Morgunblaðið - 03.08.1988, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
i
rW
|
I n |í
■ ! S6S*
1 *' sf
u,. ,ii m
Frú Vigdis Finnbogadóttir flytur ávarp sitt f Alþingishúsinu. Handhafar forsetavalds, forsætisráð-
herra, forseti Hæstaréttar og forseti sameinaðs Alþingis, sitja við borð. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
sitja í fremstu stólaröðinni til vinstri á myndinni en dómendur Hæstaréttar og hæstaréttarritari hægra
megin. Fyrir aftan hæstaréttardómara sitja forsetar Alþingis, fyrrum forsætisráðherrar og fyrrum
forsetar sameinaðs þings og eiginkonur handhafa forsetavalds. Þar fyrir aftan sitja varaforsetar þing-
deilda og formenn stjórnmálaflokka og þingflokka og loks embættismenn.
Vigdís Fimibogadótt-
ir tekur við forseta-
embætti í þriðja sinn
FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, hóf
þriðja kjörtímabil sitt 8.1. mánudag, 1. ágúst, þegar
hún tók við kjörbréfi sínu frá Hæstarétti og sór
embættiseið. Margt fólk safnaðist saman á
Austurvelli til að hylla forsetann við þetta
tækifæri.
Embættistakan fór fram í AJþingishúsinu en
áður var athöfn í Dómkirkjunni þar sem séra
Ólafur Skúlason vígslubiskup flutti ávarp og
blandaður kór söng. Lögregla stóð heiðursvörð
frá kirkjudyrum að dyrum Alþingishússins og
Lúðrasveit Reykjavíkur lék á Austurvelli.
Aður en athöfnin í dómkirkjunni hófst gengu
frú Vigdís Finnbogadóttir, Magnús Thoroddsen
forseti Hæstaréttar, Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra, Þorvaldur Garðar Kristjánsson
forseti sameinaðs Alþingis, séra Ólafur Skúlason
vígslubiskup, Guðmundur Benediktsson
ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis, Kornelíus
Sigmundsson forsetaritari og Erla Jónsdóttur
hæstaréttarritari úr Alþingishúsinu í kirkju um
heiðursvörð lögregluþjóna.
Að kirkjuathöfninni Iokinni gengu boðsgestir,
um 350 talsins, í Alþingishúsið. Þegar allir höfðu
komið sér fyrir söng Dómkórinn eitt lag, en að
því loknu lýsti Magnús Thoroddsen forseti
Hæstaréttar forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og
mælti fram eiðstafinn sem forseti íslands
undirritaði síðan í tveimur eintökum. Forseti
Hæstaréttar afhenti frú Vigdísi þá kjörbréf sitt.
Forsetinn gekk út á svalir Alþingishússins með
kjörbréfið og minntist fóstuijarðarinnar með
ferföldu húrrahrópi. Þrátt fyrir
verslunarmannahelgina hafði töluvert af fólki
safnast saman á Austurvelli til að hylla forsetann
við þetta tækifæri.
Frú Vigdís flutti loks ávarp í Alþingishúsinu
og athöfninni lauk með því að alhr viðstaddir risu
úr sætum og sungu þjóðsögninn, Ó Guð vors lands.
HIRÐIR
OG HÖFÐINGI
Prédikun Ólafs Skúlasonar vígslu
biskups í Dómkirkjunni við innsetn-
ingu forseta Islands í embætti
Það þykir helzt fréttnæmt, svo
eftir sé tekið, sem nýtt er eða óvænt.
Endurtekning slævir ekki aðeins at-
hygli, heldur dregur úr eftirvænt-
ingu. Þetta þekkja allir úr eigin lífí.
Jafnvel svo, að á stundum þurfum
við að ýta við okkur til þess að varð-
veita tærleika gleðinnar eins og þeg-
ar fagnað var svo einlæglega við
upphaf. Engum er þó hollt að temja
sér það viðhorf, að aðeins hið nýja
nái að höfða til hans. Staðfestan
mundi gjalda þess, að ekki sé talað
um þá eða það, sem sannað hefur
gildi sitt en hlýtur að verða að berj-
ast um athygli framhjá þeim hindr-
unum, sem nýjabrumið ýtir í huga.
