Morgunblaðið - 11.09.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.09.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988 Skotveiðar ern mjög vinsælt áhugamál Rœtt við Agnar Guðjónsson, formann Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis SKOTVEIÐAR eru áhugamál sem á mjög vaxandi vinsældum að fagna meðal höfuðborgarbúa. Fjöldi fólks æfir skotfimi sína reglulega á sérstökum æfingavöllum og margir leggja sem oftast leið sína út fyrir borgina með byssu að vopni í von um rjúpu eða gæs. Blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti æfíngasvæði Skotveiðifélags Reykjavíkur ognágrennis (Skotreyn) fyrir stuttu og ræddi við formann félagsins, Agnar Guðjónsson. Frá hinu nýja æfingasvæði félagsins i Óbrynnishólum. Að sögn Agnars er Sko- treyn deild innan Skota- veiðifélags Islands. Slíkar deildir eru starf- andi víða um land, til dæmis í Grundarfirði. „Þetta er veiðifélag en ekki íþróttafélag eins og skotfélögin sem starfrækt eru í Reykjavík og víðar. Skotfélag Reykjavíkur er dæmi um íþróttafélag og það fær styrki frá Iþróttasambandi íslands. Við fáum enga slíka styrki." Tíu ára afmæli Skotveiðifélag íslands á tiu ára afmæli í september og verður hald- ið upp á það helgina 24. og 25. september. Vetrarstarfsemi félags- ins er þegar komin i gang. „Vetrarstarfsemin hófst 10. ágúst á kynningu á nýju æfinga- svæði og nýjum hugmyndum um samvinnu milli veiðimanna og bænda. Þar er um að ræða tilrauna- samstarf á milli Skotveiðifélags ís- lands og Dalamanna um að skot- veiðimenn fái að nýta hús sem lax- veiðimenn nota á sumrin. Skotveiði- menn munu fá að veiða endur- gjaldslaust á landareignum bænda en í staðinn greiða þeir fyrir fæði og húsnajði í laxveiðihúsunum. Það hefur alltaf verið viss rígur á milli veiðimanna og bænda og því er samvinna af þessu tæi ný af nálinni og stórsniðug." Agnar segir vetrarstarfsemi fé- lagsins felast fyrst og fremst f nám- skeiðahaldi og fræðslufundum. „Þegar er búið að halda fræðslu- fund um hreindýraveiðar og fræðslufund og námskeið fyrir byij- endur um gæsaveiðar. f vetur fram að áramótum verða einnig fræðslu- fundir um gæsa- og ijúpnaveiðar, veiðihunda, landrétt og veiðirétt. Að meðaltali höfum við tvö fræðslukvöld í mánuði og fyrirlesar- ar eru alltaf íslendingar með mikla reynslu á sínum sviðum. Eftir ára- mót verða námskeið í að hlaða skot og í viðhaldi og hirðu á byssum. Þá verða einnig fræðslufundir um minka- og refaveiðar." Konum fer fjölgandi Um þessar mundir er verið að opna nýtt æfingasvæði í Óbiynnis- hólum í Hafnarfirði. Skotreyn á svæðið að hálfu á móti Skotfélagi Hafnarfjarðar. „Þetta er eingöngu útisvæði og ætlað til æfinga fyrir félagsmenn. Félagið á sjálft engin vopn til að lána út enda er slfkt bannað með lögum. Félagar koma því með eigin byssur og æfa sig. Skotveiðar eru mjög vinsælt áhugamál og í mikilii sókn einmitt nú. Um áramót voru félagar í Skot- reyn 340 en í sumar hafa 40 nýir félagar látið skrá sig. Félagsmenn eru fólk úr öllum stéttum þjóðfé- lagsins. Konur eru fáar en þeim fer þó fjölgandi. Það stendur jafnvel til að stofna sérstaka kvennadeild innan félagsins fyrir þær sem það vilja." Agnar segir það ekki skilyrði fyrir inntöku nýrra félagsmanna að þeir hafi byssuleyfi. „Menn geta mætt á fundi og kynnt sér starfsemina án þess að hafa byssuleyfi. Þegar að því kemur að menn vilja fá byssuleyfi þurfa ýmis skilyrði að vera uppfyllt. Við- komandi þarf að vera orðinn 20 ára og hafa hreint sakavottorð. Að loknu tveggja kvölda námskeiði hjá lögreglunni fær umsækjandi byssu- leyfi til eins árs sem veitir honum rétt til að eiga lítinn riffil eða hagla- byssu. Eftir árið getur viðkomandi sótt um fullgilt by8suleyfí sem veit- ir honum rétt til að eiga stóran riff- il og sjálfvirka haglabyssu." Rifflar hafa stórt hættusvið Agnar segir suma félagsmenn Von á sérsfcakri kastvélfyrir byijendur ÆFINGAS VÆÐI Skotveiðifé- lags Rcykjavíkur og nágrennis í Óbrynnishólum er með sama sniði og áþekk svæði erlendis. Tvær kastvélar, sin i hvorum enda æfingasvæðisins, marka jaðar æfingahringsins. Sex þátttakendur eru í hverri æfingu og einn æfingastjóri sem stjómar kastvélunum og gefur góð ráð. Kastvélamar þeyta úr sér leirdúfum á 65 km hraða og markmiðið er að hæfa sem flestar af þessum leirdúfum. Stundum sendir aðeins önnur vélin frá sér dúfu, stundum einungis hin og stundum báðar í einu. Á æfingahringnum eru sex merktir skotstaðir. Eftir að allir hafa reynt hittni sína á einum stað er farið að þeim næsta sem reynir á aðrar hreyfingar og við- brögð. Eigum sinn hvora byssuna Pétur H. Georgsson og Markús HaUgrímsson eru báðir félagar í Skotreyn. Þeir eru báðir miklir áhugamenn um skotveiði, hafa stundað Veiðar í nokkur ár og gengu í félagið í sumar. „Við höfum stundað veiðar í nokkur ár en þetta er í fyrsta Pétur H. Georgsson (t.v.) og Markús Hallgríms- son. Ónnur kastvélin er staðsett i kofanum á myndinni. Æfingastjóri fjarstýrir vélinni og sendir leirdúfu út um op kofans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.