Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
71
Fyrst var komið við í Langadal
og var þar nokkur mannQöldi sam-
an kominn. Munaði mestu um hóp
stúdenta frá Menntaskólanum í
Reykjavík sem safnast höfðu þar
saman um Verslunarmannahelgina.
Töluvert fleira fólk var inni í
Húsadal og var þar mikill fjöldi
jeppabifreiða auk rútubifreiða sem
hópar höfðu leigt til Þórsmerkur-
ferðar.
Tjaldað hafði verið á flestum
auðum blettum og menn jafnvel
famir að reyna að reka niður tjald-
hæla því sem næst á bifreiðastæð-
unum. Regnstakkatískan var alls
ráðandi, enda úrhellis rigning þegar
Morgunblaðið bar að garði. Ein-
staka hörkutól lét þó ekki smávægi-
lega bleytu hafa áhrif á sig og rölti
um í hlýrabol með flösku í hendi.
Þegar leið á laugardagskvöldið
stytti upp og líf fór að færast í
dalinn. Varðeldur var kveiktur í
botni Húsadals þar sem fólk safnað-
ist saman og tóku Þórmerkursöngv-
amir brátt að óma.
Eldra fólk var í Þórsmörk en á
Laugarvatni og var mest um fólk
um og yfir tvítugu. Ölvun var alln-
okkur og margir orðnir blautir og
kaldir eftir rigningarnar.
Eitt var ljóst að á öllum þessum
stöðum var markmiðið eitt og hið
sama, þó menn beittu ólíkum að-
ferðum til þess að ná því: Það átti
að skemmta sér og gera helgina
eftirminnilega, hvað sem veðráttan
bauð upp á. Það hefur væntanlega
tekist hjá flestum, ekki var annað
að sjá á þeim stöðum sem Morgun-
blaðið leit inn á. SN
Sleppum líklega með skrekkinn
- segja mótshaldarar á Melgerðismelum
„MÉR sýnist hátíðin standa á núllinu, vonandi þó réttu meg-
in,“ sagði Pétur Bjarnason, einn af mótshöldurum á Melgerðis-
melum. Um það bil 3.200 aðgöngumiðar seldust inn á móts-
svæðið á Melgerðismelum, en á svæðinu voru rúmlega 4.000
manns þegar mest var. Pétur sagði mikil brögð hafa verið
að því að fólk hefði reynt að komast óséð inn, annaðhvort
með þvi að klofa yfir Eyjafjarðarána eða á annan hátt.
„Að okkar mati fór hátíðin mjög
vel fram. Lítið sem ekkert var um
slys og óhöpp og ölvun ekkert
meiri en búist hafði verið við.
Gestir voru mjög ánægðir með
skipulagningu ogframkvæmd hát-
íðarinnar og veðrið var betra en
veðurfræðingar vildu vera láta.
Slæm veðurspá fældi fólkið vissu-
lega frá okkur að hluta til og vor-
um við mjög hvekktir þar sem
prýðilegt útileguveður var alla
helgina," sagði Pétur.
Aðstandendur á Melgerðismel-
um sögðu gesti sína hafa verið
mjög óhressa með aðfarir lögregl-
unnar þegar komið var inn á móts-
svæðið. Leitað var í flestöllum bif-
reiðumog „suma tóku þeir alveg
með Gestapó-aðferð," sagði einn
viðmælandi Morgunblaðsins á
mótssvæðinu. „Auðvitað er leit af
hinu góða þegar maður hugsar út
í það, en það má nú á milli vera,“
bætti hann við.
„Pétur sagði samstarf við lög-
regluna hafa verið mjög gott allan
tímann. Allir starfskraftar á svæð-
inu um helgina ættu miklar þakk-
ir skildar. Allar líkur benda til
þess að útihátíð verði haldin á
Melgerðismelum að ári liðnu þó
aðstandendur verði endilega ekki
þeir sömu, að sögn Péturs. „Eg
veit að bæði skemmtikraftar og
gestir eru spenntir fyrir annarri
útihátið á Melgerðismelum þó svo
að við mótshaldarar höfum ekki
tekið endaniega ákvörðun. Eftir
þessa fyrstu útihátíð okkar erum
við auðvitað reynslunni ríkari.
Þessi tími hefur verið þrotlaus
vinna og ljóst er að eftir alla þessa
vinnu fáum við persónulega ekkert
út úr henni. Spurningin er hvort
maður eigi að Ieggja þetta á sig
aftur,“ sagði Pétur Bjamason.
Sex hljómsveitir tóku þátt í
hljómsveitakeppni sem efnt var til
á mótinu. Hljómsveitin Þokkaleg-
ur moli sigraði en hljómsveitar-
meðlimir em nær alls staðar að
af landinu. Þá stóð til að gera
heimsmetstilraun í fallhlífarstökki
á Melgerðismelum þegar Sigurður
Baldursson hugðist stökkva í
fallhlíf og lenda á bakinu á eyf-
irska gæðingnum Guttormi. Sig-
urður forfallaðist en nafni hans
Sigurður Bjarklind hljóp í skarðið.
Guttormur lék hlutverk sitt
enda og stóð stifur allan timann
en vegna óhagstæðrar vindáttar
lenti Sigurður Bjarklind hálfan
annan metra frá Guttormi.
