Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
29
Hóffífill - skaðlegt náttúrumeðal
eftir Kristínu
Ingólfsdóttur
Undanfarna mánuði hefur nokk-
uð verið rætt um svokölluð náttúru-
meðul í fjölmiðlum og meðal þess
sem þar hefur borið á góma er
hóffífill, sem mælt hefur verið með
gegn ýmsum kvillum, þar á meðal
kvefi. En þótt hér hafi eflaust verið
ráðlagt af góðum hug, benda rann-
sóknir til þess að hóffífill sé ekki
sú nytjaplanta sem sumir halda.
Hóffífíll vex víða hér á landi. Blöð
hans eru nú óðum að stækka og
þroskast, og gætu freistað einhverra
sem þjást af slæmum hósta nú að
sumarlagi eða þeirra sem huga að
söfnun fyrir vetrarflensuna. Því er
ástæða til að vekja athygli á mögu-
legri skaðsemi þessarar plöntu. Vit-
að er að í hóffífli eru efni sem geta
valdið alvarlegum lifrarsjúkdómum.
Hóffífill (latn. Tussilago far-
fara; ensk. coltsfoot) hefur löngum
verið notaður til framleiðslu nátt-
úrumeðala, ýmist einn sér eða í sam-
setningum með öðrum jurtum. Blöð-
in eða óútsprungin blómin hafa ver-
ið notuð í hóstastillandi samsetning-
ar, m.a. í Kína, Japan og víða í
Evrópu. Hóffífíll er algeng jurt hér
á landi og talið er að seyði af blöðun-
um hafí verið notað hér áður við
slæmum hósta og öðrum kvillum.
í ljós hefur komið við rannsóknir
á innihaldsefnum hóffífils víða er-
lendis, að í þessari plöntu er að finna
efni sem geta valdið alvarlegum lifr-
arsjúkdómi („hepatic veno-occlusive
disease") og jafnvel lifrarkrabba-
meini. Þessi efni eru einu nafni köll-
uð pyrrolizidín alkalóíðar. Vegna
þessa er sala hóffífils til neyslu
víðast bönnuð. Erfitt er þó að koma
við eftirliti með notkun hóffífíls sem
almenningur eða grasalæknar safna
til eigin meðalagerðar.
Við rannsóknir í Háskóla Islands
hafa efni úr flokki pyrrolizidín alka-
lóíða þegar verið einangruð úr
íslenskum plöntum, bæði villtum
plöntum og þeim sem vaxa í görð-
um. Frumrannsóknir á íslenskum
hóffífli benda til að þar sé einnig
að fínna þessi skaðlegu efni, líkt og
í erlendum plöntum sömu tegundar.
Unnið er að einangrun þessara efna
úr íslensku plöntunni, en meðan
rökstuddur grunur leikur á, að hér
séu hættuleg efni á ferðinni, er full
ástæða til að vara við notkun hóffíf-
ils sem náttúrumeðals, hvort sem
um erlenda eða innlenda plöntu er
að ræða.
Dæmið af hóffíflinum gefur til-
efni til að fara nokkrum orðum um
náttúrumeðul almennt, en þau hafa
átt miklum vinsældum að fagna hér
á landi sem og annars staðar á
Vesturlöndum á undanfömum
árum. Af náttúrumeðulum sem vin-
sæl era í dag má nefna ginseng,
kvöldvorrósarolíu, blómafrjókom,
hvítlauksbelgi, mistiltein og kamillu.
Þetta era afurðir sem ýmist era
seldar við ákveðnum kvillum/sjúk-
dómum eða sem hressingarmeðul.
Enn sem komið er, hafa takmark-
aðar vísindalegar rannsóknir verið
gerðar á náttúrameðulum. Því er í
mörgum tilfellum ekki hægt að stað-
hæfa um verkanir eða aukaverkanir
þeirra í mönnum. Margir telja sig
hins vegar hafa fengið bata af notk-
un náttúrameðala og er ekki nema
gott um það að segja, svo framar-
Dr. Kristín Ingólfsdóttir.
lega sem viðkomandi samsetning
er hættulaus. Þó gætir oft misskiln-
ings varðandi „náttúraefni". Fólk
virðist í mörgum tilfellum álykta að
„náttúraefni" hljóti að vera holl og
með öllu skaðlaus. Það vill gleymast
að mörg öflugustu eiturefni sem
þekkt era, era einmitt náttúraefni
Þá má nefna að þau ávana- og
fíkniefni sem hvað mest era notuð
í dag era einnig náttúraefni, ýmist
einangrað úr plöntum (kókaín, hass,
morfín) eða búin til úr plöntuefnum
(heroín, búið til úr morfíni, LSD
búið til úr lýsergsýra). Einnig má
nefna náttúruefni sem era ómetan-
leg sem lyf en jafnframt vandmeð-
farin. Ðæmi um þetta era morfín
og kódeín sem notuð era sem verkja-
stillandi lyf, digoxin sem notað er
við hjartasjúkdómum, og krabba-
meinslyfin vinkristin og vinblastín.
Niðurstöður vísindalegra rann-
sókna, sem til þess hafa verið gerð-
ar á verkunum og lækningagildi
náttúrameðala og alþýðulyfja, era
með þrennu móti.
í fyrsta lagi má nefna dæmi þar
sem gagnsemi afurðar sem þekkt
er úr alþýðulækningum hefur verið
staðfest með rannsóknum, og jafn-
vel leitt til þróunar lyfs sem hægt
er að gefa í nákvæmum skömmtum.
