Morgunblaðið - 23.08.1988, Side 20
t
2Uwðimt>taíiií>
Barátta
um hvem
bolta
Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrir-
liði Vals, var að vonum ánægð
með úrslitin, en hún tók nú við
fimmta bikamum sem fallið hefur
í skaut liðsins í ár.
„Leikurinn tók mikið mark af
veðri sem kom niður á gæðum
knattspymunnar. Það var barátta
um hvem bolta og lítill friður gefínn
til að byggja upp spil. Opin færi
vom fá og sigurinn hefði þess vegna
getað lent hvom megin sem var,
en reynsla okkar Valsstúlkna vó
þungt,“ sagði Ragnheiður í samtali
við Morgvnblaðið eftir leikinn.
I. L V H
ublttbíh
SigursæK
lið
Valsstúlkumar hafa verið iðn-
ar við að vinna til verðlauna
í ár. Liðið hefur tekið þátt í
fimm mótum það sem af er
og sigrað í þeim öllum.
Kvennalið Vals varð
Reykjavíkurmeistari innan-
húss í vetur og þá sigmðu þær
einnig í Islandsmóti innan-
húss. Stúlkumar urðu síðan
Reykjavíkurmeistarar úti í vor
og þrátt fyrir að enn séu tvær
umferðir eftir í fslandsmótinu,
hafa þær tryggt sér sigur
þar. Punkturinn yfir i-ið var
svo bikarsigurinn á sunnudag
og er óhætt að segja að Logi
Ólafsson hafi náð góðum ár-
angri með lið sitt í ár.
KNATTSPYRNA / BIKARURSLIT KVENNA
Bikarmeistarar Vals 1988:
Morgunblaðiö/Sverrir
Efri röð frá vinstri: Logi Ólafsson þjálfari, Ingibjörg Jónsdóttir, Kristín Briem, Guðrún Sæmundsdóttir, Margrét Óskarsdóttir, Bryndís Valsdóttir, Amey Magnus-
dóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Margrét Bragadóttir, Jón Zoega formaður Vals og Hilmir Elísson.
Neðri röð frá vinstri: Rut, Cora Barker, Sólrún Ástvaldsdóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir fyrirliði, Sigrún NorðQörð, Védís Ármannsdóttir, Magnea Magnús-
dóttir, Sigrún Ásta Sverrisdóttir og Anna Gísladóttir.
Meistarar fimmta árið í röð!
VALSSTÚLKUR unnu það ein-
stæða afrek á sunnudag að
sigra í bikarkeppni KSÍ fimmta
árið í röð er þær lögðu ÍA á
Laugardalsvelli með einu marki
gegn engu. Leikurinn fórfram
á aðalleikvanginum og má
þakka það vasklegri fram-
göngu Valsstúlkna sem sendu
vallarstjóra skriflega beiðni
þess efnis fyrir leikinn. Hvor-
ugt liðið réð þó við veðrið sem
setti mikinn svip á leikinn. Kalt
var í lofti og mikið rok sem oft
á tíðum hafði meira að segja
um ferðir knattarins heldur en
spyrnur leikmanna. Mikil bar-
átta einkenndi spilið eins og
vera ber í úrslitaleikjum og
höfðu Skagastúlkurnaryfir-
höndina þar þrátt fyrir að Valur
hrósaði sigri þegar upp var
staðið.
Valsliðið byrjaði betur þrátt fyr-
ir að leika á móti sterkum vind-
inum í fyrri hálfleik. Skagastúlk-
umar komust smám saman betur
inn í leikinn og sóttu
Katrín sig sífellt. Þær áttu
Friöriksen besta færi hálfleiks-
skrifar ins, og raunar það
eina umtalsverða,
þegar Jónína Víglundsdóttir skaut
hörkuskoti að marki Vals af víta-
teig. Þar sáu margir knöttinn inni,
en Sigrún NorðQörð markvörður
Vals sló hann með tilþrifum yfír
þverslá.
Síðari hálfleikur var öllu fjörugri
en sá fyrri. Ingibjörg Jónsdóttir
komst í gott færi er hún óð upp
kantinn og skaut af stuttu færi
eftir að hafa leikið á vamarmann
ÍA. Steindóra Steinsdóttir í Skaga-
markinu sá við henni og varði vel.
Nokkm síðar skapaðist mikil hætta
við Valsmarkið eftir hornspymu
Magneu Guðlaugsdóttur. Mikil
þvaga myndaðist í teignum og Sigr-
ún markmaður lá í valnum eftir að
hafa freistað úthlaups. Jónína skaut
að tómu markinu, en einum vamar-
manna Vals tókst að nikka boltan-
um yfir markið.
Slæm vamarmistök
Á 62. mínútu kom svo úrslita-
mark leiksins. Góðri sókn Vals lauk
með því að Ingibjörg sendi laglega
sendingu á stöllu sína Bryndísi
Valsdóttur sem var ein og óvölduð
eftir slæm vamarmistök. Bry'ndís
renndi knettinum ömgglega í netið
fram hjá Steindóru sem ekki átti
möguleika á að veija, enda færið
stutt.
Þar með vom úrslitin ráðin því
mörkin urðu ekki fleiri. Valsstúlkur
sigmðu í baráttuleik þar sem sigur-
inn hefði auðveldlega getað lent
hvom megin sem var. Sigurliðið
hefur oft sýnt betri knattspyrnu en
það gerði í þessum leik og þegar
upp er staðið er ekki ólíklegt að
reynsla Valsstúlkna í úrslitaleik
sem þessum hafí skipt meginmáli.
Skagaliðið er ungt að ámm og
leikmenn þess eiga framtíðina fyrir
sér. Halldóra Gylfadóttir var lang-
best í liði þeirra og vann geysilega
vel.
I LOTTÓ: 3 10 23 28 30
Áhorfendur
Þrátt fyrir leiðindaveður á meðan
á leiknum stóð var fjöldi manns
samankominn til þess að fylgjast
með stúlkunum spila. Það hafði
greinilega áhrif að leikurinn var á
aðalleikvanginum og vel fór um
áhorfendur í stúkunni.
Skagamenn Qölmenntu að venju og
hvöttu sitt lið óspart áfram. Þá létu
stuðningsmenn Vals ekki sitt eftir
liggja.
Sáttar
þegar
upper
staðið
Fyrir okkur er sigur að komast
svona langt í keppninni sem
raun ber vitni," sagði Halldóra
Gylfadóttir, fyrirliði ÍA í spjalli við
Morgunblaðið eftir leikinn. „Við
emm með ungt og óreynt lið og
engum datt í hug að við myndum
ná svona langt. Við byijuðum illa
í leiknum en sóttum okkur stöðugt
og áttum okkar færi alveg til jafns
við Val en þær höfðu reynsluna
með sér.
Þetta er búið og nú einbeitum
við okkur að því að ná öðm sætinu
í deildinni," sagði Halldóra.