Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL.10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/ur i/vymi u~\ mni’L
Fagmennirnir farnir með féð
Til Velvakanda.
Hvað er hægt að ganga langt.
Ég er svo ólánssöm að vera að
gera upp gamalt hús í miðborg
Reykjavíkur. Ég þurfti á fagmönn-
um að halda til þess að ljúka
ákveðnum verkþáttum. Þegar að
því kom að klæða ætti húsið að
utan varð ég mér úti um lista yfír
trésmiðj og blikksmiði, sem væru á
lausu. í Ijós kom að aðeins einn
aðili á þessum lista var á lausu og
tilbúinn til þess að vinna verkið.
Ég gerði verksamning við þennan
aðila þar sem hann lofar að ljúka
verkinu á tveimur vikum. Þetta
gerðist í janúar í bytjun þessa árs.
I samningi þessum var ákveðið að
greiða fyrir verkið í þremur áföng-
um, þann síðasta þegar verkinu
væri lokið. í bamaskap greiddum
við fyrir allt verkið áður en því var
lokið. Ekki er að sökum að spyrja.
Síðan hafa mennimir ekki látið sjá
sig. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
hefur okkur ekkki tekist að ná í
þessa svokölluðu fagmenn, en húsið
liggur nú undir skemmdum vegna
þessa dráttar.
Tilgangurinn með því að skrifa
þessar línur er sá að fólk vari sig
á að leíta til fagmanna án þess að
kynna sér ítarlega forsögu þeirra í
faginu. Mér dettur í hug að nær-
tækast væri fyrir sakleysingja eins
og mig og aðra þá, sem ætla sér
að ráðast í framkvæmdir sem þess-
ar, að óska eftir því við viðkomandi
fagmann að hann vísi á einhvem
eða einhveija, sem hann hefur unn-
ið fyrir áður, og gætu gefið með-
mæli. Það gæti orðið til þess að
koma í veg fyrir slys sem þessi sem
ég hef orðið fyrir og komið í veg
fyrir málaferli og tár þegar allt er
komið í óefni.
Húseigandi.
67
6 DAGA FJALLAFERÐIR
okkar í sumar um Borgarfjörð, Kaldadal, Landmanna-
laugar, Eldgjá, Skaftafell og Þórsmörk.
Brottför alla mánudaga fram til 22. ágúst.
VERÐ AÐEINS KR. 16.500,-
Innifalið: Allur matur, tjöld, dýnur og leiðsögn.
Börn fá 50% afslátt.
KYNNIÐ YKKUR EINNIG12 DAGA
HÁLENDISFERÐIR OKKAR I
ClLFAR JACOBSEN Ferðaskrifstofa
Austuretræti 9 - Slmar 13499 & 13491
Þakkir til bílstjóra hjá BSR
Hreint land
fagnrt land?
Kæri Velvakandi.
Undirritaður keypti sér veiðileyfi
í fallegu fjallavatni fyrir skömmu,
Reyðarvatni í Borgarfirði, og renndi
fyrir silung. En þá er ekki öll sagan
sögð. Strax og komið er að vatninu
í Selvík ber fyrir augu umtalsverður
sóðaskapur, náðhús fokin um koll
og sundur brotin, illa farnir skúrar,
fyrir utan allt annað skran sem
þama var, greinilega komið til ára
sinna. Metið var við lítið hús utar-
lega með vatninu. Þar ægði öllu
saman, mannasaur, matarleifum,
ásamt alls konar umbúðum undan
föstu og fljótandi við húsvegginn
fast við vegarkantinn. Móamir í
kring höfðu einnig svipað teppi yfir
sér.
Svona hlutir stinga illa í augu
og særa djúpt, svo ekki sé meira
sagt, og í hrópandi mótsögn við það
sem prentað er á veiðileyfin:
„Hreint land. Fagurt land.“
Að endingu vil ég þakka þeim
veiðifélögum, sem hlut eiga að því
framtaki að opna Reyðarvatn fyrir
almenningi, og stuðla þannig að
hollri útivem ásamt vissri veiðivon
þá krókurinn svífur út yfir vatns-
flötinn.
Asmundur U. Guðmundsson.
Til Velvakanda.
Eins og lesendum Morgunblaðs-
ins er kunnugt buðu bflstjórar á
Bifreiðastöð Reykjavíkur vistfólki á
elliheimilinu Grund í ferðalag til
Þingvalla, miðvikudaginn 20. júlí.
