Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 37
Morgunblaðið/Jon P. Petrusson NTB
Norrænar
konur hefja
samstarf
gegn
sifjaspelli
FULLTRÚI íslensks vinnuhóps
um sifjaspell, Magdalena
Kjartansdóttir, kynnti starf-
semi hópsins á norræna
kvennaþinginu í Osló á mánu-
dag. Mikið var spurt um vinnu-
hópinn að loknu erindi hennar
og ákveðið að konur sem starfa
að þessum málum í heima-
löndum sínum hittist aftur
daginn eftir til að leggja
grunninn að frekara sam-
starfi.
Umræða um siijaspell hófst
ekki að ráði á íslandi fyrr en
haustið 1986 að sögn Magdalenu
Kjartansdóttur. „Félagsráðgjafar
og nemar í félagsfræði auk
kvenna úr samtökunum um
kvennaathvarf ákváðu að ná til
kvenna sem orðið höfðu fyrir
sifjaspelli og auglýstu í því skyni
símanúmer til reynslu í vikutíma.
Á tímabilinu hringdu 27 koniir
og báðu um aðstoð," segir
Magdalena og bætir við að ákveð-
ið hafi verið að halda svon starfi
áfram.
Nú starfrækir vinnuhópurinn
skrifstofu að Vesturgötu 3 þar
sem svarað er í síma hálfan dag-
inn. Að sögn Magdalenu hafa
ellefu hópar kvenna sem orðið
hafa fyrir sifjaspelli gengið í
gegnum ákveðið ferli til að losna
undan afleiðingum þess. í hveij-
um hóp eru allt að átta konur
sem hittast reglulega með fé-
lagsráðgjafa og tala saman. Jafn-
framt starfar unglingahópur og
mæðrahópur gegn sifjaspelli.
Þær Ásta Henriksdóttir og
Helena Jóhannsdóttir sýndu dans
á kynningu vinnuhópsins sem
fjallaði um áhrif siíjaspells á litla
stúlku og hvemig hún lærir að
sættast við sjálfa sig sem fullorð-
in kona. Lára Stefánsdóttir samdi
dansinn og æfði stöllur sínar.
Sunnudagsmessa
hófst með dansi
Að lokinni stólræðunni flutti Suður-
Afrísk kona, Xingwana að nafni,
ávarp þar sem hún talaði meðaí
annars um böm sem sitja í fangelsi
í heimalandi hennar og bað konur
að minnast þeirra.
Konur hyggjast halda friðarguðs-
þjónustu í dómkirkju hér í Osló
næstkomandi laugardag, þegar 43
ár eru liðin frá því að kjamorku-
sprengju var varpað á Hiroshima.
Fyrirlestrar og umræður kvenna inn-
an kirkjunnar hafa verið haldnir
daglega nú fyrri hluta kvennaþings-
ins, til að mynda var í gærdag rætt
um kvennaguðfræði.
Morgunblaðið/Jon P. Petrusson NTB
Verk íslenskra kventónskálda á tónleikum
Núlifandi kventónskáld eru
fleiri á íslandi miðað við fólks-
fjölda en á öðrum Norðurlönd-
um. I tónskáldafélagi íslands
eru nú þrjár konur, þær Jórunn
Viðar, Karólína Eiríksdóttir og
Mist Þorkelsdóttir. Allar eiga
þær verk sem leikin voru síðast-
liðið sunnudagskvöld á norr-
ænu kvennaþingi í Osló. Þar
frumflutti Guðrún Sigríður
Birgisdóttir flautuleikari nýtt
verk Mistar Þorkelsdóttur,
Rún. Hljóðfæraleikararnir sem
sjást á þessari mynd voru:
Signý Sæmundsdóttir, Jón Að-
alsteinn Þorgeirsson, Guðríður
Sigurðardóttir, Guðrún S. Birg-
isdóttir og Inga Rós Ingólfs-
dóttir.
Leikrit um
kvennaþing
SYSTURNAR Elísabet og
Helga Brekkan settu saman,
sungu og léku söguna af
merkiskonunum Flóru Dan-
iku og Töntu Nordiku sem
fóru á kvennaþing. Sagan sú
hlaut góðar undirtektir á
frumsýningu síðastliðið
sunnudagskvöld og hver veit
nema að hún verði sögð aftur
hér I Osló í vikunni.
ratriði
3sló
skólasvæðinu eru undirlagðar milli
níu og fímm dag hvem en árrisullar
konur geta farið í leikfími undir
átta, áður eneiginleg dagskrá
þingsins hefst eða sótt morgun-
messu.
