjónvarpsins - til al- mennings. Það er ekki nema eðli- legt, því að íþróttaunnendur hafa verið óhressir með þá þjónustu sem þeim hefur verið boðið upp á í beinu EM-útsendingunum - þ.e.a.s. Svalbarðasendingunum, sem hafa sparað sjónvarpinu um 15.000 á hvern leik. Sigmundur Ó. Steinarsson ■ SOVÉSKA landsliðið hefur komið mest á óvart fyrir utan írska liðið í Evrópukeppninni. Nú streyma tilboð til leikmanna so- véska liðsins, en þeir FráJóni fá ekki að fara úr Halldóri landi fyrr en 29 ára Garðarssyni gamlir. Fjögur ítölsk lið vilja fá mark- vörðinn snjalla Rinat Dassayev, en hann er orðinn 31 árs og er því fijáls ferða sinna. Uli Höness, framkvæmdastjóri Bayem MUnc- hen, segist vera tilbúinn að kaupa Oleg Protasov, sem er 25 ára, fyrir mikla peninga ef hann fengi leyfí til að leika í Vestur-Þýska- landi. Nú eru uppi háværar raddir um að sovéska knattspymusam- bandið muni gefa eftir í reglum sínum um að leikmenn fái að leika með erlendum liðum. ■ SOVÉSKIR knattspymu- áhugamenn í Sovétríkjunum fögn- uðu sigrinum yfir ítölum með því að þeyta lúðra á bílum sínum í eina mínútu eftir leikinn. ■ TVEIR sovéskir geimfarar eru nú staddir út í geimnum. Þeir fengu að sjá valda kafla úr leik Sovétmanna og ítala í geimfari sínu eftir leikinn. Þeir voru að sjálf- sögðu ánægðir með úrslitin og vildu fá að sjá úrslitaleikinn beint í dag. Þeim verður að ósk sinni og verður þetta í fyrsta sinn sem knattspyrnu- leik er sjónvarpað er beint í gegnum gervihnött út í geiminn. ■ LUFTHANSA, þýska flug- félagið, hefur boðist til að kaupa alla þá miða sem til sölu eru á úr- slitaleikinn. Löngu er orðið uppselt á leikinn sem fram fer á Ólympíu- leikvanginum í Miinchen. Margir v-þýskir knattspymuáhugamenn, sem festu kaup á miðjum í þeirri von að lið þeirra spiluðu til úrslita, vilja nú selja miða sína. Lufthansa hefur því boðist til að kaupa miðana svo hollenskir áhorfendur gætu notið góðs af og fjölmennt á völlinn. ■ VALERY Lobanovsky þjálf- ari Sovétmanna sagði á blaða- mannafundi að ítalir, sem voru með yngsta lið úrslitakeppninnar, yrðu sigurstranglegastir í næstu hejmsmeistarakeppni sem fram fer á Ítalíu 1990. Lobanovsky hefur lítið viljað láta hafa eftir sér í sam- bandi við úrslitaleikinn og hefur hann algjörlega lokað á fréttamenn síðustu daga. Rinus Michels, þjálf- ari Hollendinga, sagðist hræðast sovéska liðið. „Sovétmenn hafa sýnt það í keppninni að þeir eru til alls Ííklegir. Þeir geta bæði leikið varn- arleik og að sama skapi sóknarleik eins og hann gerist bestur." ■ KLINSMANN, Milt og Borowka, sem leikið hafa með ólympíuliði Vestur-Þjóðveija, munu líklega ekki leika með liðinu á Ólympiuleikunum. Ástæðan er sú að þeir verða að öllu óbreyttu í vestur-þýska liðinu sem leikur gegn Finnum í undankeppni HM í næsta mánuði og verða því ekki löglegir í Seoul. Beckenbauer hefur lýst því yfir að þeir verði í hópnum sem leikur gegn Finnum. Margir hafa því gagnrýnt Beckenbauer vegna þessa og segja að sigurlíkur liðsins minnki til muna í Seoul ef þeir verða ekki með þar. ■ MORTEN Olsen, fyrirliði danska Iandsliðsins, spáði því fyrir EM, að Sovétmenn myndu vinna Evrópubikarinn ■ HOLLENSK blöð eru ekki of bjartsýn fyrir úrslitaleikin. Flest þeirra spá því að Sovétmenn standi uppi sem sigurvegarar, þar sem þeir væru með geysilega öflugt og reynslumikið lið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.