Eins og allir geta séð, sem lásu
lýsingu á ferð þessari hér í blaðinu,
hafa bílstjórarnir á BSR lagt mikið
fé og fyrirhöfn í ferð þessa, því
allt skipulag hennar og framkvæmd
var með ágætum og fór þar ekkert
úrskeiðis.
Ég vil því fyrir hönd okkar allra
heimilismanna á Grund, sem þátt
tóku í þessari ferð, færa bflstjómn-
um á BSR bestu þakkir fyrir þá
miklu vinsemd í okkar garð, sem
þeir sýndu með því að bjóða okkur
í þessa ferð.
Gestur Sturluson.
DAGVIST BARIVA
KLEPPSHOLT
Laugaborg v/Leirulæk
Matráðskona óskast nú þegar í 75—100%
starf.
Upplýsingar gefur Fanný Jónsdóttir deildarstjóri í síma
27277 og forstöðumenn í síma 31325.
I
Þessir hríngdu . . .
Eyrir en ekki aur
1007-7990 hringdi:
„Ég heyrði í fréttatíma útvarps
að fréttaþulurinn staglaðist á orð-
inu aur í stað eyrir. Þá heitir
vatnsveður á fslensku rigningar
og í fiskinum er fiskur en ekki
kjöt.“
Við höfnina
Gamall sjómaður hringdi:
„Ég var að hlusta á þáttinn
„Við höfnina", sem fjallar um sjó-
inn og sjómennsku frá fyrri tíð.
Þetta eru frábærir þættir og veit-
ir ungu kynslóðinni ekki af að
heyra um það sem þar er sagt
frá. Ég vil því skora á Ríkisútvarp-
ið að auka fróðleik eins þennan.
Við munum lifa af sjósókn um
ómunatíð og þrátt fyrir erfiðleika
núna birtir upp öll él um sfðir.
Þess vegna vil ég færa hagnýta
hluti tengda fiskveiðum og vinnslu
meira inn-í skólana. Þá væri upp-
lagt að láta krakkana í unglinga-
vinnunni, sem ég kalla reyndar
letingjavinnu, frekar splæsa víra,
hnýta net, beita línu og fleira
þess háttar í stað þeirrar óþurftar-
vinnu sem þau em í í dag.“
Færeyingar
sómafólk
Haraldur Kristjánsson rak-
ari hringdi:
„Ég var að lesa bréfið frá Fær-
eyingnum í dálki þínum í síðustu
viku, þar sem hann kvartar yfir
„stórabróðursviðhorfum" íslend-
inga í garð Færeyinga. Það kom
mér á óvart að hann hefði þessa
reynslu af íslendingum því ég
minnist þess ekki að hafa heyrt
íslending lasta Færeyinga á nokk-
um hátt. Mín reynsla af Færey-
ingum er sérstaklega góð. Ég er
fæddur og uppalinn í Vestmanna-
eyjum og þar var eftirsótt að kom-
ast um borð í færeysku skúturnar
og þóttu skútukallarnir skemmti-
legir menn. Sömu reynslu hef ég
af færeyskum viðskiptavinum
mínum og mér þykir vænt um
þetta fólk. Ég hef farið til Fær-
eyja og móttökur þar voru allar
frábærar. Ég vil undirstrika að
mér þykir afskaplega vænt um
Færeyinga og þeir eru hið mesta
sómafólk. Og það geta ekki verið
margir íslendingar sem ekki virða
þá mikils."
Eignakönnun
Halldór Ólafsson hringdi:
„Nú þegar fyrirtækin í landinu
eru að fara á hausinn vil ég hvetja
ríkisstjómina að gera eignakönn-
un eins og gert var hér áður fyrr.
Peningamir eru ekki í bönkunum,
hjá almenningi eða hjá fyrirtækj-
unum, en eitthvað hafa þeir farið.
Kannski til útlanda?"
Gleraugu töpuðust
Karlmannsgleraugu í dökk-
brúnni umgjörð töpuðust á Hótel
Islandi laugardagskvöldið 23. júlí.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 24438. Fundar-
laun.
Óánægð með
verðlagskönnun
Björk Jónsdóttir hringdi:
„Ég er óánægð með verðkönn-
un á Dior-naglalakki, sem birtist
í DV þann 28. júlí. Svona verð-
könnun er ómarktæk þar sem
ekki eru allar snyrtivöruverslanir
teknar inn í dæmið. Ég sjálf er
nýbúin að fá mér Dior-lakk í Ocu-
lus, sem kostaði rúmar 890 krón-
ur, sem er mun hærra en gefið
er upp í könnuninni. Því finndist
mér að ef gera á slíkar kannanir
að þær næðu yfir fleiri verslanir."