Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
Get ekki orða bundist!
Afmæliskveðja til ríkissljórnar Þorsteins Pálssonar
eftir Erling Garðar
Jónasson
„Sé forystan ónýt til boðs eða banns
skal byggja á sjálfsdáð hins einstaka manns.
Ef afveg er stýrt fram til yztu þramar,
ef allsheijar-skipun bælir og lamar,
á héraðið vald, milli heiðar og sands.
Sé almúginn sínum foringjum framar,
er festa hans vígsins síðasti hamar.
Vaknaðu, reistu þig, lýður míns lands."
(Einar Benediktsson)
Krosstrén
Ég hef ekki lagt í vana minn að
rita aðfinnslugreinar um verk
minna ástkæru stjómmálamanna,
þessara mætustu manna og kvenna
okkar litla þjóðfélags, sem vegna
einstakra kosta sinna og manngild-
is eru fremstir sinna jafningja, og
þessara eitilhörðu Amarhólsstráka
og stelpna sem fylgja orðið foringj-
unum eftir að stólum hinnar eilífu
ellilaunahamingju sem ráðherra-
stóllinn er.
Fyrir lýðræðissinna sem mig og
mína líka, er það „harakiri" sálar-
innar að viðurkenna að slíkar
„gæskur" séu skammsýnar og villu-
gjamar sem við hin.
Löngum dveljum við þá von, að
það séu blessaðir embættismennim-
ir sem hafí hlutverk púkans á fjós-
bitanum og „gæskumar" þurfi á
því einu að halda frá okkur að við
herðum mittisbeltið og séum svo
vammlausir að fjósbitafólið sé sífellt
kveðið niður.
En —, svo þegar krosstré ráð-
herrastólanna sem „gæskurnar"
okkar ríða á em við að bresta vegna
þess að sitjandi stólsins og meðreið-
arsveinstaular og -stúlkur íþyngja
með andvara- og aðgerðaleysi mátt-
arviðnum, bergmála brestimir í sál-
arkytm okkar nytsamra sakleys-
ingjanna og skapa eyrnaverk, tann-
verk, magaverk og að lokum haus-
verk, síðan sálarverk tómleikans,
sem kemur af að hafa tapað
„glæpnum" og að varnarstríðinu sé
lokið.
Og —, maður spyr, hvað er að
hjá stjórnendum þessa lands sem
sigla að virðist þjóðarskútunni á
sker hvert annað andartak á sögu-
skeiði nýjustu fortíðar, á og eftir
mestu góðæmm sögunnar.
Staðan
Laun og skattar halda hinum
almenna launþega að sultarmörk-
um og sumir og það allmargir em
sveltir til andlegrar og líkamlegrar
heljar, á okurvaxta Hmnadansi
peningapúkastefnu Ólafslaga og
öðmm svívirðilegum aðgerðum pen-
inga-„páfa“ þjóðarinnar, s.s. okur-
vexti á umframfjárþörf til íbúða-
bygginga o.fl.
Fyrirtækin í sjávarútvegi em að
verða búin að éta upp allt sitt eigið
fé í vaxtaokur framleiðslulána og
em öll á heljarþröm þótt einsdæmi
finnist.
Velreknu fyrirtækin, einsdæmin,
em einsdæmi vegna þess og aðeins
vegna þess að eigið fé þeirra var
hærra en hjá meðaltalinu og fýrir-
greiðsla í útvegun rekstrar- og
framkvæmdafjár var og er einfald-
ara og ódýrara hjá slíkum óska-
bömum en meðalgaurum í bransan-
um. Ég vil hins vegar fullyrða að
það heyri til undantekninga og em
einsdæmi þau fyrirtæki í sjávarút-
vegi sem em illa rekin. Upp til
hópa em frystihúsin í landinu best
reknu fyrirtæki okkar landsmanna.
Besta sönnun ofangreindra fullyrð-
inga er óskabam Morgunblaðsins,
Grandi í Reykjavík.
Það er kominn tími til að menn
átti sig á að afurðalán með 8,5%
vexti er óviðráðanlegt fyrir fram-
Erling Garðar Jónasson
„Já — púkarnir á fjós-
bitanum eru margir o g
vissulega er erfitt fyrir
ríkisstjórnina að kveða
fólin niður en það verð-
ur hún að gera til að
standa undir nafni. Hún
verður að létta vaxta-
okrinu af framleiðslu-
atvinnuvegunum. Hún
verður að henda láns-
kjaravísitölunni út í
hafsauga.“
leiðsluna. Hafa verður í huga að
afurðalán nema ekki meira en 20%
af rekstraríjárþörf, afgangurinn er
á um 40% vöxtum.