Vitanlega dylst engum, að annar
var hugur hið fyrsta skipti, sem
íslenzkur forseti tók við embætti
sínu. Stuttur ferill undir heiti ríkis-
stjóra vék fyrir þessu tigna sæmdar-
heiti. Síðan var fram haldið, sem
mótað var við upphaf. Og fásinna
væri að láta sér detta í huga, þegar
núverandi forseti býr sig undir að
taka við tignarstöðu sinni við upphaf
hins þriðja kjörtímabils, að sömu
hughrif ríki og hið fyrsta skiptið.
Vart hjá henni sjálfri, og þá mundi
hið sama um þegna hennar. En að
einu leyti stöndum við betur að vígi
en fyrir átta árum. Og sá þáttur í
samspili endurtekningar og nýmælis
skyldi aldrei vanmetinn. Fyrir átta
árum var allt nýtt hjá forsetaefni,
líka allt nýtt fyrir þjóð hennar. Ekki
aðeins nýr einstaklingur að flytja til
Bessastaða og í stjómarráð, heldur
kona að taka þar við, sem karlar
höfðu fyrr einir um sýslað. Hlaut því
hvort tveggja að höfða til fólks og
auka eftirvæntingu með miklum
bollaleggingum. Nú átta ámm síðar
er tíminn ekki óráður og hulinn, held-
ur hafa árin átta mótað viðhorf okk-
ar, þegar litið er til þeirra fjögurra,
sem við væntum. Þannig hefur önnur
kennd komið að hlið eftirvæntingar-
innar, og er henni þó ekkert síðri,
en það er viðurkenning með ríkulegu
þakklæti á verðleikum þess, sem
æðstu stöðunni gegnir. Og því ætti
hugur að vera enn hærra upphafínn
nú en fyrst var, að við eigum reynslu
til að byggja á, þegar við fögnum
forseta og fylkjum okkur að baki
ástsælum þjóðhöfðingja.
Það þykist ég vita, að umfram öll
önnur mannleg viðfangsefni sé það
svo með það embætti, sem hér er
efst í hvers manns huga, að enginn
veit fyrr en reynir, hvers það krefst.
Þó má úr fjarlægð gera sér nokkra
Morgunblaðið/Einar Falur
Gengið úr kirkju í Alþingishús. Fremst ganga forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir og handhafar forsetavalds þeir Magnús Thor-
oddsen forseti Hæstaréttar, Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson forseti sameinaðs Alþingis. Næstur
þeim gengur séra Ólafur Skúlason vígslubiskup og síðan ráðherrar
ríkisstjórnarinnar.
Ávarp frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands í Alþingishúsinu:
Markmíðið er að rækta
mannorð íslenskrar þjóðar
þau gengu um það
þreyttum fótum
köldum fótum
og kalsárum
höitum fótum
og holdsveikum
léttum fótum
og lipurtám
og landið áttu þau.
Góðir samtíðarmenn.
Á þessari stundu, þegar mér er
falið embætti forseta Islands hið
þriðja kjörtímabil, er mér efst í huga
þakklæti fyrir það traust _sem mér
er með þeim hætti sýnt. Ég þakka
hlýjar árnaðaróskir og_ kveðjur sem
borist hafa víða að. í þeim felast
jafnframt heillaóskir til íslenskrar
þjóðar.
Allar kynslóðir í öllum löndum
hafa átt sér þann draum að eftir
þeim verði munað, að arftakar þeirra
telji ómaksins vert að rifja upp hvem-
ig þær hugsuðu og unnu, hvemig
menning þeirra var og hverjar voru
ástir þeirra og vonir. Og þegar vandi
hefur steðjað að nýrri kynslóð hefur
líka ávallt verið litið til baka og
spurt: Hvemig leystu fyrri tíðar
menn sinn vanda?
Hver sem dómur sögunnar kann
að verða um fyrstu íslensku lýðveld-
iskynslóðina á hún það vfst að ferill
hennar verður grandskoðaður, rýnt
í framfaraspor hennar og skoðað
hvar hana hefur borið af leið. Því
sífellt munu menn spyrja: Hvemig
sáu frumheijar íslenska lýðveldisins
fyrir sér að mannlíf gæti orðið feg-
urst og best í landinu? Þetta eigum
við sem nú lifum sameiginlegt með
fyrstu kynslóðunum í landinu, þeim
sem grundvöllinn lögðu að þjóðveld-
inu foma.
Þetta skapar okkur sérstöðu og
leggur okkur afdráttarlausar skyldur
á herðar. Við verðum að standa svo
að hverju verki að afkomendur okkar
og erfmgjar geti minnst okkar með
virðingu og þökk. Það á að vera
okkur brýnt metnaðarmál að kom-
andi kynslóðir segi um okkur: Við
emm hreykin af því að hafa átt þessa
forfeður (... og mæður)!
