Morgunblaðið - 03.08.1988, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
„Br ftn'eð -ennþá cib anqrcL pig ?,r
.. . að hjálpa konunni
viðnámið.
TM R©o U.S. Pat Off.—all righta reMrved
° 1987 Los Angeles Times Syndtcate
*
Aster...
Fundurinn verður ekki lengri. Hann hringdi. Kemur
ekki því það var hola í höggi í gærkvöldi.
HÖGNI HREKKVlSI
Fríkirkjan:
Hávaði 1 stuðnings
mönnum prestsins
Kæri Velvakandi.
Það hefur verið mikill hávaði í
stuðningsmönnum sr. Gunnars
Bjömssonar undanfarna daga
vegna réttmætrar brottvikningar
hans úr prestsembætti við Fríkirkj-
una. Hefur mönnum þar ekki farist
fyrir og beitt ósmekklegum vörnum,
sem eru helst í ætt við lýðskrum,
og hvorki gætt hreinskilni né sann-
sögli í því máli. Það hefur verið
erfitt fyrir hinn þögla meirihluta
Fríkirkjusafnaðarins að kyngja því
sem prestur og fámennur hópur
stuðningsmanna hans hafa aðhafst
og látið frá sér fara.
Eg er einn þeirra fjölmörgu, sem
fögnuðu því þegar ungur prestur-
inn, Gunnar Björnsson, ákvað að
gefa kost á sér til prestsstarfa við
Fríkirkjusöfnuðinn, og veitti ég
honum brautargengi eins og svo
margir aðrir í prestskosningum.
Voru miklar vonir bundnar við sr.
Gunnar, þrátt fyrir sögusagnir um
vafasaman viðskilnað úr fyrra
brauði vestan af fjörðum. Þeim von-
Pennavinir
Tvær stúlkur frá Vestur-
Þýskalandi óska eftir að komast
í samband við íslenska penna-
vini. Þær eru báðar 15 ára gaml-
ar og helstu áhugamál þeirra
eru bréfaskriftir, pennavinir og
tónlist.
Ursula Schwessinger
Edelstrasse 8
8600 Bamburg
W-Germany
Silke Muúller
Angor 24
8604 Schessitz
W-Germany
um brást klerkur furðu fljótt og
lenti fljótlega upp á kant við sam-
starfsfólk sitt í kirkjunni, safnaðar-
stjórn og einstaka safnaðarmeðlimi.
Fljótlega lagðist allur jarðarfara-
söngur Fríkirkjukórsins niður
vegna þess að söngkór prestsfrúar-
innar vantaði verkefni og munaði
þá ekkert um að fórna kór þess
safnaðar sem prestur átti að þjóna.
Enda fór svo, eftir mjög storma-
sama sambúð, að Fríkirkjukórinn
allur sagði upp og hætti vorið 1983.
Hið sama er uppi á teningnum nú
milli prests og núverandi kirkjukórs
og söngstjóra. Kirkjukórinn, sem
hefur mátt þola ofríki prestsins í
fimm ár, hefði ekki tekið í mál að
skrifa undir stuðningsyfirlýsingu
við sr. Gunnar í síðustu guðsþjón-
ustu hans, ef eftir því hefði verið
leitað, og er næsta víst að allur
kórinn ásamt núverandi söngstjóra
muni hætta haldi sr. Gunnar áfram
preststörfum við Fríkirkjuna. Gunn-
ar hefur einnig haft í hótunum við
kórinn og einstaka kórfélaga og
margoft hótað söngstjóranum upp-
sögn, þrátt fyrir að prestur hafi
ekkert með ráðningar að kirkjunni
að gera heldur stjórn safnaðarins.
Þá hefur prestur ekki getað
starfað að neinum málum með hinu
öfluga Kvenfélagi Fríkirkjusafnað-
arins, og hatast við ákveðna ein-
staklinga á þeim bæ. Þessa merku
hreyfingu kennir fyrrverandi form-
aður safnaðarstjórnar við hryðju-
verkasamtök í nýlegri grein í Morg-
unblaðinu, vegna þess að kvenfé-
lagið, eins og kórinn, hefur fengið
nóg af ofríki prestsins og stjóm-
leysi og fjármálasukki fyrrverandi
meirihluta safnaðarstjórnar.
Það er við þessa aðstæður, sem
stjóm Fríkirkjusafnaðarins stóð
frammi fyrir þeirri ákvörðun, hvort
prestur ætti að halda áfram eða
hvort fórna ætti í annað sinn heilum
kór og söngstjóra til að þóknast
presti. Hin þriggja ára afsökunar-
beiðni prestsins til safnaðarins „var
aðeins gerð til að halda starfmu",
eins og bókað hefúr verið eftir
presti í stjórn safnaðarins og er því
ekki pappírsins virði. í sjálfu sér
er þetta næg ástæða til að víkja
manni úr embætti prests, sem ekki
getur starfað af meiri heilindum og
hreinskilni en raun ber vitni.
Ábyrgð safnaðarstjórnar nær hins
vegar yfir safnaðarstarfið í heild
sinni, en ekki aðeins til starfshátta
prestsins eins. Ef prestur getur
ekki unnið með öðru safnaðarfólki
að heill safnaðarins verður hann
að hætta, því heill alls safnaðar-
starfsins er í húfi.
