Morgunblaðið - 03.08.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
Gamli miðbærinn:
Bílastæðum á göt-
um fjölgað um 100
Njálsgata verður einstefnugata
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sinum í gær tillögu umferðarnefnd-
ar um fjölgun bílastæða á götum í miðbæ Reykjavíkur. Alls mun
merktum stæðum fjölga um tæplega hundrað í gamla bænum. Það
er meðal annars gert með því að fjölga skástæðum við gangstéttar
í stað þess að bílar leggi samsíða þeim og með því að breyta Njáls-
götunni í einstefnugötu. Breytt verður um akstursstefnu á Grettis-
götu.
Nýju stæðin verða ýmist við
stöðumæla eða gjaldfrjáls. Við
Frakkastíg milli Laugavegar og
Hverfísgötu koma 10 stæði, við
Klapparstíg fjölgar þeim um 8, á
Laugavegi og í Bankastræti um 17
alls, í Austurstræti vestanverðu um
6 og flögur ný stæði koma á Bók-
hlöðustíg. Mest munar þó um að
Njálsgötunni verður breytt í ein-
stefnugötu til austurs frá Klapp-
arstíg að Snorrabraut. Þannig
skapast rými fyrir 49 ný stæði.
Til þess að vega upp breytingu
Njálsgötunnar í einstefnugötu til
austurs verður Grettisgötunni „snú-
ið við“; einstefnuakstur verður nú
til vesturs um götuna en var áður
til austurs. Til þess að minnka öku-
hraða og auka umferðaröryggi á
svæðinu verða auk þess steinlagnir
á þremur köflum á Njálsgötu og
Grettisgötu og tvær hraðahindranir
á Bergþórugötu. Þá verður bið-
skylda á Njálsgötu við Vitastíg, á
Grettisgötu við Frakkastíg og á
Vitastíg við Bergþórugötu. Stöðv-
unarskylda á mótum Frakkastígs
og Njálsgötu verður hins vegar af-
numin.
Á fundi borgarráðs var einnig
samþykkt tillaga frá samstarfs-
nefnd borgaryfirvalda og samtak-
Reykjavík:
Tvær nýj-
ar götur
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt nafngiftir tveggja
nýrra gatna í Reykjavík,
Skerplugötu og Markarinn-
ar.
Skerplugata er norðan Fos-
sagötu í Skerjafírði og dregur
nafn sitt af mánuðinum Skerplu
í fomu dagatali eins og götum-
ar Hörpugata, Góugata og
Þorragata, sem einnig eru í
Skeijafírði. Mörkin er hins veg-
ar ný gata austan Skeiðarvogs
og sunnan Suðurlandsbrautar.
anna Gamla miðbæjarins um að
tjaldað verði yfír Hallærisplanið á
laugardögum í vetur og rekinn þar
útimarkaður á vegum samtakanna.
Tvær aðrar tillögur frá nefndinni
vom lagðar fram en hljóta frekari
skoðun. Annars vegar var lagt til
að ókeypis ferðum strætisvagna
niður Laugaveg yrði fjölgað og
hafa samtökin boðist til að leggja
fram tvær og hálfa milljón króna
til þess að svo megi verða gegn því
að fá að auglýsa á hliðum vagn-
anna. Hins vegar leggur nefndin til
að akstur verði lejrfður um austur-
hluta Austurstrætis, þar sem nú er
göngugata.
Samstarfsnefndin er skipuð
tveimur borgarfulltrúum og tveim-
ur fulltrúum samtakanna Gamla
miðbæjarins. Að sögn Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, borgarfulltrúa
sjálfstæðismanna, sem sæti á í
nefndinni, er framgangur þessara
mála, ásamt fjölgun bílastæðanna
í miðborginni, sameiginlegt áhuga-
mál samtakanna og borgaryfír-
valda. „Borgaryfírvöldum er mjög
annt um gamla miðbæinn og við
höfum mikinn áhuga á að styrkja
verslun og þjónustu á svæðinu auk
þess sem mannlífíð verði eflt,“ sagði
Vilhjálmur. Vilhjálmur sagði að
kostnaður við fjölgun bflastæðanna
jrrði ekki mikill, hann fælist fyrst
og fremst í nýjum stöðumælum og
götumálningu.
