Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
21
Haukur Þorleifsson
Skólameistari og kennarar tóku að
kenna þær greinar sem kenndar voru
í Menntaskólanum í Reykjavík með
það fyrir augum að fá réttindi til
útskrifa stúdenta síðar. Hófst nú
mikil barátta fyrir því að þessi rétt-
indi yrðu veitt. Skólameistari beitti
sér af alefli í þessu máli og menn
um allt land lögðust á sömu sveif.
Því er ekki að Ieyna að ýmsir menn
voru algerlega á móti því að fá ann-
an menntaskóla í landið. Sannleikur-
inn var sá að margir lögðust ákaf-
lega hart gegn þessu og meira að
segja hejrrði ég eftir prófessorum við
Háskólann að þeir teldu kennarana
fyrir norðan ekki hæfa til að kenna
þau fræði sem kennd voru í mennta-
skólanum syðra í fjórða, fimmta og
sjötta bekk. Seinni part vetrar árið
1927 fóru nokkrir af sjöttubekking-
um frá Gagnfræðaskólanum á Akur-
eyri suður til þess að taka próf þar
utan skóla við Menntaskólann í
Reykjavík. Þeir fengu einhveija smá-
vegis kennslu í einkatímum en aðal-
lega var treyst á þá kunnáttu sem
þeir höfðu fengið í skólanum nyrðra.
Allir í þessum hóp stóðust prófið þó
þeim væri hreint ekki hjálpað neitt
sérstaklega. Úr þeirra hópi komu
tveir meðal bestu kennara landsins,
þeir Þórarinn Björnsson, síðar skóla-
meistari Menntaskólans á Akureyri
og Biynjólfur Sveinsson sem einnig
kenndi við Menntaskólann á Akur-
eyri og var þar lengi yfirkennari.
Við vorum fimm eftir fyrir norðan
og tókum stúdentspróf árið eftir,
1928. Þessir fimm voru, eins og fyrr
geinir, auk mín þeir Baldur og Bragi
Steingrímssynir, séra Gunnar Jó-
hannesson seinna prestur á Skarði
og Guðmundur Benediktsson síðar
prestur á Barði í Fljótum.
Það var mikil gleði á sal í skól-
anum þegar Jónas Jónsson, sem þá
var dóms— og kennslumálaráðherra,
las upp tilkynningu um það að Gagn-
fræðaskólanum væri veitt heimild til
að brautskrá stúdenta sem fengju
jöfn réttindi til náms við Háskóla
íslands og þeir stúdentar sem út-
skrifuðust frá Menntaskólanum í
Reykjavík. Einnig var lesin upp til-
kynning frá Haraldi Níelssyni há-
skólarektor þar sem staðfest var að
Háskólinn mjmdi taka við stúdentum
frá Gagnfræðaskólanum á Akurejri
ef þeir lykju tilskildum prófum. Það
kom þó ekki til þess að ég færi í
Háskóla íslands því ég ákvað að fara
til náms í Þýskalandi. Ég hafði lengi
haft mikinn áhuga á stærðfræði,
hafði raunar kennt hana í yngri
bekkjum gagnfræðaskólans, meðan
ég enn var við nám þar. Seinna
hætti ég við stærðfræðina en fór
yfir í þjóðarhagfræði, en hafði stærð-
fræðina sem aukagrein. Ég skrifaði
Sigurði skólameistara um þessa
ákvörðun mina og fékk frá honum
elskulegt bréf þar sem hann lagði
ekki neinar hömlur á mig. Ég var
úti við nám í Þýskalandi frá haustinu
1928 til haustsins 1932. Ég varð
Gragoum
Græoum
ÁTAKILANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120.105REVKJAV(K
SlMI: (91) 29711
Hlaupareikningur 261200
BúnaAarbanklnn Hellu
■g.b
ro «o
jfí ítí
E “
o "o
«o E
æ -i
mjög mikið var við uppgang nasista,
sérstaklega síðasta árið. Þá var sókn
þeirra mjög hörð og daglegar óeirðir
og áflog milli þeirra og jafiiaðar-
manna og kommúnista á götunum.
Ég sá Hitler rétt áður en ég fór
heim. Þá stóð jrfir kosningabarátta
og boðað hafði verið til fundar í
stórri sýningarhöll 5 Leipzig. Ég sat
fáum bekkjum frá Hitler og sá allt
mjög vel sem gerðist. Fundarstjóri
var Agústus prins af Saxlandi, en
þama voru stormsveitir og hljóm-
sveit, þetta var einsog áhrifamikil
leiksýning. Hitler talaði í fimmtán
mínútur og mér er nokkuð minnis-
stæð ræða hans. Hann talaði um
friðarsamningana og þann órétt sem
Þjóðveijar væru beittir. Svo reif hann
skyrtuna frá bijósti sér og sagði:
„Spjótsoddar óvinana stefna allir
hingað og hér er hjarta mitt og það
skal taka á móti þeim.“ Við þetta
varð allt vitlaust í salnum. Ég tók
ekki undir fagnaðarlætin í salnum
þó það væri hreint ekki hættulaust,
en ég var ekki hliðhollur nasistum,
miklu fremur á móti þeim og þannig
var það með flesta Islendinga sem
MA-stúdentar 1928. Fremst Gunnar Jóhannesson. Standandi f.v.
