Morgunblaðið - 23.08.1988, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 23. ÁGÚST 1988
HANDKNATTLEIKUR / HM 1993
Steffo Törnquist ritstjóri íþróttasíðu Expressen í Svíþjóð:
Hættið þessu þrasi og látið
íslendinga hafa HM1993!
STEFFO Törnquist, ritstjóri
íþróttasíðu dagblaðsins Ex-
pressen í Svíþjóð, sem er
stærsta dagblað á Norður-
löndum, mælist til þess í rit-
stjórnargrein á föstudaginn
að sænska handknattleiks-
sambandið dragi umsókn
sínu um að halda heims-
meistarakeppnina 1993 til
baka, og komi því þannig til
leiðar að keppnin fari fram á
íslandi.
Hættið þessu þrasi og gefið
heimsmeistarakeppnina eftir
til íslendinga," segir Tömquist í
grein sinni. Hann segir að stríð
standi yfir milii íslendinga og
Svía, um að haida keppnina, en
slíkt hafi ekki gerst síðan á dögum
Snorra Sturiusonar.
Hann segir að það séu þessar
tvær þjóðir sem betjist um keppn-
ina, og ef önnur hvor dregur
umsókn sína ekki til baka fyrir
fund alþjóða handknattleikssam-
bandsins í Seoul verði að kjósa.
„Eins og staðan er í dag er líklegt
að Svíþjóð fái keppnina ef kemur
til kosninga," segir Tömquist
Hann er þeirrar skoðunar að ís-
lendingar myndu skipuleggja
keppnina miklu betur; standa
miklu betur að henni en Svíar á
allan hátt, ef þeir fengju hana.
Hann minnist á að Svíar hafa
þegar fengið að haida HM í hand-
knattleik tvívegis, 1954 og 1967,
og ekkert land í heiminum hafi
gert það oftar. íslendingar hafi
hins vegar ekki haldið HM-
keppni. Þá bendir hann á þá stað-
reynd að íslenska lýðveldið verði
50 ára [1994 reyndar], íslenska
ríkisstjórnin sé tilbúin að standa
á bak við þessa miklu keppni,
ásamt bæjum og kaupstöðum.
í Expressen er rætt við Staffan
Holmquist, formann sænska
handknattleikssambandsins. „Við
höfum ekki hugleitt að draga
umsókn okkar til baka. Við ætlum
að betjast fyrir því að fá keppnina
hingað,“ segir hann.
Að sögn Þorbergs Aðalsteins-
sonar, landsiiðsmanns, sem farinn
er til Svíþjóðar, er skoðun blaða-
manns Expiyssen ekki einsdæmi
í Svíþjóð. „Öll staðarblöð sem ég
hef séð hér eru mjög jákvæð í
garð íslendinga vegna baráttunn-
ar um HM. Iþróttafréttaritarar í
Svíþjóð vilja greinilega að keppnin
verði haldin á íslandi," sagði Þor-
bergur.
Sovétr.-Spánn
28 : 20
Flugleiðamótið í handknattleik, íþrótta-
höllin á Húsavík, sunnudaginn 21.
ágúst, 1988.
Gangur leiksins: 4:2, 7:2, 9:5, 14:9,
14:12, 16:12, 16:15, 18:15, 22:17,
26:20, 28:20.
Mörk Sovétríkjanna: Rymanov 5,
Tuchkin 5, Gopin 5, Atawin 4/1, Chew-
tzov 4, Scharowarow 2, Karschakevich
1, Nesterov 1 og Swiridenko 1.
Varin skot: Tschumak, 12 skot.
Utan vallan 2 mínútur.
Mörk Spánar: Marin 6/3, Munoz 4,
Ruiz 3, Sagales 3, Cabanas 2, Gomez
1 og Femandez.
Varin skot: Fort, 16 skot.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og
Rögnvald Erlingsson. Þeir fá ekki háa
einkunn.
Áhorfendur: Um 540.
Ekki
ógnuðu
spánskir
Sovét-
mönnum
Fjölbreytileikinn í
f/rirrúmi hjá Sovét-
mönnum á Húsavík
SPÁNVERJUM tókst aldrei að
velgja Sovét-risunum undir
uggum þrátt fyrir mikla bar-
áttu á Húsavík á sunnudag-
inn.
