Morgunblaðið - 03.08.1988, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
Minning:
Björg Jónasdótt-
ir tannsmiður
Fædd 8. desember 1901
Dáin 26. júlí 1988
Frænka mín, Björg Jónasdóttir,
lézt á Sólvangi, Hafnarfirði, þriðju-
daginn 26. júlí síðastliðinn. Við viss-
um að hveiju stefndi. Hún var búin
að liggja á St. Jósefsspítala í Hafh-
arfirði og síðan á Sólvangi um eins
árs skeið. Hún var ekki mjög þjáð,
en sífellt dró af henni þann tíma,
uns yfir lauk með hægu andláti.
Björg var að öðru leyti heilsugóð
kona og þakkaði hún þessa góðu
heilsu reglusöm og heilbrigðu
lífemi. Hún var mikil útivistarkona,
sérstaklega á yngri árum. Þá stund-
aði hún skíðaíþróttina af kappi en
einnig göngur og annað sem að
útivist laut. Ég man ekki eftir að
henni yrði misdægurt frá því ég
kynntist henni fyrst, þegar hún
fluttist til Hafnarfjarðar í byijun
seinni heimsstyijaldar. Þar bjó hún
alla tíð síðan.
Björg var ein af mínum góðu
frænkum, sem ég var svo lánsamur
að eignast. Hún var sú síðasta af ,
sinni kynslóð, sem nú kveður. Ég
á margar og góðar minningar um
frænku mína, örlæti hennar og
góðvild alla tíð. Nú þakka ég fyrir
þær, þegar leiðir skiljast.
XJöfóar til
ll fólks í öllum
starfsgreinum!
fttdtgaiiifrlaftift
Björg var næstyngst sjö systk-
ina, sem fæddust og ólust upp að
Bakka í Hnífsdal. Foreldrar hennar
voru þau Guðný Jónsdóttir, ættuð
frá Dýrafirði, dóttir hjónanna Helgu
Bjamadóttur frá Felli og Jóns
Bjamasonar frá Rana í Núpsþorpi,
og Jónas Þorvarðarson, sem ættað-
ur var frá Hnífsdal og Þorvarðar
Sigurðssonar frá Tungu við ísa-
fjörð. Bakki í Hnífsdal var á tíma
Guðnýjar og Jónasar annálað
myndarheimili. Margir eru þeir, sem
enn minnast þess með hlýhug og
virðingu. Systkini Bjargar voru:
Elísabet, sem giftist Aðalsteini
Pálssyni skipstjóra, Helga, sem
giftist Bjama Snæbjömssyni lækni
í Hafnarfirði, Kristjana, sem lézt
ung í foreldrahúsum, Jónas, sem
dó á bezta aldri 1936, Bjami Öss-
ur, verzlunarmaður, kvæntur Svöfu
Haraldsdóttur, hjúkrunarfræðingi,
og Guðný, sem giftist Elíasi Ingi-
marssyni fískmatsmanni og útgerð-
armanni. Öll eru systkinin frá
Bakka nú látin, nema Helga, sem
enn lifír.
Bakkasystkinin fengu öll góða
menntun. Björg fór í Kvennaskól-
ann í Reykjavík eftir að bamaskóla-
námi lauk og tók þaðan lokapróf,
en síðan vann hún um skeið hjá
Jóni Benediktssyni, tannlækni. Eft-
ir það fór hún til Kaupmannahafnar
og nam þar tannsmíði. Að námi
ioknu kom hún heim og vann næstu
árin hjá ýmsum tannlæknum, þar
á meðal Jóni Benediktssyni. Þetta
var árið 1929, en í upphafí seinni
heimsstyijaldarinnar fékk hún svo
leyfí til að reka tannsmíðastofu upp
á eigin spýtur í Hafnarfirði. Hana
rak hún til ársins 1980 með miklum
dugnaði. Ég veit, að hún var geysi-
vinsæl og mjög góður tannsmiður.
Björg giftist ekki og var bam-
laus. Við systkinabömin fengum
þeim mun meira að njóta góðvildar
hennar og örlætis. Hún þreyttist
ekki á að rétta þeim í flölskyld-
unni, sem aðstoðar þurftu við, hjálp-
arhönd. Öll systkinin frá Bakka
voru alin upp í þessum anda. Meðal
annars gekk hún Elíasi Bjama
Elíassyni, systursyni sínum, í móð-
urstað, þegar móðir hans varð sjúk,
og átti hann ávallt athvarf hjá henni
síðan.