Umferðaröng-
þveiti við Geysi
Jéppinn á kafi í Markafljóti
Morgunblaðið/Kristinn Þoríeifsson
Rangárvallasýsla:
Bjargað af bflþaM í
míðju Markarfljóti
LITLU munaði að stórslys hlytist af þegar maður um tvítugt ætlaði
yfir Markarfljót á Range Rover-jeppa um áttaleytið á siðastliðinn
laugardag. Hann var ekki kominn langt þegar jeppinn fór á kaf og
drapst á vélinni. Bíllinn valt nokkrar veltur og stöðvaði loks á sand-
eyn. Bílstjórinn náði að komast upp á þak jeppans og þaðan var
honum bjargað af ferðalangi frá Hvols- velli, Guðmundi Guðmunds-
syni, sem staddur var á hinum bakka fljótsins. Hann sýndi mikið
áræði þegar hann óð i fljótið og bjargaði ökumanni jeppans. Ökumað-
ur jeppans er grunaður um ölvun.
sama stað þegar þrír jeppar lentu
í ógöngum í Markarfljóti. Drifskaft
í bílnum sem síðastur fór yfir,
brotnaði og ökumaðurinn komst
upp á þak bílsins. Guðmundur snar-
aðist þá út í ána eins og hann gerði
á laugardag og bjargaði manninum
af þaki bílsins.
MIKIÐ fjölmenni var viðstatt
Geysisgos á laugardaginn. Um-
ferðaröngþveiti skapaðist þeg-
ar áhorfendur hugðust hverfa
brott og tók það lögreglumenn
rúma klukkustund að leysa
hnútinn.
Að sögn Más Sigurðssonar á
Geysi var þetta mjög gott gos og
geta menn sér þess til að strókur-
inn hafí náð upp í milli 50 og 60
metra hæð. Hann sagðist ekki
muna eftir öðru eins fjölmenni á
svæðinu, líklega hefðu áhorfendur
að gosinu verið flmm til sex þús-
und. „Við getum í rauninni ekki
tekið á móti svona mörgum, en
við eigum heldur ekki von á þetta
endurtaki sig. Straumur ferðafólks
lá einkum um Suðurland um helg-
ina, þannig að hingað komu óvenju
margir."
Bílstjórinn, sem er tvítugur pilt-
ur, hafði fengið bílinn lánaðan og
ætlaði hann í Þórsmörk. Vaxið hafði
í Markarfljóti eftir rigningar undan-
fama daga og að sögn lögreglunnar
á Hvolsvelli er það ekki á færi vön-
ustu manna að fara yfir fljótið við
slíkar aðstæður. Lögreglan telur
mestu mildi að ekki fór verr.
Morgunblaðið náði tali af Guð-
mundi Guðmundssyni ftá Hvolsvelli
sem bjargaði piltnum af þaki jepp-
ans. Hann var í tjaldi ásamt fjöl-
skyldu sinni um 200 metrum frá
slysstaðnum.
„Ég var að skyggnast eftir ánni
um áttaleytið og sá þá eitthvað
neðar í álnum sem mér fannst vera
tunna. En svo sá ág plasttægjur í
vatninu og gekk ég þá upp á hæð
og leit niður eftir ánni í sjónauka.
Þá sá ég múg og margmenni við
árbakkann og kveikti ég samstund-
is á talstöð í bílnum og heyrði þá
hvers kyns var. Ég fór ásamt
tengdasyni mínum niður að slys-
staðnum og setti ég band í bílinn
og utan um mig og óð út í. Það
braut upp á þakið þar sem piiturinn
sat, svo stríður var árstraumurinn.
Vatnið náði mér upp undir bijóst
og ég var að missa fótfestuna þeg-
ar ég náði að grípa í grind á bflnum.
Ég reyndi að tala við strákinn en
hann var vart viðræðuhæfur af
kulda og vosbúð. Ég fékk þó að
vita að hann var einn í bflnum. Ég
setti svo band í strákinn og við
náðum að draga hann á land. Þetta
mátti ekki tæpara standa." Guð-
mundur ferðast mikið og fyrir
þremur árum var hann staddur á
Melgerðismelar:
Ok ölvaður og réttínda-
laus innan urn tjöldin
SÁ háskalegi atburður átti sér
stað á Melgerðismelum um helg-
ina að fimmtán ára gamall piltur
undir áhrifum áfengis ók bíl með
stolnum númeraplötum um tjald-
svæðið. Að sögn lögreglunnar á
Akureyri ók pilturinn utan í tvö
tjöld og máttu litlu muna að illa
færi.
Pilturinn hafði fengið far norður
með ókunnu fólki en á leið þangað
lenti það í umferðaróhappi. Launaði
pilturinn greiðann með því að stela
númerunum af bflnum og hélt að
því búnu til Akureyrar. Eigandi
bflsins hafði samband við lögregl-
una og sagði farir sínar ekki slétt-
ar. Á Akureyri keypti pilturinn
gamlan bíl og setti stolnu númerin
á hann. Hélt hann að svo búnu til
Melgerðismela og þar skakkaði lög-
reglan leikinn áður en slys hlaust af.
Þegar gosinu var að ljúka, skall
á hellirigning og áhorfendur iei^,
uðu skjóls í bílum sínum. Skapað-
ist umferðaröngþveiti, þar sem
allir reyndu að aka á brott á sama
tíma. Tók það lögreglu um það
bil eina klukkustund að leysa
umferðarhnútinn sem skapaðist.
Bjarkarlundur:
Vestfirð-
ingar í
meirihluta'r'
í Bjark-
arlundi
GESTIR á útihátíðinni í
Bjarkarlundi voru milli
fjögur og fimm hundruð og
voru Vestfirðingar þar i
töluverðum meirihluta. Að
sögn lögreglu gekk hátíðin
vel fyrir sig, og ekki urðu ‘
teljandi óhöpp í umferðinnL
Meðal þeirra sem komu
fram á hátíðinni voru Hljóm-
sveit Grétars Örvarssonar,
hljómsveitin Stjómin og Örvar
Kristjánsson. Margt fjölskyl-
dufólk sótti samkomuna en að
sögn aðstandenda hennar voru ’f*
þar fleiri unglingar en undan-
farin ár.