Morgunblaðið - 03.08.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
63
Morgunblaðið/Theodór
Hljómsveitin Túrbó frá Borg’arnesi á fullri „keyrslu". Hljómsveitin flutti bæði eigin lög og annarra.
Frá vinstri eru Einar Þór Jóhannsson, gitar og söngur, Sigurþór Kristjánsson, trommuleikari, Ólafur
Páll Pálsson, bassaleikari, og Þórður Magnússon, gítarleikari.
Morgunblaðið/Theodör
Ljónin hjálpuðu Ijónynjunum við útigrillið. Langar biðraðir af svöngum garðgestum mynduðust en fljót-
lega tókst að seðja hungur þeirra, enda kunna ljónin tökin á kjötinu ...
Grillað í Skallagrímsgarði
Borgarnesi.
Talið er að hátt í eitt þúsund
manns hafi komið í garðveislu
sem Lionessuklúbburinn Agla stóð
fyrir í Skallagrímsgarðinum í Bor-
gamesi 24. júlí sl. Veðrið var ein-
staklega gott og garðurinn skartaði
sínu fegursta.
Þetta er í annað sinn sem Lion-
essuklúbburinn stendur fyrir garð-
veislu í Skallagrímsgarði. Sem fyrr
fengu þær ýmsa aðila til liðs við
sig til að gera veisluna sem vegleg-
asta. Útvarpsstöðin Stjaman var
með beina útsendingu úr Skalla-
grímsgarði og stóðu þeir Stjömu-
menn einnig fyrir ýmsum uppákom-
um svo sem happdrætti, keppni í
ökuleikni og margs konar leikjum
fyrir bömin. Hljómsveitin Túrbó frá
Borgamesi lék eigin lög og annarra
af sérsmíðuðum palli í garðinum
og hljómaði tónlist þeirra vítt og
breitt um bæinn. Leikdeild ung-
mennafélagsins Skallagríms kom
arkandi í öllu sínu veldi, syngjandi,
spilandi og dansandi í garðinn. Fóru
þar jafnt ungir sem eldri meðlimir
leikdeildarinnar skrautlega málaðir
og í mjög svo litríkum klæðnaði og
margvíslegum gervum.
Lionessuklúbburinn Agla sá um
að grilla kjötið með dyggri aðstoð
meðlima úr karlaklúbbnum.- Veislu-
gestir gæddu sér síðan á grillmatn-
um, sátu á teppum eða garðhús-
gögnum sem fólkið hafði komið
með að heiman.
Tókst þessi garðveisla mjög vel
og mæltist vel fyrir hjá bæjarbúum
og því ferðafólki sem leit við. Höfðu
ýmsir á orði að það væri tilvalið
að hafa það fyrir venju hér eftir
að eitthvað væri um að vera í Skal-
lagrímsgarði þær helgar sem vel
viðraði. Þá þyrfti heldur ekki að
standa í að auglýsa eða aflýsa her-
legheitunum.
- TKÞ
Morgunblaðið/Theodór
Jafnt ungir sem aldnir mættu í garðveisluna í Skallagrímsgarði um helgina, töluvert bar á ferðafólki
en innfæddir voru þó í meirihluta.
Morgunblaðið/Theodór
Meðlimir leikdeildar Skallagríms léku á als oddi í garðinum og brugðu sér í margvísleg gervi.
Lokað vegna sumarleyfa
Endurskoðunarskrifstofa Eyjólfs K. Sigurjónssonar
verður lokuð vegna sumarleyfa frá 8. ágúst til 5.
september 1988.
Opna eftir sumarleyfí á Flókagötu 65.
Eyjólfur K. Sigurjónsson,
löggilt ur endurskoöandi,
Flókagötu 65,
símar 687900-27909.
Dagheimili ríkisspítala
Sunnuhlíð
Óskum eftir að ráða deildarfóstrg og fóstru á
deild 1 -3ja ára barna og fóstru á deild 3ja-6 ára
barna á dagheimilið Sunnuhlíð við Kleppsveg.
Fóstrumenntun eða önnur uppeldisfræðileg
menntun áskilin.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Ásgeirsdóttir,
forstöðumaður, vinnusími 602600-95, heimasími
617473.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
Geðdeild Landspítalans
Áf engis- og vímuef naskor
Staða sérfræðings í geðlækningum við áfengis-
og vímuefnaskor geðdeilda Landspítalans er laus
til umsóknar.
Auk starfa á skorinni felur starfið í sér að taka þátt
í bakvöktum á geðdeildunum sameiginlega og
þátttöku í fræðslu og þjálfun læknanema.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna sendist
Jóhannesi Bergsveinssyni, yfirlækni áfengis- og
vímuefnaskorar, fyrir 25. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir áfengis- og
vímuefnaskorar í síma 601780.
RÍKISSPÍTALAR
GEDDEILD LANDSPÍTALANS