Enn eru ótalin atriði úr menning-
ardagskrá kvennaþingsins. Listsýn-
ingar af ýmsu tagi skipa hér vegleg-
an sess. Tónleikar, dans og leiksýn-
ingar eru yfírleitt á kvöldin í ýmsum
salarkynnum. í borginni eru 25
mjmdlistarsýningar kvenna opnar
daglega. Fimm íslenskar myndlist-
arkonur halda til dæmis sameigin-
lega sýningu sem opnuð var á laug-
ardag. Þær eru Ingunn Eydal sem
sýnir grafíkmyndir, Bryndís JÓns-
dóttir sýnir keramik, Guðrún Kristj-
ánsdóttir sýnir málverk, Hansína
Jensdóttir sýnir skúlptúra og
Kristín Jónsdóttir textflverk. Þá
má nefna Ijósmyndasýningu með
myndum 105 kvenljósmyndara af
Norðurlöndunum. í hópnum er að-
eins ein íslensk kona, Rut
Hallgrímsdóttir. Jafnframt er nú til
sýnis hér í Osló verk úr ull eftir
Ragnheiði Þórsdóttur.
Morgunblaðið/Ól. K. Magnússon
Framlag íslenskra kvenna á setningarathöfninni var ballettinn „Skapanornirnar“ eftir Auði Bjarnadótt-
ur við tónverk Mistar Þorkelsdóttur „Þrenningu“. Þær Asta Henriksdóttir, Helena Jóhannsdóttir og Lára
Stefánsdóttir, allar úr íslenska dansflokknum, túlkuðu skapanornirnar Urði, Verðandi og Skuld.
Islenskar skapanomir við
setningu kvennaþingsins
Morgunblaðið/Ól. K. Magnússon
Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra Noregs var að sjálfsögðu
mætt við setningarathöfn kvennaþingsins í Osló. Hennar framlag var
upplestur á ljóðum eftir Else Michelet.
ÞAÐ skiptust á skin og skúrir
meðan norrænt kvennaþing var
sett á mikilli útihátíð í miðborg
Osló síðastliðinn laugardag. Á
nærri þriggja tíma langri setning-
arathöfn voru atriði frá öllum
Norðurlöndunum flutt á fjórum
pöllum og giskaði kynnir á at-
höfninni, sjónvarpskonan Rita
Westvik, á að milli 5.000 og 7.000
konur hefðu verið viðstaddar.
Norska dagblaðið Aftenposten
sagði hinsvegar að milli 2.000 og
3.000 konur hefðu verið við at-
höfnina.
Geysimikil stemning ríkti við opn-
unarathöfnina og höfðu margar
íslensku kvennanna á orði að and-
rúmsloftið minnti á kvennafrídaginn
árið 1975. Ein sagðist ósköp fegin
að hafa komist á almennilega úti-
hátíð með regni og öllu tilheyrandi
um verslunarmannahelgina. Ófáir
karlmenn höfðu hætt sér inn á svæð-
ið og virtust ekki skemmta sér minna
en konumar.
Framlag íslenskra kvenna á setn-
ingarathöfninni var ballettinn
„Skapanornirnar" eftir Auði Bjarna-
dóttur við tónverk' Mistar Þorkels-
dóttur „Þrenningu". Á hljóðfærin
léku Lovísa Fjeldsted sellóleikari,
Guðríður Sigurðardóttir píanóleikari
og Jón A. Þorgeirsson klarinettuleik-
ari. Þau fluttu verkið aftur á mánu-
dagskvöld. Þær Asta Henriksdóttir,
Helena Jóhannsdóttir og Lára Stef-
ánsdóttir, allar úr íslenska dans-
flokknum, túlkuðu skapanomirnar
Urði, Verðandi og Skuld.
Á setningarathöfn kvennaþings-
ins las forsætisráðherra Noregs, Gro
Harlem Brundtland, ljóð eftir norska
konu að nafni Else Michelet. Rokk-
söngkonur frá Svíþjóð og Noregi
kyijuðu svo að jafnvel elstu ömmum
var dillað, eftir að austurlenskur
magadans hafði verið stiginn á svið-
inu. Færeyskur leikþáttur vakti
mikla hrifningu, sömuleiðis finnska
söngkonan Aija Saijoninka sem
flutti „Þökk sé þessu lífi“ á fimm
norðurlandamálum.
KONUR innan kirkjunnar á Norð-
urlöndum hittast á kvennaþinginu
í Osló og undirbjuggu fulltrúar
ýmissa kirkjusamtaka kvenna-
guðsþjónustu sem haldin var í
kirkju í miðbænum síðastliðinn
sunnudag. Guðsþjónustan hófst
með dansi um efni stólræðunnar
„opnar dyr“.
Norsk kona, Gunnar Lande, pred-
ikaði og fjallaði ræða hennar um að
opnar dyr kirkjunnar blöstu við kon-
um sem vildu horfast í augu við
erfíðleikana er fylgt gætu auknu
starfí þeirra innan kirkjunnar og
taka á móti gleðinni sem því fylgdi.