Morgunblaðið - 23.08.1988, Side 11
B 11
MORGUNBLAÐH) IÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988
Morgunblaöið/Björn Blöndal
Sigurður Sigurðsson sést hér slé kúluna é Bsrgvíkurholunnl.
gengur og þetta er besti árangur
íslenska liðsins á Norðurlandamót-
inu til þessa. Á Norðurlandamótun-
um á Grafarholtsvellinum 1974 og
1984 höfnuðu karlaliðin í 4 sæti
sem er okkar besti árangur og
frammistaða stúlknanna núna er
mun betri en búist var við. Einnig
er ánægjulegt að sjá hversu margir
áhorfendur hafa komið til að fylgj-
ast með mótinu," sagði Konráð R.
Bjamason forseti Golfsambands ís-
lands.
Norðurlandamótið hér 1992
Samhliða Norðurlandamótinu fór
fram Norðurlandaþing í golfí og
sagði Konráð að þar hefði verið
samþykkt að Norðurlandamótið
árið 1992 yrði haldið á íslandi í til-
efni af 50 ára afmæli Golfsambands
íslands. Þá hefði verið ákveðið að
hér yrði haldið Norðurlandamót fyr-
ir 18 ára og yngri árið 1991.
Meðal athyglisverðra mála sem
tekin hefðu verið fyrir á þinginu,
sagði Konráð að nefna mætti tillög-
ur um breytingu á orðalagi í reglum
um verðlaun til sigurvegara í mót-
um og að Svíar hefðu boðið hinum
Norðurlöndunum að vera með í að
byggja upp tvo golfvelli á Spáni sem
yrðu notaðir til æfinga yfir vetrar-
mánuðina.
■ Úrslit B/19
Morgunblaðið/Einar Falur
Stephen Atako-Lindskog frá Svíþjóð varð í öðru sæti.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ÚLFAR Jónsson úr GK mun
ekki verða í íslenska landsliðinu í
golfí sem keppir í „World Cup“ í
Svíþjóð í næsta mánuði. Ulfar
stundar sem kunnugt er nám við
bandarískan skóla í Texas og
sagði Úlfar að hann hefði ekki tíma
aflögu námsins vegna að þessu #
sinni til að keppa á mótinu. Mótið
í Svíþjóð er nokkurs konar óopin-
bert heimsmeistaramót áhuga-
manna og oft kennt við fyrrverandi
forseta Bandaríkjanna, Eisen-
hower sem gaf verðlaunabikarinn
sem keppt er um. Landslið íslands
hefur ekki enn verið valið og sagði
Jóhann Benediktsson landslið-
seinvaldur að hann myndi væntan-
lega velja liðið eftir mót á Akur-
eyri sem haldið yrði á næstunni
og hann tæki mið af.
H EIN stúlka úr sænska liðinu,
Kararina Michols, varð að hætta
keppni fyrri dag mótsins eftir að
hún hafði misstigið sig illa. Farið *■
var með sænsku stúlkuna í Sjúkra-
húsið í Keflavík þar sem gert var
að meiðslum hennar. Þau reyndust
ekki alvarleg og hún gat haldið
keppni áfram seinni daginn. Hún
lék 54 holurnar á 254 höggum, 83,
84 og 87 höggum.
■ BESTU skori á 18 holum í
kvennaflokki náði Norðurlanda-
meistarinn frá Danmörku, Maren
Binau. Hún lék fyrsta hringinn á
75 höggum og hún átti einnig næst ’
besta skorið, 78 högg ásamt Piu
Wiberg frá Svíþjóð. Lakasta skor-
ið átti norska stúlkan Vibeke
Stensrud, hún lék fyrri hringinn
seinni keppnisdaginn á 101 höggi.
Karen Sævarsdóttir og Ásgerður
Sverrisdóttir náðu bestu skori í
íslenska liðinu, þær léku fyrstu 18
holumar í mótinu á 79 höggum
hvor.
■ ÞRIR keppendur sem kepptu
fyrir íslands hönd á Norðurlanda-
mótinu á Hólmsvelli í Leiru, þau
Karen Sævarsdóttir, Ragnhildur
Sigurðardóttir og Siguijón Am-
arsson héldu utan til Belgiu í
gærmorgun ásamt Eiríki Guð-
mundssyni úr GR. Þau munu
keppa á „Belgian Open“ sem er
þekkt unglingamót.
i
ir
5ur
„Stúlkumar
stóðu sig vel“
Morgunblaöið/Björn Blöndal
Þrlr fyrrvorandl landslléselnvaldar I golfl fylgdust með mótinu. Björgvin Þorsteinscon er lengst til vinstri,
Kjartan L. Pálsson er fyrir miðju og til hægri er Guðmundur S. Guðmundsson.
Þrír fyrrverandi landsliðsein-
valdar f golfi, þeir Kjartan L.
Pálsson, Guðmundur S. Guð-
mundsson og Björgvin Þor-
steinsson voru mœttir til að
fylgjast með Norðurlanda-
mótinu á Hólmsvelli í Leiru.
Þeir sögðu að árangur
fslenska liðsins hefði verið
mun betri en þeir hefðu búist
við og stúlkurnar hefðu stað-
ið sig sérstaklega vel.
Guðmundur S. Guðmundsson
sagði að veðrið hefði áreið-
anlega sett strik í reikninginn hjá
mörgum erlendu keppendunum
HBBBHHi sem hefðu átt !
Bjöm hinu mesta basli.
Blöndal Björgvin Þor-
s^a' steinsson marg-
faldur íslands-
meistari tók í sama streng og
sagði ákaflega erfitt að leik golf
við aðstæður eins og þær voru á
sunnudaginn.
Kjartan L. Pálsson sagði að
stúlkumar hefðu komið skemmti-
lega á óvart, en karlarnir hefðu
leikið svipað og hann hefði átt von
á. Það hefði sýnt sig að okkur
vantaði meiri breidd í liðið til að
ná betri árangri í sveitakeppni.
En við værum á réttri leið og nú
væri um að gera að halda áfram
að hamra járnið.