Morgunblaðið - 23.08.1988, Page 9
B 9
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTTR MUD.JUDAGUK 23. ÁGÚSl' 1988
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD
Erllngur Krlstjánsson, miðvörð-
urinn sterki hjá KA.
KA enn á sigurbraut
Vannyfirburðasigurá Húsavík
KA er líklega það lið er mest
hefur komið á óvart í 1. deild-
inni til þessa því fyrirfram var
liðinu ekki spáð miklum frama.
Annað hefur þó komið á dag-
inn, KA er nú meðal efstu liða
deildarinnar og leikur oft á
tíðum skínandi knattspyrnu
þar sem barátta og leikgleði
eru aðall liðsins. Þetta tvennt
sat einmitt í fyrirrúmi í leiknum
gegn Völsungi og piltarnir ak-
ureyrsku gáfu heimamönnum
ógjarnan færi á að byggja upp
eigin samleik. Þannig fór að
miðvallarleikmenn Völsungs
stóðust kollegum sínum í KA
engan veginn snúning og með
Þorvald Örlygsson og Erling
Kristjánsson í firna formi var
grunnurinn lagður að sigri KA.
Heimamenn byrjuðu þó með
áhlaupi er ekki bar ávöxt en
líklega von um góða tíð. Næstu
mínútur sóttu liðin á víxl og var
Þorvaldur Örlygs-
Magnús son gjaman á bak
Már við sóknarlotur KA
skrífar 0g það kom í hans
hlut að gera fyrsta
mark leiksins. Bjami Jónsson átti
snjalla sendingu inn fyrir vöm Völs-
unga þar sem Þorvaldur kom aðví-
fandi og lyiti knettinum yfir mark-
vörð Völsunga.
Einungis þremur mínútum síðar
vom Akureyringar á hraðferð á ný,
Anthony Karl lék upp og fór mikinn
— sendi knöttinn inn í vítateig Völs-
unga sem ekki voru alveg með á
nótunum því Jón Kristjánsson var
um stund frír og skoraði með þru-
muskoti í þverslána og inn. Þannig
var staðan er flautað var til leikhlés.
KA-menn fóm hamfömm í upp-
hafi síðari hálfleiks, Gauti Laxdal
átti skot rétt utan stangar á fyrstu
mínútu hálfleiksins og skömmu
síðar skomðu Akureyringar sitt
þriðja mark. Öm Viðar tók hom-
spymu, Þorvaldur náði til knattar-
ins og skoraði í bláhomið hjá Har-
aldi Haraldssyni markverði Völs-
unga. Eftir markið kom fjörkippur
í heimamenn, en aðkomupiltar
stöðvuðu öll áform þeirra og gerðu
Þorvaldur Örlygsson og Erl-
ingur Kristjánsson KA.
Morgunblaöiö/Rúnar Þór
Þorvaldur Örlygsson lék vel á Húsavík og skoraði tvívegis.
betur því þeir skomðu fjórða sinni.
Aftur kom markið eftir homspymu
Amars, en nú var það Erlingur er
lék lausum hala og hamraði knött-
inn í netið.
Hjá KA áttu Þorvaldur og Erling-
ur stólpaleik og eins léku Anthony,
Bjami Jónsson og Gauti Laxdal vel
í jöfnu liði KA. Hjá Völsungi var
Bjöm Olgeirsson yfirburðamaður
og eins skilaði Helgi Helgason sínu
að vanda.
Morgunblaöiö/Bjarni
Má ég tylla mér?
Sigurbjöm Jakobsson, vamarmaður Leifturs, gerir sig líklegan til að setjast á
bak félaga s?num Áma Stefánssyni í leiknum á sunnudaginn.
Óli Þór Magnússon og Ragnar
Margeirsson ÍBK. Þorsteinn
Geirsson, Leiftri.
Jón Grétar Jónsson, Val.
Keflvíkingar af
skjálftasvædinu
KEFLVÍKINGAR þokuðust af
„skjálftasvæðinu" í botnbar-
áttunni með sigri á Leiftri í
Keflavfk á sunnudaginn. Staða
Leifturs versnaði að sama
skapi og augljóst að liðið þarf
að bæta sig töluvert til að halda
sæti sínu í deiidinni.
ÆT
Urslitin vom nokkuð sanngjöm
því Keflvíkingar vom meira
með boltann og með heppni hefðu
þeir átt að geta gert út um leikinn
í fyrri hálfleik.
LogiB. Ragnar Margeirs-
Eiðsson son komst til að
skrífar mynda einn í gegn,
en fékk boltann í
höndina og auk þess átti liðið fleiri
góð færi.
