Morgunblaðið - 23.08.1988, Síða 10
10 B
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988
GOLF / NORÐURLANDAMÓTIÐ A HÓLMSVELLI í LEIRU
Hef aldrei lent í
öðiu eins veðri“
DANIR áttu alla sigurvegarana
á Norðurlandamótinu í golfi
sem lauk á Hólmsvelli í Leiru
á sunnudagskvöldið. Keppend-
ur á mótinu fengu heldur betur
að kynnast andstœðum í veðr-
inu á Suðurnesjum, því að fyrri
keppnisdaginn var norðan
strekkingur, en seinni daginn
snerist vindur til suðaustanátt-
ar með hávaðaroki og rigningu
og þótti jaf nvel íslensku kepp-
endunum nóg um. íslensku
sveitirnar höfnuðu í 3. sæti og
kom góð frammistaða íslensku
stúlknanna á óvart. Sveinn Sig-
urbergsson náði bestum ár-
angri íslensku keppendanna í
einstaklingskeppninni og hafn-
aði í 4. sæti, en í kvennaflokki
varð Karen Sævarsdóttir í 6.
sæti.
Danir og Svíar börðust um verð-
launasætin eins og vænta
mátti og í lokin skildi aðeins eitt
högg sveitimar að í karlaflokki, en
dönsku stúlkumar
Bjöm léku frábærlega vel
Blöndal í rokinu og rigning-
skrífar unni á sunnudaginn
og náðu þá að stinga
sænsku sveitina af. Á síðustu hol-
unni í karlaflokki áttu Svíar góða
möguleika á að ná jöfnu og sigra
þar sem þeir höfðu leikið síðustu
36 holurnar betur en danska sveit-
in, en sænska kylfingnum Stephen
Atako-Lindskog sem varð í 2. sæti
á mótinu mistókst stutt pútt og það
kostaði sigurinn.
Danimir léku á 1549 höggum,
Svíar voru á 1550 höggum, íslenska
sveitin var á 1574 höggum, síðan
komu Norðmenn á 1605 höggum
og lestina ráku Finnar með 1621
högg. Dönsku stúkumar léku á 968
höggum, sænsku stúlkumar voru á
994 höggum, íslensku stúlkumar
voru á 1016 höggum, þær finnsku
voru á 1064 höggum og norsku
stúlkumar sem voru síðastar léku
á 1079 höggum.
Simonson Norðurlandameist-
arl f karlaflokki
„Veðrið var afleitt og byrjunin á
síðasta hringum var einnig afleit,
ég átti 3 högg á næsta mann, en
lék fyrstu holuna á 7 höggum og
missti forskotið niður 1 eitt högg.
En eftir það náði ég mér vel á strik
og það sem skipti sköpum var
hversu mér tókst vel upp í stuttu
innáskotunum og púttum," sagði
Norðurlandameistarinn í karla-
flokki Henrik Simonsen frá Dan-
mörku.
Simonsen lék seinni hringinn frá-
bærlega vel á sunnudaginn þrátt
fyrir slæma byijun og kom inn á
75 höggum sem var besta skor
dagsins. Hann lék á 295 höggum
samtals, Sthephen Atako-Lindskog
frá Svíþjóð var annar á 303 högg-
um, landi hans, Robert Karlsson
varð þriðji á 304 höggum og síðan
kom Sveinn Sigurbergsson á 305
höggum.
„Eg hef leikið fremur illa í sumar
og því kom þessi árangur skemmti-
lega á óvart og ég vona að hann
verði til þess að ég verði valinn í
danska landsliðið sem tekur þátt í
„World Cup“ í Svíþjóð í næsta
mánuði. Veðrið í dag var afleitt,
kuldi rok og rigning, en ég var í
þremur peysum og fann því ekki
fyrir kulda," sagði Henrik Simonsen
ennfremur.
sagði Sveinn Sigurbergsson sem náði bestum
árangri íslensku kylfinganna
iviuiyunuiaoio/cinar raiur
Svelnn Slgurbergsson stóð sig best i tslensku karlasveitinni.
Danska stúlkan Maron Blnau
hlutskörpust í kvennaflokkl
„Sigurinn í dag verður mér
ógleymanlegur og er stærsta stund-
in í lífí mínu“, sagði danska stúlkan
Maren Binau eftir að hún hafði
tryggt sér Norðurlandameistaratit-
ilinn í kvennaflokki. Sigur Binau
var öruggur, hún lék á 316 höggum
og var heilum 10 höggum betri en
sænska stúlkan Pia Wiberg sem
hafnaði í 2. sæti. Karen Sævars-
dóttir varð 6. á 335 höggum. Binau
sagði að minningin um mótið myndi
seint líða sér úr minni, því kuldinn
og rokið seinni keppnisdaginn hefði
verið með ólíkindum og það væri
ákaflega erfítt að leika vel við að-
stæður sem þessar.
Góóur árangur islendinga
íslensku sveitirnar náðu góðum
árangri og sérstaklega er frammi-
staða stúlknanna góð. Þær hafa
hingað til vermt neðsta sætið á
þessu móti, en með góðum keppnis-
anda og baráttu tókst þeim að
skjóta fínsku og norsku stúlkunum
aftur fyrir sig. „Það ríkir sigurandi
í herbúðum okkar og við erum í
sjöunda himni með árangurinn,"
sagði Kristín Pálsdóttir landslið-
seinvaldur eftir mótið. „Stelpurnar
sýndu að þetta er hægt og ég vona
að þessi árangur verði okkur hvatn-
ing til að gera enn betur.“
Sveinn Sigurbergsson náði best-
um árangri íslensku keppendanna
og varð í 4. sæti í einstaklings-
keppninni eftir harða baráttu við
tvo Svía sém urðu í öðru og þriðja
sæti. „Þetta er það versta veður sem
ég hef lent í á golfvellinum", sagði
Sveinn eftir'' að hann hafði lokið
keppni blautur og kaldur eftir 10
tírna keppni.
Úlfar Jónsson varð í 6. sæti og
var vonsvikinn með árangurinn.
Hann byijaði illa fyrri daginn en
náði sér síðan vel á strik eftir fyrri
hringinn á sunnudag og tókst með
því að tryggja sér 6. sætið.
„Það er alltaf gaman þegar vel
ípfémn
FOLK
■ CHRISTIAN Post frá Dan-
mörku náði bestu skori á 18 holun-
um í karlaflokki. Hann lék fyrsta
hringinn á 69 höggum og var lengi
vel með í baráttunni um Norður-
landameistaratitilinn. En á síðasta
hringnum fór allt úrskeiðis hjá
Dananum sem lék á 86 höggum
og hafnaði hann í 5. sæti. Björn
Knútsson átti lakasta skorið í
karlaflokki, hann lék síðasta hring-
inn á 93 höggum, en hafði fram
að því komið verulega áóvart með
góðum leik og var með efstu mönn-
um. Bestu skori á 18 holur hjá
íslenska liðnu var 73 högg sem
Sveinn Sigurbergsson náði.
Morgunblaðiö/Einar Fali
Karon Sœvarsdóttlr stóð sig best í kvennasveitinni. Hér sést hún sækja bolta sinn nii
í eina holuna.