Morgunblaðið/íris
Skíðakapparnir Haraldur og Hermann á fullri ferð í flæðarmálinu.
Á skíðum í flæðarmálinu
NOKKRUM Reykvíkingum
sem voru á ferðalagi um
Skaftafellssýslu um verslun-
armannahelgina datt í hug að
reyna hvort hægt væri að
renna sér á skíðum í flæðar-
málinu. Hugmyndin var um-
svifalaust framkvæmd og
tókst bærilega að sögn ferða-
Ianganna, sem töldu að þetta
hefði ekki verið reynt áður.
Að sögn Haralds Vals, sem
var í hópi þessara frumkvöðla
sandskíðaiþróttarinnar, var
þetta töluvert erfítt, ekki ósvipað
og að vera dreginn á skíðum í
djúpum, blautum snjó. Tvenn
gömul, venjuleg skíði voru með
í ferðinni og dugðu þau vel á
sandinum. Skiptist fólk á að láta
draga sig eftir sléttri sandfjö-
runni. Jeppinn sem dró skíða-
mennina ók á allt að 80 km hraða
og gátu þeir staðið á skíðunum
í um 5 mínútur í einu.
Hér hefur stór alda náð að teygja sig i skíðin og þá er ekki að
sökum að spyija.
Auknar líkur á samningi
um skiptingu loðnustofnsins
ÞORSTEINN Pálsson forsætis-
ráðherra sat um sfðustu helgi
fund í Færeyjum með þeim Atla
Dam lögmanni Færeyja og Jon-
athan Motzfeldt formanni lands-
stjómar Grænlands. Á fundinum
var rætt um ýmis sameiginleg
hagsmunamál þessara þjóða, og
þá fyrst og fremst um nýtingu
auðlinda sjávarins, umhverfis-
vemd i höfunum og samgöngu-
og ferðamál, en einnig var fjall-
að nm samninga um skiptingu
loðnustofnsins á milli íslands,
Grænlands og Noregs.
„Þetta var fyrst og fremst sam-
Framsóknarflokkurinn:
Forystan ráðgast við
menn úr atvinnulífi
RÁÐHERRAR Framsóknarflokksins, auk þingmanna og annarra
forystumanna flokksins, kölluðu nokkra menn úr atvinnulífinu og
forstjóra Þjóðhagsstofnunar á fund sinn i gær. Að sögn Steingríms
Hermannssonar utanríkisráðherra var fundurinn haldinn i fram-
haldi af þeirri ósk forsætisráðherra að stjóraarflokkarnir móti tillög-
ur um aðgerðir til þess að treysta grundvöll undirstöðuatvinnuveg-
anna. „Þessi fundur var sérstakur að þvi leyti að aðrir en við stjóra-
málamennirair höfðu orðið. Við þurfum að gera meira af því að
hlusta eftir sjónarmiðum manna i atvinnulifinu,*1 sagði Steingrímur
eftir fundinn.
Þeir sem framsögu höfðu á fund-
inum voru Þórður Friðjónsson for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, Guðjón
B. Ólafeson forstjóri Sambands
íslenskra samvinnufélaga, Ólafur
Davíðsson framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra iðnrekenda, Jón Sig-
urðarson forsljóri Álafoss, Sigurður
Markússon framkvæmdastjóri sjáv-
arútvegsdeildar SÍS og Ámi J6-
hannsson kaupfélagsstjóri. Fyrir þá
var lögð sama spumingin: „Hvað
telur þú nauðsynlegt tii þess að
skapa framleiðsluatvinnugreinun-
um rekstrargrundvöll?“ Að hveiju
erindi loknu voru leyfðar fyrir-
spumir.
