Morgunblaðið - 11.09.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNtJDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
>
Þorbjörg Daníelsdóttir
Dagleg sálusorgun
Námskeið í september
Hjartað eitt þekkir kvöl sína,
og jafnvel í gleði þess getur eng-
inn annar blandað sér, stendur í
Orðskviðunum, 14.10. Iðulega hef
ég velt þessum orðum fyrir mér
og fór enn að íhuga þau þegar
ég sá hinn ágæta þátt í sjón-
varpinu, þar sem fólk var svo vin-
samlegt að segja frá kvöl hjarta
síns og hvemig það gat sefað
hana að lokum.
Mér finnst það mikil vinsemd
að segja frá þessu vegna þess að
það er áreiðanlegt að allar mann-
eskjur þurfa á því að halda. Allir
þekkja kvöl hjartans og hún getur
borið alla ofurliði.
í sumar sótti ég kristilegt
kvennaþing, sem var haldið undir
hógværri en öruggri leiðsögn
góðra stjómenda. Margar konur,
sem stjóma svona þingum, hafa
einstakt lag á að stjóma þeim án
þess að það sjáist eiginlega að þær
em að stjóma. Mér fínnst þetta
nýr stíll, sem ég hef reyndar séð
nokkuð lengi í kirkjunni. Og mér
þótti það enn nýr og góður þáttur
í þessum stíl þegar ein þessara
kvenna sagði frá sinni eigin
lífsreynslu sem þætti í biblíulestri
einnar morgunstundarinnar.
„Ifyrir tveimur árum,“ sagði
hún, „var ég algjörlega vegvillt.
Ég er bam kristniboða og eins
og svo mörg þeirra átti ég heima
alls staðar og hvergi. Eg átti
hvergi rætur. Það fór svo að ég
gat ekki lengur ráðið við starf
mitt og dagjegt Iíf. En þá Ieitaði
ég hjálpar. Ég fékk hjálp og núna
hef ég aftur náð tökum á lífi mínu,
á sjálfri mér, og mér líður vel.
Ég held að við verðum öll vegvillt
einhvem tíma. Ég held að við fínn-
um það öll stundum að við skiljum
ekki sjálf okkur lengur. Innra með
okkur hrópa raddir, sem við skilj-
um ekki. En látum þær hrópa.
Þöggum ekki niður í þeim. Látum
þær hrópa þangað til þær þagna.
Þá fínnum við svörin af því að
þá fínnum við Guð.“
Hún tók gamflóka upp úr tösku
sinni, marglitan og margflókinn.
Fyrst dró hún svarta þræði út úr
flækjunni, svo græna, gula, rauða
og bláa. „Svona var það,“ sagði
hún, „þegar ég leitaði hjálpar til
að skilja sjálfa mig. Ffyrst drógum
við fram svörtu þræðina og þá
gat ég farið að draga svo marga
fallega liti fram úr mínum eigin
huga."
Hjartað eitt þekkir kvöl sína.
Samt er það svo að við þekkjum
ekki alltaf kvöl okkar. Við fínnum
til en vitum ekki nægilega hvers
vegna og getum þess vegna ekki
læknað kvöl okkar. Enginn ætti
að vera einn með kvöl sína. Og
enginn ætti að láta eins og hún
sé ekki til. Það er hægt að leita
til annarra. Og það er óhætt. „Ját-
ið syndir ykkar hvert fyrir öðru
og biðrjið hvert fyrir öðru til þess
að þið verðið heil,“ segir í Jakobs-
bréfí 5.16. Talið saman af ein-
lægni, það læknar ykkur. Það
þarf stundum að leita til þeirra,
sem leggja sérstaka stund á lækn-
ingu hugans, sálusorgun, hjálp í
andlegum veikindum. En langflest
fólk bæði þiggur og gefur slíka
hjálp á hveijum degi. Mikil um-
hyggja gengur frá manni til
manns í daglegu annríki, svarar
mörgum spumingum og aftrar
mörgum frá því að missa tök á
sjálfum sér. Og ef erfíðleikamir
verða enn meiri er einhveiju
þeirra treystandi til að fínna frek-
ari hjálp. Tölum saman um erfíð-
leikana, biðjum hvert fyrir öðru.
Bænin megnar mikið.
Septembermánuður er ævin-
lega mánuður undirbúningsins
undir vetrarstarfíð í kirkjunni.
