Morgunblaðið - 11.09.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
Laxveiðin
mast hvargóo
eoaágw
Laxveiðin á stöng hefur verið víða ágæt í sumar og í heild
séð gæti þetta orðið með betri veiðisumrum. Nokkrar ár hafa
skilað metveiði, en undantekningarnar hafa verið nokkrar og
vekur þá kannski hvað mesta athygli, að landshlutar haldast
ekki í hendur. Þannig var dauf veiði f flestum Borgarfjarðarán-
mn, en frábær veiði í einni þeirra, Grímsá, auk þess sem ámar
í næsta nágrenni reyndust afar vel. Ámar á Norðurlandi gáfu
yfirleitt vel og sumar rokafia og á Norðausturlandi var veiðin
góð, en greinilega byrjuð að dala frá síðustu tveimur summm
F.v. Erró, Garðar H.Svavarsson og Bjöm Theodórsson með vænan lax við Bjamar-
hyl i Selá.
er veiðin var þar í hámarki.
Morgunblaðið/S. Morgunblaðið/hg.
Lirim tekur til sinna ráða f Steinbogafijóti í Haukadalsá. Laxi landað f Skriðufljóti á efsta svæðinu í Langá.
Suðvesturlandið.
Á Suðvesturlandi bar mest á
Laxá í Kjós, enda var þar sett
nýtt og giæsilegt íslandsmet f
stangarveiði. Þar komu um 3900
laxar á land og var enn af miklu
að taka f lok veiðitíma. Ótrúleg
mergð af laxi gekk f ána og voru
nýjar göngur að skila sér fram á
lokadag. Annað eins muna menn
ekki, enda veiðin eftir því. Elliða-
ámar laumuðust yfir 2000 laxa
og voru alveg við metveiði (2071
lax sumarið 1975) og þegar þetta
er ritað gæti svo farið að Leir-
vogsá skili 1000 löxum og er það
ótrúleg veiði þar sem dagstan-
gimar í Leirvogsá eru aðeins tvær
auk þess sem veiðitfminn er styttri
en í hinum ánum, eða frá 25. júní.
í Korpu hefur veiðin og verið stór-
góð og talan 600 var nefnd eigi
alls fyrir löngu. Þar eru stangim-
ar einnig tvær.
Vesturland.
Ýmsar ár á Vesturlandi gáfu
mokveiði. Grímsá f Borgarfirði var
með um 2000 laxa er þetta er
ritað á föstudegi og þar stefnir í
metveiði (2116 1975), þvf veitt
er til 17. september og mikill lax
í ánni. Veiðin f hinum „stóru"
Borgarfjarðaránum Þverá og
Norðurá var að sama skapi dauf.
Þverá ásamt Kjarrá gaf aðeins
um 1600 laxa, en áin átti einmitt
metveiðina sem Laxá í Kjós fór
fram úr, 3558 laxa sumarið 1979.
Norðurá rétt skreið yfir 1300 laxa
og vom vonbrigði með það tölu-
verð. Hafa verður f huga, að allar
sumartölur sem hér birtast á eftir
að ffnpússa nokkuð, þar sem
víðast hvar á eftir að fara í gegn
um veiðiskýrslur og skjalfæra
nákvæmlega úr þeim. í orgarfirði
má einnig geta Flóku með um 250
laxa sem þykir slakt, Gljúfurá
með um 190 stykki, einnig slakt
og Andakílsá með um 180 til 190
stykki sem er þokkalegt f þeirri
veiðistöð.
Aðrar ár f þessum landshluta hafa
yfirleitt verið mjög góðar, t.d.
Laxá f Leirársveit með um 1900
laxa og nærri meti er þetta er
ritað, Laxá f Dölum komin yfir
2000 laxa sem er metveiði og
Haukadalsá einnig komin með
metveiði, sfðast er fréttist voru
komnir um 1200 laxar ur ánni.
Langá á Mýrum var komin í rúma
1400 laxa sem er þokkalegt, en
/
veiðin þar á Fjallinu betri en í
möig herrans ár. Hafffjarðará
nálgaðist fjögurra stafa tölu
sfðast er fréttist, en hennar met
er 1131 lax 1986. Þá var Fáskrúð
við met með 450 laxa.
Norðurland.
