Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
33
Jórdanir þöglir um næsta skref
varðandi framtíð Vesturbakkans
Amman, Reuter.
JÓRDANIR frestuðu því i gær
að skýra nánar frá því hvernig
standa á að framkvæmd þeirrar
ákvörðunar stjárnarinnar, að
rjúfa allt samband við vestur-
bakka Jórdanár, en i henni felst
að Jórdanir láta af tilkalli sinu
til svæðisins og telja sig jafn-
framt ekki hafa frekari skyldum
að gegna við íbúa svæðisins.
Talsmaður Frelsissamtaka Pa-
lestínu (PLO) sagði í Bagdað, að
boðað hefði verið til skyndifund-
ar þjóðarráðs Palestínu um mál-
ið, en það er e.k. útlagaþing
PLO. Gert er ráð fyrir að það
komi saman innan mánaðar, að
likindum í Bagdað, höfuðborg
Iraks.
I ráði er að nefnd háttsettra
PLO-manna haldi til Amman í
næstu viku, til þess að ræða við
Hussein Jórdaníukonung, en Yasser
Arafat, leiðtogi samtakanna, verður
þar þó ekki á meðal. Arafat var
boðið til Amman í mars og var
búsit við honum í upphafi þessa
Bretland:
Þrír látnir og 34 særð-
ir eftir hrvðiuverk IRA
Belfast, London. Reuter.
Reuter.
ALDA hryðjuverka, sem Irski
lýðveldisherinn stóð fyrir, gekk
yfir Bretland á mánudag og
þriðjudag. Þrír menn létust og
34 særðust í fjórum árásum.
Á mánudag lést hermaður og níu
særðust þegar sprengja sprakk í
herbúðum í norðurhluta Lundúna.
Þama var um fyrsta hryðjuverk
IRA í Englandi að ræða síðan fyrir
fjórum árum er sprengja sprakk í
Brighton á flokksfundi breska
Reuter
Moskvu. Reuter.
Forystumenn flokksdeilda
kommúnistaflokks Armeniu og
Azerbajdzhan ákváðu i gær að
vinna saman að uppbyggingu
Nagorno-Karabak, héraðs sem
deilt hefur verið um svo mánuð-
um skiptir. Fréttastofan Tass
sagði frá samkomulaginu sem
náðist á fundinum í Stepanakert,
höfuðstað Nagorno-Karabak, en
armenskir íbúar héraðsins hafa
. viljað komast undir stjórn Arm-
eniu.
Auk Surens Arutunjans frá Arm-
eníu og Abduls Vezirovs frá Az-
erbajdzhan var Arkadíj Volskíj, sér-
legur sendimaður stjómvalda í
íhaldsflokksins.
I gær lést lögreglumaður þegar
sprengja sprakk í bíl sem hann ók
í bænum Lisbum á Norður-írlandi.
Að sögn lögreglu særðust 18 manns
í sprengingunni.
Hermaður var myrtur í Belfast
í gær þar sem hann var að versla
með eiginkonu sinni og dóttur.
Hann var dreginn út úr búðinni og
skotinn á götunni fyrir framan
hana. Vegfarandi særðist einnig í
árásinni.
Sex hermenn slösuðust í gær
þegar jarðsprengja sprakk nærri
bænum Dungannon á Norður-ír-
landi.
Archie Hamilton öryggismála-
ráðherra Bretlands hefur heitíð að
yfírfara öryggisráðstafanir í
landinu eftir hryðjuverkin.
í yfírlýsingu frá IRA segir að
markmið árásanna hafi verið að
vara almenning við því að koma
nærri hemaðarmannvirkjum.
mánaðar. Nú er hins vegar óvfst
hvort af því verður og vörðust tals-
menn PLO og Jórdaníustjómar allra
frétta um það.
Jórdanir vildu reyndar sem allra
minnst segja um málið og kváðust
ekkert geta spáð fyrir um hveijar
afleiðingar ákvörðun Husseins
myndi hafa í för með sér.