Guðmundur Benediktsson, Bragi Steingrímsson, Baldur Steingrims-
son, Haukur Þorleifsson
voru samtíða mér þar jrtra. Ég má
til með að geta þess að þama úti
kjmntist ég Jóhanni Jónssjmi skáldi
og sambýliskonu hans, frú Elísabetu
Gulstorf. Jóhann var ógleymanlegur
maður og óvenjulegur persónuleiki.
Hvar sem hann kom horfðu allir á
hann þó hann gerði ekki neitt til
þess, hann var bara svo áberandi.
Hann var berklaveikur og haltur af
þeim sökum og berklaveikin varð
hans banamein. Mér er mjög minnis-
stætt þegar hann lá uppá dívan og
las kvæði, með sinni hásu röddu, það
var óglejmianlegur lestur."
Að lokinni námsdvöl réðst Haukur
til starfa við Búnaðarbanka íslands
þar sem hann starfaði um áratuga
skeið. Fjrst var Haukur ráðinn
ásamt Siguijóni Sigurðssyni til þess
að afla gagna til undirbúnings undir
löggjöf að kreppulánasjóði. Verkið
hófst síðast í október 1932 en eftir
að Kreppulánasjóður var stofnaður
varð Haukur starfsmaður hans.
Nokkru seinna hóf hann störf við
Búnaðarbankann þar sem hann
starfaði óslitið þar til hann varð sjö-
tugur um áramótin 1973 til 1974.
AH Traust þjónusta /rOnix
ASEA BROWN BOVERI ■ S Hátúni 6A Simi (91) 24420
ABB CYLINDA 16000
Þvottavél, topphlaðin
margir velja topphlaðna
þvottavél frekar en fram-
nlaðna. Hafa alla sömu eig-
inleika og þær framhlöðnu,
en spara gólfpláss, og þú
arft ekki að bogra við
vottlnn.
Verð nú: 56.530 (53.704)
Einnig:
13000: 49.930 (47.434)
ABB CYLINDA 7000
tauþurrkari
114 Itr. tautunna úr ryðfríu
stáli, tvö hitastig, rakaskynj-
ari (sjálfvirk þurrkkerfi), kalt
loft eingöngu (til að viðra
fatnað), má standa ofan á
þvottavél.
Verð nú: 44.290 (42.076)
FRESCO FS-403
tauþurrkari
Bjóðum einnig margar gerð-
ir FRESCO þurrkara, t.d. FS-
403 með 92 Itr. tautunnu.
25 ára frábær reynsla hér-
lendis. Getur staðið ofaná
þvottavél, borði eða hangið
á vegg.
Verð nú: 23.980 (22.781)
Einnig:
Fleiri gerðir fást, t.d.
FS-501C, sem ekki þarf út-
blástursbarka.
Al» CYLINDA
ASEA BROWN BOVERI
STÓRLÆKKAÐ VERD
ABB CYLINDA er hluti stórfyrirtækisins ABB (Asea
Brown Boveri), sem er heimsþekkt fyrir tækniiðn-
að í hæsta gæðaflokki. ABB CYLINDA sérhæfir
sig í framleiðslu þvottavéla, tauþurrkara og upp-
þvottavéla. Takmark ABB CYLINDA er einfalt:
„Aðeins það besta er nógu gott." Árangurinn er
vélar, sem hafa hlotið frábæra dóma í neytenda-
prófunum á kröfuhörðustu mörkuðum Evrópu.
Við bjóðum vélar við hvers manns hæfi - og nú á
STÓRLÆKKUÐU VERÐI. Vegna hagstæðra magn-
innkaupa lækkum við nú verðið um 10%. Við
bjóðum líka góð greiðslukjör: 5% aukaafsláttur
gegn staðgreiðslu, afborgunarkjör, VISA-rað-
greiðslur, EURO-kredit (engin útborgun).
ABB CYLINDA 1400
uppþvottavél
14-manna, 3-falt lekaöryggi,
barnaöryggislæsing, lyktar/
hljóð- og gufugildra. Þær gerast
ekki hljoðlátari (44 dB).
Verð nú: 56.040 (53.238)
Einnig:
1300: 49.930 (47.434)
1500: 62.170 (59.062)
ABB CYLINDA 11000
Þvottavél, framhlaðin
frjálst kerfisval, frjálst hitaval,
kerfi f/ull og viðkvæmt, E-hag-
kvæmnisrofí, sparnaðarrofi,
áfangavinding, mesti vindu-
hraði 1200 sn/mín.
Verð nú: 57.300 (54.435)
Einnig:
9500: 54.495 (51.770)
12000: 62.415 (59.294)
Sjón er sögu ríkari. Komdu því í
heimsókn til okkar og skyggnstu
undir glæsilegt yfirborðið, því þar
er ekki síður að finna muninn sem
máli skiptir; trausta byggingu og
tækni í hæsta gæðaflokki.