Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
55
sátu litlir apar og horfðu glettnir
á svip á eftir þessu framandi fyrir-
bæri sem svo hægt mjakaðist til
norðurs og eftir þriggja daga ró-
lega ferð lá Kasmír-dalur, með all-
an sinn ómótstæðilega sjarma, fyr-
ir fótum okkar.
Kasmír-dalur er nokkuð víðlend-
ur og flatbotna, umlukinn háum
fjöllum og í miðjum dalnum er
paradís á jörð, Dalvatn og borgin
Srinagar á bökkum þess. Þar kom-
um við okkur fyrir í húsbátum, sem
eru svo einkennandi fyrir borgina.
Bátamir eru innréttaðir í þungum
og virðulegum enskum stíl frá 3.
og 4. áratugnum, enda voru þeir
smíðaðir sem sumarbústaðir snob-
baðra Breta sem fóru upp í fjöllin,
til Kasmír, til að forðast mestu
sumarhitana niðri á Indlandi. Þama
vomm við í fimm daga í góðu yfír-
læti, skoðuðum borgina, ýmist fót-
gangandi eða siglandi um síki, fór-
um í siglingar um vatnið eða og
höfðum það gott við að skrifa jóla-
kort heima á bátunum. Það er
margt sem heillar í Srinagar, vatn-
ið er svo kyrrt, tré og íjarlægur
fjallahringurinn í svo mildum litum
og það eina sem rýfur friðsældina
en eykur um leið á ævintýraljó-
mann eru ernir sem svífa yfir og
stinga sér af og til í spegilsléttan
vatnsflötinn eftir æti. Mannlífið er
í fullu samræmi við kyrrð náttú-
runnar, gersamlega laust við allan
ys og þys og óþarfa uppistand og
fólkið er það rólyndasta sem ég
hef kynnst.
Það var með nokkrum trega sem
við kvöddum húsbátana okkar og
héldum af stað suður á bóginn.
Við fórum sömu leið í gegnum
Jammu og við höfðum komið fimm
dögum fyrr, en nú lá leiðin niður
á við og gekk helmingi hraðar.
Næsta dag komum við niður á slétt-
una til Punjab og þá hægðist ferð-
in verulega. Vegimir voru ekki
góðir, en það var þó ekki það sem
tafði okkur mest, heldur var það
fólk, fólk og ennþá meira fólk,
Tyrkneskur bóndi plægir akur sinn.
kýr, svín, asnar, geitur, hænur og
hundar sem öll þurfa endilega að
ganga eftir miðjum veginum eða
bara höfðu þörf fyrir að standa þar
til að sýna sig og sjá aðra og þá
ekki síst okkur. En hægt og rólega
seigluðumst við í gegn og framund-
an biðu höfuðborgin Delhi og undur
Indlands.
Höfundur er bankamaður á
Blönduósi
Stykkishólmur:
Ungt fólk í Stykkishólmi
krefst jafnréttis til náms
SIF, félag ungra sjálfstæðis-
manna á Stykkishólmi, hélt fund
fyrir skemmstu og var á honum
rætt um möguleika ungs fólks
til framhaldsnáms.
í frétt frá félaginu segir að mik-
il óánægja hafi komið upp á fundin-
um með það mikla misrétti sem ríki
milli dreifbýlis og þéttbýlis hvað
varði kostnað og aðstöðu til fram-
haldsnáms. Þar segir ennfremur að
kostnaður á einstakling fyrir utan
vasapeninga, klæði og skólabækur
hefði ekki verið undir 300 þúsund
krónum skólaárið 1987-1988. Hús-
næðisvandi sé hins vegar mikill og
þeir sem ekki séu svo lánsamir að
komast á heimavist þurfa að útvega
sér húsnæði sem oft er bæði lélegt
og dýrt.
Félag ungra sjálfstæðismanna í
Stykkishólmi spyr hvers vegna ekki
sé fyrir löngu komin heimavist í
Reykjavík. Krafa ungs fólks sé að
dreifbýlisstyrkur sé raunhæfur.
KOSTUR FYRIR ÞIG
anna
DRÁTTARVÉLAR
Mest seldar í V-Evrópu
Globusi
LÁGMÚLA S. S. 681655.