Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 25 sem buðu uppá mikla framtíðar- möguleika. Þetta mun hafa mótað hinn unga þingmann og afstöðu hans til atvinnuveganna. Hann lét sér frá byrjun annt um báða höfuð- atvinnuvegina, sem þá voru, land- búnað og sjávarútveg. Kom þetta fram í störfum hans á Alþingi og utan þings. Sjálfur var Pétur bóndi af lífi og sál og var því viðbrugðið hversu mikinn áhuga hann hafði á tækni- væðingu landbúnaðarins og þeirri miklu hagræðingu, sem hún færði og létti jafnframt af bændum því mikla striti, sem fylgdi heyöflun og ýmsum öðrum störfum í sveitunum. Nýtti hann sér í sínum búskap hina nýju tækni til hins ýtrasta og stuðl- aði að því eftir megni að bændur gætu almennt gert hið sama. Enda þótt hann væri ekki tengdur sjávarútveginum atvinnulega fylgd- ist hann mjög vel með í sjávarútvegs- málum og bar einkum fyrir bijósti nauðsyn þess að vernda fiskistofn- ana og var Faxaflói honum ofarlega í huga í þeim efnum. Var hann oft harður í horn að taka í umræðum um þau mál á Alþingi og þótti menn ekki sýna næga framsýni í ljósi þeirr- ar öru tækniþróunar í fiskveiðum, sem varð uppúr styijöldinni og á áratugunum þar á eftir og síharðn- andi ásókn erlendra fiskiskipa í físk- stofnana. Hér er rétt að geta þess, að það var ekki aðeins í eigin bústörfum og baráttu hans á Alþingi fyrir ýmsum velferðarmálum landbúnað- ar og sjávarútvegs, sem umhyggja hans fyrir þessum tveimur atvinnu- vegum kom í ljós og kem ég þá að því einstaka í starfí Péturs. Hann var í aratugi í stjórnum Búnaðarfé- lags íslands og fískifélags íslands, hins fyrra 1942 þar til hann lézt 1968 og hins síðara 1944—1966. Ég þekki ekki til starfa hans í Búnaðarfélaginu en af því, sem sam- starfsmenn hans hafa sagt um það má marka, að hann hafi verið fram- úrskarandi liðsmaður. Störf hans í stjóm Fiskifélagsins þekki ég hins vegar mjög vel, þar sem ég starfaði þar með honum all- an tímann, sem hann var þar. Ég neita því ekki, að mér þótti það kynlegt þegar sú hugmynd kom fram á fískiþingi, að Pétur sem var þá í stjóm Búnaðarfélagsins yrði kjörinn í stjóm Fiskifélagsins. Ég þekkti Pétur ekki mikið, hafði aðal- lega hitt hann sem formann fjárveit- ingarnefndar Alþingis og þau kynni vom hin ágætustu. Ég vissi líka um áhuga hans á landhelgismálinu. Samstarfsmenn mínir í stjórninni, sem þekktu Pétur betur, vom þess hvetjandi, að hann yrði kjörinn, það myndi auka virðingu félagsins og atfylgi Péturs með ýmsum þeim málum, sem Fiskifélagið bar fyrir bijósti, mundu reynast gagnleg. Þetta reyndist allt rétt. Samstarfíð við Pétur var með ágætum. Hann kynnti sér starfsemi félagsins vel og fylgdist vel með öllu, var tillögu- góður og þó hann væri harðfylginn og flytti mál sitt með sannfæringu þá hafði hann líka lag á því að láta ekki skerast í odda en fínna leið til málamiðlunar, sem menn gætu sætt sig við. Þó minnist ég þess, að í land- helgismálinu hélt hann a.m.k. einu sinni svo fast á sínu máli, að menn náðu ekki saman. Þar var þó ekki um að ræða meginatriði heldur minniháttar, sem deilt var um, þar sem skoðanir manna gátu verið skiptar. Pétur kom inn í stjóm Fiski- félagsins á tíma nokkurra erfiðleika í sögu þess. Höfðu verið allmiklar deilur m.a. um ný lög fyrir félagið. Höfðu áður orðið deilur um kosningu fulltrúa til fiskiþings og gætti þar ágreinings um persónur og einnig blönduðust stjómmálaátök inn í deil- una. Þessar deilur leystust farsæl- lega og átti Pétur sinn þátt í því. í „Bókinni um Pétur Ottesen“ skrifaði ég á sínum tíma grein um þátt Péturs í landhelgismálinu og rakti þar allýtarlega afskipti hans af því máli allt frá því hann tók sæti á Alþingi. Of langt yrði að rekja • þá sögu svo rækilega og mun ég því minnast á nokkur helztu atriði. Á Alþingi 1919 voru samþykkt lög um smíði skips til landhelgisgæzlu og ennfremur þingsályktunartillaga um stækkun landhelginnar. Áttu Danir samkvæmt sambandslaga- samningnum að halda uppi gæzlu við landið en margir töldu þá hafa staðið sig heldur slælega. Fram- kvæmd laganna strandaði í bili á slæmri fjárhagsstöðu rikisins. Á þinginu 1921 bar Pétur fram fyrir- . spum um málið og aftur á þinginu 1923. í umræðum um seinni fyrir- spumina fórust honum m.a. orð á þessa leið: „Fjárhagsörðugleikamir em vit- aníega fullgild ástæða til þess, að orðið hefur að fresta og fresta fram- kvæmdum í ýmsu því, sem nauðsyn- legt er. En afkoma og farsæld þjóð- arinnar og viðreisnarstarfsemi bygg- ist vitanlega á því, að atvinnuvegim- ir séu í sæmilega góðu horfí og geti borið sig. Og