Morgunblaðið - 11.09.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
53
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ráðskona
óskast á heimili í Laugarneshverfi. Vinnutími
frá kl. 12.00-19.00, mánudag til föstudags.
í heimili eru hjón, bæði útivinnandi, og 5 ára
barn. Starfið er umönnun barnsins, hádegis-
verður fyrir það, þvottar og hreingerningar.
Við leitum að barngóðri manneskju, 20-30
ára, sem er barnlaus og getur bundið sig í
að minnsta kosti eitt ár.
Umsóknir sendist í pósthólf 622, 121
Reykjavík, fyrir laugardag.
Landspítali
Starfsmenn óskast nú þegar til starfa við
ræstingar. Starfstími og starfshlutfall sam-
komulagsatriði.
Nánari upplýsingar veita ræstingastjórar í
síma 601530.
RIKISSPITALAR
LANDSPÍTALINN
Sunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Sími 45550
Starfsfólk
Sjúkraliðar og aðstoðarfólk óskast til starfa
í Sunnuhlíð sem fyrst. Barnaheimili er á
staðnum.
Nánari upplýsingar í síma 604163.
Hjúkrunarforstjóri.
Reykjavík
Óskum eftir handavinnuleiðbeinanda.
Æskilegt er að viðkomandi hafi nokkra þekk-
ingu á slíku starfi.
Upplýsingar veitir Margrét í síma 689500 frá
kl. 11.00-15.00.
REYKJMIÍKURBORG
Aomaox St&dwi
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir starfsfólki við heilsugæslustöðvar
í Reykjavík sem hér segir:
Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis
Sjúkraliði í 50% starf.
Heilsugæslustöð Miðbæjar
Læknaritari/læknafulltrúi í 50% starf.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu fram-
kvæmdastjóra heilsugæslustöðva í síma
22400.
Umsóknir skulu sendar Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur, á eyðublöðum sem þar fást,
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 19. september
1988.
Fiskeldi
- stöðvarstjóri
Fiskeldisstöð, sem hvílir á traustum grunni,
leitar að stöðvarstjóra. Stöðin er á Norður-
landi og hefur verið í rekstri í nokkur ár.
Óskað er eftir manni með þekkingu og
reynslu í fiskeldi.
Nýtt íbúðarhús á staðnum.
Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl. fyrir
1. október merktar: „Fiskeldi - 2262“.
Nýja sendibílastöðin
óskar að ráða starfskraft til símavörslu og
afgreiðslustarfa strax. Vinnutími er frá kl.
13.00-19.00 virka daga.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni eða í síma
68-5000.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Droplaugarstaðir
heimili aldraðra, Snorrabraut 58.
Starfsfólk óskast í eftirtalin störf:
Hjúkrunarfræðingar á allar vaktir. Allskonar
vaktamunstur koma til greina. Á 60% nætur-
vaktir eru greidd deildarstjóralaun.
Starfsfólk við ræstingu á hjúkrunardeild,
75% vinna.
Einnig vantar í eldhús um helgar. Vaktir frá
kl. 16-20. Upplagt fyrir skólastúlkur.
Hvernig væri að koma og skoða og kynna
ykkur stofnunina.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25811 milli kl. 9-12 f.h. virka daga.
Bergfræðingur
-jarðfræðingur
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
óskar eftir jarðfræðingi, helst með sérmennt-
un á sviði bergfræði, til starfa.
Starfið felst í smásjárrannsóknum á bergi
og steinsteypu, og öðrum efnisfræðilegum
rannsóknum og prófunum innan stofnunar-
innar. Endanlegt starfssvið ræðst m.a. af
menntun og reynslu viðkomandi.
Tæki til að sinna rannsóknunum eru innan
stofnunarinnar og á systurstofnunum á
Keldnaholti, þar með taldar bergfræðismásjá
og rafeindasmásjá.
Ráðið verður í starfið til þriggja ára minnst.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf í haust,
en til greina kemur ráðning síðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir
Helgason, jarðfræðingur, í síma 83200 eða
á staðnum. Senda skal skriflega umsókn,
þar sem fram komi menntun, starfsreynsla
o.fl., auk nafna umsagnaraðila.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október
1988, og verður umsóknum svarað fyrir
1. nóvember nk.
Kranamaður
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars vill ráða
vanan kranamann á byggingakrana (pinna-
krana). Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 20812.
Tækniteiknari
óskast til starfa á Vinnustofu arkitekta,
Skólavörðustíg 12.
Upplýsingar veittar mánudaga til föstudaga
milli kl. 16.00 og 18.00, sími 26999.
Frá Æfingaskóla
Kennaraháskóla íslands
Sérkennara vantar að skólanum skólaárið
1988-1989.
Upplýsingar veitir skólastjóri á skrifstofu
skólans, sími 91-84566.
Skólastjóri.
Hlutastarf
Starfsfólk vantar til pökkunar á fiski til út-
flutnings. Um er að ræða 2-4 daga í viku.
Þarf að geta hafið störf strax.
Upplýsingar í síma 680700.
BESSASTAÐAHREPPUR
SKRIFSTOFA. BJARNASTÖÐUM SÍMI: 51950
221 BESSASTAÐAHREPPUR
Bessastaðahreppur
auglýsir eftir starfsmanni til starfa við heimil-
ishjálp. Ath. að vinnutími er sveigjanlegur.
Upplýsingar á skrifstofu Bessastaðahrepps,
Bjarnastöðum, sími 51950.
Félagsmálaráð.
Rafvirkjar
Rafsól sf. óskar eftir rafvirkjum til starfa.á
Rey kja víku rsvæð i n u.
Unnið er bæði í uppmælingu og tímavinnu.
Aðeins vanir menn koma til greina.
Vinsamlegast leggið inn upplýsingar um nafn
og fyrri störf á auglýsingadeild Mbl. fyrir 18.
sept. nk. merkt: „Rafsól - 4743“.
Öllum umsóknum verður svarað.
t
fíannsóknastofnun
byggingariðnaðarins
Keldnaholti — Reykjavlk
Landspítali
Kvenlækningadeild
Sérfræðingar
Lausar eru til umsóknar stöður sérfræðinga
í kvensjúkdómum við kvenlækningadeild
Landspítalans. Um er að ræða afleysinga-
stöður, starfshlutfall 50-70%.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist Stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir 1.
október nk.
Upplýsingar veitir Gunnlaugur Snædal, pröf-
essor, í síma 601180. '
RÍKISSPÍTALAR
LANDSPÍTALINN