Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
Byggingarverktakar smeykir við fijálsa markaðinn:
Freista þess að selja opin-
berum aðilum íbúðirnar
„VIÐ erum heldur smeykir við frjálsa markaðinn. Það er mikil eftir-
spurn eftir íbúðum en fólk hefur enga peninga. Sú mikla bindi-
skyida sem lögð er á herðar bankanna veldur því að ekki er lengur
hægt að brúa bilið með skammtímalánum," sagði Hörður Tulunius
framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Híbýla. Sigurður Sigurðs-
son framkvæmdastjóri SS- Byggir tók i sama streng. „Akureyringar
virðast ekki endurheimta það fé sem þeir láta í húsnæðiskerfið.
Hingað berast engin lánsloforð og þar af leiðandi er sáralítil hreyf-
ing á markaðinum," sagði Sigurður. SS-byggir hefur 32 íbúðir í
byggingu í Hjallalundi, en Híbýli leggja nú grunninn að blokk í
Helgamagrastræti með 22 íbúðum.
Verktökunum ber saman um að bflageymslu í grunni hússins í
mikil eftirspurn er eftir íbúðum á
Akureyri, en tregða í lánakerfinu
setur fólki stólinn fyrir dymar.
SS-byggir hefur vilyrði fyrir sölu
16 íbúða í blokkinni við Hjallalund,
en aðeins hefur verið greitt inn á
þijár þeirra að sögn Sigurðar.
Híbýli hefur seinkað framkvæmd-
um við blokkina ( Helgamagra-
stræti. Stefnt er að því að byggja
Stórsveit Tónlist-
arskólans:
Tónleikar
í Samkomu-
húsinu
STÓRSVEIT Tónlistarskólans á
Akureyri heldur tónleika í Sam-
komuhúsinu á Akureyri i kvöld,
miðvikudaginn 3. ágúst, kl. 20.30.
Hljómsveitin er skipuð átján
hljóðfæraleikurum og stjórnandi
hennar er Norman H. Dennis.
Tónleikamir eru haldnir í tilefni
af Danmerkurferð hljómsveitarinn-
ar, en hún leikur á vinabæjamóti í
Randers og víðar dagana 14.-24.
ágúst. Á tónleikunum verða leikin
mörg vinsæl lög og á meðal þeirra
em: „Mood Indigo“, „The Preach-
er“, „La Bamba“ og „I just can’t
stop loving you“.
Stórsveit Tónlistarskólans hefur
starfað frá 1983 og stjómaði Ed-
ward J. Frederiksen henni fyrstu
þijú árin, síðan hafa Finnur Eydal
og Norman H. Dennis stjómað
sveitinni. Hún hefur leikið á fjöl-
mörgum tónleikum og einnig fyrir
ríkisútvarpið. Ennfremur hefur
sveitin tekið þátt í námskeiðum og
leikið undir stjóm Mikael Ráberg
frá Svíþjóð, Paul Weeden frá Nor-
egi og Michael Jaques frá Englandi.
RUVAK:
Þingmenná
beinni línu
EINS og tíðkast hefur hjá svæð-
isútvarpi Akureyrar og nágrenn-
is í sumarleyfum þingmanna,
ræða dagskrárgerðarmenn RU-
VAK við þingmenn og gefa al-
menningi kost á að hringja inn
og spyija þingmenn kjördæmis-
ins spurninga.
VaJgerður Sverrisdóttir Fram-
sóknarflokki og Halldór Blöndal
Sjálfstæðisflokki komu fram í
síðustu viku. í kvöld verður Málm-
fríður Sigurðardóttir Kvennalista á
,beinni línu í svæðisútvarpi á sjöunda
tímanum. Ámi Gunnarsson Al-
þýðuflokki verður á dagskránni
þann 8. ágúst nk. og í kjölfarið
fylgja þeir Steingrímur Sigfússon
Alþýðubandalagi, Guðmundur
Bjamason heilbrigðisráðherra
Framsóknarflokki og Stefán Val-
geirsson í Samtökum um jafnrétti
og félagshyggju.
haust. Öðrum framkvæmdum verð-
ur frestað fram á næsta vor.
Sigurður kvaðst helst reiða sig á
að selja íbúðirnar til verkamanna-
bústaða. Það stæði þó allt í jám-
um.„Við höfum bundið vonir við
framkvæmdalánin sem verið hafa
til athugunar síðan breytt kerfí
húsnæðislána var tekið upp á
síðasta ári. Akureyringar lentu
sjálfkrafa aftast á lista yfír um-
sækjendur, því áður en fyrstu upp-
lýsingamar um nýja kerfið bámst
til bæjarins voru 2500 umsóknir
komnar inn í Reykjavík. Fram-
kvæmdalánin hafa sjálfsagt verið
hugsuð sem sárabót fyrir lands-
byggðina. Þau virðast á döfínni en
enginn veit hversu lengi ákvörðun
verður dregin," sagði Sigurður.
„Viðræður em hafnar við bæjar-
yfírvöld um það hvort hægt verði
að koma okkar íbúðum inn í „kerf-
ið“, með einum eða öðmm hætti,"
sagði Hörður. Hann kvað viðræð-
umar á fmmstigi, en eins og Morg-
unblaðið hefíir greint frá sóttu
bæjaryfirvöld um lán til byggingar
kaupleiguíbúða fyrr í sumar. Bæjar-
stjómin hefur ekki rætt hvemig
fénu verður varið ef lánin fást.
