Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 VERSLUNARMANNAHELGIN Háskólanám í kerf isf ræði Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur. Hægt er að hefja nám í september og janúar. Stúdentar af hag- fræðibraut Ijúka námi á þremur önnum en aðrir geta þurft að sækja tíma í fornámi, sem er ein önn til viðbótar. Áhersla er lögð á að fá til náms fólk, sem í dag starfar við tölvuvinnslu og í tölvu- deildum fyrirtækja auk nýstúdenta. Sérstaklega skal bent á að þeir, sem hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest í starfi, þurfa að sækja nú þegar um innritun á vorönn. Nemendur, sem vilja halda áfram að vinna hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við kennslustjóra um möguleika á því. Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Fornám: Bókfærsla Rekstrarhagfræði Tölvufræði Stærðfræði Vélritun Fyrsta önn: Þriðja önn: Grunnnámskeið Turbo Pascal Almenn kerfisfræði Stýrikerfi Verkefni Önnur önn: Kerfishönnun Kerfisforritun Gagnasöfn og upplýsingakerfi Forritun í Cobol Gagnaskipan Lokaverkefni Stutt námskeið í ýmsum greinum svo sem: Tölvufjarskipti, verkefnisstjórnun, forritun- armálið ADA, „Object-oriented" forritun, þekkingarkerfi, OS/400 stýrikerfi. Innritun á haustönn stendur yfir til 15. ágúst en umsóknarfrestur fyrir vorönn er til 16. september nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskólans, Ofanleiti 1. Kennslustjórinn verður til viötals á skrifstofu skólans fyrir hádegi meðan innritun stend- ur yfir og í síma 688400. TÖLVUHÁSKÓLI V.í. Fjölmenni á Laugarvatni, í Galtalæk og Þórsmörk ÍSLENDINGAR eru sagðir miklir einstaklingshyggjumenn, en öðru hverju taka þeir upp á því að gera allir sama hlutinn á sama tíma. Einn þeirra er sá að þjóta allir út úr bænum sömu helgina á ári hveiju, það er að segja um Verslunarmannahelgina. Menn klæðast meira að segja flestir eins um þessa helgi og tekur hin ftjálslega verslunarmannahelgartíska ekki miklum breytingum á milli ára. Hlýrabolir, svört sólgleraugu og tóbaksklútur um höfuðið eru eitt af einkennum Verslunarmannahelganna. Annar búningur naut einn- ig víða töluverðra vinsælda þessa Verslunarmannahelgi, sem marg- ar aðrar, rauðgulur regnstakkur og vaðstígvél. Morgunblaðsmenn fóru stuttan höfðu unglingar tjaldað víða í skóg- hring um Suðurland á laugardaginn og heimsóttu nokkra af helstu sam- komustöðunum á því svæði. Laug- arvatn, Galtalækur og Þórmörk urðu fyrir valinu, en á leið til Laug- arvatns var að sjálfsögðu komið við á Þingvöllum. Töluverður fjöldi fólks var saman kominn á Þingvöllum, eins og venja er um Verslunarmannahelgi, og mikið af hjólhýsum á staðnum. Mest bar á fjölskyldufólki en einnig arlundum. Allt fór þar augljóslega vel og friðsamlega fram. Laugarvatn Þegar komið var að Laugarvatni var veður milt og lygnt þó ekki skini sólin. Eftir því sem nær dró tjaldstæðunum fór að bera á ungu fólki, við sjoppur og á göngu með fram þjóðveginum. Skyndilega kom tjaldborgin í ljós, iðandi mannhaf og bílar og tjöld í einni hrúgu. spilamennsku um Verslunarmanna- helgar. Að sögn löreglumanna á Laugar- vatni voru á bilinu 2.500 til 3.000 manns á svæðinu á laugardag. Töluverð ölvun var á meðal tjald- búðargesta og nokkuð um það að ökumenn væru teknir ölvaðir undir stýri. Galtalækur Ólík stemning var á næsta við- komustað, sem var Galtalækur. Hið árlega bindindismót hefur náð að skapa sér fastan sess um Verslun- armannahelgina á meðal margra Úölskyldna, en það var nú haldið í 21. sinn í Galtalæk. Það er umdæm- isstúkan á Suðurlandi og íslenskir ungtemplarar sem standa fyrir bindismótinu. Þegar komið var inn á mótssvæð- ið var augljóst að hér voru fyrst Morgunblaðið/BAR Það var margt um manninn á Laugarvatni um Verslunarmannahelg- ina og varla auðan blett að finna fyrir tjöld eða bila. Það var þvi mun fljótlegra að fara bara ferðar sinnar á tveimur jafnfljótum. Morgunblaðið/BAR Mikið fjör var á barnadansleik á fjölskylduhátíðinni í Galtalæk, þar sem börn og fullorðnir stigu sam- an dans við undirleik hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar. 371 TOSHIBA örbylgjuofnamir 10GERÐIR Verð við aiira hæfi Einar Farestveit&Co.hf. MMMTVM *. aÍMA»|»<| INM O* UMO — Leið 4 stoppar við dymar aaaHnnMi r ru: , tfiíííiil nnbii: bKí'í- íU láiol jnniiio 03ii> Sá aldurhópur sem mest bar á voru unglingar undir átján ár aldri, allt niður í fyrstu bekki gagnfræða- skóla. Nokkuð bar þó á fólki yfir tvítugu, auk þess sem töluvert var um fjölskyldufólk, sérstaklega á hjólhýsasvæðunum. Það var ljóst að margir gesta ætluðu að nýta helgina til hins ýtr- asta. Helstu harðrjaxlamir voru þeg- ar komnir með flösku í hendina, berir að ofan og höfðu hátt, þó aðeins væri rétt liðið að hádegi. Stúlkum sem hættu sér fram hjá var enginn griður gefinn og stein- aldaraðferðum beitt til þess að sanna fyrir þeim karlmennskuna. Aðrir gleðimenn voru friðsælli og sváfu úr sér áfengisvímu I trjáijóð- rum. Nokkrir tjaldbúðargesta reyndu að skapa heimilislegt andrúmsloft þó farið hefði verið út fyrir bæinn og komu fyrir sófasetti fyrir utan við tjald sitt. Flutningabílstjóri einn hafði hins vegar komið búslóðinni fyrir í bílnum sínum, sat svo í mak- indum í hægindastól með renni- hurðina opna og fylgdist með fólks- staumnum fyrir utan. Um Verslunarmannahelgar er einn flokkur manna öðrum vinsælli og öðlast alla jafna mikla virðingu á meðal mótsgesta og var engin undantekning á því á Laugarvatni þessa helgi. Það eru þeir menn sem kunna gítargripin o’g oft nægir að kunna einungis þijú grip til þess að í kring safnist hópur fólks til að syngja með. Þeir hljóta að verða aumir í fingurgómum og barka, þessir ágætu menn, eftir stanslausa ■ ji j. ; < fim uus. * llti11 íi -tUDÍWilfc fUUiIi ItV IlIJIiI 01115914 og fremst bamafjölskyldur saman- komnar. Börn voru alls staðar að leik, enda var upp á nóg að bjóða handa þeim. Á miðju mótssvæði var búið að koma fyrir leiktækjum og hópuðust krakkamir þar saman til leikja. Þama voru alls konar klifurgrind- ur, rennibrautir og ýmiskonar leik- tæki sem smíðuð höfðu verið á staðnum. Annars staðar á svæðinu var bamadansleikur þar sem hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar hélt uppi fjörinu og böm jafnt sem fullorðnir stigu dans og sungu með. Jafnframt var haldin söngvakeppni bama og tjáðu aðstandendur mótsins blaða- manni með stolti að Bjarni Arason hafi einmitt verið uppgötvaður í slíkri keppni, ári áður en hann varð landsfrægur sem látúnsbarkinn. Að sögn mótshaldara voru á fímmta þúsund manns á bindindis- mótinu í Galtalæk og kváðu þeir mikið um það að sömu fjölskyldum- ar kæmu á mótið á hveiju ári. Lítil vandamál væru með ölvun, þó ekki væri unnt að koma algjörlega í veg fyrir áfengisneyslu. Hins vegar kæmust menn menn fljótlega að því, að það væri engin stemning til drykkju á þessum stað. Þórsmörk Næsti viðkomustaður var Þórs- mörk. Strax við afleggjarann hjá þjóðveginum var ljóst að mikið var um að vera inni á svæðinu. Margir höfðu farið á fólksbflum og skilið þá þama eftir, en fengið far með rútum eða jeppum síðasta spölinn inn í Þórsmörk. .£Xll£r«C‘[á I tiíltl ‘ >,t a .> L19 luúin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.