Auk þeirra lyfja sem að ofan era
talin, má nefna aspirín (Magnyl),
sem á rætur að rækja til víðibark-
ar, sem Forn-Grikkir notuðu m.a.
til að lina verki. Rannsóknir stað-
festu á sínum tíma þessa verkun
og leiddu til þróunar aspiríns sem
verkjastillandi lyfs. Áframhaldandi
rannsóknir hafa síðan leitt í ljós að
aspirín hefur einnig segavarnandi
verkun. En áður en hægt verður að
mæla með notkun aspirins til að
fyrirbyggja blóðtappa, þ.á m.
kransæðastíflu, er nauðsynlegt að
bíða frekari rannsókna. Enn er t.d.
óljóst um heppilegar skammta-
stærðir.
í öðra lagi má nefna athuganir á
náttúrameðulum/alþýðulyfjum þar
sem ekki hefur tekist að sýna fram
á gagnlegar líffræðilegar verkanir
í mönnum. Hér hefur þó í mörgum
tilfellum verið um samsetningar að
ræða sem era skaðlausar.
Loks má nefna jurtir sem við
nánari athugun reynast innihalda
eiturefni. Ekki er með nokkra móti
hægt að réttlæta notkun slíkra
plantna. Hóffífíll er dæmi úr þessum
síðasta flokki náttúrameðala. Sum-
um kann að fínnast hann hafa
skammtímaáhrif til góðs á kvilla á
borð við kvef. Langtímaáhrif hans
geta hins vegar orðið allt önnur og
alvarlegri.
Víða um heim er nú unnið af
kappi að rannsóknum á verkunum
og innihaldsefnum náttúrameðala
sem vinsæl era í dag, en óyggjandi
niðurstöður liggja í fæstum tilfellum
fyrir. í sumum tilfellum gætir mik-
ils ósamræmis í niðurstöðum og því
ógerlegt að taka ótvíræða afstöðu.
Þetta á t.d. við um ginseng, en verk-
anir þess í mönnum era enn mjög
óljósar, þrátt fyrir umfangsmiklar
rannsóknir síðastliðna áratugi. Al-
mennt er þó talið, að ginseng valdi
ekki bráðum aukaverkunum. Þó er
sjálfsagt að sýna aðgát við notkun
þess, ekki síst fyrir þá sem þjást
af of háum blóðþrýstingi og þá sem
eiga erfitt með svefn. Þá ættu ófrí-
skar konur ekki að neyta ginsengs,
því ekki er vitað um áhrif þess á
fóstur. Ekki er heldur ljóst hvort
ginseng geti haft áhrif á lyfjagjöf
(valdið milliverkun við lyf), t.d.
meðhöndlun með sykursýkislyíjum
og hjartalyfjum. Kvöldvorrósarolía
er annað náttúrameðal sem vakið
hefur athygli vísindamanna víða um
heim og verður spennandi að fylgj-
ast nánar með framgangi rannsókna
á henni.
Að ofantöldum dæmum sést, að
náttúraefni teljast ekki öll til holl-
ustuefna og æskilegt er að upplýs-
ingar um verkanir og aukaverkanir
náttúrumeðala liggi fyrir áður en
fólk er hvatt til að neyta þeirra.
Höfundur er lyfjafræðingur við
Háskóla íslands.
-,JL> < “
....
« *é
Mueller’s pasta er gott með sunnlensku lambakjöti:
norðlensku grænmeti, ítölskum osti eða ýsu frá
Eskifirði. Og auðvitað eitt sér
Það er góð tilbreyting í Mueller’s pasta.
Hugsaðu þér íslenskt lambakjöt með
Mueller’s eggjanúðlum. Góð samsetn-
ing. Eða ýsuflök og macaroni, Mueller’s
spaghetti með rifnum osti, nýju græn-
meti, nautahakki og mauksoðnum
íslenskum tómötum. Það er næstum því
sama hvað þú ætlar að hafa í matinn,
Mueller’s pasta á alltaf vel við.
Hugsaðu þér Mueller’s pasta ef þú vilt
tilbreytingu á matarborðið. Góða til-
breytingu.
Það er góð hugmynd að fá sér Mueller’s
pasta (borið fram Mullers).
* Uppskriftin er fengin úr bókinni Pastaréttir í bóka-
flokknum Hjálparkokkurinn frá Almenna bókafélaginu.
Svínalundir með pasta og osti *
Handa fjórum.
Undirbúningur: Um 20 mín.
Steiking/suða: Alls um 20 mín.
Svínalundir (500-600 g)
Um 200 g rifinn ostur
2-3 msk smjör
250-300 g pasta
1 laukur, 3-4 tómatar
Salt, pipar
125 g soðin skinka
250 g ferskir sveppir
Ferskt eða þurrkað
timían
1. Skerið kjötið í jafnar sneiðar. Stráið þær salti
og pipar og veltið þeim í rifnum osti. Brúnið 1
msk af smjöri á pönnu og steikið sneiðarnar í 3-4
mín á hvorri hlið. Takið þær úr og haldið heitum.
2. Sjóðið pastað skv. leiðarvísi. Grófsaxið laukinn
og tómatana.
3. Látið meira smjör á pönnuna. Steikið tómatana
og laukinn þar til hann er glær. Stráið salti og
pipar og blandið varlega við pastað. Haldið heitu.
4. Skerið skinkuna og sveppina í sneiðar og létt-
steikið á pönnu. Látið kjötsneiðar, skinku, sveppi
og pasta á heitt fat. Berið fram slrax ásamt fersku,
grænu salati.
^íWlueller’s.
m«tí« wtch 0PINACH entí TGMATO
ni;i wi \? o/,/;i<i0(j
KARL K. KARLSSON & CO.
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
Mueller’s