Landbúnaðurinn er þá þegar
kominn svo langt niður í þetta svað,
að frá honum heyrist hvorki stuna
né hósti lengur.
Mitt í þessum skelfilega og
skringilega Hmnadansi, blómstrar
fjárfestingaræðið í verslun, þjón-
ustu og peningamustemm höfuð-
borgarsvæðisi ns.
Nú um síðir birtist svo nefndará-
lit vísitölunefndar, sem bendir á að
lánskjaravísitalan sé allra meina
bót. Vísitalan hafi aukið spariijárin-
neign um 50% og ekki skuli hróflað
við henni fyrr en meinið, verðbólg-
an, sé af viðráðanlegri stærð.
Magnús Jónsson, veðurfræðing-
ur, einn nefndarmanna, sá eini er
virðist hafa kynnt sér félagsleg
vandamál sem stafa af rangri upp-
byggingu lánskjaravísitölunnar,
bendir þó á ýmislegt sem gerir þetta
þjófnaðartól sársaukafyllra og
ranglátara en efni standa til.
Ráðherrarnir, sem vissu sjálfsagt
allt sem skiptir máli, taka undir
sjónarmið nefndarinnar, og auðvit-
að verður ekkert að gert. Þetta
undratæki hefur líka þann undra-
mátt að hafa aukið skattlausa arð-
gjöf íslenskra auðmanna á inneign-
um sínum um 100% umfram meðal-
gengi erlends gjaldeyris á síðustu
átta ámm. Hvers vegna ættu ný-
frjálshyggjupostular að breyta
þessu?
Lánskjaravísitalan minnir mig
ævinlega á hundana á bæ einum
hér í sveitinni, þegar bifreið nálgað-
ist hófu þeir að hlaupa í hringi.
Þegar bifreiðin fór fram hjá þeim
var hraðinn orðinn svo mikill á
hundunum að þeir gleymdu að gelta
á bifreiðina, en vom famir að elta
skottið á sjálfum sér.
Já, púkarnir á fjósbitanum em
margir, en það sem verst er og um
Ieið ástæða þessara skrifa, er sú
augljósa staðreynd að engin við-
leitni fínnst hjá núverandi ríkis-
stjórn til að axla sína ábyrgð og
taka að sér að breyta þessu rugli,
þessu skrípi, eins og raun ber vitni.
Púkarnir á fjósbitanum
Það er vissulega spor í rétta átt
og afrek út af fyrir sig, að ríkis-
stjórnin hefur knúið í gegn breyt-
ing;ar á tekjuöflunarlögum fyrir
ríkissjóð og sveitarfélög.
Staðgreiðslukerfi skatta hefur
leyst margt heimilið úr skattafang-
elsi eftirágreiðslu-formsins og virð-
isaukaskatts-formið verður án efa
lyftistöng fyrir framleiðsluiðnað
landsmanna. Kaupleigulögin em
sömuleiðis mjög merkur áfangi í
húsnæðismálum ungs fólks og þá
Talaðu við
ofefeur um
ofna
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 -688589
Talaðu við
ofefeur um
þvottavélar
SUNDABORG 1 S. 6885 88 -688589
NÚFÆRÐU. .
105g MEIRIJOGURT
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!*
* miðað við verð á jógúrt í 180 g dósum.
NÁMSKEID
Bókfærsla - vélritun
Sækið námskeið hjá traustum aðila
gegn vægu gjaldi
Eftirfarandi námskeið verða haldin
nú á næstunni:
- Bókfærsla I (einfaldar dagbókarfærslur
og uppgjör).........9., 11., 13., 14., 16., og 18. ágúst.
- Bókfærsla I (flóknari færslur og
uppgjör)............20., 21., 23., 25., 27. og 28. ágúst.
- Bókfærsla II (Þungar færslur og
uppgjör)............30. ágúst, 1., 3., 4., 6., og 8. sept.
- Bókfærsla II (Þyngri færslur og
uppgjör).............10., 11., 13., 15., 17. og 18. sept.
- Vélritun (byrjendanámskeið)
.......................22.-25., 29.-31. ág. og 1. sept.
BHM, BSRB, VR og fleiri stéttarfélög styrkja sína
félaga til þátttöku. Frekari upplýsingar fást í síma
688400.
- Innritun fer fram á skrifstofu skólans -
^jjj VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS