Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
49
sérstaklega fyrir landsbyggðina.
En hér erum við líka komnir á
enda mælistikunnar, bókstaflega
ekkert annað að gert í hriplekri
þjóðarskútunni, aðeins tappað í
nokkur göt, vissulega við kjölinn
meðan fossar inn og út um stórar
rifur á þilfari undir fótum átta-
villtra og ráðalausra skipstjóra og
stýrimanna hans.
En — hjásetamir, — atvinnurek-
endur, verkalýðshreyfing, banka-
valdið og stjómendur hinna „mun-
aðarlausu" fyrirtækja ríkisins (þ.e.
víst fyrirtæki okkar landsmanna),
fara sínu fram og fara sínar leiðir
þrátt fyrir settar leikreglur í bráða-
birgðalögum, og bókstaflega gera
grín að ríkisstjóminni og settum
lögum, — enda kannski eðlilegt því
forsætisráðherra segir verðstöðvun-
arákvæðin aðeins ætluð ríkisfyrir-
tækjum og stofnunum.
Hvað er Póstur og sími, RARIK
og „munaðarlausu“ fyrirtækin eins
og Landsvirkjun, Hitaveita Suður-
nesja, Orkubú Vestfjarða o.fl. þjón-
ustufýrirtæki okkar landsmanna
annað en ríkisfyrirtæki? Þau eru
öll á spenanum hjá skattgreiðend-
um þessa lands á einn eða annan
hátt, en ekki einkaleikfang Amar-
hólsstráka í sljómun þeirra. Á
hvaða hátt á að stjóma efnahags-
málum og með hvaða verkfæmm
ef ekki eru notuð þessi verkfæri
okkar landsmanna?
Bankavaldið hefur þó gengið enn
lengra en hinir hjásetamir með
grínið, því þeir bókstaflega grétu
úr hlátri þegar þeim tókst að auðg-
ast á kostnað okkar landsmanna
um nokkur hundmð milljónir á
ótímabæmm yfirlýsingum utanrík-
isráðherra um væntanlega gengis-
fellingu. Og spumingunni er enn
ósvarað, var þetta þjófnaður og
hvetjir em þjófamir?
Þeir fengu þó samviskubit því
einn bankastjórinn lýsti því yfír að
þetta væri réttlætanlegt þar sem
þeir, þ.e. bankamir, hefðu annars
tapað á gengisfellingunni eins og
önnur landsins böm.
Hitler sálugi sagði arkitekt sínum
og ráðherra vopnamála, Speer, eitt
sinn, að í upphafí kanslaraferils síns
héfðu embættismennimir fyllt
skrifborð hans af möppum og bréf-
um sem hann átti að skoða og
skilja að þeirra sögn, en hann sá
brátt að þetta var aðferð embættis-
mannanna til að stjóma honum og
krafðist þess að embættismennimir
tælq'u að sér möppudýrahlutverkið.
Þá fyrst hafði hann tíma til að
stjóma embættismönnum og þar
með þjóðfélaginu öllu.
Gæti þetta verið meinið hér og
nú?
Verkefnin
Já — púkamir á íjósbitanum em
margir og vissulega er erfítt fyrir
ríkisstjómina að kveða fólin niður
en það verður hún að gera til að
standa undir nafni.
Hún verður að létta vaxtaokrinu
af framleiðsluatvinnuvegunum.
Hún verður að henda lánskjarav-
ísitölunni út í hafsauga.
Hún verður að taka upp auðlinda-
skattformið á fískinn í sjónum, á
orku fallvatna og hitasvæða, á inn-
eignir í bönkum og sjóðum ásamt
stóreignum og hún verður að leggja
aðstöðugjald á höfuðborgina fyrir
að njóta alls ríkisrekstrar okkar
landsmanna og láta gjaldið renna
til landsbyggðarinnar.