hér er að ræða um bráðnauðsynlegar ráðstafanir, sem miða að því beint og óbeint að vemda og tryggja annan aðalatvinnuveg þjóðarinnar." Þegar líða tók að Alþingishátíð- inni 1930 taldi Pétur hentugan tíma til að hreyfa sjálfu landhelgismálinu, þar sem ísland kæmist nokkuð í sviðsljósið vegna þúsund ára af- mælis Alþingis og margir erlendir áhrifamenn frá vinveittum þjóðum mundu sækja landið heim. Flutti hann þingsályktunartillögu um, að unnið skyldi að útfærslu landhelg- innar þannig, að innan hennar yrðu allir fírðir og flóar og helstu báta- mið. Þetta var ekki samþykkt, þar sem samkomulag varð um að endur- heimt handritanna frá Dönum ætti að vera það mál, sem Alþingi legði mesta áherzlu á í sambandi við Al- þingishátíðina. Var nú nokkurt hlé, en á Alþingi 1936 fluttu Ólafur Thors og Pétur Ottesen þingsálykt- unartilllögu um friðun Faxaflóa og var hún samþykkt. Átti eftir að líða allnokkur tími þar til því marki yrði náð og þá eftir öðrum leiðum. Faxa- flóamálið hafði verið til meðferðar vísindamanna innan Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins seint á 4. áratugn- um, rétt áður en styijöldin brauzt út. Vænlega horfði um framgang málsins þegar styijöldin hófst en frekari meðferð þess dróst fram yfír styijöldina. En Pétur hélt sér við efnið og á þingunum 1943 og 1945 flutti hann enn tillögu um bann gegn botnvörpu- og dragnótaveiðum í Faxaflóa. Á Alþingi 1949 flutti Pétur enn tillögu um friðun Faxaflóa og studd- ist þá við landgrunnslögin, sem höfðu verið sett árið áður. Hafði verið sett reglugerð samkvæmt land- grunnslögunum um rýmkun físk- veiðilandhelginnar fyrir Norðurlandi í 4 sjómílur frá beinum grunnlínum og vildi hann nú að aðgerðir, sem tækju til Faxaflóa, fylgdu á eftir. Var tillögunni breytt nokkuð í með- förum þingsins sem sýndi, að menn töldu enn ekki kominn tíma til frek- ari aðgerða á grundvelli landgrunn- slaganna. Pétur var ekki allskostar ánægður með afgreiðslu málsins en taldi þó viðunandi. Næstu árin gerðist ýmislegt á al- þjóðavettvangi, sem benti til hag- stæðari þróunar alþjóðaréttar til víðari fiskveiðilögsögu. Á Alþingi 1956 flutti Pétur enn þingsályktunartillögu og nú um vemdun fískimiða umhverfis ísland, sem þýddi í rauninni 12 mílna fisk- veiðilögsögu. Tillagan var ekki út- rædd og endurflutti Pétur hana á næsta þingi og varð hún þá heldur ekki útrædd. Var ástæðan sú að menn töldu nú skynsamlegt að bíða eftir ráðstefnu Seinuðu þjóðanna um réttarreglur á hafinu, sem hefjast átti snemma árs 1958. Alkunnar eru deilur þær, sem hófust, aðallega við Breta, upp úr aðgerðum fslendinga eftir ráðstefnuna þegar ákveðin var með reglugerð 12 mílna fískveiðilög- saga umhverfis landið allt. Þykir mér rétt að birta síðasta kaflann í grein minni í „Bókinni um Pétur Ottesen" 1969 sem lýsir nokk- uð síðustu afskiptum Péturs af land- helgismálinu á Álþingi 1959, síðasta þinginu sem hann sat: „Eins og jafnan áður, þá var Pét- ur ekki síður nú í hópi þeirra, sem harðast vildu ganga fram. Hann hafði snemma látið það í ljós í um- ræðum á Alþingi, að stórþjóðimar, og átti þá m.a. við Breta, sem ættu hagsmuna að gæta, að því er fisk- veiðilandhelgina við ísland snerti, mundu ekki af fúsum vilja afsala sér þeim hagsmunum sínum. Taldi hann sig nú fá staðfestingu á þess- ari skoðun sinni. Þegar að því kom, á árinu 1960, eftir tveggja ára bar- SJÁ NÆSTU SlÐU Þúfærð meira ogmeira ogmeira. Bónusreikningur gefur þér möguleika sem ekki hafa þekkst áður á óbundnum bankareikningi. Þú færð hærri vexti eftir því sem innstæðan vex. Vaxta- þrepin eru 4 talsins: Að 50 þúsundum kr., 50-200þúsundkr., 200-500 þúsund kr. og upphæðir yfir 500 þúsund kr. Vextir umfram verðbólgu fyrirhæsta þrepa.m.k. 7%. Þú f ærð alltaf betri kjörin þegar verðtryggð og óverðtryggð kjör hvers vaxtaþreps em borin saman á 6 mánaða fresti. Peningarnir eru alltaf lausir hvenær sem þú þarft að grípa til þeirra. Kostnaði við úttekt er haldið í lágmarki, en vexti má taka út kostnaðarlaust. Ellilífeyrisþegar fá vexti 2. þreps strax þó upphæðin sé undir þeim mörkum, sama gildir um hluthafa bankans. Þú færð afslátt hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum með því að framvísa Bónuskorti sem fylgir reikningnum. Auk þess færðu möppu fyrir pappíra reikningsins o.fl. ■iiiu.l gJ i.lJ t xliS ‘i'.l > *>*!*.#<•• <•*•'•» 1119-3 Jiiii 'iuiikó -ucíjIou A ianaini .ráia íui ,1361 6hi iiniéaMorhíi&xja mlóÚ iójrrgs8 “.aaanxeJ inðblieH .i.isd ú; ,w :Eh’ njbbsjy ineU;)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.