Hörður líkti ástandinu nú við
tímabilið frá 1982 til 1986 þegar
dofí hefði færst yfír bæinn og fram-
kvæmdir legið að mestu niðri. Eftir-
spum bæri vott um áhuga Akur-
eyringa og aðfluttra en húsnæðis-
málin hefðu verið drepin í dróma
af lánakerfínu. „Norðlendingar
verða að hætta að beija hausnum
við steininn og horfa aðgerðarlausir
á meðan aðrir landshlutar hreppa
varaflugvöll og önnur atvinnutæki-
færi. Við eigum að taka málin í
eigin hendur og sækjast eftir stór-
iðju í EyjaQörðinn. Blessaðir þing-
mennimir okkar eiga að sýna í verki
að þeir séu traustsins verðir og
vinna þessum málum framgöngu,"
sagði Hörður.
Byggingarverktakar á Akureyri segja að mikil eftirspurn sé eftir
íbúðum en tregða sé i lánakerfinu.
Reiðskólinn 25 ára:
Fjöldi þátttakenda
aldrei meiri en í ár
Hestanámskeiðum við Reiðskólann er nú lokið í sumar og hafa
108 börn og unglingar sótt þau síðustu vikurnar. Fjöldi þátttak-
enda hefur aukist ár frá ári, að sögn Hermanns Sigtryggssonar
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Akureyrarbæjar, en nú hefur skólinn
verið starfræktur í heilan aldarfjórðung, 25 ár.
í tilefni tímamótanna var haldin
mikil grillveisla í síðustu viku á
núverandi. svæði Reiðskólans,
Hamraborgum, en æskulýðsráð
fékk svæðið til afnota í fyrra.
Æskulýðsráð Akureyrar og hesta-
mannafélagið Léttir standa sam-
eiginlega fyrir hestamannanám-
skeiðunum við miklar vinsældir
heimamanna og hefur margur
hestamaðurinn fengið bakteríuna
með því að sækja eitt slíkt nám-
skeið. Að minnsta kosti voru ung-
ir viðmælendur Morgunblaðsins í
grillveislunni á þeirri skoðun að
halda áfram hestamennskunni.
Æskulýðsráð fékk Hamraborgir
undir starfsemi sína á síðasta ári
og gera menn sér vonir um að
framhald verði þar á. Fyrsti kenn-
ari Reiðskólans var Ingólfur Ár-
mannsson og síðan tók Þorsteinn
Jónsson við kennslunni. Undanfar-
in átta ár hefur Jón Matthíasson
sinnt kennslunni. í fyrstunni var
skólinn settur á stofn í húsagarði
Pylsurnar runnu glatt niður f krakkana.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
hjónanna Karls Ágústssonar og
Höllu konu hans í Litla-Garði. Þau
hjónin tóku skólann að sér og
lögðu til hesta í eitt ár. Eftir það
fluttist skólinn á bakka Eyjafjarð-
ar, við réttina vestan við Jaðar,
þar sem nú er golfvöllur. Nú hefur
skólinn verið fluttur að Hamra-
borgum og þar er í bígerð að
byggja reiðgötur og annað sem
fylgir starfseminni, að sögn Her-
manns. „Við höfum okkar drauma
viðvíkjandi Reiðskólanum. Svæðið
er kjörið til útivista fyrir alla ald-
urshópa og nú eftir að hafa feng-
ið aðstöðu, verðum við að fara að
byggja upp hér. Við vildum gjam-
an geta boðið fleiri aidurshópum
upp á námskeiðin. Hestamennsk-
an er að verða mikil Qölskylduí-
þrótt og þurfa fullorðnir ekkert
síður á kennslu að halda.“
Sama skipulag hefur verið á
námskeiðunum frá upphafí nema
hvað heldur hefur fjölgað þátttak-
endum. Nú eru tólf nemendur á
hveiju námskeiði, sem stendur
hvert í tíu daga, tvo tíma í senn.
Þátttakendur eru allt niður í 8 ára
og upp í 14-15 ára. Jón sagðist
vera með framhaldshópa fyrir há-
degi og byijendur eftir hádegi.
„Ég byija á því að leyfa krökkun-
um á bak og í taumhring sem er
einskonar jafnvægisæfíng. Þau
átta sig með þessu á hreyfingum
hestsins. Þau fá sjálf að velja sér
hesta og leggja á þá. Eftir tvo til
þijá daga förum við út úr gerðinu
og í reiðtúra.“ Jón sagði aðstöðuna
að Hamraborgum til fyrirmyndar.
Félagsmenn úr Létti lánuðu hesta
og reiðtygi og nægt beitarland
væri í nágrenninu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
Halla Sigriður Bjarklind Sigurð-
ardóttir ásamt Stóra-Brún, uppá-
haldshestinum sínum.
Hestur í fermingargjöf
Halla Sigríður Bjarklind Sigurð-
ardóttir sagðist ásamt frænku
sinni Sigríði Ástu Einarsdóttur
hafa byijað á námskeiði um miðjan
júní og sæju þær frænkumar alls
ekki eftir því. „Við erum báðar 8
ára og fer ég örugglega næsta
sumar aftur. Pabbi átti hugmynd-
ina. Hann spurði mig bara einn
daginn hvort mig langaði á hesta-
námskeið og ég sló til. Pabbi ætl-
ar líka að gefa mér hest í ferming-
argjöf eftir fímm ár. Áhuginn
verður örugglega til staðar þá og
auðvitað þarf að leigja hesthús
líka.“ Halla sagðist aðeins einu
sinni hafa dottið af baki og þá
fyrir það að hnakkurinn hefði ver-
ið eitthvað laus.
Hestamennska og skíði
Vinkonumar Helga Jónsdóttir