Raja’i Dajani, innanríkisráðherra
Jórdaníu, vildi hvorki neita né játa
staðhæfíngum þess efnis, að aftur-
kalla ætti eða hætta útgáfu vega-
bréfa til þeirra íbúa Vesturbakkans,
sem til þessa hafa talist jórdanskir
ríkisborgarar. „Það er enn of
snemmt að segja nokkuð um mál-
ið,“ sagði hann í viðtali við Reut-
ers-fréttastofuna. „Það er ekki
hægt að grípa til neinna aðgerða á
einni nóttu. Við þurfum að meta
alla þætti þeirrar ráðstöfunar að
skera á tengslin við Vesturbak-
kann.“
I gær mótmæltu jórdanskir emb-
ættismenn fréttum ísraelska sjón-
varpsins um að Jórdanir hyggðust
láta íbúum Vesturbakkans í té sér-
staka ferðapappíra í stað jórdan-
skra vegabréfa.
Að sögn stjómarerindreka kunna
þessi óljósu svör Jórdana að vera
gefín af ásettu ráði til þess að villa
um fyrir PLO, en Jórdaníustjóm
segir það vera í verkahring PLO
að taka við hlutverki sínu á Vestur-
bakkanum. Talið er að þar eigi Jórd-
anir bæði við fjárhagsskuldbinding-
ar sínar, en jafnframt stjómunar-
hlutverk sitt. Þrátt fyrir að Vestur-
bakkinn hafí verið hemuminn af
ísrael síðan 1967 er borgaraleg
stjóm að mestu í höndum Jórdana
og gilda jórdönsk lög t.a.m. að
mestu leyti á Vesturbakkanum.
rAsa/í/e,
I vatn
Belrút JQ
(ÐANOlí"
‘JTJ 1
' QÓLAN
HÆÐIR
3
£
w
■ Sagarlnnlimaöur af
Jórdanlu 1950; hernum-
inn af Israelum í Sexdaga-
strlóinu 1967.
■ Svæðl: 5.600 ferkm.
■ Mannfjöldl: 969.000 (88%
Palestlnuarabar, 12%
Gyöinqar). Tveir þriðju
hlutarPalestlnuaraba á
Vesturbakkanum eru meó
jórdönsk vegabróf.
Holmldlr: Arbók CIA, Evrópuhandbókln.
EQYPTALANDI } SAUDl AHABlA
KRGN / Morgunblaöló/ AM
Á Vesturbakkanum vom lítil við-
brögð sjáanleg við ákvörðun Hus-
seins, en miklar óeirðir vom vegna
útlegðardóma yfír átta Palestínu-
aröbum, sem sakaðir em um að
hafa hvatt til ofbeldisverka. Flogið
var með þá til Líbanons á mánu-
dag. Einn Palestínuarabi var skot-
inn til bana og fjórir særðir þegar
hópur araba gerði aðsúg að lang-
ferðabílj sem flutti araba á leið til
vinnu í Israel, en í bílnum vom einn-
ig ísraelskir hermenn, verkamönn-
unum til halds og trausts.
Hér má sjá rústir herbúða í norðurhluta Lundúna þar sem sprengja
sprakk á mánudag. Einn maður lést og níu særðust í sprenging-
unni. írski lýðveldisherinn, IRA, hefur lýst ábyrgð á hryðjuverkinu
á hendur sér. í gær reiddi IRA einnig til höggs á Norður-írlandi
og féllu þá tveir menn í valinn og 25 særðust.
Toppfundur í Nagorno-Karabak:
Deilurnar víki fyrir
uppbyggingarstarfi
Kreml, á fundinum. Fundinn sat
einnig Genrik Pogosjan, leiðtogi
kommúnistaflokks Nagomo-Kara-
bak. Pogosjan gaf skýrslu um það
hvemig gengi að koma á ró og
spekt I héraðinu eftir margra mán-
aða verkföll og óeirðir. Verkföllun-
um lauk fyrir viku eftir að Forsætis-
nefnd Æðsta ráðs Sovétríkjanna
samþykkti að fallast ekki á kröfur
Armena um að Nagorno-Karabak
sameinaðist Armeníu.
Sú staðreynd að fundurinn var
haldinn í Stepanakert þykjr benda
til að yfirvöld í Azerbajdzhan viður-
kenni að Armenar eigi sérstakra
hagsmuna að gæta í Nagorno-
Karabak.
ÞANN
8. ÁGÚST
HEFST
HÚN!
HVER?