Tvö námskeið em nú á döfínni
svo sem hér segir:
Fermingarnámskeið í
Norræna húsinu'
Fermingarstarfanefnd og Nor-
ræna húsið standa fyrir námskeiði
um fermingarfræðslu í Norræna
húsinu dagana 12. til 14. septem-
ber. Námskeiðið er haldið sem
framhald af könnun fermingar-
starfanefndar á fermingarstörf-
unum og umræðunni í Presta-
stefnu. Megináherzla verður á
kennslufræði fermingarstarf-
anna, námsefni og námskrárgerð.
Norðmaðurinn Finn Wagle
verður aðalfyrirlesari en sérfræð-
ingar í uppeldis- og kennslumál-
um frá Kennaraháskóla íslands
halda iíka fyrirlestra. Þau em dr.
Wolfgang Edelstein og Erla
Kristjánsdóttir lektor. Séra Sig-
urður Pálsson heldur einn af aðal-
fyrirlestmm námskeiðsins og
fleiri prestar skýra frá gerð og
kennslu fermingarefnis.
Ábendingar til kirkjustjómar
verða samdar um æskilega fram-
vindu námskrár- og námsefnis-
gerðar. Þátttöku þarf að tilkynna
fyrir 8. september.
Baruastarfsnámskeið í
Skálholti og að Löngumýri
Námskeið fyrir starfsfólk í
bamastarfí verður í Skálholti 16.
til 18. október. Þar verður nýtt
bamaefni kynnt, hjálpargögn og
nýir söngvar. Þetta sama nám-
skeið verður haldið að Löngumýri
8. til 9. október. Námskeiðið er
haldið á vegum æskulýðsstarfsins
undir forystu æskulýðsfulltrúans,
séra Torfa Hjaltalíns Stefánsson-
ar, og hans ágæta starfsliðs.
Að utan
Frá námskeiðinu um æskuiýðsstörf í Skálholti í fyrrahaust. Fólk lærir nýjar aðferðir í starfinu,
hittist og lærir hvert af öðru, uppörvast fyrir vetrarstarfið og hleðst orku.
Ráð undir rifi hveiju
í æskulýðsstarfinu
um að fá einhveija til að spila
á hljóðfæri.
Merki og kjörorð 8.
heimsþings Lúterska
heimssambandsins
Stjómamefnd Lúterska heims-
sambandsins hefur valið tákn
Lútersku kirkjunnar í Brasilíu
merki 8. heimsþings Lúterska
heimssambandsins. Þingið verður
haldið í Brasilíu, f Curitiba Gi-
orgio Landsmann, listamaður frá
Porto Alegre í Brasilíu, teiknaði
merkið árið 1968 til að nota það
á 5. heimsþingi LH, sem átti að
halda í Brasilfu árið 1970. Þingið
var hins vegar haldið í Evian í
Frakklandi. Lúterska kirkjan í
Brasilíu tók þá merkið sem opin-
bert tákn sitt.
Táknin þijú í merkinu em
krossinn, hnötturinn og hið
þekkta tákn höfuðborgarinnar
Brasilíu, sem merkir sókn til frek-
ara iandnáms. Tákn höfuðborgar-
innar Brasilíu var teiknað af Osc-
ar Niemeyer, brasilískum húsa-
meistara, sem skipulagði höfðu-
borgina.
Einkunnarorð heimsþingsins
verða „Ég hef heyrt hróp fólks
míns“. Orðin em úr 2. Mósebók
3.7. Gestgjafamir, lúterska kirkj-
an f B’rasilíu, óskuðu eftir ein-
kunnarorðum, sem ættu við
ástandið í Suður-Ameríku, og
vom ánægðir með valið. Séra
Káte Mahn frá Vestur-Þýzka-
landi, en hún er formaður undir-
búningsnefndar heimsþingsins,
segir að þessi biblíulegu einkunn-
arorð vísi til verka Guðs í sögu
mannsins en séu líka hróp til kirkj-
unnar um að sjá heiminn eins og
Guð sér hann. Náð Guðs frelsar
undan ánauð.
Ungverskar kirkjur
andmæla eyðileggingu
þorpa í Rúmeníu
Rúmeníustjóm hyggst leggja 7
þúsund þorp í eyði á næstu ámm
og taka undir nýtízku landbúnað.
íbúamir verða neyddir til að flytj-
ast brott og setjast að í háhýsum.
Þessi 7 þúsund þorp em hluti af
13 þúsund þorpum í Rúmeníu,
sem em byggð fólki af þýzkum
og ungverskum uppmna.
