Morgunblaðið - 11.09.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Flugið hefur löngum heillað unga pilta ogþessir litlu Suðurnesjamenn
notuðu tækifærið um helgina til að skoða heimaslóðirnar úr lofti.
Vaxtasneið
Afmæll sreikningsins
er heil kaka
út af fyrir sig
Afmælisreikningur er sterkur reikningur sem upphaflega var stofnaður
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans 1986 og var aðeins opinn út afmælisárið.
s Reikningurinn öðlaðist skjótt miklar vinsældir og hefur
| nú verið opnaður á ný. Afmælisreikningur er að fullu verðtryggður og gefur
1 að auki fasta 7,25% ársvexti allan binditímann sem er aðeins 15 mánuðir.
g Hann hentar því mjög vel til almennra
| tímabundinna nota og er L3nClSDdnKl
| auk þess kjörin afmælisgjöf. Mk Islands
S Banki allra landsmanna
Suðurnes:
Buðu upp
á ódýrt út-
sýnisflug
Keflavik.
Suðurnesjamönnum ' gafst
kostur á að skoða heimabyggð
sína úr lofti um síðustu helgi á
vegum flugfélagsins Suðurflugs
á Keflavíkurflugvelli. Fjöldi
manns á öilum aldri nýtti sér
þetta tækifæri og voru tvær vél-
ar á stöðugum þönum bæði á
laugardag og sunnudag og höfðu
margir farþeganna aldrei séð
Garðskagann úr lofti fyrr. Verð-
inu var stiUt i hóf og kostaði
ferðin 500 krónur á manninn.
„Við vildum vekja athygli Suður-
nesjamanna á starfsemi okkar og
buðum þeim af því tileftii í ódýrt
útsýnisflug," sagði Einar Guð-
mundsson flugmaður og flugkenn-
ari hjá Suðurflugi. Einar sagði að
félagið réði yfir tveim litlum vélum
og sinnti tilfallandi verkefnum eins
og leigu, kennslu, útsýnis- eða aug-
lýsingaflugi. „Við erum þrír sem
stöndum að Suðurflugi og erum
allir í fastri vinnu, flugrekstarstjóri
er Magnús Helgason flugmaður hjá
Amarflugi og Erlendur Friðriksson
starfsmaður hjá Sólningu í Njarðvík
hefur umsjón með tækjum og vélum
á jörðu niðri," sagði Einar sem
starfar sem slökkviliðsmaður á
Keflavíkurflugvelli.
Suðurflug hefur aðstöðu á Kefla-
víkurflugvelli, en hefur ekki fengið
að byggja flugskýli fyrir vélar sínar
og hafa þeir félagar oft lent í erfíð-
leikum með vélar sínar í illviðrum.
Hafa þeir orðið að grípa til þess
ráðs að fljúga vélunum í aðra lands-
hluta til geymslu yfir vetrarmánuð-
ina. Einar sagði að nú virtist lausn
í augsýn og félagið fengið vilyrði
fyrir aðstöðu við flugstöð Leifs
Eiríkssonar sem myndi væntanlega
gerbreyta allri starfsemi Suðurflugs
í framtíðinni.
- BB
-*■
Haiti:
Miklu smyglað
af eiturlyfjum
Port-au-Prince, Haiti. Reuter.
ÓVENJU mikið magn af eitur-
lyfjum hefur verið gert upptækt
á Haiti síðustu tvo mánuði. Um
síðustu helgi fundust 745 kíló af
kókaini um borð í einu skipi.
Þetta er mesta magn eiturlyfja
sem yfírvöld þar hafa náð í einu
lagi. Ahöfn bátsins, fjórir menn, og
annar eigandi hans voru handteknir
en hinn eigandinn býr á Miami, að
sögn yfírmanns fíkniefnadeildar
lögreglunnar á Haiti. Á tveimur
mánuðum hefur yfír eitt tonn af
eiturlyfjum verið gert upptækt og
þar hafa þrír bátar komið við sögu.