Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 27
27
ópu, til Grænlands, ísraels, Banda-
ríkjanna og Afríku. Hann taldi sig
hafa lært mikið af þessum ferðum
enda var hann síspyrjandi um allt
milli himins og jarðar um lönd og
fólk, þar sem hann fór. Tvö atvik
urðu honum þó eftirminnilegust á
þessum ferðum, en það var ferðin
til ísraels og heimsókn til páfans í
Róm, sem hann ásamt fleiri Islend-
ingum fékk að hitta augliti til auglit:
is. Hafði það djúp áhrif á hann. í
ísraelsferðinni hafði það einnig mik-
il áhrif á hann, að koma á þá staði,
sem hann hafði lesið um í Biblíunni
og tengdust lífí Jesú. Tók hann með
sér heim úr þeirri ferð vatn úr ánni
Jórdan, sem sonarsonur var svo
skírður úr.
Eg átti þess tvisvar kost að ferð-
ast með honum til Englands. Var
afar gaman að fylgjast með áhuga
hans á öllu því, sem fyrir augun bar
og hversu glöggur hann var á allt
það margbreytilega líf, sem hann sá,
bæði hið jákvæða og hið neikvæða.
Konan mín var með mér í þessari
ferð og dag einn í London bað Pétur
hana að koma með sér í búðir því
hann ætlaði að kaupa kápu á kon-
una sína. Dáðist hún mjög að því
hversu vandlátur hann var við
kápuvalið og vissi nákvæmlega
hvernig kápu hann vildi fá allt frá
hnöppum til sniðsins. Mun þetta allt
hafa tekizt vel og líkaði vel þegar
heim kom. í annað skipti var eg
með honum og fleiri og var þá m.a.
farið til Grimsby í heimsókn til stór-
fyrirtækisins Ross m.a. til að kynna
sér nýja skuttogara. Var þá farið
með einum slíkum í dagsferð út í
Norðursjó til að sýna hvemig skipið
sígarettunni af annarri þegar við
gengum yfír að bílastæðinu við
Búnaðarbankann, þar hafði hann
lagt bíl sínum, nýjum amerískum
glæsivagni sem ekki er ólíklegt að
kosti á aðra milljón. Hann ók út
af bílastæðinu þegar ég óskaði hon-
um gæfu og gengis og út á Lauga-
veg og bíllinn hvarf upp götuna á
miklum hraða, greinilega voru
taugamar ekki í lagi hjá bílstjóran-
um þennan mánudagsmorgun. Svo .
hitti ég þennan mann aftur á mið-
vikudegi í sömu vikunni, þá var
hann meira en lítið ánægður með
lífíð og með stóran vindil í munni.
— Hvernig gekk þér? Fékkstu
lán til að greiða af íbúðinni? spurði
%-
— Já, ég var búinn að gleyma
því að ég átti gamla sparisjóðsbók
í banka. Hef lagt inn á bókina af
og til á liðnum árum, ekki önnur
viðskipti á þaim stað, nóg samt til
þess að út á þessi viðskipti í ein
tuttugu ár fékk ég lánið og svo
fékk ég tvo menn til að skrifa upp
á. Annar þeirra rekur tískubúð við
Laugaveginn, hinn er eigandi að
vínveitingahúsi. Þetta em ágætir
skilmálar, ég borga mánaðarlega
af láninu, í átján mánuði. Þetta
bjargast einhvem veginn. Að vísu
hef ég aukið við skuldirnar, ekki
einn um það nú á tímum og ekki
er þetta svo sem nein lausn á tímum
lánskjaravísitölunnar og vaxtaok-
urs. En hvað á maður að gera? Ég
verð að láta mig hafa það, sagði
kunningi minn og drap í vindlinum
og settist inn í bílinn og gaf í og
bifreiðin ók inn Rauðarárstíginn og
var horfínn áður en ég áttaði mig
og ætlaði að spyrja í hvaða banka
hann þefði fengið svona góða fyrir-
greiðslu.
Þegar ég var að ljúka við grein-
ina datt hér inn um bréfalúguna í
fjölbýlishúsinu umslag frá Gjald-
heimtunni í Reykjavík sem innihélt
ávísun stílaða á Seðlabanka íslands
með mínu nafni að upphæð ein
króna og nánari skýringar á blaði
áföstu við áyísunina. Húsnæðis-
bætur kr. 1. í síma hjá Skattstof-
unni fékk ég þær upplýsingar að
niðurstaðan væri hvorki jákvæð né
neikvæð, það væri verið að skoða
málið og eftir verzlunarmannahelg-
ina mætti ég hafa samband og fá
nánari fréttir. 0g þá er bara að
bíða og vona. Lífið minnir stundum
á happdrætti og ekki að vita hve-
nær stóri vinningurinn er dreginn
út...