Leiðtogar 6 kirkjudeilda í Ung-
veijalandi hafa sameinazt um
ákall um að láta af þessum áform-
um. Að baki þess standa yfír 10
þúsund rúmenskir flóttamenn í
Ungveijalandi, flestir af þýzkum
og ungverskum uppmna. Þessi
áform munu valda þorpsbúum,
sem verða hraktir í burtu, mikilli
óhamingju, segja kirkjuleiðtog-
arnir. Staðir mikillar sögu og
merkra hefða verða rifnir niður
af blindri skammsýni, kirkjur,
bænahús og kirkjugarðar hverfa,
menningarverðmæti árþúsunda
týnast. „Ef þessi áform ná fram
að ganga . . .“ segja kirkjuleið-
togamir og hvetja mjög til bæna
í öllum heimsins kirkjum fyrir því
að svo megi aldrei verða.
í tilefni fermingarstarfsins og
annars æskulýðsstarfs, sem er að
byija í kirkjunni, ætlum við að
ri^a upp nokkur atriði frá nám-
skeiði, sem var haldið í Skálholti
í september í fyrra. Starfshópar
gáfu hver öðrum nokkur ráð til
vetrarstarfsins.
Fyrir æskulýðsstarfið
★ Fáum fleiri leiðtoga til að taka
þátt í starfínu.
★ Lærum þróttmeiri aðferðir við
Biblíulestra.
★ Blöndum alltaf saman gamni
og alvöru.
Fyrir sunnudagaskólann
★ Tökum fleiri hjálpartæki í
notkun, myndir, brúður, böm-
in sjálf.
★ Lærum nýja söngva.
★ Látum bömin taka þátt í fjöl-
skylduguðsþjónustum.
★ Látum bömin undirbúa næsta
sunnudagaskóla til skiptis við
og við.
Fyrir allt starfið
★ Ef eitthvað er að skulum við
tala um það og reyna að fínna
orsakimar.
★ Við skulum gefa þeim, sem
starfa, öll þau tækifæri, sem
þau óska eftir, til að reyna
sínar eigin hugmyndir.
★ Kennum nýja söngva og reyn-
★ Kennum nýja söngva vel.
★ Syngjum gömlu söngvana
líka.
★ Notum mismunandi tjáningar-
form, glæmr, loðmyndir,
slíðrur.
★ Lesum spennandi sögur, les-
um framhaldssögur.
Helí Savolainen, æskulýðs-
fulltrúi kirkjunnar í Finnlandi, var
kennari á námskeiðinu og gaf
þessi ráð:
1. Athugaðu skoðun þína á skipu-
lagi.
2. Taktu dagatalið og taktu frá
tíma til skipulagsins.
3. Sammælztu við samstarfsfólk-
ið um tima til skipulags.
4. Skrifaðu niður hugmyndir
þínar — þá manstu þær betur.
5. Athugaðu hvaða starf er þegar
í söfnuðinum, skólanum eða á
öðrum vettvangi. Það er nefni-
lega oft eins gott að efna til
samstarfs milli þeirra, sem eru
að vinna, kannski fyrir sömu
bömin.
Sigrón Proppé listmeðferðar-
fræðingur var líka kennari á nám-
skeiðinu. Hún gaf þessi ráð:
Það er meira talað til bamanna
um kristindóminn með rökum og
orðum en með því að kenna þeim
að tjá sig. Fullorðið fólk er alltaf
fyrirmjmd og bömin vilja líkjast
því. Þið eigið að kunna að hjálpa
bömunum til að tjá sig — og þið
eigið að þora það. Lesið fyrir þau,
látið þau mála á stóran pappír,
fáið fatakistur til að nota. Farið
út með bömin. Látið þau skrifa
ljóð. Og hafíð kímnigáfu. Hafíð
mikla, mikla kímnigáfu.
Biblíulestur vikunnar
Sunnudagur: Róm. 3.9-20. Enginn er réttlátur af sjálfum sér.
Mánudagur: Róm. 3.21-31. Fyrir trú en ekki verk.
Þriðjudagur: Róm. 4.1-12. Trúin til réttlætis.
Miðvikudagur: Róm. 4.13-25. Trú og náð.
Fimmtudagur: Róm. 5.1-11. Kristur dó fyrir okkur.
Föstudagur: Róm. 5.12-21. Hlýðni Krists bjargar okkur.
Laugardagur: Sálm. 54. Drottinn frelsar úr hverri neyð.