Ef prestur vill í raun framtíð
Fríkirkjusafnaðarins sem besta á
hann þegar í stað að láta af þeim
ófriði við safnaðarböm og sam-
starfsfólk, sem hann hefur á und-
anförnum árum staðið fyrir, og
sætta sig við uppsögn safnaðar-
stjómar. Bjóði hann sig hins vegar
fram í komandi kosningum, eða á
annan hátt reyni að ríghalda í
prestsembættið, hefur hann gert sig
að minni manni. Þrátt fyrir stuðn-
ing hins þögla meirihluta við núver-
andi safnaðarstjóm, þá er hætt við
að Fríkirkjusöfnuðurinn muni bera
enn meiri álitshnekki og skaða en
hann hefur nú hlotið vegna sífellds
ófriðar fyrir tilverknað prests.
Einar Finnbogason
Víkveiji skrifar
Bíllinn sem Víkverji hefur á leigu
á ferðalagi sínu um Evrópu á
helst að ganga fyrir blýlausu
bensíni. Við allar hraðbrautir er
auðvelt að ná í þetta eldsneyti. Hins
vegar getur það enn kostað dálitla
leit utan slíkra brauta í Belgíu. Þar
sýnast menn vera komnir skemmra
á þessari umhverfisvemdarbraut en
til dæmis í Vestur-Þýskalandi.
Víkveiji fann vökvann á Q8-bensín-
stöð í úthverfí Brússel samkvæmt
ábendingu afgreiðslumanns á ann-
arri stöð. Hjá Q8 var aðeins ein
dæla af a.m.k. 10 fyrir blýlaust
bensín og þurfti að spyrja sérstak-
lega um hana í afgreiðslu stöðvar-
innar, en þama var sjálfsafgreiðsla
eins og annars staðar. Þegar
Víkveiji spurði um bensín „sans
plomb", svaraði konan strax á
ensku og benti á dæluna. Er það
annaðhvort til marks um að franska
Víkveija sé léleg eða aðeins útlend-
ingar spyiji um blýlaust bensín.
Þegar greitt var fyrir orkugjafann
var Víkveiji yfirheyrður um þjóð-
emi sitt og kom þá í ljós, að af-
greiðslufólkið vissi bæði um hvera-
hita á Islandi og að höfuðborgin
heitir Reykjavík.
Við fyrstu sýn er nafnið Q8 á
bensínstöðvum einkennilegt. Það á
rætur að rekja til eigendanna, sem
eru búsettir í Kuwait, en í ensku-
mælandi löndum er unnt að „hljóð-
rita“ nafn þess lands með stöfunum
Q8.
XXX
eim bensínstöðvum §ölgar í
Belgíu, þar sem unnt er að
nota greiðslukort. Á hinn bóginn
gengur hægt fyrir VISA-fyrirtækið
að færa út kvíamar í Belgíu. í
Brússel, þar sem íbúarnir em nærri
1,2 milljónir, veit Víkveiji aðeins
um einn stað, þar sem unnt er að
nota VISA-kort til að taka út pen-
inga.
í flugstöðinni í Brússel eru
nokkrir bankar, sem annast gjald-
eyrissölu jafnt á helgum dögum sem
endranær. Víkveiji kannaði, hvort
þar væri unnt að leysa út peninga
með VISA-korti en var sagt, að í
stöðinni dygði aðeins Eurocard til
þess.
Fréttin um Belgann sem fór af
stað heiman frá sér með 40.000
franka og fór um 9 Evrópubanda-
lagslönd og skipti alls staðar pen-
ingum með þeim afleiðingum að um
18.000 frankar runnu til banka og
skiptistöðva, hlýtur að fæla menn
frá slíkum viðskiptum. vonir standa
víst til þess að VISA-þjónustan í
Belgíu batni, þar sem einn stærsti
belgíski bankinn, BBL, hefur nú
keypt fyrirtækið, sem hafði VISA-
umboðið í landinu.
*
Aferðalögum er margs að gæta
og fæstir verða ánægðir, þegar
þeir verða þess varir að reynt er
að hafa af þeim fé með prettum.
Hér er ein þannig saga: Ferðalang-
ar koma síðla kvölds til Kastrup-
flugvallar við Kaupmannahöfn. Þeir
ætla að dveljast þar eina nótt á
hóteli skammt frá flugvellinum og
vita nákvæmlega hvar það er. Eftir
að hafa sest inn í leigubíl við flug-
stöðvarbygginguna og nefnt hótelið
við bílstjórann með ummælum sem
hann getur skilið á þann veg, að
farþegamir viti ekki, hve langt sé
til hótelsins, segir bflstjórinn: Á ég
ekki bara að loka mælinum og
semja við ykkur um 100 kr. gjald
fýrir ferðina. Farþegarnir svara
neitandi, þá nefnir bílstjórinn 60
krónur og enn er svarið nei og þess
óskað að ekið verði til hótelsins
með mælinn í gangi. Hann sýnir
41 kr., þegar komið er á leiðar-
enda. Næsta morgun var tekinn
leigubíll út á flugvöll að nýju, þá
kostar ferðin 31 kr. samkvæmt
mæli.
Seinni bílstjórinn sagði ferða-
löngunum, að þeir skyldu ávallt
gæta þess að skipta aðeins við
Ámager-leigubíla á Kastrup. Mörg-
um kann að finnast erfitt að setja
fram kröfu um slíkt við bílaröð fyr-
ir utan flugstöð. En jafnvel í kóngs-
ins Kaupmannahöfn er varinn góð-
ur í þessu efni.