Þótt horft sé til baka og reynt að
draga lærdóma af sögunni er samt
hollt að minnast þess að hún endur-
tekur sig ekki óbreytt. Skáldkonan
góða, Halldóra B. Bjömsson, vék að
því í einu Ijóða sinna með þessum
orðum:
Forfeður okkar
afar og ömmur
áttu landið
með öðrum hætti en við
Sú sambúð lands og fólks sem
skáldið orðaði hér verður ævinlega
jafnvægislist. Alla tíð verðum við að
minnast þess að landið sem við höf-
um tekið í arf er aðeins eign okkar
um skamma stund, okkur ber skylda
til að skila því í hendur afkomenda
okkar ekki aðeins jafngóðu heldur
enn betra en það var þegar við tókum
við því. Og jafnframt megum við
aldrei gleyma því að þetta land á
okkur með sínum hætti. Það finnur
hver sá sem fer um landið og kann
sögu þess, fínnur minningamar leika
um sig, finnur að hann á landið og
landið á hann.
Á þessu sumri höfum við orðið vör
vakningar sem hlýtur að gleðja hvem
hugsandi mann. Þeim fjölgar stöðugt
sem gera sér ljóst að landið sem við
tókum í arf á kröfu til að við ræktum
það og varðveitum, færum því aftur
þann gróður sem það hefur misst,
og beitum til þess allri þekkingu og
öllu því hugviti sem við eigum. Þann-
ig gjöldum við landskuld okkar við
alnar og óbomar kynslóðir. Vel kann
það að vera dómur okkar að liðnar
kynslóðir hafí stundum gengið nær
landinu en holiast hefði verið en við
hljótum líka að geta skilið að þær
áttu ekki annarra kosta völ. Þá af-
sökun eigum við ekki og arftakar
okkar munu ekki fyrirgefa okkur á
þeim forsendum. Þvl við eigum að
vita hvað við erum að gera, þekkja
bæði land okkar og fískimið, kosti
þeirra og þol.
Ekkert í heimi nútímans gefur
þjóðum meiri reisn en þekkingin.
Þjóð án þekkingar er aflvana. Þekk-
ingarrík þjóð er voldug. Þekking fel-
ur í sér kunnáttu. Hún brýnir skap-
andi hugsun og verður manninum
tæki til þess að velja sér leiðir og
aðferðir til verka. Með þekkingu má
leysa vanda sem ella sýnist óleysan-
legur því þekkingin eykur skilning
og gefur sýn til margra átta. Og hún
verður allar stundir að vera víðtæk.
Auk þess að taka til verkkunnáttu
og rannsóknarstarfa verður hún
einnig og ekki síður að leggja rækt
við minningamar, kunnáttu um líf
og sögu liðinna kynslóða, því þannig
fær hún sína fegurstu mynd og verð-
ur hinn nauðsynlegi lykill mannsins
að sjálfsvitund og skilningi á um-
hverfí sínu.
Eftir kínverska heimspekingnum
Konfúsíusi er haft: „Að vita að þú
veist það sem þú veist og að vita að
þú veist ekki það sem þú veist ekki,
það er hin sanna þekking." Vakandi
mannshugur er fær um að greina
þama á milli. Það er óendanlega
dýrmætt, því ekkert mun geta skap-
að okkur meiri virðingu um ókomin
ár en einmitt þekking sem aðrar þjóð-
ir geta metið og dáðst að í fari okk-
ar. Aðeins í krafti kunnáttu og þekk-
ingar til hugar og handa getum við
markað okkur svið í hópi þjóða.
Okkur ber skylda til ræktunar á
öllum sviðum, að rækta land, sögu
og tungu, að rækta sjálfstæði til
orðs og æðis. Lýðveldiskynslóðin reis
úr öskustó til velmegunar. Aldrei
má það verða dómurinn um hana að
hún hafí öðlast veraldlegar stóreign-
ir en glatað minningunum í amstri
dagsins og látið undir höfuð leggjast
að nota andlegt atgjörvi sitt. Hitt er
ósk okkar og von að hennar verði
minnst sem þeirrar kynslóðar sem
lærði að beisla þekkinguna, gerði sér
grein fyrir hvað hún vissi og hvað
hún vissi ekki.
Markmiðið er stórbrotið: Að rækta