Það var þó ekki fyrr en undir lok
fyrri hálfleiks að Keflvíkingar náðu
forystunni. Gestur Gylfason gaf
fyrir mark Leifturs og eftir barning
við markteig datt boltinn fyrir fæt-
ur Daníels Einarssonar sem skoraði
með góðu skoti.
Keflvíkingar byrjuðu vel í síðari
hálfleik og eftir tíu mínútur bætti
Óli Þór Magnússon öðm marki við.
Hann fékk sendingu frá Árna Vil-
hjálmssyni inn fyrir vöm Leifturs
og skaut föstu skoti frá vítateigs-
homi. Þorvaldur Jónsson virtist
hafa boltann, en missti hann undir
sig á klaufalegan hátt. Einu mistök
Þorvaldar í leiknum, en hann lék
mjög vel að öðm leyti. Skömmu
síðar skoraði Óli Þór aftur, með
þrumuskoti af löngu færi, en mark-
ið var dæmt af sökum rangstöðu.
Óli Þór Magnússon og Ragnar
Margeirsson vom sprækir í
framlínu ÍBK, en döluðu að vísu
þegar líða tók á Ieikinn. Þá áttu
Gestur Gylfason og Sigurður Björg-
vinsson góða spretti.
Þorsteinn Geirsson var sprækast-
ur í liði Leifturs og Þorvaldur Jóns-
son átti ágætan leik í markinu ef
ein mistök em undanskylin.
„Ég er vissulega ánægður með
sigurinn. Hann er mikilvægur,"
sagði Frank Upton, þjálfari IBK.
„Við slökuðum svolítið á undir lok-
in, en það kom mér ekki á óvart
því þetta var erfiður leikur og ekki
gott að leika á fullum krafti allan
tímann. Staðan er þokkaleg og ég
er ánægður með liðið,“ sagði Upton.
Síst of stór sigur
- Valsmanna á slökum Þórsurum nyrðra
VALSMENN unnu öruggan, og
mjög svo sanngjarnan sigur, á
liði Þórs á Akureyri á sunnu-
dagskvöldið; sigur sem var síst
of stór.
rátt fyrir þennan stóra sigur
var leikurinn í heild ákaflega
daufur. Hefur lið Þórs ekki leikið
eins illa í langan tíma, og aðeins
■■■■■ með toppleik, hefðu
Stefán þeir átt möguleika (
Arnaldsson firnasterkt lið Vals,
skrífarfrá en Kvj var svo sann_
Akureyri arlega ekki fyrir að
fara hjá þeim í þessum leik.
Fyrri hálfleikurinn bauð ekki upp
á margt, og var lítið fyrir augað.
Valsmenn vom mun meira með
knöttinn og sóttu nær allan hálfleik-
inn, en án vemlegra marktækifæra.
Þeir sem komu næst því að skora
mark í fyrri hálfleik, vora Guð-
mundur Baldursson, Val, og Halldór
Áskelsson, Þór. Guðmundur fékk
góða sendingu inn í teig frá Ing-
vari Guðmundssyni, en Baldvin í
marki Þórs varði vel gott skot hans.
Færi Halldórs var frekar þröngt;
hann og Sævar börðust um knött-
inn, og náði Hálldór að skjóta fram-
hjá í aðþrengdri stöðu.
Jón Grétar frískur
Fyrsta mark Valsmanna kom svo
undir lok fyrri hálfleiks, og var þar
að verki Jón Grétar Jónsson. Hann
fékk góða stungusendingu inn í
vítateig Þórs og lyfti laglega yfir
Baldvin, sem kom vel út á móti.
Jón Grétar var mjög frískur í leikn-
um, og sá eini sem virkilega var
áberandi í liði gestanna.
Seinni mörk Valsmanna komu
svo með mínútu millibili um miðjan
seinni hálfleikinn, og þar með gerðu
þeir út um leikinn. Það fyrra skor-
aði Jón Grétar, eftir góða sendingu
frá Siguijóni, sem gerði það síðara.
Undir lokin fengu Valsmenn svo
tvö kjörin marktækifæri til þess að
auka enn frekar við muninn. Sigur-
jón skaut góðu skoti að Þórsmark-
inu, en Baldvin varði mjög vel, og
síðan átti Guðmundur Baldvinsson
skot hárfínt framhjá.
Yfirburðir Valsmanna á öllum
sviðum knattspymunnar vom mikl-
ir, en heimamenn komu vemlega á
óvart með óvenju lélegum leik. Ein-
ungis Júlíus Tryggvason átti þokka-
legan leik, hinir vom á hælunum
allan tímann.