Morgunblaðið - 11.09.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Fiskurinn
f dag er röðin komin að hinu
dæmigerða fyrir Fiskamerkið
(19. febrúar — 19. mars).
Tákn þess eru tveir fiskar sem
synda hvor í sína áttina en á
milli þeirra er band sem teng-
ir þá saman. Þetta táknar að
fiskurinn er mótsagnakennd-
ur. Hann leitar oft i tvær átt-
ir og hefur úr mörgu að velja
hvað varðar leiðir i lífinu.
Hann er Qölhæfur.
Sveigjanlegur
Oft er sagt að fiskurinn búi
yfir þeim hæfiieika að geta
flotið með straumnum þegar
þannig stendur á og geta síðan
tekið á sprett og varist gegn
straumum lífsins. Hann er þvi
m.a. sveigjanlegur.
Útsjónarsamur
og viökvœmur
Fiskurinn er margsiunginn i
eðli sínu. Hann er stundum
viðkvæmur og skiptir um
skoðun eftir veðri og vindum.
Það má einnig orða þetta
öðruvisi og segja að hann sé
útsjónarsamur og séður, eða
kunni að sæta lagi og spila á
aðstæður sér í hag.
Mannþekkjari
Fiskurinn er oft það næmur á
aðra að hann á auðvelt með
að fá fólk til að gera það sem
hann vill að það geri. Hann
kann að tala við svo til hvem
sem er og segja það sem fólk
vill heyra og þar með fá aðra
á sitt band. Það eru þvi til
stórir fiskar f sjónum sem
gieypa smærri fiskana.
Laus við stifni
Þetta þýðir að í raun verðum
við að varast að gefa fastmót-
aðar lýsingar á Fiskamerkinu.
Merkið er margsiungið og
sami einstaklingurinn getur
verið misjafii, m.a. eftir tfma-
bilum. I raun er fátt fast þeg-
ar Fiskurinn er annars vegar.
Óútreiknanlegur
Það sem er einna algengast
að sjá þegar Fiskurinn er ann-
ars vegar er þægileg og lipur
framkoma. Hann er dagfars-
prúður, en á til að vera óút-
reiknanlegur og mislyndur.
Sem betur fer er það hins
Vegar svo að þegar verri hliðin
snýr fram þá dregur hann sig
yfirleitt í hlé og lætur lítið á
sér bera.
Skilningsrikur
Áð öllu jöfnu er Fiskurinn
viðsýnn og skiiningsríkur.
Hann lendir því oft ( hlutverki
hlustandans og þess sem tekur
á móti vandamáium vina
sinna. Á hinn bóginn er næm-
leikinn stundum það mikill að
hann forðast vandamál til að
vemda sjálfan sig.
Takmarkalaus
Einn helsti hæfileiki Fisksins
er fólginn í aðlögunarhæfni
eða þvi að geta fallið inni svo
til hvaða umhverfí sem er.
Þetta á rætur að rekja til
sveigjanleika, næmleika og
imyndunarafls. Ég hef undan-
farið hugsað mikið um það að
eitt helsta einkenni Fisksins
sé fólgið í takmarkaleysi, í þvi
að hann er án landamæra.
Þetta lýsir sér m.a. þannig að
hann dæmir ekki, heldur reyn-
ir að taka á móti og skilja.
Hann er forðómalaus og laus
við stffni og býr ekki til veggi
á milli sfn og annarra.
TréÖ sem svignar
Fiskurinn er því mjúkur og
eftirgefanlegur, en samt sem
áður oft klókur. Hann bakkar,
sætir lagi og kemur aftur.
Hann er þvi ekki mjúkur í
þeirri merkingu að vera veik-
ur, þvert á móti, enda segir
einhvers staðar að tréð sem
svignar undan storminum sé
sterkast, þvf það rís upp aft-
ur, en brotnar ekki.
BRENDA STARR
UÓSKA
FERDINAND
Þakka þér fyrir frú, okkur Þeir hafa hætt við að skera Sögðu þeir af hveiju?
þykir vænt um þetta ... i'nata upp.
HUNDAR HAFA EKKI
HNÉ!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vamarstefíð í spili dagsins
er gamalkunnugt.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁD5
¥74
♦ DG1092
♦ ÁD4
Austur
... 4 984
¥ KD9632
♦ Á7
♦ 85
Suður
♦ KGIO
¥ÁG10
♦ 8643
♦ KGIO
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 hjarta 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Útspil: Hjartaátta.
Sagnhafi sér átta slagi og
verður að brjóta tigulinn til að
fá þann niunda. Til þess hefur
hann þó tæplega tíma, því vöm-
in verður skrefínu á undan að
fría hjartað. Þó er von, ef austur
misstígur sig í fyrsta slag —
lætur drottninguna.
Austur fær að eiga þann slag
og þá áttar hann sig líkléga á
mistökunum. Innkoma vesturs á
tigulkóng fer fyrir lftið; hann á
ekki hjarta til og vömin tapar
tíma f kapphlaupinu um að fría
liti.
Austur átti auðvitað að láta
hjartaníúna duga f fyrsta slag.
Suður neyðist til að drepa og
vestur heldur hjartafimmunni og
getur því brotið hjartað þegar
hann kemst inn á tígul.
Vestur
♦ 7632
¥85
♦ K5
♦ 97632
SKÁK
Umsjón Margeir
. Pétursson
Á hinu árlega opna móti í Vest-
ur-Berlín í sumar kom þessi staða
upp í skák austurrfska alþjóða-
meistarans Klinger, sem hafði
hvítt og átti leik, og V-Þjóðverjans
Löffler.
23. Rd6! (Þetta er mun nákvæm-
ara en 23. exf5 — Bxf5, 24. Rd6,
því þá gæti svartur reynt 24. —
Bxh3) 23. - Dd7 (Nú hlýtur
svartur að tapa liði, þvi drottning
hans missir valdið á riddaranum
á c4. Það var þó ekki betra að
taka riddarann: 23. — exd5, 24.
exf5 - Bxf5, 25. Bxd5+ - Kh8,
26. Dxh7+ - Bxh7, 27 g6 og
mátar, eða 25. - Kf8, 26. Hfl)
24. exf5 - Bxf5, 26. Rxe7+ -
Dxe7, 26. Dxc4 - Hbc8, 27 Dh4
— Hxc2, 28. Rd4 og svartur gafst
upp. Klinger er fremstur austur-
rískra skákmanna um þessar
mundir. Hann var einn af sigur-
vegurunum í Berlín og á atskák-
mótið á Spáni í vor var hann sá
eini sem náði að leggja Anatoly
Karpov að velli.