Landsbyggðarmenn þola ekki
mikið lengur að þeir séu arðrændir
á öllum sviðum af misvitrum stjóm-
málamönnum og púkum á fjósbit-
um, sem í verki setja öll fjöregg
þjóðarinnar í sömu körfu, samanber
áframhald virkjana á Þjórsársvæð-
inu og stórt nýtt álver í Straumsvík.
Lög mæla fyrir um að næsta virkj-
un verði á Austurlandi, sem einnig
er grundvallaratriði öryggis í ra-
forkuöflunarmálum þjóðarinnar,
lögunum verður að fullnægja.
Ríkisstjómin verður að skilja að
hún stjómar ekki eftirspum at-
vinnuveganna eftir flármagni með
hávaxtastefnu sinni, atvinnuvegim-
ir þurfa sitt fjármagn til rekstrar
hvort sem mönnum líkar það betur
eða verr. Fjárfestingum á að stjóma
með skattalögum eins og aðrar
þjóðir gera en ekki með vaxtaokri.
Ríkisstjómin verður að skilja að
lánskjaravísitalan á ekkert erindi
við spariíjáreigendur né eyðsluklær
meðan önnur skattskyld verðmæti
svo sem laun em ekki vísitölu-
tryggð. Vísitalan er sársaukafyllsta
þjófnaðartól sem um getur í ís-
landssögunni.
En — fyrst og síðast verður ríkis-
stjórnin að skilja að hún á ekki að
sitja ef sama sundurlyndið, slags-
málasenur og vinsældaleit ein-
stakra ráðherra heldur áfram sem
hingað til, að minnsta kosti er svo
farið fyrir mér, sem studdi þessa
ríkisstjóm og fagnaði henni í upp-
hafí að ég styð hana ekki lengur.
Minn stuðningur er að sjálfsögðu
ekki mikils virði en mig gmnar að
svona sé komið hjá allmörgum öðr-
um stuðningsmönnum ríkisstjómar
Þorsteins Pálssonar.
Farið nú að stjóma „gæskumar"
en burtu með matarskattinn.
Með afmæliskveðju.
HSfundur er tæknifræðingur &
Egilsstöðum.
Er þörf á frekari | fjí jVÍj
gmrænung,, i landkran^S
Sérblöð
A LAUGARDÖGUM
A uglýsingar íLesbók með ferðablaði
þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir
kl. 16.00 á föstudögum, viku fyrir
birtingu og í menningarblaðið fyrir kl. 16.00
á miðvikudögum.
Y _ blíjé allra landsmanna
Morgunblaðið/ Ragnheiður Gunnarsdóttir
íþróttahúsið á Grundarfirði verður sennilega tekið í fulla notkun
haustið 1989.
íþróttahúsið í Grund-
arfírði einangrað
GrundarfÍrði.
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ i Grundarfirði
hefur verið lengi í byggingu en
framkvæmdir hófust árið 1978.
Húsið var gert fokhelt 1986 en
þá reyndist nauðsynlegt að klæða
húsið að utan meðal annars
vegna þessa langa bygging-
—artíma. Það var þvi klætt með
múrklæðningu sumanð 1987.
Mikið verður unnið við húsið á
þessu ári en menntamálaráðuneytið
og sveitarstjóm Gmndarfjarðar
hafa tekið höndum saman að taka
megi húsið í fulla notkun haustið
1989. Nú er verið að einangra það
en einangrunina gaf Lionsklúbbur
Gmndarfjarðar. Onnur innivinna,
svo sem frágangur lagna og klæðn-
ing, verður unnin á árinu. Áhugi á
byggingu hússins er mikill meðal
bæjarbúa, ekki sfst meðal bamanna
enda mun húsið bæta úr brýnni
þörf. Bömin hafa bæði safnað fé
til byggingarinnar með ýmsum
hætti og unnið í húsinu, hreinsað
það og tekið niður vinnupalla. Um
leið og húsið varð fokhelt fóm böm-
in að nota það til ýmissa leikja,
fegin að fá afdrep.
- Ragnheiður
GLÆSILEG TJÖLDÁ GÓDU VERDI