„Við höfum rætt þetta efni mikið
síðustu mánuði og miðstjómarfund-
uf flokksins í apríl mótaðist mikið
af umræðu um þessi mál,“ sagði
Steingrímur. „Það kom fram í máli
allra sem til máls tóku að þeir telja
stöðu atvinnulífsins slæma. Virtist
samdóma álit þeirra að grípa þyrfti
til harðra aðgerða á næstu vikum.
Eitt fíystihús hefur þegar stöðvast
og ég óttast að fleiri kunni að fylgja
f kjölfarið.
Hér var ekki verið að draga neinn
fyrir dómstól, hvorki ríkisstjómina
eða aðra. Okkur kom saman um
ýmislegt og það verður einmitt
verkefni fundar sem við höfum boð-
að til næstkomandi mánudag með
mönnum innan flokksins að vinna
úr þeim tillögum sem fram komu.“
ráðsfundur til að fara jrfír helstu
verkefni sem þessar þjóðir eiga
sameiginleg, og koma skrið á fram-
kvæmd ýmissa málaflokka, en
þetta var ekki eiginlegur ákvarð-
anafundur," sagði Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið.
Að sögn Þorsteins blönduðust
inn í þessar umræður samningar,
sem lengi hafa verið á döfínni um
skiptingu loðnustofnsins á milli ís-
lands, Grænlands og Noregs. Fær-
eyingar eiga þó aðeins óbeina aðild
að þessu máli vegna samninga
þeirra við Grænlendinga.
„Þetta var auðvitað ekki samn-
ingafundur um þessi efíii, en fram
kom að nú eru meiri líkur en áður
á því að hægt verði að leiða þetta
gamla deilumál til lykta. Ég hét
því að beita mér fyrir því að sjávar-
útvegsráðherrar íslands, Græn-
lands og Noregs myndu hittast í
þessum mánuði til að freista þess
að koma samningaumleitunum á
skrið á nýjan ieik, en mál þetta
hefur verið í biðstöðu í allt of lang-
an tíma. Það er þvf von mín að
skriður komist á þetta mál í fram-
haldi af því að sjávarútvegsráð-
herra tekur það fyrir á þessum
fundi, en hann mun ræða það áður
bæði við Grænlendinga og Norð-
menn.“
Þetta er í annað sinn sem sam-
ráðsfundur sem þessi f Færeyjum
er haldinn, en fyrst var hann hald-
inn fyrir tveimur árum á Þingvöli-
um. Á fundinum var ákveðið að
framhald yrði á fundum af þessu
tagi, og verður næsti fundur hald-
inn á Grænlandi á næsta ári f
tengslum við 10 ára afmæli heima-
stjómarinnar þar.
Innbrotið á Hellu:
Peningakass-
inn fundinn
Peningakassinn sem stolið
var í innbrotí i Kaupfélagið Þór
á Hellu síðastliðinn fimmtudag
kom í leitiraar um helgina.
Hann hafði verið brotinn upp
og reiðufé tekið úr honum.
Að sögn Helga Daníelssonar
jrfirlögregluþjóns hjá RLR fannst
skápurinn í malargryfju skammt
frá Kerinu í Grímsnesi. Kveikt
hafði verið í kreditkortamiðum,
ávísunum og öðrum verðmætum
sem í skápnum vom en Helgi taldi
að mikill hluti þeirra væri
óskemmdur eða svo lítið að þau
muni nýtast eigendum.
Þá fundust við Hólmsheiði við
Geitháls um helgina um 40 karton
af sígarettum, sem talið er að
hafí verið stolið í innbroti í sölu-
skála við Skeiðavegamótm, sömu
nótt og brotist var inn á Hellu.
Rannsóknarlögreglan telur líkur á
að sömu menn hafí verið að verki
í báðum tilfellum.