Morgunblaðið - 23.08.1988, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.08.1988, Blaðsíða 6
V 6 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988 HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMOTIÐ „Innistæðulausir11 Tékkar afgreiddir með 6 marka mun Árétturóli Uðið ANNAR sigur íslendinga á Tékkum, síðan Bogdan tók við liðinu, var afar sannfærandi þegar liðin mættust á Flug- leiðamótinu á laugardaginn. íslenska iiðið var áberandi betra og sex marka munur eng- in tilviljun. Tékkar eru með frekar ungt lið, sem er í mótun, og væri vissara fyrir okkur ís- lendinga að treysta ekki á að þeir næðu einu af 6 efstu sæt- unum á ÓL og gera okkur þann- ig vonir um að sjöunda sætið í Seoul dugi til beinnar þátttöku á HM 1990. Oðruvísi mér áður brá. Tékkar komust aldrei yfir í leiknum, sem er heldur óvenjulegt fyrir þá í landsleik gegn íslendingum, því í ■■■■ 29 viðureignum KrístinnJens þjóðanna hafa þeir Sigurþórsson sigrað 18 sinnum, skrítar en þetta var 5. sigur íslendinga. Það er því óhætt að segja að þeir eigi ekk- ert inni hjá okkur í handbolta, og séu því innistæðulausir. Þeir héldu að vísu jöfnu í örfáar mínútur, en síðan sigldu okkar menn fram úr jafnt og þétt, og þegar síðari hálf- leikur hófst, var munurinn orðinn 5 mörk. Frammistaða íslenska liðsins í vörn og sókn var nokkuð jöfn; liðið datt ekki niður á neinum kafla, eins og oft hefur gerst, heldur var unn- ið jafnt og þétt að sigrinum allan tímann. Mun léttara var yfir leik íslenska liðsins heldur en á Spánarmótinu á dögunum, og eru erfíðu æfingamar sagðar að mestu afstaðnar. Það ætti því að vanta lítið upp á það form, sem liðið verður í á Olympíu- leikunum eftir mánuð, og má því fullyrða að liðið sé á réttu róli í æfingadagskránni. Flugleiðamót í handknattleik, Laugardalshöll, laugardaginn 20. ágúst 1988. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 2:1, 2:2, 4:2, 5:3, 7:3, 8:5, 9:6, 10:7, 11:8, 13:8, 14:9 15-10 17:11, 19:12, 19:15, 20:15, 21:16, 22:17, 23:17. Mörk íslands: Kristján Arason 4, Jakob Sigurðsson 4, Þorgils Óttar 4, Sigurður Gunn- arsson 3, Bjarki Sigurðsson 3, Alfreð Gíslason 2, Atli Hilmarsson 2 og Guðmundur Guðmundsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson, 15. Utan vallar: 4 mín. Mörk Tékkóslvakaíu: Bamruk 6, Bajgar 2, Jindrovsky 2, Kotrc 2, Skandik 2, Sovadina 2 og Becvar 1. Varin skot: MichaLBarda, 11. Utan vallar: Aldrei Áhorfendur: 1500 Dómarar: Hofmann og Prause. f byijunarliðinu voru Einar í markinu, Bjarki og Jakob í homun- um, Þorgils Óttar á línunni, og Kristján, Alfreð og Sigurður Gunn- arsson fyrir utan. Geir og Atli tóku svo á sig varnarhlutverkið í stað Sigurðar og Þorgils Óttars, auk þess sem Atli lék einnig í sókninni. Allir stóðu þeir sig mjög vel, og kom mjög góð frammistaða Bjarka í sóknarleiknum skemmtilega á óvart. Þá mæddi mikið á þeim Al- freð og Kristjáni, sem hafa mikil- vægum hlutverkum að gegna bæði í sókn og vöm. Guðmundur Guð- mundsson skipti inná við Jakob, og komust báðir vel frá sínu. Bogdan þjálfari sá ekki ástæðu til að nota þá Sigurð Sveinsson og Karl Þráinsson í leiknum, og Páll Ólafsson nýtti þær fimm mínútur, sem hann spilaði, fremur illa. Einar Þorvarðarson stóð sig mjög vel í markinu; varði á annan tug skota, og þar af eitt mjög vel úr hraðaupphlaupi. Island - Tékkóslavakía 23 : 17 MorgunblaðiÖ/Júlíus Bjarki SigurAsson átti mjög góðan leik gegn Tékkum á laugardaginn. Frammistaða hans kom skemmtilega á óvart og skoraði hann þijú falleg mörk. Hann á hér í höggi við einn Tékkann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.