Veiðisælasta laxveiðiá Norð-
lendinga, Laxá á Ásum, brást
ekki vinum sínum, áin gaf um
1800 laxa á tvær stangir, eða að
jafnaði 900 laxa á hvora stöng á
9Q daga veiðitímabili. Víðidalsá
var komin með rétt um eða yfír
2000 laxa sfðast er fréttist og er
það metveiði, en mest höfðu veiðst
þar áður 1948 laxar sumarið
1979. Þá hefur verið rífandi veiði
í Miðfiarðará og hún búin að rjúfa
2000 laxa múrinn. Þar verður þó
ekki metveiði, því 1977 veiddust
þar 2581 lax. Á móti þessu stóð
Vatnsdalsá með furðu slaka veiði
í sumar, eða aðeins milli 1200 og
1300 físka eftir því sem komist
verður næst. Þar var raunar mik-
ill lax, en eitthvað olli því að hann
gekk treglega og seint upp úr
Flóðinu og veiðinni þvf mjög mis-
skipt á milli svæða í ánni. Mest
veiddist því neðst. Laxá f Aðaldal
var mjög erfíð í sumar, gaf reynd-
ar nokkuð vel yfir 2000 laxa,
hejnst hefur talan 2200 til 2300,
Morgunblaðið/hb.
Björn G. Jónsson á Laxamýri
með fyrstu laxana sem veiddust
í Laxá í Aðaldal á þessu sumri.
en langvarandi hvassviðri, leirlos
í Mývatni og fiskifæð á köflum
stóð veiði fyrir þrifum. Ein af
minni ánum sem er allrar athygli
verð er Hrútan með um 500 laxa.
Norðausturlandið.
Ámar í Þistilfírði voru yfírleitt
með bærilega veiði þótt þar sé
daufara en í fyrra. Selá og Hofsá
fóru báðar í fjögurra stafa tölur,
en fregnir herma að heldur lftið
sé eftir af laxi í ánum, gagnstætt
síðasta sumri er hver hylur var
vel skipaður. Og laxinn er ekki
eins vænn að jafnaði og í fyrra.
Suðurlandið.
Laxveiði á stöng á Suðurlandi
snýst einkum um Olfusár/Hvítár-
svæðið og í heild hefur veiðin
verið léleg. Sumir staðir þó góðir,
eins og t.d. Sogið sem hafði gefið
um 600 laxa sem er besta veiði
þar síðan 1978. Þá var Selfoss-
svæðið f Ölfusá aflasælt, en önnur
svæði voru heldur f daufari kant-
inum, eins og t.d. Langholtið,
snæfoksstaðimir og Gíslastaðir.
Stóra Laxá var sérkapítuli. Þar
var fjórða ördeyðusumarið í röð
og það dauðasta af þeim öllum.
Nýlegar tölur herma að heildar-
veiðin í sumar sé vart yfir 60 lax-
ar og kunnugir menn sem fóra
um svæði eitt og tvö fyrir örfáum
dögum, sáu alls þrjár bleikjur!
Ekki einn einasta lax.
Laxinn sinár.
Þetta var smálaxasumar og það
svo um munaði. Víða var mjög
lítið af tveggja ára fiski úr sjó og
þaðan af stærri laxi sem reyndar
er alltaf fáliðaður. Vatnsdalsá var
kannski slökust þeirra „stóra“
fyrir norðan, en hún skilaði samt
stærsta laxi sumarsins, 27 punda
laxi sem Bandarílqamaður tók á
flugu í Hnausastreng. Laxá f
Aðaldal var með tvo 26 punda
laxa, annan opnunardaginn í Ki-
stukvísl og hinn seinna á Nesveið-
unum. Bæði Vatnsdalsá og Víði-
dalsá vora að vepju með nokkuð
af 22 til 24 punda boltum og slíkir
fiskar veiddust einnig í Laxá í
Dölum. 24 punda lax veiddist í
Langholti í Hvítá og 23 pundari
í Sandá í Þistilfirði. 22 punda lax-
ar veiddust svo sem víðar, t. d. í
Selá í Vopnafirði og f Snæfoks-
stöðum í Hvítá og Stóra Laxá gaf
einn 21,5 punda. 20 punda l^xar
veiddust svo í nær öllum fram-
greindu veiðistöðunum og að auki
S Hrútafjarðará, Miðfjarðará,
Þverá, Laxá í Kjós, Haffjarðará
og sennilega víðar. En þeir stóra
voru miklu færri nú en t.d. tvö
síðustu sumur. Meðalvigtin er í
lægri kantinum í sumar.