Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 62

Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 félk í fréttum * Leigubifreiðastjórar í hófi hjá samgönguráðherra Morgunblaðið/KGA Fyrir skömmu hélt Matthías A. Mathiesen, samgönguráðherra, hóf til heiðurs leigubifreiðastjórum sem látið hafa af störfum á þessu ári fyrir aldurs sakir. Auk leigubifreiðastjóranna var boðið til hófsins stjórn Frama, stéttarfélags leigubifreiðastjóra, og umsjónanefnd leigubifreiða. Leigubílstjórarn- ir sem eru á aldrinum 75 til 84 ára hafa allir ekið í fjölda ára fyrir bifreiðastöðvar í Reykjavík. Sam- gönguráðherrra ávarpaði gesti og þakkaði þeim farsæl störf í þágu íslenskra samgangna. A myndinni má sjá boðsgesti ásamt ráðherra, Matthíasi A. Mathiesen. MALAYSÍA Kattliðugá kjötkveðjuhátíð Gan Yoke Lan er 16 ára gömul og hefur stundað fimleika frá 10 ára aldri. Hún sýndi listir sínar á kjötkveðjuhátíð í borg- inni Port Dickson um dagana og eins og myndin sýnir er stúlkan vægast sagt kattliðug. Það er eiginlega ekki í anda íþróttamennskunnar að kveikja sér í sígarettu en hún gerði það a.m.k. með óvenjulega íþrótta- mannslegum tilþrifum ef svo má að orði komast. NJARÐVÍK „Gróðurhúsið Víkur- blóm opnað KeHavík. Við ætlum að bjóða alhliða þjón- ustu í blóma- og garðrækt og auk þess verðum við með veiting- ar,“ sagði Helgi Kúld garðyrkju- fræðingur í samtali við Morgun- blaðið, en Helgi hefur ásamt Herði Steinþórssyni úr Garði opnað stórt gróðurhús, Víkurblóm, í Innri- Njarðvík. Víkurblóm stendur við Fitjar og hafa þeir sem leið hafa átt um Reykjanesbrautina eflaust veitt gróðurhúsinu athygli því það er nokkuð sérstakt í útliti. Byggingar- framkvæmdir hófust síðastliðið haust og er kostnaður við bygging- una orðinn um 20 milljónir. Gróður- -húsið er hringlaga, uppistöður eru Iímtré og ryðfrítt jám. Arkitekt er Óttar Guðmundsson og sagði Helgi að húsið væri tæpir 700 fermetrar að grunnfleti og auk þess væri í því 80 fermetra pallur þar sem gestir gætu setið og notið suðrænn- ar stemmningar. Helgi sagði að hugmyndir að byggingu gróðurhússins hefðu kviknað með tilkomu Hitaveitu Suð- umesja og heita vatnsins frá Svartsengi og ekkert mælti gegn því að á svæðinu mæti reka gróður- hús líkt og í Hveragerði. „Við kaup- um núna 60 lítra af heitu vatni á mínútu og verðum með einhveija ræktun í nýja húsinu til að byrja með, en síðar em áform um að byggja fleiri hús sem verða ein- göngu fyrir ræktun," sagði Helgi Kúld. Víkurblóm er opið alla daga vik- unnar frá kl. 10.00 til 22.00, þar geta menn fengið sér veitingar og keypt blóm eða ýmsar gjafavörur. - BB > Helgi Kúld garðyrkjufræðingur í nýja gróðurhúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.