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
væri við veiðar. Margt fleira var
skoðað í hinum stóra fískibæ Grims-
by og einnig fengum við að fara til
York, sem liggur skammt norður af
Humber-fljóti og skoðuðum þar hina
miklu dómkirkju frá miðöldum. Allt
þetta vakti óskipta athygli Péturs
og sýnir vel hversu víðfeðmur áhugi
hans var og hversu vel hann kunni
að njóta þess sem fyrir augun bar.
Af þessu öllu var einstaklega gaman
að ferðast með honum.
Pétur var mikill bindindismaður
alla tíð. Var hann í því heill og ein-
lægur eins og í öllu sínu framferði,
en aldrei varð eg var við að þar
gætti neins ofstækis, enda var hon-
um allt slíkt fjarlægt.
Pétur var mikill gæfumaður í sínu
einkalífí eins og reyndar í öllu sínu
lífí. Sama árið og hann bauð sig
fyrst fram til þings og var kjörinn
og tók þá við jörðinni af föður sínum,
gekk hann að eiga heitmey sína,
Petrínu Helgu Jónsdóttur frá-Kára-
neskoti í Kjós. Var þar ekki tjaldað
til einnar nætur því sambúð þeirra
stóð í 52 og */2 ár. Ekki fór hjá því,
að setan á Alþingi og hin fjölmörgu
félagsmálastörf, sem hlóðust á Pétur
þess utan, krefðust oft mikilla fjar-
vista hans frá heimilinu. Auk þess,
sem getið hefur verið um félags-
málastörf hans, má geta setu í sýslu-
nefnd Borgarfjarðarsýslu í 51 ár,
hreppstjóri í 50 ár, í stjóm Sláturfé-
lags Suðurlands í áratugi og lengi
formaður o.fl., sem of langt yrði upp
að telja. Kona hans varð því að
gæta búsins og heimilisins, oft
langtímum saman og var þá bæði
bóndinn og húsfreyjan. Tókst henni
þetta hlutverk með mikilli prýði.
Pétur mat konu sína mikils.
Þau eignuðust tvö börn, Sigur-
björgu, sem búsett er í Reykjavík,
og Jón, sem ásamt eiginkonu sinni,
Bryndísi Guðmundsdóttur frá
Hrafnbjörgum, situr ættaróðalið.
Petrína lézt árið 1972 og var þá
83 ára að aldri.
Hinn 1. desember 1968, á 50 ára
afmæli fullveldisins, var viðtalsþátt-
ur í Ríkisútvarpinu, sem Stefán
Jónsson, sem þá var orðinn lands-
þekktur fyrir slíka þætti, hafði við
Pétur. Svaraði hann þar spaklega
og oft með glensi á vör mörgum
spumingum Stefáns. Þykir mér
hlýða að birta hér að lokum síðasta
kaflann úr þessu viðtali, sem var
fullt bjartsýni og bjargfastrar trúar
á fólkið í landinu. Þetta var hið
síðasta, sem hann mælti til þjóðar
sinnar, en hann lézt 16. sama mán-
aðar er hann gekk upp túnið sitt að
Ytra-Hólmi.
Síðustu orð Péturs í viðtalinu
vom:
„Eg bytja mitt starf í stjómmálum
sem frekar þröngsýnn maður, enda
hafði eg ekki notið þeirrar skóla-
menntunar, sem yfirleitt lyftir
mönnum á hærra stig í þeim efnum.
Mér fínnst, að eg hafí gerzt því
víðsýnni og fijálslyndari sem aldur-
inn og reynslan hafa færzt yfir mig.
Og það getur ekki nokkur lifandi
maður fengið mig til þess annað
heldur en að sjá framtíðma í björtu
ljósi. Mér fínnst að við íslendingar
höfum komizt yfir þá erfiðleika, að
þó að mæti okkur andstreymi á
ýmsan hátt nú þá höfum við aldrei
verið betur búnir til þess að yfirstíga
þá heldur en nú. Eg blæs á þessa
örðugleika núna. Það er bara, að við
eigum að beita skynseminni þá eru
þeir bara horfnir eins og dögg fyrir
sólu.
Þetta em nú ummæli áttræða
mannsins, sem þú talar við í dag.“
... greiðir SparisjóðurReykjavíkurog
nágrennis götu þína. Við veitum
alhliða
fyrir
gjaldeyrisþjónustu
ferðamenn. Pundin,
pesetana, mörkin, gyllinin og dollar-
ana eigum við.
Ferða-, farangurs- og slysa-
tryggingu Almennra trygginga
færðu líka hjá okkur. Allt í
einni ferð.
Skólavördustíg 11, Hátúni 2b, Austurströnd 3
Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis fyrir þig og þína
- hvert sem leiðin liggur.
SPBSH
Sparisjóöur Reykjavíkurog nágrennis