Lið beggja eru greinilega afar
sterk en Sovét-piltar vissulega
gæðaflokki ofar. Samleikur þeirra
er fimavel útfærður og vissu Spán-
veijar hvemig átti
að taka á mótheij-
um sínum, þar sem
fjölbreytileikinn er í
fyrirrúmi hjá Sovét-
í jöfnu liði Sovétmanna var Ry-
manov bestur, frábær leikmaður.
Jafn í vöm og sókn. Tuchkin, Ataw-
in og Chewtzov vom einnig mjög
góðir. Hjá spönskum var Marin yfir-
burðamaður, en Munoz og mark-
vörðurinn Fort áttu einnig snjallan
leik.
Magnús
Már
skrifar
mönnum.
Morgunblaöiö/Einar Falur og Júlíus
Krosstré
Alfreð Gíslason og Kristján Arason eru mikilvægir hlekkir í íslenska landslið-
inu. Sannkölluð krosstré. Á myndinni þmmar Alfreð boltanum í tékkneska
markið á laugardaginn — krafturinn geislar af honum - og hér til hliðar stend-
ur Kristján í ströngu í vöminni. Skilar leikmanni númer 5 í gæslu Geirs, ög er
með augun á öðmm; tilbúinn að leggja til atlögu.
„Gönguhandbolti"
ÞAÐ var fátt um fína drætti í
leik Spánverja og Svisslend-
inga, og sannarlegur göngu-
bolti eins og Roma þjálfari
Spánverjanna orðaði það.
Leikurinn fór mjög rólega af
stað. Fram um miðjan hálfleik-
inn var jafnræði með liðunum. Þá
gerðu Spánveijar fjögur mörk í röð
°S komust í 8:4. í
Sigurður þeirri stöðu tók vöm
Jónsson Svisslendinganna
mikinn kipp og þeir
tóku mun fastar á
móti sóknarlotum Spánveijanna,
náðu að tmfla línusendingar og
skrifarfrá
Selfossi
koma í veg fyrir langskot. Með
örlítið betri sóknarleik hefðu Sviss-
lendingarnir getað komist yfir.
Leikur Spánveijanna hresstist
nokkuð í síðari hálfleik og þeir nýttu
sér vel mistök Svisslendinganna.
„Þetta var góður leikur til að
vakna, næstu leikir verða betri,“
sagði Roma þjálfari Spánveijanna.
Hann sagði liðið mjög þreytt eftir
langt ferðalag. Liðið hefði orðið að
þola sjö tíma seinkun á flugi og það
sæti í leikmönnunum auk þess sem
þeir hefðu verið í keppni fyrir þrem-
ur dögum. „Ég er ánægður með
að mínir menn reyndu að ná upp
hraða í leiknum og leika lifandi
handbolta, annars var þetta göngu-
bolti. Ég hlakka til að leika við ís-
lendinga fyrir fullu húsi í
Reykjavík," sagði Roma og bætti
því við að það væri mjög mikilvægt
fyrir íslendinga að fylla allar hallir
í þessu móti og á öllum landsleikjum
í náinni framtið. Slíkt hefði áróðurs-
gildi gagnvart því að Heimsmeist-
arakeppnin yrði haldin hér.
„Við hófum æfingar fyrirtveimur
vikum en Spánveijarnir voru mun
betri en við í þessum leik. Við gerð-
um of mörg mistök og gáfum þeim
of mikið eftir í síðari hálfleik,“ sagði
Arno Ehret þjálfari Svissneska liðs-
ins um leikinn.
Spánn - Sviss
20 : 17
Flugleiðamótið, íþróttahúsið á Selfossi,
laugardaginn 20. ágúst 1988.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:4,
8:4,10:7, 10:8, 12:11, 13:11, 13:12,
14:12, 17:13, 20:15, 20:16, 20:17.
Mörk Spánverja: Juan Segales 4, Jul-
ian Ruiz 4, Ricardo Marin 4,Javier
Cabanas 2, Juan Fco Munos 2, Jesus
Femandez 1, Jesus Gomez 1, Jamie
Fort 1.
Varin skot: Zunica, 11 skot.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Svisslendinga: Alex Ebi 6, Jens
Meyer 3, Max Delhees 2, Martin Rub-
in 1, Rene Barth 1, Roger Keller 1,
Cristian Ledermann 1, Marc Bar 1,
Stefan Scarer 1.
Varin skot: Hiirlimann, 11 skot.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson
og Rögnvald Erlingsson — góðir.
Ahorfendur: 500.