Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 31 Morgunblaðið/Pétur P. Johnson Flugvélin sem fórst í gær, Casa 212, einkennisstafir C-GILU, sést hér í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli s.l. haust. Líklegar orsakir REYNDIR flugmenn sem Morg- unblaðið ræddi við töldu líkleg- ast að eitt af þrennu hafi farið úrskeiðis hjá áhöfn kanadísku vélarinnar. í fyrsta lagi að vélin hafí ofris- ið, verið á það lítilli ferð að vængur- inn hafí ekki borið hana og hún „hætt að fljúga“. Sé vél í slíkri stöðu gefíð fullt afl í lítilli hæð, gerir það illt verra að sögn viðmæ- lenda blaðsins. í öðru lagi var það nefnt sem skýring að bilun hafí orðið í væng- börðum vélarinnar og í þriðja lagi að bilun hafí orðið í öðrum hreyfli vélarinnar. Það kemur heim og saman við framburð margra sjón- arvotta að vélarhljóðið hafi verið óeðlilegt þegar inngjöf var aukin. Geoterrex í Ottawa: Engar upplýsingar Morgunblaðið/Einar Falur Kárí Hilmarsson. Undarlegur hvinur í vélinni KÁRI Hilmarsson var staddur á Bergstaðastræti og sá og heyrði vélina í aðflugi að Reykjavíkur- flugvelli. „Mér fannst hljóðið í henni ekki vera sem skyldi, það var einhver undarlegur hvinur í henni og ég held að hún hafi aðeins haft afl á öðrum hreyfli. Síðan heyrði ég vél- arhljóðið breytast og áttaði mig á að eitthvað hafði farið úrskeiðis. Skömmu síðar heyrðist sprenging," sagði Kári. TALSMAÐUR eigenda flugvél- arínnar sem fórst í aðflugi að Reykjavikurflugvelli, fyrirtækis- ins Geoterrex í Ottawa í Kanada, vildi ekkert láta hafa eftir sér um flugslysið er blaðamaður hafði samband við hann í gær. „Við erum önnum kafnir við að afla upplýsinga um það sem gerð- ist,“ sagði hann. Hann vildi hvorki gefa upp nöfn né aðrar upplýsingar um þá sem fórust, að svo stöddu. Eldtungur náðu meiri hæð en flugvélin hafði flogið í „ÉG VAR við stofugluggann heima hjá mér, á þriðju hæð í húsi við Ljósvallagötu, og var að setja plötu á plötuspilarann þeg- ar ég heyrði að flugvél var í aðflugi að vellinum," sagði Björn Leifsson en hann varð vitni að síðustu andartökum flugferðar kanadísku vélarinnar. „Ég leit upp, eins og ég geri oft, til að fylgjast með lendingunni og þegar ég sá vélina fyrst virtist allt vera eðlilegt en örskömmu seinna hallaðist hún á hliðina og steyptist fram fyrir sig. Þá hvarf hún mér sjónum en eftir andartak sá ég eld- tungur rísa til himins og mér fannst þær ná meiri hæð en vélin hafði flogið í. Ég fékk hálfgert sjokk, rauk niður til nágranna minna og Björn Leifsson öskraði „flugslys". Síðan æddi ég út og hingað að flugvellinum.“ Jöfur KE 17 í fiota Keflvíkinga Fyrsta íslenska fiskveiðiskipið með rækjupillunarvél Keflavík. JÖFUR KE 17, nýtt skip Út- gerðarfélagsins Jarls hf. i Keflavík, kom til heimahafnar á föstudag og hélt síðan á út- hafsrækjuveiðar. Jöfur KE 17 var smíðaður í Stálvík, eitt fjögurra raðsmíðaskipa er þar voru smíðuð. Jöfur KE er 256 tonn og kostaði fullbúinn 280 milljónir króna. Um borð er rækjupillunarvél frá Kron- borg í Danmörku og verður aflinn fullunninn um borð. Að sögn Axels Pálssonar framkvæmdastjóra Jarls hf. er Jöfur KE fyrsta íslenska skipið sem er með rækjupillunarvél um borð, en slíkar vélar væru nú í þrem öðrum skipum, þar á með- al einu norsku og einu færeysku. Nú yrði hægt að fullvinna aflann um borð í stað þess að l'anda rækjunni ópillaðri. Jarl átti fyrir tvo báta, Jarl KE og Jöfur KE, en þeir voru báðir seldir til að fjármagna kaupin á nýja Jöfri. Skipstjóri og einn eigenda Jöf- urs er Snorri Gestsson og sagði hann að skipið hefði reynst vel í reynsluferðinni og hefði gang- hraðinn verið um 11 sjómílur. Skipið er útbúið með nýjustu fískileitar- og siglingatækjum og eru íbúðir allar hinar glæsile- gustu. í áhöfn eru 13 menn, vélstjóri í fyrstu sjóferðinni er Jón Hansson í forföllum Lofts Pálssonar og 1. stýrimaður er Kristján Gíslason. - BB Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Jöfur KE 17 kemur í fyrsta sinn til heimahafnar í Keflavík föstu- daginn 29. júli fánum skrýddur. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal . Eigendur hins nýja Jöfurs KE 17, Páll Axelsson til vinstri, Birg- ir Axelsson í miðjunni og til hægri er Snorri Gestsson skipstjórí. Grænland: Leit talin tilefnislaus LEIT, sem hófst á föstudag að skipi sem talið var nauðstatt suður af Grænlandi, hefur verið hætt og er nú talin hafa verið tilefnislaus. Dönsk farþegaþota sá ijölmörg neyðarblys á lofti um 120 mílur suður af Grænlandi að morgni föstudagsins og hófst í framhaldi af því víðtæk leit skipa og flug- véla að nauðstöddu skipi. Flugvél frá Vamarliðinu á Keflavíkurflug- velli tók þátt i leitinni fyrst í stað. Leitarvélar töldu sig sjá olíubrák á hafínu en samkvæmt upplýsing- um leitarstjómarinnar á Grænl- andi gæti hún átt sér aðrar og eðlilegar skýringar. Einskis skips er saknað og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að þama hafi skip átt í vandræðum. Leit hefur því verið hætt. jllttrgtiiiMbritófr Metsölublaó á hverjum degi!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.