Björg var mjög félagslynd og
trúhneigð kona. Hún tók virkan
þátt í ýmsum trúarlegum félögum,
t.d. guðspekifélaginu, og var einnig
þátttakandi í ýmsum samfélagsleg-
um hópum. Hún var gædd beztu
eiginleikum foreldra sinna, skap-
festu og stjómlyndi móður sinnar,
en ráðdeild og blíðlyndi föðurins.
Þetta kom henni vel, því hún lifði
lífinu ein og óstudd, og var svo lán-
söm að geta stutt aðra, þegar þeir
þurftu þess með.
Björg var einstaklega farsæl
kona og sjálfstæð í hugsun og
verki. Allt fórst henni vel. Hún var
góð kona. Blessuð sé minning henn-
ar.
Bjarni Bjarnason
Minning:
Björn Stefáns-
son, Kálfafelli
Laugardaginn 16. júlí var Bjöm
afi okkar borinn til grafar. Hann
fæddist að Núpsskarði í Fljótshverfi
þann 30. september 1896 og lést á
Sjúkrahúsi Suðurlands þann 7. júlí
síðastliðinn. Hann var næstelstur sex
systkina og eitt þeirra lifír enn, Stein-
unn Stefánsdóttir á Skammadalshóli
í Mýrdal. Afí ólst upp hjá foreldrum
sínum og árið 1931 giftist hann
ömmu okkar, Valgerði Pálsdóttur.
Þau eignuðust saman 7 böm sem
öll komust á legg. Árum saman tók
hann að sér helming póstferða milli
Klausturs og Kálfafellsstaðar í Suð-
ursveit á móti Hannesi á Núpsstað.
Einnig fylgdi hann oft ferðamönnum
yfír Skeiðarársand. í dag er erfitt
að ímynda sér hvemig það hefur
verið að ferðast um með pósthesta
yfflr jökulvötn og eyðisanda í mis-
góðum veðrum. Við þekkjum vart
annað en upphitaða bíla og góða
vegi svo að við tökum varla eftir því
þegar við förum yfír ár eins og Núps-
vötn, Skeiðará og Jökulsá á Breiða-
merkursandi. Fyrir utan að vera
glöggur á vötnin var afi farsæll
ferðamaður, þar sem hann varð aldr-
ei fyrir óhöppum í þau 16 ár sem
hann gegndi þessu starfi. Um það
leyti sem póstferðunum lauk hjá afa
fór slitgigt að gera vart við sig og
hana mátti afí þola til dauðadags.
Þrátt fyrir það bar hann sig alltaf
vel og kvartaði aldrei. Við bræðumir
minnumst margra góðra stunda með
afa. Hann gat frætt okkur um margt,
t.d. ömefni í landi Kálfafells og víðar,
auk þess sem hann gat frætt okkur
mikið um hestamennsku. Á meðan
heilsa afa leyfði undum við bræðum-
ir okkur vel með honum við smíðar.
Saman smíðuðum við afí marga nyt-
samlega hluti handa okkur, t.d. lítinn
leikkofa. Við þessar smíðar lærðum
við margt af afa, t.d. að beita sög
rétt, að hefla og margt fleira. A
síðustu árum fór heilsu afa að hraka
smám saman uns hann varð meira
og minna rúmliggjandi. Þá reyndi
mikið á ömmu sem alltaf var reiðubú-
in að hjálpa og gerði allt sem í henn-
ar valdi stóð fyrir afa og meira en
það. En svo kom að því að afí var
orðinn það veikur að hann varð að
fara á sjúkrahús um síðastliðin ára-
mót. Öllum fannst átakanlegt að
horfa á eftir afa á bílnum niður heim-
reiðina og síðan út veg en því urðu
allir að taka með sama jafnaðargeði
og afí gerði sjálfur.
Nú hefur afí fengið hvíldina og
eru það einlægar óskir okkar bræðr-
anna að hans bíði góð heimkoma
handan við móðuna miklu.
Björn Helgi og
Rúnar Þór Snorrasynir,
K&lfafeUi.
15-50% ofslátturaf
öllum vörum
Margt gott fyrir lítið
c.\>'
^ v>°
Ódýr heimkeyrsla
Opið er:
Mán.-fim. kl. 09.30-18.00
Föstud. kl. 09.30-19.00
Mrumtma-
SKEMMUVEGI4A, KÓPAVOGI
Símar 76522 og 76532